Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 14
14 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Ekki var rætt um ver›hugmyndir bjó›enda um Landsbankann fyrr en bjó›endur bentu sjálfir á fla› undir lok söluferlisins. fiá var gripi› til fless a› setja inn í ferli› „millistig” flar sem skila ætti inn ver›hugmyndum. Sigrí›ur Dögg Au›unsdóttir heldur hér áfram a› rekja sögu einkavæ›ingar bankanna og segir frá flví hvernig framkvæmdanefndin var notu› til a› framkvæma vilja rá›herranna. Íupphafi árs 2001 hafðiráðherranefndin, sem í sátuDavíð Oddsson forsætisráð- herra, Geir H. Haarde fjármála- ráðherra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, falið framkvæmdanefnd um einkavæðingu að undirbúa sölu kjölfestuhlutar í Landsbankanum til erlends fjárfestis. Nefndin lagði til að stór hluti í bankanum, þriðjungur hið minnsta, yrði seldur til kjölfestu- fjárfestis með forvali og síðan lokuðu útboði. Skilyrði var að sal- an á eignarhlutnum leiddi til auk- innar samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði og yki fjár- magnshæfi hans. Nefndin taldi að sala til erlends banka hefði meðal annars jákvæð áhrif á fjármálamarkaðinn og hagkerfið. Lögð yrði áhersla á að eftirstandandi hlutur ríkisins yrði seldur almenningi og fagfjárfest- um, þó ekki fyrr en sölu til kjöl- festufjárfestis væri lokið. Söluferlið í gang fyrir alvöru Í júnílok 2001 var auglýst eftir ráðgjafa til sölunnar. Í tilkynn- ingu frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu 10. ágúst 2001 kem- ur fram að tilboð um ráðgjöf hafi borist frá sex fyrirtækjum og 17. ágúst var tilkynnt um það að al- þjóðlegi fjárfestingarbankinn HSBC hefði verið valinn. HSBC gerði tillögur að aðgerðaáætlun fyrir sölu Landsbankans fyrir framkvæmdanefndina í ágúst og september 2001. Í byrjun október var söluferlið sett í gang með því að senda bréf til valdra banka. Í október og nóv- ember var haft samband við á annan tug banka og þeim gefinn kostur á frekari upplýsingum um Landsbankann. Vonbrigði yfir dræmum áhuga Tveir erlendir bankar lýstu yfir áhuga á frekari viðræðum, en hinn dræmi áhugi olli fram- kvæmdanefndinni vonbrigðum. HSBC ráðlagði að auglýsa ekki að nýju eða lengja tímafrestinn þar sem meðal annars mætti rekja dræma þátttöku til erfiðs efnahagsástands sem myndaðist í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum 11. september 2001. Hinn 27. nóvember 2001 sendi framkvæmdanefndin tilkynningu inn á Verðbréfaþing um að tíma- frestur sem HSBC hefði gefið hugsanlegum kjölfestufjárfestum til að tilkynna áhuga sinn á bank- anum væri liðinn. Ákveðið hefði verið að halda kynningarfundi með þeim sem þess óskuðu. Þeir sem sýndu áhuga hefðu óskað eftir nafnleynd, sem fallist hefði verið á. Framkvæmdanefndin hóf við- ræður við erlendu bankana tvo sem höfðu sýnt áhuga. Ákveðið var að halda áfram viðræðum við báða bankana í stað þess að velja annan þeirra og vonaðist fram- kvæmdanefndin til að það yrði til þess að þannig mætti viðhalda samkeppni þeirra á milli. HSBC reyndi samtímis árangurslaust að opna fyrir viðræður við fleiri að- ila eftir sínum leiðum. Sölu frestað Áætlað hafði verið að í lok nóvem- ber 2001 lægju fyrir tilboð í bank- ann. Það gekk hins vegar ekki eftir og tilkynnti framkvæmda- nefndin 21. desember 2001 að vegna erfiðra markaðsskilyrða væri ljóst að ekki myndi ganga eftir að sala á kjölfestuhlut í Landsbankanum færi fram fyrir árslok. „Vegna þessa hefur verið ákveðið að fresta frekari sölu- kynningu þar til síðar,“ sagði í til- kynningunni. Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra sagði í viðtali við fjölmiðla við þetta tækifæri að viðræður hefðu litið vel út í upp- hafi en markaðsaðstæður erlendis hefðu versnað mjög á miðju tíma- bilinu þegar hryðjuverkaárásirn- ar á Bandaríkin dundu yfir. Það hefði verið ein helsta ástæðan fyr- ir því að salan hefði ekki tekist í þessari lotu. Hins vegar fylgdust stjórnvöld grannt með aðstæðum á markaði og ætluðu að selja um leið og tækifæri gæfist og tilboð bærust sem fælu í sér gott verð. Framkvæmdanefndin hóf því næst undirbúning að sölu 20 pró- senta hlut ríkisins í bankanum sem selja átti á innlendum mark- aði 14. júní 2002. Á þessum tíma höfðu tilraunir til að selja Símann nýverið farið út um þúfur eftir um tveggja ára undirbúningsvinnu framkvæmda- nefndar um einkavæðingu og til- heyrandi fjárfestingu af hendi ríkissjóðs. Í lok janúar 2002 sagði Hreinn Loftsson sig úr framkvæmda- nefnd og tók Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í forsætisráðu- neytinu, við sæti hans. Auk þess að sinna formennsku í nefndinni hafði Hreinn starfað undanfarin ár sem stjórnarformaður Baugs. Hreinn gaf þá skýringu á úrsögn sinni að Davíð Oddsson forsætis- ráðherra hefði í umræðum á Al- þingi um miðjan janúar deilt hart á Baug og stjórnendur þess. Þau ummæli hefðu orðið til þess að Hreinn teldi sér í raun ókleift að sitja áfram í framkvæmdanefnd. Lægra útboðsgengi en eðlilegt þótti Bréfin í Landsbankann voru seld í gegnum viðskiptakerfi Verð- bréfaþings Íslands. Ákveðið hafði verið að selja þau á markaðsverði miðað við gengi á þeim tíma. Landsbankinn setti sjálfur inn sölutilboð í Kauphöllinni og kann- aði jafnframt áhuga fagfjárfesta og miðlaði hlutum til þeirra. Eftir að eftirspurn hafði verið greind var útboðsgengið var ákveðið 3,50 fyrstu þrjá daga út- boðsins en gert var ráð fyrir að útboðið gæti staðið í einn mánuð. Útboðinu lauk hins vegar á fimmt- án mínútum. Enginn mátti kaupa meira en 4 prósent af heildar- hlutafé Landsbankans en sölurnar voru um 90 alls. Ríkisendurskoðandi hefur bent á að gengið hafi á sama tíma farið í 3, 69 á markaði og því hefði ekki verið óeðlilegt að byrja á ívið hærra gengi en 3,5. Landsbankinn hafði dagana fyrir útboðið kynnt bankann og athugað hvaða verð stærri aðilar voru tilbúnir að greiða, það er, í óformlegum við- ræðum. Heildarsöluverð bréfanna var 4.792 milljarðar. Meðalgengi á bréfum í Landsbankanum sama dag og útboðið fór fram var 3,70, eða talsvert hærra en útboðsgeng- ið. Gengi bréfanna fór ekki niður fyrir 3,63 næstu sjö daga á eftir. Ef útboðsgengið hefði verið hið sama og lægsta gengi í vikunni á eftir hefði ríkissjóður fengið um 178 milljónum króna meira fyrir hlutinn. Ef útboðsgengið hefði verið 3,60 hefði ríkið fengið um 137 milljónum króna meira. Lykilmennirnir í bankaráði á þessum tíma voru Helgi S. Guð- mundsson formaður og Kjartan Gunnarsson. Símtal til Davíðs breytti banka- sölunni Tæpum tveimur vikum eftir að útboðið á 20 prósenta hlut í Lands- bankanum fór fram, eða í lok júní 2001, barst framkvæmdanefnd um einkavæðingu bréf frá Björgólfi Guðmundssyni, syni hans, Björgólfi Thor Björgólfs- syni, og Magnúsi Þorsteinssyni, hópi sem síðar var nefndur Sam- son-hópurinn. Í bréfinu óskuðu þremenningarnir eftir viðræðum við stjórnvöld um kaup á eftir- standandi hlut ríkissjóðs í öðrum hvorum ríkisbankanna. Forsaga þessa bréfs er sú að Björgólfur Thor Björgólfsson hafði hitt einn af forkólfum HSBC í boði í London vorið 2002 og kom- ist að því að HSBC væri ekki leng- ur að leita að kjölfestufjárfesti vegna Landsbankans, heldur væri ætlunin að setja bankann á al- mennan markað innan skamms. Í kjölfarið hringdi Björgólfur Guðmundsson í Davíð Oddsson og gerði honum grein fyrir áhuga sínum á því að kaupa annaðhvort Búnaðarbankann eða Landsbank- ann. Þá strax gerði Björgólfur Davíð grein fyrir því að feðgarnir hefðu meiri áhuga á Búnaðar- bankanum en Landsbankanum. Björgólfur ræddi það við Davíð hvernig best væri að koma söluferlinu af stað og spurði með- al annars hvort Davíð vildi að feðgarnir kæmu fram sem fjár- festar í gegnum HSBC í London. Niðurstaðan var hins vegar sú að þeir myndu senda framkvæmda- nefnd bréf þar sem þeir gerðu formlega grein fyrir áhuga sínum á því að eignast annan hvorn bankann. Því hefur verið haldið fram að uppkast að bréfinu hafi verið gert í stjórnarráðinu, það síðan sent til Björgólfs sem hafi komið því formlega áfram til framkvæmdanefndarinnar. Samson vildi Búnaðarbankann Björgólfsfeðgar höfðu haft mun meiri áhuga á að kaupa ráðandi hlut í Búnaðarbankanum en Landsbankanum. Björgólfur Guð- mundsson staðfesti þetta meðal annars á starfsmannafundi í Landsbankanum á Akureyri eftir að kaupin voru yfirstaðin. Þar sagði hann að hann hefði alltaf haft meiri áhuga á Búnaðarbank- anum vegna þeirra stjórnenda sem þar voru. Hins vegar hafi honum ekki verið leyft að kaupa Búnaðarbankann og því hafi hann keypt Landsbankann í staðinn. Þess í stað hafi hann keypt alla helstu stjórnendur Búnaðarbank- ans yfir í Landsbankann eftir að kaupin fóru fram. Strax eftir að bréf Samson- hópsins barst framkvæmdanefnd var söluferli bankanna kippt úr höndunum á nefndinni. Verklags- reglur framkvæmdanefndarinnar voru settar til hliðar. Steingrímur Ari Arason gagnrýndi þessi vinnubrögð mjög þegar hann sagði sig úr nefndinni þremur mánuðum síðar. Foringjar og fótgönguli›ar Margir komu vi› sögu í bankasölunni, sumir st‡r›u atbur›arásinni – a›rir eltu. Tekist var á um mikla hagsmuni. Hótanir, ósætti, átök eru allt or› sem hægt er a› nota um samskiptin - jafnvel innan ríkisstjórnarinnar. DAVÍÐ ODDSSON »Vildi frekar að Samson keypti Landsbankann en Búnaðar- bankann. GEIR H. HAARDE » Studdi vilja sjálfstæðis- manna að Samson keypti Landsbankann. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON » Tók fram fyrir hendurnar á framkvæmda- nefnd í sölunni. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR » Mikið atriði að einkavæðing bankanna mistækist ekki. RÁÐHERRANEFNDIN » ÓLAFUR DAVÍÐSSON »Ráðuneytis- stjóri forsætis- ráðuneytisins. HREINN LOFTSSON » Hætti áður en Samson sendi bréfið. STEINGRÍMUR ARI ARASON » Reyndi að viðhafa rétt vinnubrögð. JÓN SVEINSSON » Gleymdi að biðja bjóðendur að skila inn verðtilboðum. BALDUR GUÐLAUGSSON » Tók við af Steingrími Ara í nefndinni. SÆVAR ÞÓR SIGURGEIRSSON » Lét að stjórn ráðherra í nefndinni. FRAMKVÆMDANEFNDIN » ÓLAFUR ÓLAFSSON » Vildi kaupa Landsbanka fremur en Búnaðarbanka. ÓSKAR H. GUNNARSSON » Stjórnarfor- maður Andvöku og Samvinnu- trygginga. MARGEIR DANÍELSSON » Framkvæmda- stjóri Samvinnu- lífeyrissjóðsins. GEIR MAGNÚSSON » Forstjóri Olíu- félagsins og síðar Kers. KRISTJÁN LOFTSSON » Stjórnarfor- maður Kers með mikil áhrif. S-HÓPURINN » EIRÍKUR JÓHANNESSON » Þekkti Lands- bankann vel og vildi helst kaupa hann. ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON » Fékk boð um að sækjast frekar eftir Búnaðarbanka. BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON » Vildi helst kaupa Búnaðar- banka en hlýddi Davíð. BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON » Vildi fá forskot á kaupendur Búnaðarbanka. MAGNÚS ÞORSTEINSSON » Hætti í gær í Samson og seldi feðgunum sinn hlut. KALDBAKUR » SAMSON » Gleymdist a› ræ›a ver›i› STRÍÐIÐ UM BANKANA » ANNAR HLUTI ÞÓRÐUR MAGNÚSSON » Útilokaður úr hópi endanlegra bjóðenda. BJARNI ÁRMANNSSON » Bankastjóri Íslandsbanka, sem var útilokaður. HELGI S. GUÐMUNDSSON » Formaður bankaráðs Landsbankans. KJARTAN GUNNARSSON »Lykilmaður í bankaráði Landsbankans. AÐRIR BJÓÐENDUR » BANKARÁÐ LANDSBANKANS »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.