Í dag eru liðin 60 ár síðan Geir- þrúður Hildur Bernhöft lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands, fyrst kvenna. Af því tilefni verður hátíðar- samkoma í kapellu Háskólans sem að standa guðfræðideild HÍ, Félag guðfræðinga og Kvenna- kirkjan. Geirþrúður Hildur fæddist 19. júlí 1921. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1940 og cand theol frá Há- skóla Íslands 31. maí 1945. Eins og gefur að skilja var Geirþrúður Hildur eina konan í sínum árgangi og það var raunar ekki fyrr en hátt í tuttugu árum síðar sem önnur kona lauk emb- ættisprófi frá deildinni. Var það Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sem lauk námi 1962 og var vígð til embættis 1974. Nú er öldin önn- ur og í guðfræðideild HÍ eru 95 konur og 53 karlar. Að sögn Ingibjargar Bern- höft, dóttur Geirþrúðar Hildar, hafði móðir hennar hug á að verða prestur en af því varð ekki. ?Sigurgeir Sigurðsson, sem þá var biskup, hvatti hana til að gerast kirkjunnar þjónn en heimilisaðstæður buðu ekki upp á það.? Og hún rifjar upp að ekki voru allir jafn hrifnir af að fá konu í prestastétt. ?Biskup sagði mömmu að þrír prestar hefðu hringt í sig og sagst segja af sér embætti ef hann vígði þessa stelpu. Hún spurði hann þá hvað hann myndi gera ef hún vildi vígjast og biskup svaraði: ?Ja, þeir verða þá bara að hætta?.? Geirþrúður Hildur var elli- málafulltrúi Reykjavíkurborgar frá 1965 og starfaði að málefn- um aldraðra til æviloka. Hún var einn af stofnendum kvenna- deildar Rauða kross Íslands og var varaþingmaður Reykjavíkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Geirþrúður Hildur skrifaði fjölda greina um málefni kvenna og aldraðra og um félagsmál og stjórnmál. Hún var sæmd ridd- arakrossi hinnar íslensku fálka- orðu 1983 fyrir störf að málefn- um aldraðra. Geirþrúður Hildur lést 15. júní 1987. Eiginmaður hennar var Sverrir Bernhöft, stórkaupmað- ur í Reykjavík. Börn þeirra eru Hildur Bern- höft, Sverrir Vilhelm Bernhöft, Ingibjörg Bernhöft og Kristín Edda Bernhöft. Hátíðarsamkoman í kapellu Háskólans hefst klukkan 5 í dag og er öllum opin. ? 18 31. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR WALT WHITMAN (1819-1892) fæddist þennan dag. TÍMAMÓT: 60 ÁR SÍÐAN GEIRÞRÚÐUR HILDUR BERNHÖFT LAUK EMBÆTT- ISPRÓFI Í GUÐFRÆÐI Þrír prestar hótuðu uppsögnum ?Ég verðskulda eflaust alla mína óvini, en ég held ég eigi ekki skilið að eiga vini mína að.? Bandaríska skáldið Walt Whitman er dáð meðal landa sinna. Whitman lést úr heilablóðfalli árið 1892. timamot@frettabladid.is GEIRÞRÚÐUR HILDUR BERNHÖFT Í dag eru liðin sextíu ár síðan Geirþrúður Hildur lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands, fyrst kvenna. Af því tilefni verður hátíðarsamkoma í kapellu Háskólans klukkan fimm í dag. Á þessum degi árið 1902 undirrituðu fulltrúar Bret- lands og Búaríksins í Suður-Afríku Vereeniging-sátt- málann og bundu þar með enda á Búastríðið, sem hafði staðið í hálft fjórða ár. Búar voru afkomendur hollenskra landnema í Suður-Afríku. Bretar sölsuðu undir sig völdin í hollensku nýlendunni í Napóleonsstríðunum árið 1806. Upp úr 1830 stofnuðu Búar tvö ný ríki, Óraníu og Transvaal, í landi sem fram að því hafði tilheyrt innfæddum Afríkumönnum. Sambúð nýju ríkjanna við Bretland var friðsæl framan af þar til á sjöunda áratug 19. aldar, þegar stórar demanta- og gullnámur fundust á svæðinu. Skærur milli Búaríkj- anna og Bretlands hófust upp úr 1890 og stig- mögnuðust allt til ársins 1899 þegar stríð skall á. Bretar höfðu hertekið stærstan hluta Búaríkjanna um mitt ár 1900, en skæruliðar Búa gerðu breska herliðinu margar kárínur. Árið 1901 fóru Bretar að leita að og gera út af við skæruliða á kerf- isbundinn hátt. Fjölskyld- um þeirra var smalað í fangabúðir. Árið 1902 höfðu Bretar brotið and- spyrnuhreyfingu Búa á bak aftur og hinn 31. maí gáfust þeir upp. Friðarsáttmálinn fól í sér að Bretar hefðu yfirráð í Búaríkjunum, en skæruliðum var veitt sakaruppgjöf. Árið 1910 stofnuðu Bretar sjálf- stætt ríki Suður-Afríku, sem samanstóð af Búaríkj- unum tveimur, Góðrarvonarhöfða og Natal. HERMENN BÚA ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1809 Franz Josef Haydn tónskáld ber beinin. 1962 Adolf Eichmann hengdur í Jerúsalem. 1973 Richard Nixon Bandaríkja- forseti og Georges Pompi- dou Frakklandsforseti funda í Reykjavík. 1979 Simbabve lýsir yfir sjálf- stæði. 1990 Gamanþátturinn Seinfeld frumsýndur. 1991 Alþingi kemur saman í fyrsta sinn eftir að deilda- skipting var afnumin. 1991 Hin ástralska Minnie Mun- ro giftir sig 102 ára að aldri og verður elsta brúður allra tíma. Búastrí?inu l?kur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari, Miðleiti 7, lést föstudaginn 27. maí. Útförin verður auglýst síðar. Helga Kristinsdóttir Kristinn Sveinbjörnsson Valgerður Bjarnadóttir Sigurður Sveinbjörnsson Dagný Jónasdóttir Árni Sveinbjörnsson Áslaug Sigurðardóttir Sveinbjörn Sveinbjörnsson Auður Jónsdóttir Anna María Sveinbjörnsdóttir Egill Ingibergsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurbjörg Stefánsdóttir Hjallaseli 55, Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala sunnudaginn 29. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Örn Baldursson Elísabet Weisshappel Jóna Þorvaldsdóttir Guðmundur Gylfason Anna Þorvaldsdóttir Björn Guðmundsson Lára Þorvaldsdóttir Steindór Helgason Brynja Þorvaldsdóttir Jón Björn Hjálmarsson Regína Þorvaldsdóttir Örn Pálsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi Magnús Nikulásson fyrrv. yfirverkstjóri, Snorrabraut 56, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. júní kl. 15.00. Elín Þorsteinsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Krístín Magnúsdóttir, Guðni R. Ragnarsson, Þóra Magnúsdóttir, Magnús Magnússon, Lára Snæbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. JAR?ARFARIR 11.00 Benedikt Már Aðalsteinsson, Holtagerði 65, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju. 13.00 Jóhanna Ásdís Jónasdóttir, Mánatúni 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 14.00 Guðríður Stefanía Vilmunds- dóttir, Hraunsvegi 17, Njarðvík, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvík- urkirkju. 15.00 Sigurjón G. Sigurjónsson, Birki- grund 71, Kópavogi, verður jarð- sunginn frá Digraneskirkju. ANDLÁT Sveinbjörn Sigurðsson, byggingameist- ari, Miðleiti 7, lést föstudaginn 27. maí.