Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						31. maí 2005  ÞRIÐJUDAGUR

> Við erum hræddir um ...

... að fimmtán ára vera Eyjamanna í efstu

deild gæti verið á enda

haldi áfram sem horfir.

Eyjaliðið er stigalaust eftir

fjóra fyrstu leikina í fyrsta

sinn í sögu félagsins í tíu

liða deild og það er ljótt að

brottfallið úr liðinu hafi verið

of mikið. Vörnin er hriplek og

sóknarleikurinn bitlaus og margt

þarf að breytast til svo fari ekki.

Heyrst hefur ...

... að HSÍ leiti hugsanlega réttar síns hjá

evrópska handknattleikssambandinu í

baráttu sinni við að fá Ólaf Stefánsson

lausan frá Ciudad Real svo hann geti

tekið þátt í undirbúningi landsliðsins fyrir

undankeppni Evrópumótsins. Ciudad vill

ekki hleypa Ólafi heim fyrr en að loknum

kveðjuleik Talant Dujshebaev en hann

leggur nú skóna á hillinuna og tekur við

þjálfun spænska liðsins.

sport@frettabladid.is

20

> Við hrósum ...

.... Fylkismönnum fyrir að spila frábæran

fótbolta á Akranesi í gær.

Það mæta ekki öll lið

upp á Skipaskaga og

kenna heimamönnum að

spila fótbolta. Fylkismenn

sýndu í gær örugglega

það besta sem sést hefur

til þessa í sumar.

fia? var ótrúlegur styrkleikamunur á ÍA og Fylki á Akranesi í gær. Heimamenn

máttu flakka fyrir a? hafa ?a?eins? tapa? 3-0.

Leikur kattarins að músinni

FÓTBOLTI Þetta var svo sannarlega

leikur kattarins að músinni og var

engu líkara á köflum en leikmenn

Fylkis trúðu ekki hversu lítil mót-

spyrna Skagamanna var í leiknum.

Heimamenn voru átakanlega slak-

ir í fyrri hálfleik og voru spilaðir

hvað eftir annað upp úr skónum af

sprækum Fylkismönnum. Hrafn-

kell skoraði með góðu skoti og

gestunum óx ásmegin í kjölfarið.

Sóknarlotur þeirra þyngdust með

hverri mínútunni og meðvitundar-

lausir heimamenn vissu vart sitt

rjúkandi ráð. 

Blessunarlega fyrir heima-

menn voru miðverðirnir Gunn-

laugur Jónsson og Reynir Leósson

vel vakandi og þeir sáu til þess að

Fylkir leiddi aðeins með einu

marki í leikhléi. Hálfleiksræða

Ólafs Þórðarsonar virðist hafa

farið inn um annað eyrað og út um

hitt því Skagamenn voru í sama

tjóninu í síðari hálfleik. Fylkis-

menn gerðu síðan út um leikinn á

þriggja mínútna kafla í síðari hálf-

leik með tveim verðskulduðum

mörkum.

Það var frábært að fylgjast með

Fylkisliðinu í gær. Liðið er mjög

léttleikandi, sækir hratt og leik-

menn eru ekki að eyða of mörgum

snertingum á boltann. Helgi Valur

var sem kóngur í ríki sínu og

Björgólfur var verulega sprækur í

fremstu víglínu. 

?Þetta var frábært hjá okkur og

ekki alltaf sem okkur hefur gengið

svona vel uppi á Skaga,? sagði

Helgi Valur Daníelsson, leikmaður

Fylkis. ?Sérstaklega gekk þetta vel

í fyrri hálfleik þar sem við lékum

okkar besta bolta. Svo komu tvö

mörk snemma í seinni hálfleik og

óþarfi að halda áfram að pressa

jafn mikið eftir það. Þótt það hafi

vantað fastamenn í liðið í dag

eigum við mjög sterka menn sem

eru klárir í að koma inn. Hópurinn

er því gífurlega sterkur.?

Um Skagaliðið er lítið annað að

segja en að það var arfaslakt og

olli gríðarlegum vonbrigðum.

Liðið getur þakkað miðvörðunum

og markverðinum Páli Gísla fyrir

að ekki fór verr. 

?Þetta var bara rassskelling í

orðsins fyllstu merkingu,? sagði

Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,

skiljanlega óánægður með sína

menn. ?Við höfðum tekið sex stig á

heimavelli fyrir leikinn og svo

koma Fylkismenn og hreinlega

kenna okkur að spila fótbolta. Ég

bara vona að við höfum lært eitt-

hvað af þessu.? -hbg, -esá

LEIKIR GÆRDAGSINS

Landsbankadeild karla:

FH 4 4 0 0 12?1 12

VALUR 3 3 0 0 7?2 9

FRAM 3 2 0 1 6?1 6

FYLKIR 4 2 0 2 7?5 6

KR 4 2 0 2 4?4 6

KEFLAVÍK 3 2 0 1 5?6 6

ÍA 4 2 0 2 4?7 6

GRINDAVÍK 4 1 0 3 6?12 3

ÞRÓTTUR 3 0 0 3 1?6 0

ÍBV 4 0 0 4 3?11 0

Umspil í ensku 1. deildinni:

WEST HAM?PRESTON 1?0

1?0 Bobby Zamora /(57.).  West Ham spilar í

ensku úrvalsdeildinni næsta vetur og markið sem

Bobby Zamora skoraði í leiknum er talið vera

um 35 milljón punda virði. 

Norska úrvalsdeildin:

VÅLERENGA?START 1?1

Árni Gautur Arason lék allan leikinn í marki

Vålerenga og Jóhannes Harðarson var allan

tímann á miðjunni hjá Start. Báðir stóðu sig vel.

Sænska úrvalsdeildin:

HAMMARBY?HÄCKEN 3?1

Pétur Marteinsson lék allan leikinn með

Hammarby, sem er í 4. sæti eftir sigurinn.

LANDSKRONA?HELSINGBORG 4?3

IFK GÖTEBORG?ELFSBORG 1?1

Hjálmar Jónsson lék fyrri hálfleikinn með IFK.

Eyjamenn töpuðu fjórða leiknum í röð í gær:

FÓTBOLTI Grindvíkingar hrepttu

sín fyrstu stig og skildu

Eyjamenn eftir stigalausa á

botninum þegar þeir unnu leik

liðanna 2?1 í Grindavík í gær. Öll

mörk leiksins komu á fjörugum

fimm mínútna kafla í fyrri

hálfleik. ÍBV gerði sitt besta til að

jafna metin í síðari hálfleik og

færðu Grindvíkingar sig aftar á

völlinn með hverri mínútunni

sem leið ? og einum of aftarlega

undir það síðasta. En vörn liðsins,

með Óla Stefán Flóventsson sem

langbesta mann, stóðst allar at-

lögur ÍBV án teljandi vandræða

og uppskar liðið þannig sinn

fyrsta sigur,  býsna verðskuldað-

an sem slíkan.

Það er ótrúlegt á köflum að sjá

áhrifin sem Kekic hefur á lið

Grindavíkur. Hann er þessi afger-

andi leikmaður sem allir þjálfar-

ar vilja hafa í sínu liði ? sá sem

gerir samherja sína betri. 

?Það skiptir öllu máli að fara

með sigur á bakinu í þetta frí sem

er fram undan. Mér fannst við

spila vel í fyrri hálfleik en duttum

aðeins niður í þeim síðari en löng-

unin í sigur skipti sköpum hér í

dag,? sagði Kekic eftir leik. Um

eigin frammistöðu sagði Kekic

hana aukaatriði, honum sé alveg

sama hvar á vellinum hann spili.

?Bara að við vinnum, þá er ég

ánægður,? sagði Kekic. 

Öðruvísi horfir við hjá ÍBV,

sem enn á eftir að finna stöðug-

leikann. Það sem liðið vantar sár-

lega er hinn eiginlegi leikstjórn-

andi og leikmaður sem getur

bundið enda á sóknir. 

Á meðan þjálfarinn Guðlaugur

Baldursson finnur ekki þessa

menn verður ÍBV í vandræðum

með sóknina og ef mark er tekið

af varnarleiknum verður ekki

annað séð en að liðið muni aðeins

auka á þau vandræði, því ekki er

hann sannfærandi. Liðið er stiga-

laust á botni deildarinnar og ef

áfram heldur sem horfir mun sú

staða ekki breytast. - vig

Fyrstu stig Grindvíkinga

Magnús Gylfason, þjálfari KR, reiddist

mjög þegar hann skoðaði myndbands-

upptöku af ákveðnu atviki úr leik liðsins

gegn FH. Umrætt atvik var að brotið

var á sóknarmanninum Grétari Hjart-

arsyni í seinni hálfleik og Ólafur

Ragnarsson dómari dæmdi víta-

spyrnu. Einar Örn Daníelsson aðstoð-

ardómari flaggaði þá óvænt rang-

stöðu og því hætti Ólafur við víta-

spyrnuna. Staðan var 1-0 fyrir FH þegar

þetta gerðist og þannig var staðan er

leiknum lauk.

,,Þetta er alveg ótrúlegt. Ég skil

ekki hvernig maðurinn getur

dæmt rangstöðu, Grétar var

dekkaður af tveimur leik-

mönnum þegar sendingin

kom og hann stakk sér milli

þeirra. Ég varð rosalega reiður þegar ég

sá þetta svart á hvítu á upptöku strax

eftir leik. Meðan leikurinn var

í gangi var ég ekkert reiður

þar sem maður verður að

treysta þessum línuvörð-

um og ég taldi hann hafa

gert rétt. Þarna voru þó

skelfileg mistök á ferð-

inni.? sagði Magnús.

Þegar Magnús kom

heim eftir leikinn

skellti hann

mynd-

bandsupptöku af honum í tækið og

ákvað að rýna nánar í hann. ,,Þegar ég

sá þetta síðan þá trúði ég þessu ekki í

einlægni minni. Dómarinn var tíu metra

frá þessu en línuvörðurinn lengst úti í

horni en tekur samt vítið af honum!

Svona á maður ekki að gera nema

maður sé alveg 100% viss. Það segir

mjög skýrt í reglunum að sóknarmaður

eigi að njóta vafans sé einhver vafi fyrir

hendi.?

Magnús vill meina að KR hafi einnig átt

að fá víti þegar Auðun Helgason klifraði

upp á bak Garðars Jóhannssonar. ,,Ég

vil ekki láta það hljóma eins og ég sé

að væla en það er enginn vafi á að það

var líka víti. Við fengum á okkur vafa-

samt víti í Keflavík en þetta atvik var

mun verra.?

MAGNÚS GYLFASON ÞJÁLFARI KR: EKKI SÁTTUR VIÐ DÓMGÆSLUNA Í TAPLEIKNUM GEGN FH

Magnús var? rosalega rei?ur eftir leik 

LANDSBANK

ADEILDIN

HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 

28 29 30 31 1    2    3

Þriðjudagur

MAÍ

? ? LEIKIR

boxopen

19.15 Valur og Fram mætast að

Hlíðarenda í Landsbankadeild karla.

boxopen 

19.15 Þróttur og Keflavík mætast

á Laugardalsvelli í Landsbankadeild

karla.

boxopen

20.00 Keflavík og Valur mætast á

Keflavíkurv. í Landsbankad. kvenna.

boxopen

20.00 Stjarnan og ÍA mætast á

Stjörnuvelli í Landsbankad. kvenna.

boxopen 

20.00 KR og FH mætast á KR-velli

í Landsbankadeild kvenna.

boxopen

20.00 ÍBV og Breiðablik mætast á

Hásteinsvelli í Landsbankad. kvenna.

? ? SJÓNVARP

boxopen

7.00 Olíssport á Sýn endursýnt

fjórum sinnum frá kvöldinu áður.

boxopen

15.35 Landsbankadeildin á Sýn.

Grindavíkur-ÍBV frá því í gær.

boxopen

16.45 Fótboltakvöld á RÚV. (e)

boxopen

22.00 Olíssport á Sýn.

boxopen

22.20 Smáþjóðaleikarnir á RÚV.

(1:5)

0-3

Akranesv., áhorf: 1412 Kristinn Jakobsson (7)

TÖLFRÆÐIN

Skot (á mark) 6?15 (1?8)

Varin skot Páll Gísli 4 ? Bjarni Þórður 1

Horn 5?3

Aukaspyrnur fengnar 9?16

Rangstöður 5?0

0-1 Hrafnkell Helgason (23.)

0-2 Björgólfur Takefusa, víti (54.)

0?3 Erik Gustafsson (57.)

ÍA Fylkir

2-1

Grindavík, áhorf: 718 Jóhannes Valgeirsson (5)

TÖLFRÆÐIN

Skot (á mark) 11?8 (6?6)

Varin skot Savic 4 ? Birkir 5

Horn 3?0

Aukaspyrnur fengnar 21?14

Rangstöður 1?1

1?0 Sinisa Valdimar Kekic (11.)

1?1 Matthew Platt (12.)

2?1 Óli Stefán Flóventsson, víti (16.)

Grindavík ÍBV

*MAÐUR LEIKSINS

ÍA 4?3?3

Páll Gísli 7

Finnbogi 4

Reynir 7

Gunnlaugur 7

Guðjón Heiðar 4

Helgi Pétur 3

Jón Vilhelm 3

(59. Andri 5)

Pálmi 4

Martin 3

(59. Kári Steinn 4)

Hjörtur 3

(59. Sigurður R. 6)

Hafþór 4

FYLKIR 4?3?3

Bjarni Þórður 7

Kristján 6

Ragnar 8

Valur Fannar 7

Gunnar Þór 7

Finnur ?

(15., Eyjólfur 7)

Hrafnkell 6

(66. Björn Viðar 5)

*Helgi Valur 9

Björgólfur 8

Gustafsson 7

(81. Arnar Þór ?)

Viktor Bjarki 7

*MAÐUR LEIKSINS

GRINDAVÍK4?4?2

Savic 6

Óðinn 5

Jack 6

Óli Stefán 8

Eyþór Atli 5

McShane 6

(90. Páll G. ?)

Niestroj 6

Eysteinn Húni 6

Magnús Þ. 6

(60. Óskar Örn 6)

Ahandour 7

(87. Andri Hjörvar ?)

*Kekic 8

ÍBV 4?5?1

Birkir 7

Pétur 5

Páll Hjarðar 5

Bjarni Hólm 5

Bjarni Geir 5

(83. Sæþór ?)

Platt 5

Andri 5

Jeffs 6

Magnús Már 6

Atli 4

(72. Bjarni Rúnar ?)

Steingrímur 4

(46. Dodds 6)

BESTUR Á VELLINUM Sinisa Kekic spilaði

vel fyrir Grindavík gegn ÍBV í gær og er

ekkert að gefa eftir.  FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN

SVONA ÓLI MINN, ÞAÐ GENGUR BARA

BETUR NÆST Þetta gæti þessi ágæti stuðn-

ingsmaður ÍA verið að segja við Ólaf

Þórðarson, þjálfara liðsins, sem var

ráðalaus. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48