Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						10

30. maí 2005  MÁNUDAGUR

Halldór Ásgrímsson hóta?i Daví? Oddssyni a? hætta vi? einkavæ?ingu

bankanna ef VÍS yr?i selt Samson me? Landsbankanum. fia? hef?i broti? gegn

stjórnarsáttmálanum og orsaka? stjórnarslit. Björgólfur Gu?mundsson funda?i

me? S-hópnum um afdrif VÍS á?ur en hann keypti Landsbankann. S-hópurinn

kallar átökin ?Sex daga strí?i? um VÍS?. Sigrí?ur Dögg Au?unsdóttir segir hér frá

flví hve miki? vægi flessi átök höf?u í bankasölunni.

H

inn 29. ágúst var tilkynnt

um sölu Landsbankans á

hlut sínum í trygginga-

félaginu VÍS til S-hópsins en

Landsbankinn hafði frá 1997 átt

helmingshlut í VÍS á móti S-

hópnum. Þegar salan fór fram var

söluferli Landsbankans komin

langt á veg og var S-hópurinn einn

hinna þriggja hópa sem

framkvæmdanefnd um einka-

væðingu var í viðræðum við um

kaupin á hlut ríkisins í bankanum. 

Samson, sem síðar var valinn

sem kaupandi að Landsbanka-

num, gagnrýndi sölu VÍS opinber-

lega meðal annars á þeim

forsendum að sala á eign

Landsbankans í VÍS hefði farið

fram í miðju einkavæðingarferli

bankans.

Björgólfur Thor Björgólfsson,

sem ásamt föður sínum Björgólfi

Guðmundssyni og Magnúsi Þor-

steinssyni myndaði Samson,

sagði í viðtali í Morgunblaðinu 31.

ágúst  2002 að það væri ekki bara

tímasetningin á sölunni sem hon-

um þætti furðuleg. ?Mér finnst

líka undarlegt að samkeppnisaðil-

ar um kaup á hlut í Landsbankan-

um séu að kaupa út og stokka upp

eignir bankans á sama tíma og

þeir eru í samkeppni við okkur,?

sagði Björgólfur Thor.

Haft var eftir Björgólfi Thor

að ekki hefðu sömu jafnræðis-

reglur verið látnar gilda um söl-

una á VÍS og söluna á Landsbank-

anum. Þegar Samson-hópurinn

hefði lýst áhuga sínum á að kaupa

Landsbankann hefði verið ákveð-

ið að auglýsa bankann til sölu, en

það hefði ekki verið gert varðandi

VÍS. ?Þegar ekki er leitað fleiri

kaupenda getur það haft áhrif á

verðmætið,? sagði Björgólfur

Thor. ?Þetta er nákvæmlega það

sama og talað var um þegar menn

vildu auglýsa hlutinn í bankanum

þegar við sýndum áhuga. Þá var

sagt að jafnræðisregla yrði að

gilda, en hún virðist ekki gilda um

sölu á hlutnum í VÍS,? sagði hann.

Ætluðu að setja félagið á markað

Skömmu áður, eða 12. júlí, hafði

hlutafé í VÍS verið skráð á tilboðs-

markaði Kauphallarinnar. Í skrán-

ingarlýsingunni kom meðal ann-

ars fram að það væri ?yfirlýst

stefna Landsbankans að minnka

hlut sinn í VÍS en verða meðal

kjölfestufjárfesta í félaginu?.

Þetta var í samræmi við sam-

komulag sem Landsbankinn og S-

hópurinn gerðu sín á milli árið

áður um að félagið yrði skráð á

markað. Í nóvember 2001 var nýtt

hlutafé útgefið og selt starfs-

mönnum VÍS. Ætlunin var að í

framhaldi af því yrði allt hlutafé í

VÍS, að undanskildum 25 prósenta

hlut sem Landsbankinn ætlaði að

halda eftir sem stofnfjárfestir.

Eigendahóparnir tveir, Lands-

bankinn og S-hópurinn, höfðu um

langa hríð tekist á um yfirráðin í

VÍS. Frá því að Landsbankinn

keypti helmingshlut Brunabótafé-

lags Íslands í VÍS í mars 1997

hafði eigendahópinn greint á um

framtíðaráætlanir fyrirtækisins.

Markmið Landsbankamanna var

að skrá VÍS á hlutabréfamarkaði,

en segja að ekki hefði verið vilji

hjá S-hópnum fyrir því. Einna

helst hefðu Axel Gíslason, þáver-

andi forstjóri VÍS, og Geir Magn-

ússon, þáverandi forstjóri Olíufé-

lagsins og Kers, sett sig upp á

móti skráningunni.

Axel og Geir eru sagðir ekki

hafa viljað sleppa tökunum á VÍS

nema frekari breytingar yrðu

gerðar. Þær fælust í því að þegar

búið væri að gera VÍS að hlutafé-

lagi yrðu VÍS og Landsbankinn

sameinaðir og Landsbankinn

fengi greiðslu í formi hlutabréfa í

VÍS. Landsbankamenn voru þessu

mótfallnir og töldu að með þessu

væri verið að fara bakdyramegin

að einkavæðingu Landsbankans.

Það var ekki fyrr en 2001 að

samstaða náðist um þá fyrirætlan

að setja VÍS á markað. En frá-

sagnirnar af því sem á eftir kom

eru afar ólíkar eftir því hvort þær

eiga rætur sínar að rekja til

Landsbankamanna eða S-hópsins.

Segja óeiningu innan S-hópsins

Landsbankamenn halda því fram

að á þessum tíma hafi verið orðin

mikil óeining innan S-hópsins.

Ólafur Ólafsson hafi verið farinn

að seilast eftir meiri áhrifum og

mikil togstreita hafi verið innan

hópsins. Axel og Geir annars veg-

ar og Ólafur hins vegar hafi til að

mynda haft ólík viðhorf til þess að

skrá VÍS á markað. Ólafur hafi

verið hlynntur því en Axel og Geir

hafi verið því mótfallnir.

Þá er því haldið fram að aldrei

hafi ríkt sérstakir kærleiks-

straumar á milli Ólafs og Axels.

Kastast hafi í kekki þeirra á milli

þegar Axel neitaði Ólafi um að

beita Keri vegna kaupa Ólafs í SÍF

og Íslenskum sjávarafurðum.

Hins vegar hafi Axel og Geir

alltaf verið nánir.

Bent er á það að eitt hið fyrsta

sem Ólafur Ólafsson gerði þegar

S-hópurinn náði yfirráðum í VÍS

að láta Axel fara og ráða Finn Ing-

ólfsson þess í stað sem forstjóra

VÍS.

VÍS sett á markað

Landsbankamenn segja að þrátt

fyrir að samþykkt lægi fyrir um

að VÍS yrði sett á markað hefði S-

hópurinn dregið lappirnar í því

máli. Ekkert hefði þokast í þá átt-

ina fyrr en um vorið 2002, þegar

samstaða náðist um að láta verða

af því að setja fyrirtækið á mark-

að. Á þessum tíma var í undirbún-

ingi hjá ráðherranefndinni og

framkvæmdanefndinni að selja

hlut ríkisins í Landsbankanum á

almennum markaði. Ætlunin var

að selja til almennings og fagfjár-

festa og mætti enginn einn aðili

kaupa meira en þrjú til fjögur

prósent í fyrirtækinu. Var þetta í

samræmi við yfirlýsta stefnu

Davíðs Oddssonar, þáverandi for-

sætisráðherra, um að tryggja

dreifða eignaraðild á bönkunum.

Á hluthafafundi VÍS um miðjan

maí 2002 voru gerðar breytingar á

samþykktum félagsins þannig að

það uppfyllti öll skilyrði til skrán-

ingar á tilboðsmarkað Verðbréfa-

þings Íslands og 7. júní sendi VÍS

inn umsókn til Verðbréfaþings um

skráningu á tilboðsmarkað. Þar

með var ferlið komið í gang og var

áætlað að sala bréfanna hæfist 12.

júlí. Í skráningarlýsingu VÍS sem

birt var í Kauphöllinni 8. júlí kem-

ur fram að Landsbankinn stefndi

að því að það væri ?yfirlýst stefna

Landsbankans að minnka hlut sinn

í VÍS en verða meðal kjölfestu-

fjárfesta í félaginu?. Þetta var í

samræmi við yfirlýsingu bankans

frá 25. mars 2001.

Ráðherranefndin tekur u-beygju

Í millitíðinni barst framkvæmda-

nefndinni bréf frá Samson, sem

sent var í kjölfar samtals Björg-

ólfs Guðmundssonar og Davíðs

Oddssonar, þáverandi forsætis-

ráðherra. Í því lýsti Samson yfir

áhuga sínum á að kaupa hlut ríkis-

ins í Landsbankanum eða Búnað-

arbankanum. Það varð til þess að

ráðherranefndin tók u-beygju í

fyrirætlunum sínum varðandi

sölu bankanna tveggja.

Í stað þess að selja aðeins

Landsbankann fyrst og Búnaðar-

bankann síðar, var því ákveðið að

auglýsa báða bankana til sölu og

birtist sú auglýsing 10. júlí. Því er

haldið fram að bréfið frá Samson

hafi átt við báða bankana því þeir

hafi ekki síður haft áhuga á að

kaupa Búnaðarbankann. Því til

stuðnings er meðal annars bent á

að Björgólfur Thor og Björgólfur

Guðmundsson hafi átt í miklum

viðskiptum við Búnaðarbankann í

tengslum við fjárfestingar sínar

erlendis og voru í góðum sam-

skiptum við stjórnendur bankans.

Landsbankamenn segja að

sjálfstæðismönnum hefði ávallt

verið það ljóst að framsóknar-

menn myndu ekki sleppa hendinni

af Búnaðarbankanum og að þeir

væru hlynntari því að Samson

eignaðist Landsbankann. Sjálf-

stæðismenn báru traust til Björg-

ólfs Guðmundssonar og töldu að

bankanum væri vel fyrir komið í

höndum hans.

Framsóknarmenn hefðu hins

vegar gert það að skilyrði fyrir

því að Samson fengi að kaupa

Landsbankann, að VÍS fylgdi ekki

með í sölunni.

Þann 12. júlí var heildarhlutafé

VÍS skráð á tilboðsmarkað Kaup-

hallarinnar í samræmi við þann

samning sem Landsbankamenn

og S-hópurinn höfðu gert sín á

milli og hófust viðskipti með

hlutabréf félagsins þann dag.

Viku síðar var hins vegar tekin

ákvörðun um að fresta sölu hluta-

fjár frumherja í VÍS þar til af-

komutilkynning félagsins hefði

verið birt og kynnti Axel Gísla-

son, forstjóri VÍS, hluthafahópun-

um tveimur um þá frestun. Mið-

vikudaginn 21. ágúst var af-

komutilkynning félagsins birt.

Halldór hótaði að stöðva 

einkavæðingarferlið

Veruleg átök áttu sér stað milli

Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs

Oddssonar á þessum tíma og

segja þeir sem störfuðu í miklu

návígi við þá að ríkisstjórnarsam-

starfið hafi nánast verið í upp-

námi.

Halldór hafi hótað Davíð að

stöðva einkavæðingarferli bank-

anna nema Landsbankinn seldi

hlut sinn í VÍS. Ef Halldór hefði

stöðvað einkavæðingarferlið

hefði það verið brot á stjórnar-

sáttmálanum og Davíð hefði orðið

að slíta stjórnarsamstarfinu.

Landsbankamenn segja að

Davíð hafi beygt sig undir vilja

Halldórs varðandi söluna á VÍS í

því skyni að stofna einkavæðing-

arferlinu og um leið ríkisstjórnar-

samstarfinu ekki í hættu. Aðilar

tengdir Framsóknarflokknum, S-

hópurinn, hafi eignast VÍS ? en

það hafi verið nauðsynlegur liður

í áætlun S-hópsins um að eignast

Búnaðarbankann. Landsbanka-

menn segjast hafa fallist á þessa

málamiðlun nauðbeygðir, en jafn-

framt réttlætt niðurstöðuna með

þeim hætti að þeim hafi tekist

ætlunarverk sitt ? að þröngva S-

hópnum til þess að skrá VÍS á

Foringjar og fótgönguli?ar

Margir komu vi? sögu í bankasölunni, sumir

st?r?u atbur?arásinni ? a?rir eltu. Tekist var á um

mikla hagsmuni. Hótanir, ósætti, átök eru allt or?

sem hægt er a? nota um samskiptin ? jafnvel

innan ríkisstjórnarinnar.

DAVÍÐ ODDSSON

»Átök milli hans

og Halldórs um

stríðið milli

eigendahóp-

anna í VÍS. 

GEIR H. HAARDE 

» Ber ábyrgð á

afskiptum

ráðherra-

nefndar af

bankasölunni.

HALLDÓR

ÁSGRÍMSSON

» Hótaði Davíð

að hætta við

einkavæðingu

vegna VÍS-stríðs.

VALGERÐUR

SVERRISDÓTTIR

» Sagðist hafa

haft ?pata? af

eignarhalds-

breytingum VÍS.

RÁÐHERRANEFNDIN » 

ÓLAFUR

DAVÍÐSSON

»Biðstaða

þangað til VÍS-

málið leystist.

JÓN SVEINSSON

» Biðstaða

þangað til VÍS-

málið leystist.

STEINGRÍMUR ARI

ARASON

» Biðstaða

þangað til VÍS-

málið leystist.

BALDUR

GUÐLAUGSSON

» Biðstaða

þangað til VÍS-

málið leystist.

SÆVAR ÞÓR SIGURGEIRSSON » Biðstaða þangað til VÍS-málið leystist.

FRAMKVÆMDANEFNDIN » 

ÓLAFUR

ÓLAFSSON

» Staðráðinn í

að gefa ekki

eftir hlut S-

hópsins í VÍS.

ÓSKAR H.

GUNNARSSON

» Var tilbúinn

að fara í mál við

Landsbankann

vegna VÍS.

MARGEIR

DANÍELSSON

» Sat nokkra af

sáttafundum

milli eigenda-

hópa VÍS.

GEIR

MAGNÚSSON

» Vildi ekki setja

VÍS á markað

og stuðlaði að

pattstöðu.

KRISTJÁN

LOFTSSON

» Beitti sér fyrir

því að VÍS yrði

skráð á markað.

S-HÓPURINN » 

AXEL GÍSLASON

» Forstjóri VÍS

og spyrnti gegn

því að félagið

yrði skráð á

markað.

FINNUR

INGÓLFSSON

» Tók við for-

stjórastóli VÍS

þegar S-hópur-

inn keypti.

BJÖRGÓLFUR

GUÐMUNDSSON

» Fundaði um

VÍS áður en

hann keypti

Landsbankann.

BJÖRGÓLFUR

THOR

BJÖRGÓLFSSON

» Lýsti yfir

óánægju með

sölu VÍS.

MAGNÚS

ÞORSTEINSSON

» Vildi VÍS en

fékk ekki með

Landsbanka-

num.

VÍS » SAMSON » 

Sex daga strí?i?

um yfirrá? í VÍS

STRÍÐIÐ UM BANKANA

» ÞRIÐJI HLUTI

KRISTINN

HALLGRÍMSSON

» Lögmaður S-

hópsins í Sex

daga stríðinu

um VÍS.

JÓHANN RÚNAR

JÓHANNSSON

» Lögmaður

Landsbankans í

sex daga

stríðinu um VÍS.

HELGI S.

GUÐMUNDSSON

» Formaður

bankaráðs

Landsbankans.

KJARTAN

GUNNARSSON

»Bankaráðs-

maður sem réð

meiru en

formaðurinn.

HALLDÓR J.

KRISTJÁNSSON

»Bankastjórinn

sagði að gott

tilboð hefði

borist í VÍS.

LÖGMENNIRNIR » LANDSBANKINN »

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88