Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						4 31. maí 2005  ÞRIÐJUDAGUR

Heilsurækt í Nauthólsvík

Lilju, Telmu og Daníel þykir gaman að koma í Nauthólsvík.

Sumarið er komið með sól í

heiði og því um að gera að

drífa sig út og njóta þess að

rækta heilsuna utandyra ? til

dæmis í Nauthólsvík.

Nauthólsvíkin er skemmtilegur

staður til útivistar og á góðviðris-

dögum er þar margt um manninn.

Ylströndin dregur til sín fjölda

fólks og á göngustígunum má sjá

gangandi, skokkandi og hjólandi

vegfarendur. Frá Nauthólsvík

liggja leiðir til allra átta. Hægt er að

fá sér góðan göngutúr upp í Öskju-

hlíð, rölta meðfram ströndinni eða

skokka alla leið út í Gróttu eða upp í

Elliðaárdal. Nauthólsvíkin er því

góður upphafspunktur fyrir hvers

konar heilsurækt. 

Hjólaferð eftir ströndinni

Jón Þorvarðarson, rithöfundur og

kennari, stundar hjólreiðar af

kappi. ?Ég hjóla oft hér í kringum

Nauthólsvíkina og Ægisíðuna og fer

líka oft rúnt upp í Grafarvog. Ég á

heima uppi í Gerðum og það er

mjög passlegur hringur að hjóla út

á Ægisíðuna og til baka. Þetta er

svona klukkustundar hjólatúr,?

segir Jón.

Jón er mikill hjólagarpur og

hefur verið það lengi. Hann lætur

stígana í borginni ekki duga sér og

hefur haldið út fyrir landsteinana

með hjólið í farteskinu. ?Um pásk-

ana í fyrra fór ég til Sikileyjar og

hjólaði í kringum Etnu. Þetta var

mjög skemmtileg ferð en dálítið

erfið líka því við hjóluðum allt upp í

1.200 metra hæð.? 

Jón er ánægður með að geta

hjólað út um allt á stígum borgar-

innar og notar hjólreiðar sem sína

líkamsrækt. ?Ég sit á rassinum í

vinnunni og verð þess vegna að

hreyfa mig eitthvað til að halda mér

í formi. Hjólreiðarnar eru fínar til

þess.?

Línuskautalíkamsrækt

Systkinin Hrafnhildur og Sverrir

Sveinn Sigurðarbörn þeysa framhjá

Nauthólsvíkinni á línuskautum oft í

viku. Hrafnhildur segist fara eins

oft á línuskauta og hún getur og

hefur stundað þetta sport síðustu

sjö ár. Sverrir hefur ekki eins langa

reynslu og segist nota línuskautana

með annarri líkamsrækt. Þau syst-

kinin segjast alltaf skauta á þessum

slóðum og eiga því iðulega leið

framhjá Nauthólsvíkinni. 

?Þetta er frábær braut og maður

kemst út um allt,? segir Sverrir. ?Ég

get labbað út heima hjá mér, farið

beint út á stíginn og skautað kring-

um allt Seltjarnarnesið og alla leið

hingað.

Sverrir og Hrafnhildur segja að

línuskautar séu góð líkamsrækt og

frábær útivist. ?Þetta reynir mest á

fætur og bak og er mjög góð hreyf-

ing,? segir Hrafnhildur en bendir á

að áreynsla á handleggsvöðva sé

ekki mjög mikil. ?Ætli það eigi ekki

einhver Ameríkani eftir að finnna

upp svona línuskautastafgöngu svo

maður nái að þjálfa handleggina

líka,? segir hún og hlær.

Gangan er sálarfóður

Hjónin Sigrún Hjaltested og Einar

Gunnar Ásgeirsson fara í göngutúr

á hverjum degi. Stundum keyra þau

í Nauthólsvíkina og ganga þaðan en

annars er misjafnt hvert þau fara.

Þau eru ánægð með göngustígana

innan borgarinnar og finnst gott að

geta komist í góða göngutúra.

?Maður getur gengið út um allt án

þess að þurfa að fara yfir götu. Það

er alveg yndislegt,? segir Sigrún. 

Þau hjónin segja að göngutúrar

séu góð heilsurækt og Sigrún

bendir á að það sé svo nærandi að

vera úti. Einar Gunnar vill ekki

gera eins mikið úr hreyfingunni en

viðurkennir að útiveran sé góð og

það sé góð heilsubót að ganga úti.

?Ég var áður í golfi en get það ekki

lengur þannig að göngutúrarnir

koma í staðinn,? segir Einar.

Gaman að leika í Nauthólsvík

Lilja Jónsdóttir buslar í Nauthóls-

víkinni ásamt syni sínum Daníel

Leví Bragasyni og frænku þeirra

Telmu Rut Sæþórsdóttur. Hún segir

að þau komi oft þangað og séu

ánægð með svæðið. ?Þetta er nú

meiri útivera en hreyfing,? segir

Lilja og bendir á að það sé gaman að

gera eitthvað saman og fá í leiðinni

ferskt loft. Það sé heilsurækt út af

fyrir sig.

?Við komum oft hingað í fyrra-

sumar og Daníel talar mikið um að

fá að fara á ylströndina þannig að

við reynum að skreppa hingað

þegar við getum.? 

Daníel gefur sér lítinn tíma til að

tala við blaðamann enda mun meira

spennandi að leika sér í sandinum

og skoða steinana. Hann segist

stundum fá að fara í sund í Naut-

hólsvíkinni en núna er hann bara að

leika sér í fjörunni. Aðspurður segir

hann að honum þyki skemmtilegast

að moka sand með skóflu. Það er

líka ágætist líkamsrækt.

thorgunnur@frettabladid.is

Olivia Newton-John hefur

þróað brjóstaþreifara sem

nota á við sjálfskoðun

brjósta.

Kominn er á markað brjóstaþreif-

ari frá LivAid sem er ætlaður til

þess að auðvelda konum sjálfskoð-

un brjósta og hvetja þær til að

skoða þau reglulega en ein af hverj-

um sjö konum greinist með

brjóstakrabbamein. Olivia Newton-

John er stuðningsaðili LivAid,

samtaka sem berjast gegn krabba-

meini um allan heim. Sjálf greindist

Olivia með brjóstakrabbamein og

tók það hana nokkur ár að sigrast á

því. Frá því hefur hún verið verið

ötull liðsmaður í baráttunni gegn

brjóstakrabbameini og hvatt konur

til sjálfskoðunar brjósta. 

Brjóstaþreifarinn er hringlaga

gelpoki sem á að leggja yfir brjóst-

ið meðan brjóstið er þreifað. Það á

að vera auðveldara að finna hnúta í

brjóstunum með pokanum en ef

fingurnir eru lagðir beint á brjóstið

og má hugsa sér brjóstaþreifarann

sem stækkunargler fyrir fingurna.

Pokinn er lítill og léttur og auðvelt

er að stinga honum í veski eða í

náttborðsskúffuna, en honum fylgir

lítill flauelspoki sem hægt er að

geyma hann í. Konur þurfa þó eftir

sem áður að fara í reglubundna

brjóstaskoðun hjá Krabbameins-

félaginu.

Liv-brjóstaþreifarinn fæst í

versluninni Maður lifandi og á vef-

síðunni www.goodforhealth.com

má sjá myndskeið þar sem sýnt er

hvernig nota á brjóstaþreifarann

við sjálfskoðun.

Hollbiti   Lífrænt   Grænmeti   Ávextir  

Kjöt og fiskur    Salatbar   Safabar   Engin aukaefni

Heilsukostur  

? fyrir þig og þína

 

 

Ertu að fara í sumarbústaðinn, í fjallgöngu, í gönguferð, 

í ferðalag eða vantar hollan og góðan bita í hádeginu,

í kvöldmatinn og fyrir saumaklúbbinn?  

Allt á einum stað fyrir heilsamlegt sumar.

HOLLBITI í einum grænum!

Opið virka daga kl. 10?20 og laugardaga kl. 10?17

heldur betur

Jón Þorvarðarson hjólar til að halda sér í formi.

Systkinin Hrafnhildur og Sverrir fara eins oft og þau geta á línuskauta.

Sigrún og Einar Gunnar fara í göngutúr á

hverjum degi.

F

R

ÉT

T

A

B

L

AÐIÐ/H

E

IÐA

Olivia Newton-John sigraðist á brjóstakrabba og hvetur nú konur til sjálfskoðunar.

MYN

D/GE

T

T

Y

 I

M

A

GES

Brjóstaþreifarinn Liv virkar eins og stækk-

unargler fyrir fingurna.

F

RÉT

T

A

B

L

AÐIÐ/P

J

E

T

U

R

Auðveldar leit að

brjóstakrabbameini

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48