Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						1

Hvað heitir forseti Indlands sem er

hér í opinberri heimsókn?

2

Hver vann prestkosninguna í Vopna-

firði?

3

Hvar var valin besta stuttmyndin á

Reykjavík Shorts & Docs í ár?

SVÖRIN ERU Á BLS. 30

VEISTU SVARIÐ?

8 31. mai 2005 ÞRIÐJUDAGUR

Íslandsbanki styrkir Reykjavíkur Maraþon:

Bjarni forstjóri stefnir á 21 kílómetra

SAMNINGUR Íslandsbanki verður að-

alstyrktaraðili Reykjavíkur Mara-

þons næstu þrjú ár og mun það

nefnast Íslandsbanka Reykjavíkur

Maraþon.

Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-

landsbanka, og Knútur Óskarsson,

formaður Reykjavíkur Maraþons,

undirrituðu samning þess efnis í

gær. Markmið hans er að efla áhuga

almennings á hlaupinu og stuðla að

aukinni hreyfingu og hreysti.

Hlaupinu verða gerð skil á heima-

síðu bankans og þar verður hægt að

skrá sig til þátttöku, setja sér mark-

mið og fá æfingaáætlun.

Bjarni Ármannsson hleypur

reglulega og hefur lengst hlaupið

hálft maraþon. Hann hyggur á þátt-

töku í Íslandsbanka Reykjavíkur

Maraþoni í sumar en vill sem

minnst segja um hve langt hann

muni hlaupa. ?Það verður að koma í

ljós. Maður má ekki hlaupa fram úr

sjálfum sér, markmiðin verða að

vera raunhæf,? segir Bjarni. 

Fréttablaðið hefur hins vegar

heimildir fyrir að hann stefni á að

hlaupa hálfmaraþon, sem er 21 kíló-

metrar. - bþs

Umhverfisráðherra afhendir Grænfánann:

Allir skólar á

Hvanneyri grænir

UMHVERFISMÁL Mikil vakning er í

umhverfismálum á Hvanneyri 

Í síðustu viku afhenti Sigríður

Anna Þórðardóttir umhverfisráð-

herra krökkunum á leikskólanum

Andabæ á Hvanneyri Grænfána

fyrir umhverfisvernd í skólanum

en skólinn hefur tekið þátt í verk-

efninu frá því í fyrrahaust. 

Grunnskólinn á Hvanneyri,

Andakílsskóli, hefur hinsvegar

haft Grænfánann frá árinu 2002.

Nú er svo komið að Landbúnað-

arháskóli Íslands, en höfuðstöðv-

ar hans eru á Hvanneyri, vill ekki

vera neinn eftirbátur í umhverfis-

málum sveitarinnar og hefur því

sóst eftir því að taka þátt í verk-

efninu. Að sögn Ásdísar Helgu

Bjarnadóttur, lektors og verkefn-

isstjóra umhverfisnefndar há-

skólans, gengur verkefnið vel en

hins vegar hafa samtökin ekki

veitt háskóla fánann áður og er nú

unnið að því að laga verkefnið

einnig að háskólum. Landbúnað-

arháskólinn stefnir svo að því að

verða fyrsti háskólinn til að fá

fánann en samkeppnin er hörð þar

sem háskólar í Rússlandi og á

Ítalíu hafa það einnig á stefnu-

skrám sínum. - jse 

Eldur kviknaði í íbúð að Mánagötu í Reykjavík:

Kona og ungbarn

bjargast úr eldsvo?a

ELDSVOÐI ?Það var fyrir mestu að

enginn slasaðist og tjónasérfræð-

ingar eru bjartsýnir um að bjarga

megi töluverðu af innanstokks-

munum,? segir Stefán Pálsson,

safnvörður og dómari í Gettu bet-

ur, en kona hans og barn björguð-

ust þegar kviknaði í íbúð þeirra að

Mánagötu um eftirmiðsdagsbil í

gær.

Stefán var ekki sjálfur heima

þegar eldurinn kom upp en segir

konu sína hafa gripið barnið í

snarhasti þegar eldsins varð vart

og hlaupið út. ?Þá hringdi hún á

Neyðarlínuna og slökkvilið var

komið innan skamms. Því gekk

greiðlega að slökkva eldinn en

hann var mestur í eldhúsinu og

þar urðu töluverðar skemmdir,

sérstaklega vegna sóts, enda íbúð-

in lítil. Ég þarf líklega að rífa eld-

húsinnréttinguna og setja upp

nýja en sérfræðingar segja mér

að mörgum öðrum innanstokks-

munum verði hægt að bjarga

þrátt fyrir reykskemmdir.?

- aöe

Lögfræðingur hunds heldur baráttunni áfram:

Mál Taraks kært til

úrskur?arnefndar

DÝRAHALD Lögfræðingur hunds-

ins Taraks, Jón Egilsson, ætlar

að kæra niðurstöðu Umhverfis-

ráðs í máli hans til úrskurðar-

nefndar um hollustuhætti og

mengunarvarnir. Umhverfisráð

vísaði endurupptöku málsins frá

á fundi sínum í gær, en lögmað-

urinn hafði farið fram á að mál-

ið yrði tekið þar upp öðru sinni.

Mál Taraks hefur gert víð-

reist í borgarkerfinu. Það fór

upphaflega fyrir Umhverfis- og

heilbrigðisnefnd, sem úrskurð-

aði að hundurinn skyldi aflífað-

ur. Ástæðan var sú að í ágúst á

síðasta ári hafði hann glefsað í

stúlkubarn og faðir barnsins

kært til lögreglu. Úrskurðinum

var áfrýjað til umhverfisráðs.

Auk lögfræðiaðstoðar fór hund-

urinn í víðtækt skapgerðarmat

og heilsufarsskoðun hjá sér-

fræðingum. Umhverfisráð úr-

skurðaði að hundurinn, sem er

roskinn Collie-hundur, skyldi fá

að lifa en yrði gerður útlægur úr

Reykjavík, þar sem eigendur

hans búa. Lögmaður hundsins

reyndi að leita sátta í málinu,

meðal annars með endurupp-

töku þess hjá Umhverfisráði.

Því var hafnað í gær, sem fyrr

sagði.

?Þessi niðurstaða er fárán-

leg,? sagði lögmaðurinn. ?Ef

menn myndu líta á málið af

sanngirni, þá ætti hundurinn,

sem á ekki nema 2-3 ár ólifuð, að

fá að vera hjá fjölskyldu sinni,

sem býr við bestu aðstæður. Það

er mannvonska og skilnings-

leysi að ætla að rífa hann í

burtu.? - jss

STJÓRN FÉLAGS KVENNA Í ATVINNU-

REKSTRI Nýr formaður félagsins er Margrét

Kristmannsdóttir. Hildur Petersen, Sofia

Johnson, María Maríudóttir, Aðalheiður

Karlsdóttir, Katrín Pétursdóttir og Svava

Johansen skipa auk hennar stjórnina.

Félag kvenna í atvinnurekstri:

Nóg a? reka

fyrirtæki

ATVINNULÍF Konur sem reka fyrir-

tæki fá nú aðgang að Félagi

kvenna í atvinnurekstri en áður

þurftu konur bæði að eiga og reka

fyrirtæki til að fá að vera í félag-

inu. Aðalfundur félagsins var

haldinn í síðustu viku og voru þá

samþykktar breytingar á lögum

félagsins.

Í fréttatilkynningu frá félaginu

kemur fram að það hafi sætt

gagnrýni fyrir að setja aðild að

félaginu svo þröngar skorður, en

breytingarnar gera fleiri konum í

áhrifastöðum kleift að gerast

félagar. Félagskonur eru um 380

talsins en gert er ráð fyrir að

þeim fjölgi verulega eftir breyt-

ingarnar. -ht

ÞAGGAÐ NIÐUR 

Í MARCO Í

HÉRAÐS-

DÓMI

Fær ekki að

ljóstra

upp um

leyndarmál 

Baldvins-

fjölskyldunnar

STARFI

NÁM

SAMHLIÐA

MARKINU NÁÐ Bjarni Ármannsson, for-

stjóri Íslandsbanka, og Knútur Óskarsson,

formaður Reykjavíkur Maraþons, fagna

samningnum á hlaupum.

LEIÐRÉTTING

Missagt var í blaðinu í gær að lög-

reglan í Vík í Mýrdal hefði þurft að

hafa talsverð afskipti af gestum á

mótorkrossmóti í bænum. Mótið

var haldið á Kirkjubæjarklaustri

og segir lögreglan að ólætin hafi

ekki verið bundin við gesti móts-

ins, heldur og aðra sem leið áttu

um Klaustur um nýliðna helgi.

GREITT ÚR GRÆNFÁNANUM Sigríður Anna greiðir hér úr Grænfánanum með krökkunum í

Andabæ á Hvanneyri. 

ENN TEKIST Á UM TARAK Lögmaður Taraks

kveðst ætla að kæra niðurstöðu Umhverf-

isráðs til úrskurðarnefndar. Enn er því ekki

útséð um hvort Tarak og Snædís eigandi

hans verða að skilja.

FRÁ SLYSSTAÐNUM Greiðlega gekk að slökkva eldinn, sem var aðallega í eldhúsi íbúðar-

innar, en reykskemmdir voru töluverðar.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48