Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						FÓTBOLTI KR og FH mættust í

fyrsta stórleik sumarsins í Frosta-

skjóli í gær. Það sást greinilega í

þeim leik hvort liðið er á toppnum

og hvort liðið á langt í land með að

ná sama klassa. FH vann enn eitt

árið í Frostaskjólinu og er búið að

stinga KR af í deildinni eftir að-

eins fjórar umferðir.

Það var þó ljóst strax á fyrstu

mínútu að Íslandsmeistararnir

áttu erfitt verkefni fyrir höndum.

KR-ingar mættu gríðarlega

grimmir til leiks, þjörmuðu

hressilega að Hafnfirðingum við

hvert tækifæri og Gunnar Krist-

jánsson fékk gult spjald fyrir

fyrsta brot leiksins.

Þrátt fyrir mikinn vilja fór lít-

ið fyrir færunum og fyrri hálf-

leikur einkenndist að mestu af

gríðarlegri stöðubaráttu þar sem

ekki var gefin tomma eftir. FH-

ingar voru fljótlega pirraðir og

mátti litlu muna að upp úr syði.

Þótt KR stýrði leiknum að mestu

gekk liðinu ekkert að skapa sér

færi. Spilamennska liðsins var

ekki vænleg til árangurs ? há-

loftaspyrnur og flinkir strákar á

borð við Arnar Gunnlaugsson og

Grétar Hjartarson voru algjör-

lega sveltir og fengu boltann lítið

sem ekkert í fæturna. Þar að auki

var vængspil ekki til staðar hjá

liðinu.

FH-ingar voru að sama skapi

alltaf líklegir þótt þeim gengi illa

að opna sterka vörn KR. Það var

síðan einkennandi fyrir leik liðs-

ins í sumar að þeir skyldu taka

forystuna með marki rétt fyrir

hlé. Siim tók aukaspyrnu og Jón

Þorgrímur skallaði knöttinn í net-

ið.

Fyrstu 20 mínútur síðari hálf-

leiksins voru lítið fyrir augað. FH

féll aðeins til baka og svitnaði

ekkert sérstaklega við að stöðva

máttleysislegar sóknir heima-

manna. Þegar 25 mínútur voru

eftir af leiknum skiptu KR-ingar

um tvo leikmenn og færðu Sig-

mund Kristjánsson framar á völl-

inn. Þær skiptingar breyttu ná-

kvæmlega engu því KR skapaði

ekkert það sem eftir var. Tvisvar

sinnum vildi liðið fá vítaspyrnu en

fékk ekki. Þar með er ógn heima-

manna í seinni hálfleik upptalin.

FH-ingar eru komnir með væn-

lega stöðu eftir leikinn og sér

maður vart að nokkurt lið geti

skákað þessu gríðarlega sterka

liði. Þeir eru með frábæra vörn,

þétta miðju, stórskemmtilega

sóknarmenn og eru alltaf líklegir

til að skora og gera það oftar en

önnur lið hér á landi. FH er besta

lið landsins í dag og það má mikið

gerast ef það hampar ekki titlin-

um á ný í haust. KR verður að

gera róttækar breytingar á sókn-

arleik sínum, sem er ekki boðleg-

ur, ætli liðið sér einhverja hluti í

sumar. Vörnin er fín, miðjan sterk

varnarlega en miðjumennirnir

skapa sama sem ekkert og KR fær

enga nýtingu út úr Grétari Hjart-

arsyni sem er einn og týndur í

fremstu víglínu.

?Ég hef bara náð að skora fram

hjá Stjána tvisvar þannig að þetta

var mjög skemmtilegt,? sagði

hetja FH-inga, Jón Þ. Stefánsson.

?Þetta var rosalega harður leikur

og mikið um tæklingar. Það var

allt í gangi.? -hbg, óój

30. maí 2005 MÁNUDAGUR

> Við finnum til með ...

... Sævari Þór Gíslasyni sem óttast er að

hafi slitið krossbönd í leik Fylkis og Vals á

fimmtudaginn

síðastliðinn. Sævar hefur

ekki náð að klára heilan

leik vegna meiðsla í

vor og svo virðist sem

að honum hafi ekki

verið ætlað að leika

knattspyrnu í sumar.

Því miður.

Búið spil hjá Sævari?

Fylkismenn hafa orðið fyrir miklu áfalli en

óttast er að Sævar Þór Gíslason hafi slitið

krossbönd í leik Fylkis og Vals á

fimmtudag sem Fylkir reyndar tapaði,

2?1. Ljóst er að þetta er mikil blóðtaka

fyrir Fylki sem sárlega vantar

markaskorara fyrir átökin í sumar.

sport@frettabladid.is

20

> Við hrósum ...

.... FH-ingum fyrir sigur einn eitt árið í

Vesturbænum og undirstrikar svo ekki verði

um villst að þar fer

besta knattspyrnulið

landsins í dag. Liðið

hefur fullt hús stiga

eftir fjórar umferðir og

hefur aðeins fengið á

sig eitt mark til þessa.

FH hefur stungi? KR af í Landsbankadeildinni eftir sannfærandi sigur í Frostaskjóli, 1-0. FH er í sérflokki

á Íslandi í dag og ver?ur vart velt af stalli.

Sjáumst síðar, Vesturbæingar

HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 

27 28 29 30 31 1   2

Mánudagur

MAÍ

? ? LEIKIR

boxopen

19.15 ÍA og Fylkir mætast á

Akranesvelli í Landsbankadeild karla.

boxopen

19.15 Grindavík og ÍBV mætast á

Grindavíkurvelli í Landsbankad. karla.

boxopen

20.00 Fjölnir og Þróttur R. mætast

á Fjölnisvelli í 1. deild kvenna.

boxopen

20.00 HK/Víkingur og Víðir

mætast á Víkingsvelli í 1. deild kv.

? ? SJÓNVARP

boxopen

12.10 Landsbankadeildin á Sýn.

Leikur KR og FH endursýndur.

boxopen

13.50 Enski boltinn á Sýn. Bein

útsending frá leik West Ham og

Preston en liðin keppa um laust sæti

í ensku úrvalsdeildinni.

boxopen

16.40 Helgarsportið á Rúv. (e)

boxopen

16.55 NBA á Sýn. Leikur Detroit og

Miami.

boxopen

18.55 Landsbankadeildin á Sýn.

Bein útsending frá leik Grindavíkur

og ÍBV.

boxopen

21.05 Boltinn með Guðna Bergs

á Sýn. Íslenski og erlendi boltinn.

boxopen

22.00 Olíssport á Sýn.

boxopen

23.10 Fótboltakvöld á Rúv. 

Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórs-

son stóð sig frábærlega á móti í

áskorendamótaröðinni sem fram fór í

Marokkó. Eftir ekkert sérstakan

fyrsta dag á mótinu átti

Birgir Leifur þrjá

frábæra daga í

röð sem fleyttu

honum í níunda sæti á mótinu sem er

besti árangur Birgis Leifs á mótaröðinni.

?Ég var að spila alveg ógeðslega vel í

dag,? sagði Birgir Leifur hress og kátur í

sólinni í Afríku. ?Ég veit samt að ég get

betur en á þessu móti og því er svolítið

svekkjandi að hafa ekki komist lengra

því að ég veit vel að ég get unnið svona

mót. Það þýðir samt ekki að velta sér

upp úr því heldur verður maður að taka

það jákvæða með sér.?

Birgir Leifur sagð-

ist hafa verið

sérstaklega

ánægður

með sveifl-

una hjá

sér á

mótinu

enda

hefur

hann verið að

gera ákveðnar

breytingar á

henni síðustu

vikur. ?Ég

var að slá

alveg

svakalega

vel og hitti

flatirnar oftar en áður. Þessi árangur

gefur mér mikið sjálfstraust og ég held

að þetta sé að smella hjá mér núna,?

sagði Birgir Leifur en hann gat ekki

neitað því að vera pínu svekktur.

?Ég hefði alveg getað unnið þetta mót.

Það hefði ekki mikið þurft að breytast

til að ég kæmist í umspil en það þýðir

ekki að velta sér upp úr því,? sagði Birg-

ir Leifur en hann fékk um 3.000 evrur

fyrir árangurinn og dugar sá peningur

fyrir kostnaði að þessu sinni. Annars

verður mikið að gera hjá Birgi Leifi í

sumar en hann tekur þátt í fjölda móta

erlendis í júní og júlí en kemur þó heim

til þess að taka þátt í Landsmótinu og

ef hann spilar þar eins og í Marokkó þá

er hann líklegur til afreka.

KYLFINGURINN BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON: STÓÐ SIG VEL Í MAROKKÓ

Besti árangur Birgis Leifs til flessa

0?1

KR-völlur, áhorf: 2407 Ólafur Ragnarsson (7)

TÖLFRÆÐIN

Skot (á mark) 7?8 (4?3)

Varin skot Kristján 2 ? Daði 4

Horn 2?6

Aukaspyrnur fengnar 13?16

Rangstöður 2?6

0?1 Jón Þorgrímur Stefánsson (44.)

KR

*MAÐUR LEIKSINS

KR 4?5?1

Kristján 7

Sigmundur 7

Ágúst Þór 7

Tryggvi 6

Gunnar 6

Bjarnólfur 6

Sigurvin 6

(80. Garðar ?)

Rógvi 6

Arnar 3

(64. Sölvi 4)

Matute 4

(64. Jökull 4)

Grétar 4

FH 4?3?3

Daði 7

Guðmundur 7

(70. Ásgeir Gunnar 5)

Auðun 7

Nielsen 7

Freyr 7

Heimir 5

(78. Baldur ?)

*Siim 7

Davíð Þór 7

Jón Þorgrímur 6

(86. Atli Viðar ?)

Borgvardt 6

Tryggvi 6

FH

Innifali? í 3 ára ábyrg? eru 3 fríar fljónustusko?anir, me? síum og olíuskiptum

3 ára ábyrg?

Nánari uppl?singar á www.komatsu.is

Sterkur leikur

KRAFTVÉLAR EHF. · Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3509 · www.kraftvelar.is

MARKINU FAGNAÐ UPPI Í STÚKU Jón Þ. Stefánsson fagnar marki sínu gegn KR-ingum í gær á eftirminnilegan máta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88