Fréttablaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
ÚTSKRIFTARTÓNLEIKAR Petra
Spielvogel, mezzózópran og píanóleikari,
heldur útskriftartónleika frá tónlistardeild
Listaháskólans í Íslensku óperunni klukk-
an 20.00.
DAGURINN Í DAG
2. maí 2005 – 110. tölublað – 5. árgangur
ALMENNINGUR HITTI EINKA-
VÆÐINGARNEFND Agnes Bragadóttir
og Orri Vigfússon, fulltrúar Almennings ehf.,
fóru á fund einkavæðingarnefndar í við-
skiptaráðuneytinu í gærmorgun og afhentu
þar umboð frá 1.800 einstaklingum um að
fá afhent gögn framkvæmdanefndarinnar og
Morgan Stanley um sölu Símans. Sjá síðu 2
DÓMSTÓLL DÆMIR GEGN VIRK-
UM LÍFEYRISRÉTTINDUM Skerðing
á lífeyri fyrrverandi starfsmanns Seðlabank-
ans fer fyrir Hæstarétt á næstunni. Í lög-
fræðiáliti um eftirlaun ráðherra, þingmanna
og dómara er varað við skerðingu á eftir-
launaréttindum þeirra sem þegar þiggja þau.
Sjá síðu 2
TUGMILLJÓNIR Í LEIT AÐ VERU-
STAÐ LAXA Veiðimálastofnun ætlar að
afhjúpa leyndardóminn um verustað laxa í
úthöfunum. Tækjavæddum gönguseiðum
verður sleppt í vor. Rannsóknin kostar 70 til
80 milljónir króna. Sjá síðu 4
KRÖFUGÖNGUR OG CASTRO-
RÆÐUR Milljónir manna úti um allan
heim héldu í gær alþjóðlegan baráttudag
verkalýðsins hátíðlegan með margvíslegum
hætti. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
● fasteignir ● hús
Heimsveldiskók
og kaffi
Tómas R. Einarsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
76%
20-49 ára fólks á sv-
horninu lesa Fréttablaðið
á fimmtudögum.*
Náðu til fólksins sem er að
leggja drög að víðtækri
neyslu helgarinnar.
*Gallup febrúar 2005
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ÍRAK, AP Uppreisnarmenn í Írak
héldu í gær áfram árásum til að
bjóða nýmyndaðri ríkisstjórn
landsins birginn. Tuttugu Írakar,
flestir Kúrdar, biðu bana og
minnst 30 særðust síðdegis í bíl-
sprengjutilræði í útför í Kirkuk í
norðurhluta landsins. Fyrr um
daginn höfðu að sögn lögreglu að
minnsta kosti tíu Írakar látið líf-
ið og á þriðja tug særst í
sprengju- og skotárásum.
Þá gerðist það einnig í gær að
hermenn handtóku menn suður
af Bagdad, sem grunaðir eru um
að hafa verið viðriðnir brottnám
Margaret Hassan, bresks hjálp-
arstarfsmanns, sem talin er hafa
verið myrt í fyrra. Við handtök-
una fundust munir sem líklegt er
talið að hafi tilheyrt Hassan.
Enn fremur var birt mynd-
band sem sýnir ástralskan gísl
biðja um að bandaríska herliðið
yfirgefi Írak, ella verði hann
tekinn af lífi.
Að minnsta kosti 110 manns
hafa látið lífið í árásum uppreisn-
armanna í Írak síðan á föstudag,
en sýnt þykir að þessi hrina
árása sé hugsuð af hálfu upp-
reisnarmanna til að sýna að ný-
mynduð ríkisstjórn Íraks sé því
verkefni ekki vaxin að koma á
friði og reglu í landinu. ■
● sagði vei í staðinn fyrir jey
Guðmundur Þór Kárason:
▲
SÍÐA 34
Ljær Sigga sæta
rödd sína
VEÐRIÐ Í DAG
ÞAÐ MÁ REIKNA MEÐ EINHVERJ-
UM VINDI víða á landinu í dag, jafnvel
strekkingi og úrkomu vestanlands. Sjá síðu 4
VIÐSKIPTI Breska verslanakeðjan
Mosaic Fashions sem er meðal
annars í eigu Baugs og KB banka
hyggur á hlutafjárútboð hér á
landi og skráningu í Kauphöll Ís-
lands í beinu framhaldi. Það yrði
fyrsta skráning félags af erlend-
um uppruna hérlendis.
Mosaic hyggst afla 4,8 millj-
arða króna í útboðinu og selja
hlutina til fagfjárfesta og almenn-
ings. Hagnaður Mosaic fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði, eða
EBITDA, var 6,3 milljarðar og
miðað við þá upphæð má gera ráð
fyrir að félagið verði í hópi átta
stærstu félaga Kauphallarinnar
með markaðsvirði yfir 30 millj-
arða króna.
Mosaic rekur 600 verslanir og
eru flestar þeirra í Bretlandi, en
félagið hefur á undanförnum miss-
erum verið að sækja fram á al-
þjóðamarkaði og rekur nú verslanir
víða um heim undir merkjum Oasis,
Coast, Karen Millen og Whistles.
Derek Lovelock, forstjóri Mosa-
ic og einn eigenda, segir marga
kosti liggja í því fyrir Mosaic að
skrá sig hér á landi. „Við yrðum
frekar stórir á markaði hér miðað
við það sem við værum í Bretlandi
og mikil viðskipti með bréfin.“
Baugur keypti Oasis ásamt
stjórnendum félagsins árið 2003 og
hefur félagið verið í örum vexti og
ræður nú fjórum vörumerkjum.
Derek segir að auk þess sem fjögur
merki geti samnýtt stoðdeildir
felist einnig áhættudreifing í fjölda
vörumerkjanna.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, fagnar áhuga
Mosaic á skráningu hér á landi.
Hann segir tilkomu Mosaic viður-
kenningu á gæðum markaðarins
hér, auk þess sem hún veki athygli
erlendra fjárfesta og fyrirtækja á
Kauphöllinni. Stefnt er að skrán-
ingu Mosaic fyrir júnílok.
- hh
Bresk tískukeðja vill
í íslenska kauphöll
Breska tískuvörukeðjan Mosaic hyggur á hlutafjárútboð til fagfjárfesta
og almennings og skráningar í Kauphöll Íslands. Mosaic yrði meðal tíu
stærstu fyrirtækjanna í Kauphöll Íslands.
Afnám stimpilgjalda:
Óréttlátur
skattur
STJÓRNMÁL Pétur Blöndal, formað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, ætlar að ná samstöðu
meðal þingflokka um að frumvarp
Margrét Frímannsdóttur um af-
nám stimpilgjalds við endurfjár-
mögnun lána verði lögfest fyrir
sumarfrí Alþingis, eins og sagt
var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær.
„Ég er mjög glöð með þetta og
ég hef trú á því að Pétur nái frum-
varpinu í gegn því hann er mjög
fylginn sér. Ég vil náttúrlega að
stimpilgjöld verði afnumin í heild
sinni því það er mikil kjarabót
fyrir bæði fjölskyldur og fyrir-
tæki. Stimpilgjöld eru hrikalega
óréttlátur skattur en þetta er spor
í rétta átt,“ segir Margrét. - lkg
Átökin í Írak:
Tugir Íraka falla í tilræðum
1. MAÍ Fjölmennt var í 1. maí göngunni í miðbæ Reykjavíkur í gær. Jafnt ungir sem aldnir lögðu leið sína í miðbæinn til að berjast fyrir
hinum ýmsu hitamálum í þjóðfélaginu. Á myndinni sést Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sem hélt ávarp á útifundi verkalýðsins á
Ingólfstorgi eftir gönguna. Í ávarpi sínu hvatti Ögmundur verkalýðinn til að snúa vörn í sókn gegn auðmönnum landsins. Sjá síðu 14.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
SPRENGT Í BAGDAD
Vegfarendur í Bagdad skoða flak banda-
rísks herbíls sem sprengdur var í gær.
SNIGLAR Á STJÁ
Eins og sjá má var fjölbreytni fáka og
knapa mikil í hópakstrinum.
Hópakstur bifhjólamanna:
Vorinu
fagnað
BIFHJÓL Sniglar, Bifhjólasamtök
lýðveldisins, stóðu sem endranær
fyrir hópakstri bifhjólamanna um
Reykjavík á fyrsta maí. Um 300
vélfákaknapar mættu niður á
Granda um miðjan daginn og
héldu í halarófu sem leið lá austur
í gegnum borgina og víðar um
höfuðborgarsvæðið. Með hóp-
akstrinum vilja Sniglarnir meðal
annars minna bílaökumenn á að
nú er bifhjólavertíðin hafin eftir
vetrardvalann.
Íslenskum bifhjólaeigendum
fer sífjölgandi. Það sem af er
þessu ári hafa hátt í sex hundruð
hjól verið flutt til landsins. - aa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
M
YN
D
/A
P