6 31. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR Frá íbúahreppsfundi í Skorradal: Tekist á um sameiningu SVEITARSTJÓRNARMÁL Tuttugu manns sátu íbúahreppsfund í Skorradals- hreppi sem fram fór í fyrrakvöld í húsi Skógræktarfélags ríkisins í Hvammi. Þar voru ræddir kostir og gallar sameiningar hreppsins og ná- grannasveitarfélaganna en Skorr- dælingar kjósa um málið næsta laugardag. Davíð Pétursson, oddviti Skorra- dalshrepps, kvað að stíga yrði var- lega til jarðar í slíkri sameiningu og að ekki væri skynsamlegt að sam- þykkja hana fyrr en ljóst væri hvaða verkefni yrðu sett yfir á nýja sveitarfélagið og hversu miklar fjárhæðir fengjust frá ríkinu til að sinna þeim verkefnum. Eyjólfur kvað hins vegar að ef sveitarstjórnarmenn væru ósáttir við það hvernig ríkið hefði staðið að málum væri skynsamlegra að taka málin í sínar hendur og það gæti stórt sameinað sveitarfélag að miklu leyti gert. Flestir fundargesta sem tóku til máls voru sammála um að enginn fjárhaldslegur hagur væri af sam- einingu fyrir Skorradal en þó væri ekki loku fyrir það skotið að þeir samþykktu hana. Davíð segir að hann hafi átt von á Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðu- neytisstjóra félagsmálaráðuneytis- ins, á fundinn. Ragnhildur segir að hún hafi að eigin frumkvæði boðist til að fara á fundinn en ekki komist umræddan dag og hafi það verið tilkynnt. ? jse MINNINGARATHÖFN Bandarískra her- manna sem létust á og við Ísland í síðari heimsstyrjöldinni var minnst við hátíðlega athöfn í Fossvogs- kirkjugarði í gær. Sambærilegar at- hafnir fóru einnig fram víða um heim í gær í tilefni Memorial Day, sem haldinn er hátíðlegur síðasta mánudag í maí ár hvert, en þá minn- ast Bandaríkjamenn fallinna her- manna. Rúmlega tvö hundruð hermenn létust hér við land í síðari heims- styrjöldinni og er meirihluti þeirra jarðsettur í Fossvogskirkjugarði. Lagður var blómsveigur að minnis- merki um þá í kirkjugarðinum í gær og flutt voru stutt erindi þeim til minningar auk þess sem herþotur varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli flugu yfir kirkjugarðinn. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu- neytinu, gerði varnarsamning þjóð- anna að umtalsefni í erindi sínu og sagði hann grundvöll varna Íslands og öryggis. - ht Barist ver?ur um sæti Vinstri grænna Búist er vi? a? fleiri en sitjandi borgarfulltrúar Vinstri grænna muni blanda sér í væntanlegan prófkjörsslag flokksins. Rætt hefur veri? um a? bjó?a Vinstri grænum forystu í Orkuveitu Reykjavíkur. REYKJAVÍKURLISTINN Búist er við því að fleiri en núverandi borgarfull- trúar Vinstri grænna í Reykjavík muni blanda sér í slaginn ef flokk- urinn efnir til prófkjörs í Reykja- vík fyrir komandi borgarstjórnar- kosningar. Borgarfulltrúarnir Árni Þór Sigurðsson og Björk Vil- helmsdóttir geta því átt von á að keppt verði um sæti þeirra ef þau ákveða að gefa kost á sér að nýju. Meðal þeirra sem nefnd hafa verið eru þau Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna í Reykjavík og Grímur Atlason, stjórnarmaður Vinstri grænna í Reykjavík. ?Stjórn félagsins hefur ákveðið að það fari fram forval við val á fulltrúum á framboðalistann og það er óháð því hvort af samstarf- inu við R-listann verður eða ekki. En slíkt á eftir að leggja fyrir félagsfund,? segir Þorleifur Gunnarsson, varaformaður Vinstri grænna í Reykjavík. Hann segir að ef um prófkjör verði að ræða verði það lokað prófkjör og þannig aðeins fyrir flokksmenn, en slíkt eigi eftir að útfæra nánar. Viðræðunefnd R-listaflokk- anna fundar í dag en enn er ekki ljóst hvort Vinstri grænir muni taka þátt í R-lista samstarfinu. Vitað er að óformleg tillaga Fram- sóknar um að hver flokkanna þriggja fái tvo fulltrúa á listann og fyrsta og áttunda sætið verði valið með öðrum hætti hefur skapað umræðu sem leggst mis- vel í flokkana. Vinstri grænir eru sagðir geta sæst á slíka tillögu en vilja fá annað úr býtum ef borgar- stjóraefni listans verður fram- bjóðandi úr röðum Samfylkingar- innar og áttunda sætið framsókn- armaður. Meðal þess sem lauslega hefur verið nefnt er að bjóða Vinstri grænum forystuhlutverk í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem erfitt geti verið fyrir Framsókn- arflokkinn að halda forystunni í Orkuveitunni vegna harðrar and- stöðu Vinstri grænna við orkusölu fyrirtækisins til stóriðju. hjalmar@frettabladid.is Alnæmissmitaður borgarstjóri: Smiti? ekki feimnismál MIÐ-AFRÍKULÝÐVELDIÐ, AP Ríkis- útvarpið í Mið-Afríkulýðveldinu skýrði frá því að borgarstjórinn í Bangui, höfuðborg landsins, hefði gengið í hjónaband með ástkonu sinni til margra ára. Þau eru bæði alnæmissmituð og var opinskátt sagt frá því í útvarpinu. Slíkt þykir afar óvenjulegt þar í landi þar sem alnæmi hefur verið mikið feimnismál eins og víðar í Afríkuríkjum, þrátt fyrir það hversu útbreiddur sjúkdómurinn er í álfunni. ?Dauðinn er ekki vís þrátt fyrir alnæmissmit,? sagði Bern- ard Christian Miangue, borgar- stjórinn í Bangui sem loks kvænt- ist sinni heittelskuðu Clementine á laugardaginn var. Hann fer ekk- ert í felur með smit þeirra beggja. ? Eiga Skorrdælingar að samein- ast nágrannasveitarfélögum sínum? SPURNING DAGSINS Í DAG: Fórst þú í leikhús síðasta vet- ur? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 25,62% 74,38% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN ODDVITI OG FORMAÐUR SAMEININGARNEFNDAR Sveinbjörn Eyjólfsson, formaður sam- einingarnefndar, segir hér Davíð Péturssyni oddvita frá kostum þess að búa í sterku sam- einuðu sveitarfélagi. Davíð virðist ekki vera sannfærður en það verður spennandi að sjá hvað sveitungar hans segja í kosningunum á laugardag. F R ÉT T A B L AÐIÐ/JÓN SIGU RÐU R Asersku feðgarnir: Umsátri lauk me? uppgjöf SVÍÞJÓÐ Umsátrinu vegna gíslatök- unnar á sjúkrahúsinu í Blekinge í Karlskrona í Svíþjóð lauk með farsælum hætti um hádegisleytið í gær. Aserskur flóttamaður hafði ráðist inn á sjúkrahúsið rúmum sólarhring áður, en þar var sonur hans vistaður. Aserinn var með nokkra lítra af bensíni í farteskinu og hótaði hann að kveikja í sér og syninum. Hluti sjúkrahússins var rýmdur en á meðan reyndi lög- reglan að tala um fyrir manninum með milligöngu túlks. Í gærmorg- un lét hann hins vegar son sinn lausan og tveimur klukkustundum síðar gafst hann sjálfur upp. Ástæðan fyrir þessum örþrifa- ráðum mannsins er sú að vísa á honum og fjölskyldu hans úr landi. ? F RÉT T A B L AÐIÐ/GV A SVIFIÐ YFIR MINNINGARATHÖFN Herþotur varnarliðsins heiðruðu hermenn sem féllu hér við land í síðari heimsstyrjöldinni en þeirra var minnst við hátíðlega athöfn í Fossvogs- kirkjugarði í gær. Fossvogskirkjugarður: Fallinna hermanna minnst FRÁ FÉLAGSFUNDI VINSTRI GRÆNNA Á SUNNUDAG Allt stefnir í prófkjör hjá Vinstri grænum í Reykjavík, þar sem vitað er að fleiri munu blanda sér í slaginn en núverandi borgarfulltrúar. F RÉT T A B L AÐIÐ/E.ÓL.