Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						2 31. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR

Flutti með sér um 25 kíló af sælgæti til landsins með Norrænu:

Bí?ur dóms fyrir sælgætissmygl

DÓMSMÁL Sýslumaðurinn á Seyðis-

firði hefur stefnt Árna Emanúels-

syni til greiðslu sjö þúsund og

fimm hundruð króna sektar vegna

brota á tollalögum þegar hann

hafði með sér um 25 kíló af sæl-

gæti og gosdrykkjum við komu

Norrænu til Seyðisfjarðar síðla

árs 2004. Telst slíkt brot á tollalög-

um og var Árna boðið að ljúka

málinu með sátt hjá Tollstjóran-

um á Seyðisfirði sem hann hafn-

aði. Árni hefur óskað eftir því að

greiða toll af vörunum sem hann

flutti inn en hafnar því að greiða

sekt. Málflutningur í málinu hófst

fyrir héraðsdómi Austurlands á

Egilsstöðum í gær

?Þeir leituðu í bílnum í fjóra

klukkutíma og það sem þeir höfðu

upp úr því var sælgæti sem ég

hafði keypt og ætlaði að gæða mér

á við akstur frá Egilsstöðum til

Bolungarvíkur. Ég ætla ekki að

una þessari niðurstöðu og fer með

málið eins langt og þarf,? segir

Árni.

Samkvæmt upplýsingum frá

Tollstjóranum í Reykjavík er toll-

frjáls innflutningur á matvöru

takmarkaður við þrettán þúsund

krónur og þrjú kíló. Allt umfram

þrjú kíló telst tollskyldur varning-

ur og ber ferðamönnum þar með

að greiða gjald af vörunum sam-

kvæmt ákvæðum tollalaga. - hb

Fjárdráttur í Rafiðnaðarskólanum:

Fékk tveggja ára fangelsi

DÓMSMÁL Jón Árni Rúnarsson,

fyrrverandi skólastjóri Rafiðn-

aðarskólans, var í Héraðsdómi

Reykjavíkur í gær dæmdur í

tveggja ára fangelsi fyrir stór-

felldan fjárdrátt á tímabilinu

1994 til 2001. 

Peningarnir sem Jón Árni var

fundinn sekur um að hafa dreg-

ið að sér voru af endurmenntun-

argjaldi sem vinnuveitendur í

rafiðnaði greiddu.

Upphæðin nam tæpum 28

milljónum króna í heildina.

Í dómsuppkvaðningu sagði að

brotin hefðu verið gerð með ein-

beittum brotavilja og verið

skipulögð. Jón Árni hefði nýtt

sér þá stöðu sem skapaðist með

hraðri útþenslu í menntakerfinu

á umræddum tíma.

Að auki kom fram að Jóni

Árna hefði ekki tekist að bæta

fyrir það fjárhagslega tjón sem

gjörðir hans hefðu valdið.

Málið hefur verið lengi fyrir

dómstólum, en því var skotið

aftur í héraðsdóm eftir að

Hæstiréttur komst að því að

ekki hefði verið hægt að taka

afstöðu til málsins á gefnum

forsendum.

Jón Árni hafði áður verið

dæmdur sýkn saka, en úrskurð-

urinn var ógildur í Hæstarétti

og sendur niður í héraðsdóm.

Hæfileg refsing þótti vera

tveggja ára óskilorðsbundið

fangelsi. - mh

Heyr?i kvalafullt öskur

Samkvæmt nágranna Sæunnar Pálsdóttur, sem myrt var a?faranótt 1. nóvem-

ber á sí?asta ári, gekk miki? á í íbú? Sæunnar og Magnúsar Einarssonar  á

fleim tíma sem mor?i? á a? hafa átt sér sta?. Magnús kannast ekki vi? læti.

DÓMSMÁL Nágranni Sæunnar Páls-

dóttur segist hafa heyrt skelfinga-

röskur og vein í konu á þeim tíma

sem atburðirnir eiga að hafa átt sér

stað. Óhljóðin hafi síðan hætt

skyndilega eftir þungan dynk.

Þetta kom fram í vitnisburði ná-

grannans við aðalmeðferð fyrir

Héraðsdómi Reykjaness í gær.

Magnús Einarsson, sem ákærð-

ur er fyrir að hafa banað Sæunni

eiginkonu sinni, sagðist hafa verið

að hjálpa henni að deyja þar sem

hún hafi verið kvalin af þunglyndi

og samviskubiti yfir meintu fram-

hjáhaldi. Hann sagðist ekki kannast

við öskur og læti sem nágranninn

taldi sig hafa heyrt. Börn þeirra

hafi þannig sofið vært meðan

manndrápið hafi átt sér stað.

Sálfræðingur sem tók viðtöl við

Magnús segir ekkert hafa komið

fram sem dragi sakhæfi Magnúsar

í efa. Jafnframt sagði sálfræðing-

urinn fyrir dómi í gær að svo virtist

sem Magnús hefði misst stjórn á

gjörðum sínum og í kjölfarið banað

konu sinni.

Í rannsókn sálfræðingsins á

Magnúsi hafi líka komið fram til-

hneiging hjá honum til þess að geta

í eyðurnar í vitnisburði sínum

þegar hann hafi ekki verið viss um

hvernig málin hafi verið. Hann hafi

munað atburði næturinnar nokkuð

skýrt, en skapað síðan sjálfur inn í

eyðurnar þegar atburðarásin hafi

vafist fyrir honum. 

Það kom einnig fram í máli sál-

fræðingsins að Magnús hafi verið

afskaplega háður konu sinni. Hann

hafi þannig átt erfitt með að þola

það þegar hann komst að því að

kona hans hafi verið honum ótrú. 

Lögreglumenn sem handtóku

Magnús á morðstað segja hann hafa

greint þeim frá því að einungis hafi

verið um aðstoð við dráp að ræða,

þar sem kona hans hafi viljað

deyja.

Magnús sagðist hafa átt erfitt í

kjölfarið og fundið fyrir miklum

andlegum sársauka við það að finna

fyrir fjölskyldu sinni tvístrast í

sundur. Sérstaklega hafi honum

fundist erfitt að hugsa til þess að

samband hans við börn sín myndi

glatast.

Frá upphafi hefur verið vitað að

Magnús drap konu sína sjálfur, en

hann játaði verknaðinn skömmu

eftir að hafa framið hann.

Magnús heldur enn tengslum

við börn sín en þau koma í heim-

sókn til hans einu sinni í mánuði á

Litla-Hraun, þar sem hann er í

gæsluvarðhaldi. Börnin eru í umsjá

foreldra Sæunnar . 

magnush@frettabladid.is

Umsækjandi um prestsstöðu:

Telur framhjá

sér gengi?

DÓMSMÁL Tekið var fyrir í gær í

Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem

séra Sigríður Guðmarsdóttir höfðar

gegn Biskupsstofu. Hún telur hafa

verið framhjá sér gengið þegar ráð-

ið var í stöðu sendiráðsprests í

London.

Menntun Sigríðar er umtalsvert

meiri en séra Sigurðar Arnarssonar,

sem hreppti embættið, en hún hefur

lokið M.Phil-gráðu, sem er þriggja

ára nám, auk embættisprófs. Séra

Sigurður Arnarsson, sem er tengda-

sonur biskups Íslands, hefur lokið

einu ári í sjúkrahúsprestsnámi auk

embættisprófs.

Hæfisnefndina skipa aðilar frá

Tryggingastofnun ríkisins, utanrík-

isráðuneytinu og Biskupsstofu.

Nefndin taldi menntun Sigurðar

betur sniðna að starfi sendiráðs-

prests en menntun Sigríðar. - mh

Egill Helgason:

F?lubomba

frá Finni

FJÖLMIÐLAR ?Þettar er bara ein af

mörgum fýlubombum sem Finnur

Ingólfsson hefur sprengt á ævi

sinni.

Ég veit ekki hvað maðurinn er að

spá,? segir Egill Helgason þáttar-

stjórnandi. Finnur Ingólfsson sagði

í Kastljósinu í gær að þegar Finnur

hefði nýtekið við sem iðnaðarráð-

herra hefði Egill falast eftir viðtali

við hann, en á þeim tíma hefði and-

legt og líkamlegt ástand Egils verið

með þeim hætti að hann hefði ekki

verið í stakk búinn til að taka við-

talið.

?Ég hef bara einu sinni hitt hann

augliti til auglitis, þegar ég tók

fréttaviðtal við Finn í stúdíói Stöðv-

ar 2, sem var á engan hátt sögulegt.

Hvað eftir annað, þegar Finnur var

iðnaðarráðherra, lofaði hann að

koma í Silfur Egils og sveik það

alltaf á síðustu stundu.? - ss

ANGELA MERKEL Segist uppræta

atvinnuleysi í Þýskalandi nái hún kjöri.

Kristilegu flokkarnir:

Merkel ver?ur

kanslaraefni?

BERLÍN, AP Kristilegu flokkarnir í

Þýskalandi lýstu því formlega yfir í

gær að Angela Merkel yrði kansl-

araefni þeirra í kosningunum sem

haldnar verða í haust. Sigri flokk-

arnir í kosningunum verður Merkel

fyrsti kvenkanslari Þýskalands.

Það kom í hlut Edmunds Stoiber

að lesa tilkynninguna upp en hann

atti kappi við Gerhard Scröder

kanslara í kosningunum 2002.

Merkel hélt stutta ræðu við þetta

tækifæri þar sem hún lofaði að upp-

ræta atvinnuleysið í landinu næði

hún kjöri. ?

PUNKTAÐU

NIÐUR

FERÐA-

LAGIÐ

SPURNING DAGSINS

Grímur, er fletta skítsæmileg

mynd?

?Viðbrögðin hafa að minnsta kosti verið

skítsæmileg.? 

Stuttmynd Gríms Hákonarsonar, Slavek the Shit, var

valin besta besta myndin á stuttmynda- og heimild-

armyndahátíðinni Short & Docs um helgina.

ÁRNI EMANÚELSSON Tók of mikið af sæl-

gæti með sér til landsins en neitar að

greiða sekt.

VIÐ HÉRAÐSDÓM REYKJANESS Magnús Einarsson, fyrrverandi eiginmaður Sæunnar Pálsdóttur, heldur því fram að hún hafi viljað láta

bana sér, og hann hafi einungis verið að hjálpa henni við það.

JÓN ÁRNI MÆTIR TIL DÓMSUPPKVAÐN-

INGAR Jón var dæmdur sekur um fjárdrátt

í héraðsdómi eftir að Hæstiréttur hafði

skotið málinu þangað aftur.

Landbúnaðarstofnun:

Fer á Selfoss

LANDBÚNAÐUR Ákveðið hefur verið

að Landbúnaðarstofnun, sem

tekur við þeim verkefnum sem

hafa verið í höndum yfirdýra-

læknis, veiðimálastjóra, aðfanga-

eftirlitsins, kjötmatsformanns og

plöntueftirlitsins, skuli staðsett á

Selfossi.

Guðni Ágústsson landbúnaðar-

ráðherra segir að stofnunin muni

samt sem áður starfa um allt land

og útibú verði á höfuðborgar-

svæðinu.

Ákveðið hafi verið að koma

stofnuninni fyrir nær vettvangi

landbúnaðar og Selfoss sé sterkur

þjónustubær í nálægð við land-

búnað. Með stofnun Landbúnaðar-

stofnunar náist bæði hagræðing

og öflugri stofnun. ?

MYN

D/AP

LÖGREGLUFRÉTTIR

VINNUSLYS VIÐ KÁRAHNJÚKA

Færeyskur ökumaður slasaðist

lítillega þegar vörubíll hans valt

við Kárahnjúka um hádegisbil í

gær. Voru tildrög slyssins óljós

en meiðsl mannsins reyndust

ekki alvarleg þegar til kom.

FERÐAMENN Í BÍLVELTU Tveir

kanadískir ferðamenn slösuðust

illa þegar bfireið þeirra valt við

Hösklá skammt frá Bakkafirði

um miðjan dag í gær. Voru bæði

flutt til Reykjavíkur með sjúkra-

flugi en ekki fengust upplýsingar

um líðan þeirra áður en blaðið

fór í prentun.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48