Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						Alþjóða reyklausi dagurinn er haldinn árlega og

ákveður Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO)

hvert þema dagsins er hverju sinni. Í ár er þemað

heilbrigðisstarfsmenn og tóbaksvarnir og ætlunin

er að vekja heilbrigðisstarfsmenn til umhugsunar

um hlutverk sitt og tækifæri í tóbaksvörnum.

Jafnframt er athygli almennings vakin á því að

heilbrigðisstarfsmenn geta veitt aðstoð og stuðn-

ing í baráttunni við reykingarnar.

Í tilefni dagsins verður ýmislegt um að vera. Í

Kringlunni og Smáralind veita hjúkrunarfræðing-

ar og ljósmæður vegfarendum upplýsingar og

aðstoð við að hætta tóbaksnotkun. Símaþjónustan

?Ráðgjöf í reykbindindi?, sími 800 6030, verður

opin frá 10 til 22 og þangað getur fólk hringt og

fengið aðstoð hjá sérþjálfuðum hjúkrunarfræð-

ingum. Einhverjar heilbrigðisstofnanir og heilsu-

gæslustöðvar verða með sérstaka dagskrá í tilefni

dagsins og Læknafélag Íslands, með stuðningi frá

Lýðheilsustöð og Landlæknisembættinu, gefur út

bækling fyrir lækna um viðtalsmeðferð fyrir fólk

sem reykir. Þá verður einnig haldin uppskeruhátíð

í myndasamkeppni um tóbaksvarnir að Ásvöllum

í Hafnarfirði milli klukkan 15 og 17.

Reyklaus dagur í dag

Alþjóða reyklausi dagurinn er haldinn í dag og tilvalið að nota daginn vel og slökkva í síðustu 

rettunni.

6 31. maí 2005  ÞRIÐJUDAGUR

Virkar vel gegn vöðvabólgu

Brynjólfur Björnsson segir að það sé ekkert erfiðara að synda skriðsund en bringusund.

Námskeið fyrir fullorðna í

skriðsundi eru afar vinsæl

enda margir sem telja sig

ekki kunna skriðsundið nægi-

lega vel.

?Mörgum þeim sem ekki mega

synda bringusund er ráðlagt að

synda skriðsund í staðinn, þar

sem bringusundið reynir mikið á

hnjáliði og neðri hluta baksins,?

segir Brynjólfur Björnsson leið-

beinandi, sem kennir fullorðnum

á öllum aldri skriðsund. ?Skrið-

sund styrkir bakið án þess að

reyna of mikið á það auk þess sem

það er mýkra fyrir hnjá- og

mjaðmarliði,? segir Brynjólfur.

Hann bætir við að skriðsundið sé

mjög gott gegn vöðvabólgu, en

allt of margir sem séu með vöðva-

bólgu syndi bringusund. 

?Í upphafi getur skriðsund ver-

ið erfiðara en bringusund en þeg-

ar maður hefur náð góðum tökum

á því er hægt að synda endalaust.

Lykilatriðið er að ná að slaka á og

hafa rétta öndun,? segir Brynjólf-

ur en marga segir hann vera með

vitlausa öndun eða of mikil fóta-

tök, sem þreyta mann fljótt. 

Brynjólfur var sjálfur mikill

sundkappi á árum áður og átti

hann Íslandsmetið í 1.500 metra

skriðsundi árið 1979, en segist

ekki synda mikið nú í seinni tíð.

?Ég er bara á bakkanum og leið-

beini fólki þaðan og gengur það

mjög vel. Í þau tíu skipti sem ég

hitti nemendurnar ná þeir góðum

tökum á skriðsundi og ættu að

komast vel af stað.

Þeim sem gengur vel kenni ég

jafnvel að synda eftir klukku, en

það er voðalega gott að kunna að

synda eftir henni,? segir Brynjólf-

ur. 

Síðasta námskeið Brynjólfs

fyrir sumarið hefst 6. júní en þau

hefjast aftur með haustinu.

?Aldursdreifingin er mikil, en ég

hef haft nemendur vel undir tví-

tugu og langt yfir sjötugt,? segir

Brynjólfur. 

Frekari upplýsingar um nám-

skeiðið er hægt að fá hjá Brynjólfi

í síma 699 2998.

kristineva@frettabladid.is

Gulli Helga

Laugardagsmorgna 9-13

F

RÉT

T

A

B

L

AÐIÐ/GV

A

Lifnaðarhættir nútímafólks hafa leitt til þess að við hreyfum okkur ekki nóg.

Vinna sem krefst líkamlegrar hreyfingar er mun minni en áður og flestir sitja

við vinnuna sína allan daginn. Regluleg hreyfing er okkur nauðsynleg og þá

sérstaklega hreyfing sem fær hjartað til að slá hraðar, eins og sund, rösk

ganga, hlaup eða sipp. Við þessa tegund hreyfingar notar líkaminn súrefni til

að framleiða þá orku til þarf fyrir hreyfinguna. Þolfimi af þessu tagi styrkir

hjartað og lungun ef hún er stunduð við hæfilegt álag í það minnsta 30 mínút-

ur nokkrum sinnum í viku. Hins vegar er engin þörf á að æfa eins og mara-

þonhlaupari til að koma sér í gott form. Hvaða hreyfing sem er, jafnvel þó hún

sé aðeins í nokkrar mínútur á dag, er betri en engin hreyfing. Málið er að

koma sér af stað og byrja og er ein ágæt leið til þess að ganga í 10-15 mínút-

ur í hádeginu.

Lítil hreyfing betri en engin

Flestir sitja við vinnuna og þurfa því að hreyfa sig utan hennar.

Sund er góð hreyfing sem styrkir hjartað og lungun.

Neytendur ruglaðir í hollustunni 

Trúa ekki lengur upplýsingum um hollustu eða óhollustu matvæla.

Misvísandi skilaboð misviturra

sérfræðinga um hvað sé hollt og

hvað ekki fara í taugarnar á

breskum neytendum, sem segj-

ast hættir að hlusta á ráðlegging-

ar sérfræðinganna. Fyrirtækið

Mintel, sem gerði könnunina,

segir að breskir neytendur séu

hættir að trúa heilsuráðgjöfum

þar sem uppýsingarnar breytist

frá degi til dags og engin leið sé

að henda reiður á þeim.

Tveir þriðju þátttakenda

töldu sig ekki geta treyst ráðum

fræðinganna og annar eins fjöldi

sagðist heldur ekki treysta upp-

lýsingum á pakkningum mat-

væla.

Þá kom einnig fram í könnun-

inni að til er orðin ný tegund

neytenda, sem öfugt við hina

trúa öllu sem þeir heyra og lesa

um hollustu og grandskoða allan

mat, logandi hræddir um að eitt-

hvað verði þeim að fjörtjóni. 

James McCoy, markaðsfull-

trúi Mintel, sagði greinilegt að

fjöldi fullorðinna einstaklinga

þjáðist nú af ?krónísku yfir-

flæði? af hollustuupplýsingum. 

?Heilbrigðisyfirvöld og selj-

endur matvæla verða að finna

nýjar leiðir til að ná til neytenda.

Ástandið núna veldur því bara að

fólk verður ráðvillt og gefst

upp,? segir McCoy.

Kex myndi trúlega seint flokkast undir hollustu en Bretar eru orðnir ruglaðir af mis-

vísandi hollustuupplýsingum.

Heilbrigðisstarfsfólk getur veitt upplýsingar og aðstoð í baráttunni við tóbakið.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48