Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						6 30. maí 2005 MÁNUDAGUR

Tuttugu og fimm biðu bana í árásum gærdagsins í Írak:

Al-Zarqawi sag?ur flúinn til Írans

ÍRAK Talið er að Abu Musab al-

Zarqawi, leiðtogi al-Kaída Írak,

hafi yfirgefið landið. 25 fórust í

árásum og átökum víða um landið

í gær.

Stærsta hernaðaraðgerð Íraka

síðan Saddam

Hussein var

steypt af stóli

hófst í gær. Þá

tóku hermenn að

reisa eftirlits-

stöðvar víða í

Bagdad auk þess

sem þeir réðust

inn á fjölda heim-

ila í Dora-hverf-

inu í höfuðborg-

inni þar sem grunaðir hryðju-

verkamenn eru taldir halda sig.

Það aftraði þeim ekki frá því

að halda uppteknum hætti því í

gær týndu að minnsta kosti 25 lífi

í fjölmörgum bardögum og árás-

um víða um landið. Sem fyrr

beindu uppreisnarmenn spjótum

sínum helst að lögreglustöðvum

og voru margar slíkar árásir gerð-

ar í höfuðborginni í gærmorgun,

nánast allar á sama tíma.

Í gær greindi breska dagblaðið

The Sunday Times frá því að Abu

Musab al-Zarqawi, forsprakki al-

Kaída í Írak, hefði flúið til Írans

eftir að hafa særst illa í eldflauga-

árás. Blaðið segist hafa fengið

upplýsingar sínar frá nánum sam-

starfsmanni al-Zarqawi.

Þá var skýrt frá því að jap-

anski gíslinn Akihiko Saito væri

látinn en hann var í haldi upp-

reisnarmanna. ?

Vinnuslys hafa ekki valdið fjarvistum undanfarið ár:

Auki? öryggi í álveri

Alcan í Straumsvík

ALCAN Ekkert fjarveruslys hefur

orðið í álveri Alcan í Straumsvík í

rúmt ár eða í samtals eina milljón

vinnustunda. Hefur aldrei liðið

jafnlangur tími hjá fyrirtækinu án

fjarveruslyss en þá er átt við slys

sem veldur því að starfsmaður

getur ekki mætt til vinnu næsta

dag.

Þessi árangur í öryggismálum

er með því besta sem gerist í áliðn-

aði í Evrópu að sögn forsvars-

manna Alcan í Straumsvík. Þeir

þakka þetta markvissu starfi í að

auka öryggi starfsmanna en til

samanburðar voru 50 fjarveruslys

hjá fyrirtækinu árið 1997. Hjá fyr-

irtækinu starfa að jafnaði um 500

manns.

Álverið í Straumsvík hefur

einnig ákveðið að stofna sérstakan

samélagssjóð sem hefur það hlut-

verk að styðja við margs konar

starf að samfélagsmálum. 20 millj-

ónum króna verður varið árlega til

sjóðsins en til að verkefni fái út-

hlutun þarf það að varða málefni á

sviði heilsu og hreyfingar, öryggis-

mála, umhverfismála, menntamála

og menningarmála. - ssal

Frakkar sög?u nei

vi? stjórnarskránni

Frakkar höfnu?u stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins me? afgerandi 

hætti í fljó?aratkvæ?agrei?slu í gær. Kjörsókn var jöfn og flétt allan daginn

enda var bá?um fylkingum annt um a? sinn málsta?ur yr?i ofan á í kjörinu.

PARÍS, AP Kjörsókn var prýðisgóð í

þjóðaratkvæðagreiðslunni í

Frakklandi um stjórnarskrársátt-

mála Evrópusambandsins enda

eru skoðanir fólks um plaggið

afar skiptar. Andstæðingar sátt-

málans átöldu ríkisstjórnina fyrir

gegndarlausan áróður en stuðn-

ingsmennirnir kvörtuðu undan

ómálefnalegri kosningabaráttu.

42 milljónir Frakka voru á

kjörskrá en þar af búa 1,5 milljón-

ir á frönskum yfirráðasvæðum

víða um heim sem kusu á laugar-

daginn. Strax í gærmorgun tóku

franskir kjósendur að flykkjast á

kjörstaðina 55.000 sem opnaðir

voru víðs vegar um landið. Kjör-

sókn var jöfn og þétt allan daginn

og þegar kjörstöðunum var lokað í

gærkvöld höfðu ríflega sjötíu pró-

sent þjóðarinnar greitt atkvæði.

Þetta er örlitlu meiri þátttaka en í

þjóðaratkvæðagreiðslunni um

Maastricht-sáttmálann sem hald-

in var árið 1992.

Jacques Chirac forseti kaus í

heimabæ sínum, Sarran, í Cor-

reze-héraðinu í Mið-Frakklandi en

Jean-Pierre Raffarin forsætisráð-

herra greiddi atkvæði í

Chasseneuil-du-Poitou í vestur-

hluta landsins. Líklegt er að sá

síðarnefndi verði látinn segja af

sér vegna úrslita kosninganna en

hann þykir afar óvinsæll í Frakk-

landi.

Eins og við er að búast höfðu

kjósendur margvíslegar skoðanir

á málunum. ?Valkostirnir sem við

fengum voru að segja já eða segja

já,? sagði kona á kjörstaðnum við

Bastilluna í París en hún var afar

gröm ríkisstjórninni fyrir einhliða

áróður sinn til stuðnings sáttmál-

anum. Nágranni hennar kvartaði

hins vegar yfir að í stað þess að

snúast um stjórnarskrársáttmál-

ann hefðu innanlandsmálefni og

persónur stjórnmálaleiðtoganna

verið það sem baráttan snerist

um. Enn einn kjósandi í Bastill-

unni kvaðst hafa skilað auðu þar

sem jafn sterk rök hefðu hnigið að

hvorum kostinum fyrir sig.

Næstu dagar munu svo leiða í

ljós hvaða þýðingu kosningaúr-

slitin munu hafa. Þótt Chirac

muni tæpast segja af sér er ljóst

að staða hans bæði heima og er-

lendis hefur veikst verulega.

Hafni Hollendingar einnig stjórn-

arskrársáttmálanum í sinni at-

kvæðagreiðslu á miðvikudaginn

er eru allar líkur á að þar með

verði saga hans öll. ?

Björgvin G. Sigurðsson:

Fagnar frestun

MENNTAMÁL Björgvin G. Sigurðsson,

þingmaður Samfylkingarinnar,

fagnar því að Þorgerður Katrín

Gunnarsdóttir menntamálaráð-

herra fresti fyrirhugaðri styttingu

stúdentsnámsins.

?Þær tillögur sem fram voru

komnar voru algerlega óviðunandi.

Ég styð markmiðið um að stytta

námstímann, en ekki með því að

skerða innihald stúdentsprófsins og

rýra gildi þess. Samþætting skóla-

stiganna er algert grundvallaratriði

styttingar námstíma og þar er ölll

heimavinna óunnin af hálfu ráð-

herra. Komi ráðherrann aftur fram

með nýjar tillögur þá hlýtur hún að

hlusta á þær hörðu gagnrýnisraddir

sem fram hafa komið.? ?

SJÓMENNSKA

BANDARÍKIN

           Eiga Skorrdælingar að samein-

ast nágrannasveitarfélögum

sínum?

SPURNING DAGSINS Í DAG:

Fórst þú í leikhús síðasta vet-

ur?

Niðurstöður gærdagsins á visir.is

30%

70%

Nei

Já

Farðu inn á fréttahluta visir.is 

og segðu þína skoðun

KJÖRKASSINN

KROSSABRENNUR VALDA ÓHUG

Urgur er í íbúum Durham í Norð-

ur-Karólínu eftir að þrír stórir tré-

krossar voru brenndir á miðviku-

dagskvöldið. Við einn þeirra fannst

orðsending sem undirrituð var af

kynþáttamisréttissamtökunum Ku

Klux Klan. Talsmaður samtakanna

í héraðinu neitar alfarið að brenn-

urnar hafi verið á þeirra vegum.

LÉST EFTIR GRJÓTKAST Kona í San

Diego í Kaliforníu beið bana þegar

hún fékk grjóthnullung í höfuðið

sem kastað hafði verið í gegnum

rúðu á bíl hennar á föstudagskvöld-

ið. Maður hennar ók bifreiðinni en

konan var á leið heim úr vinnu.

Steinum var kastað í fleiri bíla á

þessum slóðum þetta kvöld.

RANNVEIG RIST Forsvarsmenn álversins í

Straumsvík hafa lagt aukna áherslu á ör-

yggismál innan fyrirtækisins á undanförn-

um árum. 

GÆSLAN HERT Íraskur hermaður leitar að vopnum á samlanda sínum í höfuðborginni í

gær.

ABU MUSAB AL-

ZARQAWI Hann

er talinn halda sig

í Íran.

BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON

AFHJÚPA MINNISMERKI Minnis-

merki um drukknaða sjómenn

verður afhjúpað á Vopnafirði á sjó-

mannadaginn. Fjölskylda Bjarka

Björgólfssonar gefur minnismerkið

í minningu Þorsteins Jóns Björg-

ólfssonar sem fórst á sjó fyrir tæp-

um aldarfjórðungi.

Í MINNIHLUTA Jacques Chirac og Bernadette, eiginkona hans, greiddu atkvæði í heimabæ sínum í Mið-Frakklandi í gærmorgun. Kosn-

ingaúrslitin eru sem kjaftshögg í andlit forsetans.

F

RÉT

T

A

B

L

AÐIÐ/AP

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88