Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						markað. Þá hafi verið hægt að út-

skýra söluna í bankaráði með því

að Landsbankinn hafi hagnast vel

á sölu hlutarins í VÍS.

S-hópurinn með aðra sögu

S-hópurinn hefur allt aðra sögu að

segja og kallar átökin milli hlut-

hafahópanna ?Sex daga stríðið um

VÍS?.

Hluthafahóparnir tveir gerðu

milli sín samkomulag árið 2001

um að setja félagið á markað.

Þrátt fyrir samkomulagið var

ekkert aðhafst. Kjartan Gunnars-

son var bankaráðsmaður í Lands-

bankanum og jafnframt stjórnar-

formaður í VÍS, en er sagður hafa

í raun verið starfandi formaður

bankaráðs því Helgi S. Guð-

mundsson hefði ekki haft jafn-

mikil völd í bankaráðinu og Kjart-

an. S-hópurinn segir að Kjartani

hefði tekist að ná Axel og Geir á

sitt band og þeir hefðu farið að

vilja hans og tafið það að VÍS yrði

sett á markað.

Hinn 10. júlí 2002 gera Lands-

bankamenn og S-hópurinn samn-

ing um sölu á 8 prósenta hlut í VÍS

í framhaldi af skráningu hluta-

bréfa félagsins í Kauphöllinni 12.

júlí. Þar er ákvæði um að einung-

is sé heimilt að selja hverjum ein-

stökum fjárfesti að hámarki 3

prósent af heildarhlutafé VÍS.

Sama dag og samningurinn er

gerður birtist auglýsing frá fram-

kvæmdanefnd um að selja eigi

kjölfestufjárfestum hluti ríkisins

í Landsbankanum og Búnaðar-

bankanum. Þar með hafði for-

sendan fyrir samningi hluthafa-

hópanna brostið. Ekki væri lengur

stefna ríkisstjórnarinnar að selja

Landsbankann í dreifða eignar-

aðild, heldur ætti nú að selja hann

til kjölfestufjárfestis.

S-hópur gerði Landsbanka-

mönnum tilboð

Sama dag og S-hópurinn lýsti yfir

áhuga á að kaupa kjölfestuhlut í

öðrum hvorum bankanum, 25.

júlí, gerði hópurinn Landsbanka-

mönnum tilboð í 10 prósenta hlut

bankans í VÍS og að auki um fjórð-

ung hlutafjár í LÍFÍS. Tilboðið var

skýrt með því að ríkisstjórnin

hefði breytt áherslum sínum

varðandi eignarhald á bönkunum.

Ekki væri lengur stefnt að

dreifðri eignaraðild og þar með

breyttust forsendur fyrir sam-

starfi innan VÍS. Tilboðið gilti til

næsta dags en Landsbankinn fékk

hann framlengdan.

Landsbankamenn svöruðu til-

boði S-hópsins með gagntilboði.

Þeir buðu til sölu alla hluti Lands-

bankans í VÍS en vildu þess í stað

kaupa helming hlutafjár í LÍFÍS.

Tilboðsfrestur var til 9. ágúst en

hann var tvíframlengdur til 21.

ágúst.

Hinn 16. ágúst tilkynnir fram-

kvæmdanefnd um ákvörðun sína

um að ganga til framhaldsvið-

ræðna við S-hópinn, Samson og

Kaldbak varðandi söluna á Lands-

bankanum.

Björgólfur á fundum um VÍS

Daginn áður en gagntilboð Lands-

bankans rann út, hinn 20. ágúst,

hittust fulltrúar S-hópsins og

Landsbankans á fundi. Fundinn

sátu meðal annars Ólafur Ólafs-

son og Geir Magnússon fyrir hönd

S-hópsins og Halldór J. Kristjáns-

son bankastjóri og Kjartan Gunn-

arsson bankaráðsmaður fyrir

hönd Landsbankans.

Björgólfur Guðmundsson, sem

þá var bankanum óviðkomandi að

öðru leyti en því að vera einn af

þremur bjóðendunum í hann, átti

á þessum tíma nokkra fundi með

Ólafi Ólafssyni, þar sem þeir

ræddu sín á milli um VÍS.

Björgólfur var því farinn að

hlutast til við um sölu á eignum

bankans áður en hann eignaðist

hlut í honum en framkvæmda-

nefndin tilkynnti ekki fyrr en

tæpum þremur vikum síðar að

gengið yrði til viðræðna við Sam-

son um kaupin á Landsbankanum.

Á fundi Landsbankamanna og

S-hópsins, þriðjudaginn 20. ágúst,

óskaði S-hópurinn eftir því að

Landsbankamenn seldu 10 pró-

senta hlut sinn í VÍS til þriðja að-

ila sem væri þeim ótengdur. Nöfn

væntanlegra kaupenda yrðu þó

ekki gefin upp fyrr en afstaða

bankans lægi fyrir. 

Ástæðan var sem fyrr sögð

vera stefnubreyting ríkisstjórnar-

innar varðandi sölu Landsbank-

ans. Í kjölfar fundarins sendi S-

hópurinn Landsbankamönnum

bréf þar sem þeir árétta vilja sinn

um að Landsbankamenn selji tíu

prósent af VÍS til þriðja aðila. Í

bréfinu kemur fram að S-hópurinn

líti svo á að á meðan tilboðið sé til

skoðunar verði söluferli VÍS sett í

biðstöðu með vísan til stefnu-

breytinga ríkisstjórnarinnar.

Landsbankamenn svöruðu ekki

bréfinu.

Sex daga stríðið hefst

Fimmtudagurinn 22. ágúst mark-

aði upphafið að því sem S-hópur-

inn hefur nefnt ?Sex daga stríðið

um VÍS?. Eignarhaldsfélagið

Brunabótafélag Íslands seldi

óvænt 3 prósenta hlut sinn í VÍS

til Kaupþings í Lúxemborg. S-hóp-

urinn óttaðist að salan gæti orðið

til þess að valdahlutföll innan VÍS

skekktust. Í kjölfarið skrifaði S-

hópurinn bréf til Landsbankans

þar sem söluumboð Landsbank-

ans á hluta af bréfum S-hópsins í

VÍS frá því 10. júlí var afturkall-

að. Bréfið var boðsent og afhent

við opnun bankans að morgni

föstudags 23. ágúst. Í bréfinu kom

fram að ákvörðunin um afturköll-

un væri tekin í nauðvörn vegna

breyttra forsendna í kjölfar

ákvörðunar ríkissjóðs um sölu

kjölfestuhluts í Landsbankanum

til einstakra aðila í stað eldri

áforma um mjög dreifða eignar-

aðild.

Landsbankamenn kvittuðu fyr-

ir móttöku bréfsins og sendu sam-

dægurs skrifleg mótmæli vegna

afturköllunar söluumboðsins.

Skýringarnar voru þær að í fyrri

samningi væri gert ráð fyrir að

seljendur komi fram sem einn

hópur og samningnum verði ekki

sagt upp nema allir seljendur

standi að þeirri uppsögn. Því væri

ljóst að umboðið yrði ekki aftur-

kallað með þeim hætti sem S-hóp-

urinn hygðist gera.

Þá tilkynntu Landsbankamenn

í bréfinu að þeir myndu halda

áfram sölu á hlutum í VÍS í sam-

ræmi við samninginn og upplýstu

að sama dag og bréfið hefði verið

skrifað hefðu náðst samningar um

sölu á hlutafé í VÍS.

Selja 3,6 prósent af hlut S-hópsins

Föstudaginn 23. ágúst, sama dag

og Landsbankamenn mótmæltu

afturköllun söluumboðsins frá S-

hópnum, seldi Landsbankinn 6 til

7 prósenta hlut í VÍS til þriðja að-

ila. Hluti bréfanna var í eigu S-

hópsins, eða 3,6 prósent. S-hópur-

inn heldur því fram að Lands-

bankinn hafi selt sjálfum sér bréf-

in og þar með sjálfur eignast hluta

af eignarhluta S-hópsins í VÍS. 

Sama dag áttu sér stað við-

skipti með hlutabréf innan S-

hópsins þar sem bréf Andvöku,

Kers, Samvinnulífeyrissjóðsins

og Samvinnutrygginga í VÍS

skiptu um hendur.

Mótmæla meintum ólögmætum

aðgerðum Landsbankans

Sunnudaginn 25. ágúst sendi S-

hópurinn Landsbankamönnum

harðort bréf undir yfirskriftinni:

Mótmæli við ólögmætum aðgerð-

um Landsbanka Íslands. Bréfið

var keyrt heim til Halldórs Krist-

jánssonar bankastjóra. 

Í bréfinu kom fram að S-hópur-

inn mótmælti harðlega ólögmæt-

um aðgerðum Landsbankans og

að hann myndi ekki sætta sig við

þær. Háttsemi Landsbankans var

sögð vera brot á reglum Kauphall-

arinnar og jafnframt lögum um

verðbréfaviðskipti og lögum um

viðskiptabanka.

Í bréfinu skoraði S-hópurinn á

Landsbankamenn að framselja á

ný til S-hópsins hlut í VÍS sem

jafngilti þeim hluta sem Lands-

bankinn seldi af bréfum VÍS

föstudaginn 23. ágúst.

S-hópurinn lofaði því í bréfinu

að ef Landsbankamenn gengju að

þessu yrði málið eftirmálalaust af

sinni hálfu. Ef Landsbankamenn

yrðu hins vegar ekki við áskorun-

inni myndi S-hópurinn ekki sætta

sig við ólögmætt ofríki Lands-

bankamanna og þegar í stað hefj-

ast handa við að gæta réttar síns.

Þá var óskað eftir upplýsingum

um það hverjir kaupendur að 6 til

7 prósenta hlutnum væru og ýmis

ákvæði í sölusamningi. Þá var tek-

ið fram að nauðsynlegt væri að

kyrrsetja hlutina í VÍS með lög-

banni ef þyrfti, svo tryggja mætti

að þeim yrði ekki ráðstafað annað

meðan látið yrði reyna á ógildingu

sölunnar.

Landsbankamönnum var gef-

inn frestur til að verða við þessum

óskum til klukkan tvö næsta dag.

Þá yrði málið gert opinbert og

sendar tilkynningar og athuga-

semdir til Kauphallarinnar og

Fjármálaeftirlitsins þar sem vak-

in væri athygli á háttsemi Lands-

bankans og óskað eftir því að

gripið yrði til viðeigandi ráðstaf-

ana og viðurlaga eftir atvikum.

Landsbankamenn biðja um frest

Landsbankamenn svöruðu sam-

dægurs og mótmæltu því alfarið

að hafa brotið gegn samningi sín-

um við S-hópinn með því að selja

hlutabréf í VÍS þrátt fyrir aftur-

köllun S-hópsins á söluumboði til

bankans. Sömu rök voru notuð og

áður, að samningnum hefði ekki

verið hægt að segja upp nema

með samþykkt allra hlutaðeig-

andi. Þá héldu Landsbankamenn

því fram að forsendubrestir í kjöl-

far ákvörðunar íslenska ríkisins

um sölu kjölfestuhluts í Lands-

bankanum væru ekki réttmætir.

Landsbankamenn héldu því jafn-

framt fram að lengi hefði legið

fyrir að það væri yfirlýst stefna

ríkisins að selja stóran hlut í

bankanum og S-hópnum hefði

ekki fyrr þótt ástæða til að gera

athugasemdir af því tilefni.

Landsbankamenn höfnuðu því

jafnframt að framselja á ný til S-

hópsins hluti í VÍS sem samsvör-

uðu sölu á hlutum þess í félaginu

frá því föstudeginum áður. Einnig

óskuðu þeir eftir upplýsingum um

sölu á 3 prósenta hlut í VÍS sem

seldur var fimmtudaginn 22.

ágúst.

Loks var óskað eftir því að S-

hópurinn félli frá hótun sinni um

að gera málið opinbert ? eða

frestaði aðgerðum til miðviku-

dagsins 28. ágúst til klukkan 18,

að loknum fyrirhuguðum fundi í

bankaráði þar sem fjalla ætti

heildstætt um málefni VÍS og

hagsmuni Landsbankans í því

sambandi.

S-hópur skrifar bréf til yfirvalda

Sama dag, mánudaginn 26. ágúst,

skrifaði S-hópurinn bréf til Kaup-

hallar Íslands og Fjármálaeftir-

litsins þar sem skýrt var frá öllum

atvikum málsins og því haldið

fram að Landsbankinn hefði brot-

ið á S-hópnum með því að selja

bréf í VÍS þrátt fyrir afturköllun

S-hópsins á umboði þar um. Þar

kom meðal annars fram að stað-

fest hefði verið að salan hefði far-

ið fram eftir móttöku afturköllun-

arinnar. 

Óskað var eftir því að yfirvöld

tækju afstöðu til þess hvort

vinnubrögð Landsbankans gætu

talist eðlileg og að Kauphöllin

hlutaðist til við að leiðrétta eign-

arfærslurnar því þær styddust

ekki við lögmætar heimildir. Þá

var þess krafist að Landsbankinn

og starfsmenn hans yrðu að sæta

ábyrgð samkvæmt lögum teldust

þeir hafa gerst brotlegir gegn

reglum Kauphallarinnar, reglum

um verðbréfaviðskipti eða regl-

um um viðskiptabanka.

Beðið var með að senda bréfið

samkvæmt umbeðnum fresti

Landsbankamanna.

Landsbankinn býður S-hópnum

VÍS

Þennan sama mánudag barst S-

hópnum tilboð frá Landsbankan-

um. Tilboðið var í formi kauptil-

boðs frá S-hópnum til Landsbank-

ans sem Halldór J. Kristjánsson

sagði að Landsbankinn myndi

telja aðgengilegt. Tilboðið var

sent með þeim fyrirvara af hálfu

Landsbankans að ekki yrðu gerð-

ar frekari athugasemdir við við-

skipti með hlutabréf í VÍS frá því

föstudaginn áður.

Tilboðið sem S-hópurinn sendi

Landsbankanum hljóðaði upp á 27

prósenta hlut Landsbankans í VÍS

strax við undirritun samnings og

kaupskyldu á 18,4 prósentum fyrir

1. janúar. Í samningnum voru skil-

yrði um að S-hópurinn myndi hlut-

ast til við fulltrúa sína í stjórn VÍS

að þeir samþykktu tillögu fulltrúa

Landsbankans í VÍS að Landsbank-

anum yrði boðið að kaupa 20 pró-

sent af hlut VÍS í LÍFÍS.

Því var ekki tekið og gagntilboð

var lagt fram þar sem kaupskyld-

an næði til allt að 21,4 prósenta

heildarhlutafé í VÍS. Þá var þess

krafist að samningur um kaup

Landsbankans á 20 prósenta hlutar

VÍS í LÍFÍS yrðu staðfest af stjórn

VÍS áður en salan á VÍS til S-hóps-

ins yrði frágengin.

Landsbankinn vill LÍFÍS

Hóparnir tveir hittust á sáttafundi

þriðjudaginn 27. ágúst. Á fundin-

um voru sem áður Ólafur Ólafs-

son, Geir Magnússon og fleiri fyr-

ir hönd S-hópsins og Halldór J.

Kristjánsson bankastjóri og Kjart-

an Gunnarsson bankaráðsmaður

fyrir hönd Landsbankans.

Landsbankamenn buðust til

þess að selja ekki frá sér 3,6 pró-

senta hlutinn í VÍS gegn því að sal-

an frá því föstudeginum á undan

yrði viðurkennd og óháður aðili

sem báðir treystu skæri úr um lög-

mæti sölunnar. S-hópurinn hafnaði

því.

Á minnisblaði sem lagt var

fram að fundinum loknum kom

fram að Landsbankinn og S-hópur-

inn ætluðu að leggja til hliðar

ágreining sinn varðandi sölu

Landsbankans á hlutabréfum S-

hópsins í VÍS föstudaginn 23.

ágúst. S-hópurinn myndi viður-

kenna söluna og gerði ekki athuga-

semdir við að hún hefði farið fram.

Yfirstandandi væru samningavið-

ræður um kaup S-hópsins á hlutafé

Landsbankans í VÍS. Kæmust hlut-

hafahóparnir tveir ekki að sam-

komulagi um kaupin skuldbinduðu

þeir sig til þess að leita sameigin-

lega til þriðja aðila og óska eftir

því að hann tæki afstöðu til þess

hvort Landsbankinn hefði gerst

brotlegur við söluna á bréfunum

hinn 23. ágúst.

Sex daga stríðinu lýkur

Miðvikudaginn 28. ágúst sendi S-

hópurinn lokatilboð til Lands-

bankamanna. S-hópurinn heldur

því fram að enn hafi Landsbanka-

menn reynt að blanda LÍFÍS inn í

afgreiðslu málsins en þeirri mála-

leitan hafi S-hópurinn hafnað. Til-

boðið var að lokum samþykkt með

þeirri breytingu að kaupskylda tók

til 21 prósenta hlutafjár í stað 18,4

prósenta. Tilboðið var staðfest af

báðum aðilum og samningar náð-

ust síðla um kvöld. Sex daga stríð-

inu var því með lokið.

Sama dag hafði framkvæmda-

nefndin tilkynnt þremur væntan-

legum fjárfestahópum að Lands-

bankanum að þeir þyrftu að skila

lokatilboði í hluti ríkissjóðs í

Landsbankanum fyrir 2. septem-

ber.

Fimmtudaginn 29. ágúst var til-

kynnt opinberlega um kaup S-

hópsins á hlutum Landsbankans í

VÍS. Halldór J. Kristjánsson

bankastjóri skýrði kaupin opinber-

lega með því að segja að gott tilboð

hefði borist sem Landsbankinn

hefði ekki getað hafnað. Hann

benti á að Landsbankinn og VÍS

ættu áfram saman LÍFÍS og að

áhugi bankans á tryggingum næði

fremur til líftrygginga en vátrygg-

inga. Hann segir að VÍS hafi ekki

tengst kjarnastarfsemi bankans og

því megi allt eins líta á söluna sem

styrk fyrir söluferlið. ?Salan

styrkir eiginfé bankans og gerir

hann betur í stakk búinn til að

takast á við þá möguleika sem uppi

eru í viðskiptalífinu,? sagði Hall-

dór í Fréttablaðinu 30. ágúst.

Valgerður Sverrisdóttir við-

skiptaráðherra sagði í sömu frétt

að hún hefði haft pata af viðskipt-

unum en hún teldi ekki að þau

myndu skaða sölu bankans.

Finnur Ingólfsson tók við starfi

forstjóra VÍS af Axeli Gíslasyni

um mánaðamótin september-októ-

ber 2002. Við það tækifæri skýrði

hann kaup S-hópsins á hlut Lands-

bankans í VÍS á þann hátt að hið

mikla eignarhald Landsbankans á

VÍS hefði verið farið að setja

Landsbankanum skorður. ?

MÁNUDAGUR 30. maí 2005  11

Á morgun verður sagt frá því að

Björgólfur Thor Björgólfsson mætti á

fund framkvæmdanefndar um einka-

væðingu 10. september 2002 og

neitaði að taka við bréfi úr hendi Ólafs

Davíðssonar nefndarmanns þar sem

tilkynna átti að nefndin hefði valið

Samson til samningaviðræðna vegna

sölu Landsbankans. Þá er sagt frá

símafundi sem Halldór Ásgrímsson

skipulagði og tók sjálfur þátt í ásamt S-

hópnum og Kaldbaki, en Halldór var að

reyna að fá hópana tvo til að sameinast

um kaupin á Búnaðarbankanum.

» ATBURÐARÁS SEX DAGA

STRÍÐSINS

22. ÁGÚST

Sex daga stríðið hófst með því að

Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Ís-

lands seldi óvænt 3 prósenta hlut sinn

í VÍS til Kaupþings í Lúxemborg. S-

hópurinn taldi að þar með væru valda-

hlutföll innan VÍS farin að skekkjast.

S-hópurinn sendi í kjölfarið bréf til

Landsbankans og afturkallaði söluum-

boð frá því 10. júlí 2002, þar sem

Landsbankanum var heimilað að selja

8 prósenta hlut í VÍS sem væri sameig-

inlega í eigu beggja eigendahópa,

Landsbankans og S-hópsins.

23. ÁGÚST

Landsbankinn kvittaði fyrir móttöku á

afturköllun söluumboðsins og sendi í

framhaldinu mótmæli gegn afturköllun

söluumboðsins. Eftir að Landsbanka-

menn höfðu kvittað fyrir móttökuna

seldu þeir 6 til 7 prósenta hlut í VÍS til

þriðja aðila, þar með talið 3,4 prósenta

hlut S-hópsins í VÍS. S-hópurinn heldur

því fram að Landsbankamenn hafi selt

sjálfum sér bréfin.

24. ÁGÚST

Tilkynnt um sölu Landsbankans á 6 til

7 prósenta hlut í VÍS.

25. ÁGÚST

S-hópurinn boðsendi bréf til Halldórs

J. Kristjánssonar, bankastjóra Lands-

bankans, og bankaráðs þar sem til-

kynnt var að ef salan á 3,4 prósenta

hlut S-hópsins í VÍS yrði ekki leiðrétt

fyrir klukkan 14 næsta dag yrði málið

gert opinbert.

26. ÁGÚST

Landsbankamenn mótmæltu kröfum

S-hópsins en óskuðu eftir fresti til 28.

ágúst með að gera málið opinbert.

Jafnframt óskuðu Landsbankamenn

eftir því að deilendur ræddu málið í

millitíðinni. Landsbankinn gerði upp-

kast að kauptilboði fyrir hönd S-hóps-

ins með þeim skilyrðum að þeir

myndu samþykkja það kæmi það til

baka.

S-hópurinn samdi bréf til Kauphallar-

innar og Fjármálaeftirlitsins sem ekki

var sent vegna beiðni Landsbankans.

S-hópurinn sendi tilboð um kaup á öll-

um hlutum Landsbankans í VÍS. Til-

boðsfrestur var gefinn til klukkan 22.

Landsbankamenn höfnuðu tilboðinu

og lögðu til breytingar sem földu það í

sér að S-hópurinn fengi stærri hlut í

VÍS en í fyrra tilboði frá Landsbankan-

um en í staðinn fengi Landsbankinn

LÍFÍS, sem Landsbankinn og S-hópur-

inn áttu sameiginlega.

27. ÁGÚST

Fulltrúar hópanna tveggja hittust á

sáttafundi. Landsbankamenn buðust til

þess að selja ekki frá sér 3,6 prósenta

hlut S-hópsins í VÍS, sem deilan stóð

um, gegn því að S-hópurinn viður-

kenndi söluna og óháður aðili skæri úr

um lögmæti sölunnar. S-hópurinn

hafnaði þessu tilboði.

28. ÁGÚST

S-hópurinn sendi lokatilboð til lands-

bankamanna með samþykkisfresti til

klukkan 22. Landsbankinn gerði loka-

tilraun til að gera samning um LÍFÍS en

S-hópurinn hafnaði því alfarið. Land-

bankamenn samþykktu í kjölfarið til-

boð S-hópsins með þeim breytingum

að kaupskylda næði til 21 prósents í

stað 18,4 prósenta. Samningur var

undirritaður seint um kvöldið og 

Sex daga stríðinu var  þar með lokið.

» HVERS VEGNA VAR VÍS

SVONA MIKILVÆGT?

Tryggingafélag á borð við VÍS er mjög

öflugur bakhjarl í fjárfestingum.

Eftir að S-hópurinn eignaðist hlut Lands-

bankans í VÍS var VÍS bætt í S-hópinn

sem annar af tveimur bjóðendum í hlut

ríkisins í Búnaðarbankanum.

Finnur Ingólfsson, sem tók við forstjóra-

stóli í VÍS af Axel Gíslasyni við kaup S-

hópsins á hlut Landsbankans í VÍS, var

einn af lykilmönnunum í samninga-

viðræðum framkvæmdanefndar og S-

hópsins um kaupin á Búnaðar-

bankanum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88