10 31. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR Dauðinn á ekki að vera feimnismál Nú stendur yfir á Grand Hótel í Reykjavík ráðstefna um heildræna umönnun í heil- brigðiskerfinu. Ráðstefnan er samvinnuverkefni milli fag- aðila í Skotlandi og á Íslandi. Skoski hjúkrunarfræðingurinn Jo Hockley er meðal fyrirles- ara á ráðstefnunni. Jo, sem hefur áratuga reynslu af líknarhjúkrun krabbameins- sjúkra, hefur undanfarin þrjú ár stjórnað rannsóknum á umönnun dauðvona vistmanna á elliheimil- um í Edinborg. ?Mig langaði að skoða hvaða áherslur eru lagðar í umönnun á elliheimilunum, en langflestir aldraðir deyja nú orðið á þess konar stofnunum. Sjúkrahúsin hafa ekki plás fyrir gamalt dauð- vona fólk og fjölskyldurnar eru ekki í aðstöðu til að annast hina eldri. Framlag ríkisins til þessara heimila er ekki nægilegt þannig að gamla fólkið selur allt sem það á og flytur inn á elliheimili. Ég gerði könnun í mínu nánasta umhverfi og það kom í ljós að 51% vist- manna á þessum heimilum deyr innan tveggja ára. Mig langaði í rannsókninni að skoða hvernig starfsfólk á þessum stöðum er í stakk búið að takast á við dauðann, sem er alltaf nálægur. Markmiðið er svo að miðla stjórnendum af þessari reynslu og reyna að semja um leiðir til að breyta starfs- aðferðunum til hins betra.? Jo segir vandamálin ekki síst þau að fáir faglærðir starfi á elli- heimilunum og hinir ófaglærðu fái litla sem enga hálp til að takast á við aðstæðurnar. ?Þetta er yfir- leitt yndislegt fólk sem leggur sig fram og ber ósvikna umhyggju fyrir vistmönnum, en oft er þetta fólk með litla reynslu eða þekk- ingu til að taka þátt í því sem gamla fólkið er að upplifa. Það er mikið lagt upp úr heimilislegu andrúmslofti á elliheimilunum en þó er aðaláherslan á daglegar athafnir, eins og að koma fólki á fætur, klæða það og fæða. Veik- indi þess eru ekki rædd og ekki heldur sú staðreynd að flestir eru deyjandi. Ég er með verkefni í tengslum við rannsóknina, þannig að þegar vistmaður deyr hittist starfsfólkið og ræðir saman um ferlið. Hvernig hjúkrunin gekk, hvernig við brugðumst við og hvernig okkur og þeim sem við vorum að hjúkra leið. Við verðum að nálgast þetta viðfangsefni á nýjan hátt, halda í það sem er gott en líka hjálpa starfsfólkinu að læra af persónulegri reynslu sinni á staðnum.? Jo hefur hjúkrað deyjandi krabbameinssjúklingum í áratugi. Hvernig tekst hún sjálf á við návígið við dauðann? ?Það hjálpar í mínu tilfelli að ég er trúuð og lít ekki á dauðann sem endalok. Þeir sem vita ekki hverju þeir trúa eiga hins vegar erfiðara með að takast á við dauðann og margir staldra stutt við í þessari vinnu. Gamalt fólk sem er að deyja er mjög meðvitað um hvert stefnir og langar að ræða það, en vill jafnframt ekki íþyngja starfs- fólkinu. Dauðinn er líka feimnis- mál og ungt fólk óttast hann og forðast að ræða hann. Það er hins vegar mjög gefandi að vera ná- lægt gömlu fólki sem er að kveðja í sátt og hefur svo mörgu að miðla af visku sinni og reynslu. Það hvetur líka fók til að líta inn á við og huga að eigin andlegu málum. Við þurfum að gera starfsfólki á elliheimilum kleift að nálgast hina deyjandi af virðingu og skilningi og líta á gamla fólkið sem mann- eskjur, en ekki bara sjúklinga.? ? FRÁB ÆR HEILSUDRYKKUR Aloe Vera plantan þykir hafa góð áhrif á maga og meltingu. Drykkurinn er sérlega bragðgóður og fæst í matvörubúðum og apótekum.Fæst í apótekum og matvöruverslunum Frískandi Aloe Vera drykkur með aldinkjöti úr Aloe Vera plöntunni og viðbættu kalki Fosfoser Memory er ísraelskt náttúrulyf sem getur unnið gegn gleymsku og minnistapi. Rannsóknir sýna að skortur á vissu efni í heilafrumum getur valdið gleymsku og hægt er að vinna gegn þessari þróun með því að bæta heilanum upp þennan skort. Það má til dæmis gera með því að nota efnið Fosfoser Memory, sem er unnið úr sojabaunum og er fyrirtaks fæðubótarefni fyrir heil- ann. Virkni Fosfoser Memory hefur verið rannsökuð hjá fólki með minnissjúk- dóma og er árangurinn góður. Til eru dæmi um að alzheimersjúklingar hafi sýnt töluverðar framfarir og margt eldra fólk tekur efnið reglulega. Yngra fólk getur einnig notið góðs af Fosfoser Memory, sem bætir skammtímaminn- ið, en þó er ekki ráðlagt að byrja að taka efnið fyrr en erfiðleikar vegna minnistaps fara að gera vart við sig. Lamadýr lækna sjúkdóma Dýrin virðast framleiða mótefni sem geta læknað sjúkdóma í mönnum, eins og Alzheimer. Lamadýr gætu hjálpað við að lækna sjúkdóma í mönn- um, samkvæmt nýrri rannsókn sem er samstarfsverk- efni Kanada og Belgíu. Dýrin framleiða mótefni sem gætu verið notuð til að lækna til dæmis Alzheimer-sjúkdóm- inn. Með því að nota mótefnin úr lama- dýrunum gæti með- ferð verið ódýrari og virkað betur. Sér- fræðingar í Bret- landi hafa hins veg- ar varað fólk við því að rannsóknin er enn á frum- stigi. Í rannsókninni kemur fram að lamadýr fram- leiða mun einfaldari tegund af mótefni en mann- skepnan og því er auðveldara að taka lítið brot af mótefn- inu og nota í lækn- ingameðferð. Um- fang efnisins er tíu sinnum minna en mótefnið sem finnst í mönnum og því á það betra með að fara inn í vefi mannslíkamans. Mótefnið er enn fremur háþróaðra í dýrunum en mönn- um því dýrin þurfa að þola mun óvægn- ari aðstæður. Lamadýrunum er gefinn mótefnisvaki til að hrinda af stað mótefnisframleiðslu. Vís- indamenn geta þá séð hvaða efni bindast ákveðn- um mótefnisvökum. Síðan eru efnin ræktuð í stórum stíl á rannsóknarstofum. Jo Hockley hjúkrunarfræðingur heldur fyrirlestur um umönnun deyjandi fólks á elliheimilium. Fosfoser Memory getur hjálpað þeim sem eiga erfitt með að muna. Töflur sem vinna gegn minnistapi Hægt er að bæta minnið og sporna gegn minnistapi með því að taka fæðubótarefni fyrir heilann. Barnabörnin í hættu Reykingar á meðgöngu hættulegri en talið var. Nýjar rannsóknir sýna að hættan vegna reykinga á meðgöngu er mun meiri en talið hefur verið. Vísindamenn hafa komist að því að barnabörnum kvenna sem reyktu á meðgöngu er tvöfalt hættara við að fá asma en barna- börnum þeirra kvenna sem ekki reyktu á meðgöngu. Ef bæði amma og móðir barns reykja á meðgöngu eykst hættan enn frekar. Barn sem elst upp í reyklausu umhverfi og á móður sem ekki reykti meðan á með- göngunni stóð, en á ömmu sem reykti á meðgöngu, er tvöfalt lík- legra til að fá asma en börn sem eiga reyklausar ömmur. Mótefnið sem lamadýrin framleiða er háþróaðra og minna en í mönn- um og á því betra með að komast inn í vefi mannslíkamans. Reykingar eru skaðlegar fyrir fóstur.