Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						2 30. maí 2005 MÁNUDAGUR

Fyrsti hluti líbönsku kosninganna haldinn í gær:

Búist vi? sigri stjórnarandstæ?inga

BEIRÚT, AP Fyrsti hluti líbönsku

þingkosninganna hófst í gær en

þá var kosið í höfuðborginni

Beirút. Fyrstu spár benda til að

að andstæðingar stjórnarinnar

muni auka hlut sinn verulega.

Þingkosningar fara fram í Lí-

banon í þessum mánuði og var

fyrsti hluti þeirra haldinn í

Beirút í gær. Þetta eru fyrstu

kosningarnar í landinu í áraraðir

sem eru ekki haldnar undir vök-

ulu auga Sýrlendinga en síðustu

sýrlensku hermennirnir yfirgáfu

landið á dögunum eftir mikinn

þrýsting frá Líbönum sjálfum og

stórs hluta alþjóðasamfélagsins í

kjölfar morðsins á Rafik Hariri,

fyrrverandi forsætisráðherra Lí-

banons.

Kjörsókn í gær var aðeins 28

prósent en að líkindum hefur

dregið úr áhuga fólks á kosning-

unum að sjálfkjörið var í níu af

þeim nítján þingsætum sem kos-

ið var um. Úrslit kosninganna í

gær munu líklega liggja fyrir í

dag en útgönguspár benda til að

stjórnarandstaðan  hafi unnið

stórsigur. Fylgisaukningin

skýrist af mótmælum hennar

gegn afskiptum Sýrlendinga af

líbönskum innanríkismálum. 

Næstu þrjá sunnudaga verður

svo kosið um afganginn af þing-

sætunum 128. ?

Aserskur maður tók son sinn í gíslingu:

Hóta?i a? kveikja 

í sér og syninum

SVÍÞJÓÐ Maður ruddist inn á

sjúkrahús í Blekinge í Karl-

skrona-héraði í Svíþjóð í gær og

tók son sinn í gíslingu. Hann hót-

aði að kveikja í sér og syninum.

Maðurinn er 33 ára gamall

Aseri en í nóvember síðastliðnum

ákváðu sænsk stjórnvöld að vísa

honum og fjölskyldu hans úr landi

og aftur til Aserbaídsjan. Sá úr-

skurður var staðfestur í þarsíð-

ustu viku. 

Talið er að í örvæntingu sinni

vegna úrskurðarins hafi maður-

inn ákveðið að grípa til örþrifa-

ráða. Hann óð því inn á sjúkrahús-

ið í Blekinge í gærmorgun þar

sem fimmtán ára gamall sonur

hans er vistaður. Í farteskinu

hafði maðurinn tvær fullar flösk-

ur af glærum vökva sem talinn er

vera bensín eða eldsneyti af öðru

tagi að því er dagblaðið Dagens

Nyheter hermir. Maðurinn fór inn

á herbergi sonar síns með flösk-

urnar, læsti sig þar inni og hótaði

að kveikja í.

Talsverð skelfing greip um sig

á sjúkrahúsinu vegna þessarar

uppákomu. Lögregla og starfsfólk

hófust þegar handa við að rýma

þá álmu hússins sem feðgarnir

halda sig í og síðdegis var svo

túlkur fenginn á vettvang til að

tala um fyrir manninum.

Lyktir þessa dapurlega máls

voru ekki ljósar þegar blaðið fór í

prentun í gærkvöld. ?

Krefjast jafnrar

skiptingar á R-lista

Vinstri-grænir ætla a? halda vi?ræ?um um framtí? R-listans áfram en eru 

andvígir prófkjöri. Samfylking og Framsókn segja ákvör?un fleirra ekki koma

sér á óvart. Vinstri-grænir vilja jafna sætaskiptingu.

SVEITARSTJÓRNARMÁL Vinstri hreyf-

ingin - grænt framboð vill halda

áfram viðræðum um framtíð R-

listans í Reykjavík. Félagsfundur

hjá VG í Reykjavík samþykkti

ályktun þessa efnis í gær en ljóst

er að flokkurinn leggur þunga

áherslu á jafna skiptingu sæta á

hugsanlegum framboðslista R-list-

ans.

?Við reiknum með því að R-list-

inn verði mannaður samkvæmt

jafnræði milli flokka eins og verið

hefur hingað til og lítum á það sem

eina af burðarstoðum listans,? seg-

ir Þorleifur Gunnlaugsson, vara-

formaður stjórnar VG í Reykjavík

og fulltrúi flokksins í viðræðu-

nefnd um framtíð R-listans.

Hann segir hugmyndir Sam-

fylkingarinnar um prófkjör ósann-

gjarnar þar sem flokkurinn hafi

meðal annars stundað mikla smöl-

un fólks í flokkinn að undanförnu

og því verði prófkjör aldrei haldið

á jafnréttisgrunni. ?Þar að auki

vilja Vinstri-grænir að flokkarnir

verði sýnilegir í þessu samstarfi

en ekki ósýnilegir,? segir Þorleif-

ur. Hann segir skiptar skoðanir

innan flokksins um stöðu óháðra á

listanum og enga ákvörðun tekna

um það mál. 

Páll Halldórsson, fulltrúi Sam-

fylkingarinnar í viðræðunefnd R-

listaflokkanna, hafði það eitt um

ályktun Vinstri-grænna að segja

að hann hefði alltaf gert ráð fyrir

að viðræðum yrði haldið áfram og

að hann myndi svara öðrum tillög-

um Vinstri-grænna á réttum vett-

vangi.

Þorláki Björnssyni, fulltrúa

framsóknarmanna í viðræðu-

nefndinni, finnst ákvörðun

Vinstri-grænna sjálfsögð og það

hefði komið honum á óvart ef sú

ákvörðun hefði farið á annan veg.

?Mér finnst þetta engin frétt,?

segir Þorlákur sem finnst sjálf-

sagt að láta reyna á viðræður um

samstarf en ekki sé útséð með að

það verði R-listi. 

Hann segir R-listann hafa lyft

grettistaki í mörgum málum og að

því leyti eftirsjá að honum ef ekki

næst samkomulag. Hins vegar sé

ekki hægt að dvelja við fortíðina

og því sé spurningin nú hvort R-

listinn eigi rétt á sér fyrir framtíð-

ina.

Næsti fundur viðræðunefndar

R-listaflokkanna verður á morg-

un.

- ssal/sgi

DANIR ANDVÍGIR HVALVEIÐUM

Aðeins fimm prósent Dana segjast

hlynnt hvalveiðum en 53 prósent

eru þeim algerlega andvíg. Jyl-

landsposten hermir auk þess að 66

prósent þjóðarinnar telja að danska

ríkisstjórnin eigi ekki að beita sér

fyrir afnámi hvalveiðibanns á vett-

vangi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem

nú fer fram í Suður-Kóreu.

BENEDIKT Í PÁFABÍLNUM Benedikt XVI

hélt í sitt fyrsta ferðalag í gær.

Fyrsta ferð páfa:

Lofar a? 

brúa bili?

ÍTALÍA, AP Benedikt XVI páfi hét

því í gær að brúa bilið milli kaþ-

ólsku kirkjunnar og rétttrúnaðar-

kirkjunnar. Í rúmlega þúsund ár

hefur verið grunnt á því góða

milli þeirra.

Páfi hélt í sitt fyrsta ferðalag í

gær, en ekki fór hann langt því

hann skrapp með þyrlu til bæjar-

ins Bari á Adríahafsströnd Ítalíu.

Þar í bæ er að finna jarðneskar

leifar heilags Nikulásar frá Myra,

sem nýtur mikilla vinsælda bæði

meðal kaþólskra og rétt-

trúnaðarkirkjunnar.

Forveri Benedikts, Jóhannes

Páll II, fór í 104 ferðir á páfaferli

sínum og hefur enginn annar páfi

verið jafn víðförull. Benedikt ætl-

ar að fylgja fordæmi hans og vera

duglegur að ferðast. ?

KOMINN TIL LANDSINS Stefán Lárus

Stefánsson forsetaritari tók á móti Kalam.

Opinber heimsókn:

Forsetar ræ?a

saman

HEIMSÓKN A. P. J. Abdul Kalam, for-

seti Indlands, kom til landsins í gær

í fyrstu opinberu heimsókn ind-

versks forseta til Íslands. Kalam

hittir Ólaf Ragnar Grímsson forseta

á Bessastöðum fyrir hádegi í dag.

Dagskrá Indlandsforseta er þétt

skipuð. Í dag ávarpar hann ráð-

stefnu í Nordica hótelinu, heimsæk-

ir Aktavis, og hittir rektor Háskóla

Íslands. Heiðurskvöldverður verð-

ur haldinn í boði forseta Íslands. 

Á morgun fundar Kalam meðal

annars með forsætisráðherra og

heimsækir Þingvelli. Indlandsfor-

seti heldur heim á leið á miðviku-

dagsmorgun. - sgi

SPURNING DAGSINS

Höskuldur Pétur, er hægt a?

gera betur?

Er ekki alltaf hægt að gera betur? Ég

skildi eftir nóg pláss til þess að einhver

gæti bætt metið.

Menntaskólinn í Reykjavík útskrifaði stúdenta á

föstudaginn. Nýtt met var slegið í meðaleinkunn

á stúdentsprófi en dúxinn, Höskuldur Pétur Hall-

dórsson, útskrifaðist með 9,90 í meðaleinkunn

sem er það hæsta sem gefið hefur verið í 159 ára

sögu skólans.

LÖGREGLUFRÉTTIR

NOREGUR

DANMÖRK

Prestskosning í Vopnafirði:

Stefán Már

næsti prestur

PRESTSKOSNING Stefán Már Gunn-

laugsson hefur verið kjörinn sókn-

arprestur á Hofi í Vopnafirði með

58 prósentum atkvæða. Þrír voru í

köri auk Stefáns, þau séra Brynhild-

ur Óladóttir, Klara Hilmarsdóttir

guðfræðingur og Þóra Ragnheiður

Björnsdóttir guðfræðingur.

Alls voru 538 á kjörskrá og kjör-

sókn var um 80 prósent. 

Stefán Már Gunnlaugsson lauk

embættisprófi frá Guðfræðideild

Háskóla Íslands árið 1999 og stund-

aði framhaldsnám í guðfræði í

Þýskalandi. Hann hefur starfað sem

fræðslufulltrúi á Biskupsstofu frá

árinu 2000. - sgi

STÁLUST Í POTTINN Lögreglan í

Keflavík hafði afskipti af

nokkrum ungmennum sem höfðu

laumað sér í heita pott sundhall-

arinnar í Sandgerði. Þá fann lög-

reglan lítið magn af marijúana og

amfetamíni við húsleit í Keflavík.

UNGLINGATEITI STÖÐVAÐ Lög-

reglan í Ólafsvík hafði afskipti af

ungum drengjum að sunnan sem

auglýst höfðu mikla unglinga-

skemmtun í yfirgefnu fisk-

vinnsluhúsi á netinu. Var teitið

kæft í fæðingu og drengirnir

sendir til síns heima.

HERMANNAVEIKIN Í RÉNUN Svo

virðist sem hermannaveikifarald-

urinn í Østfold-héraði í Noregi sé

heldur í rénun því tvo síðustu

daga hafa engin tilfelli sjúkdóms-

ins greinst á sjúkrahúsinu í Fred-

rikstad. Alls hafa 46 manns

greinst með veikina, þrír eru

þungt haldnir og þeim er haldið

sofandi í öndunarvélum.

Spellvirkjar í Múlagöngum:

Stálu slökkvi-

tækjum

LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglunni í

Ólafsfirði brá heldur betur í brún

þegar hún keyrði í gegnum Múla-

göngin aðfaranótt sunnudags.

Höfðu þá óprúttnir aðilar tekið tvö

slökkvitæki og sprautað úr þremur

en tækin eru staðsett með tvö hund-

ruð metra millibili inni í göngunum. 

Slökkvitækin eru mikilvæg ör-

yggistæki í göngum, mikið hættu-

ástand getur skapast ef kviknar í bíl

inni í þeim og slökkvitækin eru ekki

fyrir hendi. Lögreglan í Ólafsfirði

lítur málið mjög alvarlegum augum

en hún hyggst ræða við nokkra ein-

staklinga sem hún telur að geti haft

vitneskju um málið. - fgg

EKKJAN GREIÐIR ATKVÆÐI Nazek Hariri,

ekkja Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráð-

herra, lét sig ekki vanta á kjörstað. Sonur

þeirra, Saad, leiðir stjórnarandstöðuna í

kosningunum.

FRÁ FUNDI VISTRI GRÆNNA Sveinn Rúnar Hauksson, Tryggvi Friðjónsson, Álfheiður Ingadóttir og Björk Vilhelmsdóttir eru í forystusveit

Vinstri-grænna í Reykjavík.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88