Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
VIÐSKIPTI „Það var verið að
blekkja Fjármálaeftirlitið og þá
sem áttu bankann með Eglu,“
segir Vilhjálmur Bjarnason, að-
júnkt við Háskóla Íslands, um
kaup þýska bankans Hauck og
Aufhäuser á hlut í Búnaðar-
bankanum en þýski bankinn var
hluti af S-hópnum svokallaða í
gegnum fyrirtækið Eglu hf.
Vilhjálmur segir að þegar
Búnaðarbankinn var seldur til S-
hópsins var ljóst að þýski
bankinn fór með virkan eignar-
hlut. Ef aðrir hefðu átt þennan
hlut, hefði átt að greina frá því.
„Ef virkur eignarhlutur er
stærri en gefið er upp, er hlut-
hafaskráin röng,“ segir Vil-
hjálmur.
Umræddar upplýsingar komu
fram í skýrslu ríkisendur-
skoðunar vegna sölu á
ríkisbönkunum. Hvergi er
minnst á kaupin á hlut í Bún-
aðarbankanum í ársreikningi
þýska bankans sem þykir enn
frekari vísbending um að
bankinn hafi ekki verið raun-
verulegur eigandi bréfanna.
Ekki náðist í Pál Gunnar Páls-
son, forstjóra Fjármálaeftirlitis-
ins, í gær. -hb
Aðjúnkt við Háskóla Íslands um sölu á Búnaðarbanka:
Fjármálaeftirliti› blekkt
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Þrjúhundruð
og fimmtíu
þúsund króna
afsláttur
af sérvöldum bílum
RIGNING Á vesturhelmingi landsins.
Gæti dropað á austurhelmingnum síðdegis.
Hiti 10-16 stig hlýjast austan til. VEÐUR 4
MÁNUDAGUR
27. júní 2005 - 171. tölublað – 5. árgangur
Kaffihúsastelpan
í Sjónvarpinu
Sjónvarpsmyndin The
Girl in the Café, sem
var tekin upp að
miklum hluta hér á
landi síðasta sumar,
verður frumsýnd í Sjónvarpinu hinn 9.
júlí. Myndin er úr smiðju Richards
Curtis, sem skrifaði meðal annars
handrit að myndunum Love Actually
og Four Weddings and a Funeral.
SJÓNVARP 30
Í MIÐJU BLAÐSINS
▲
Stórborgarbragur
og bíóstemning
HALLDÓRA BRAGADÓTTIR ARKITEKT:
● hús ● fasteignir
▲
PYNTINGUM MÓTMÆLT Íslandsdeild Amnesty International stóð fyrir mótmælum á Austurvelli í gær. Þar gátu vegfarandur sett sig í spor
fanga í Guantanamo-fangabúðunum. Sjá síðu 4.
EFNAHAGSMÁL „Það eru að ganga til
baka lækkanir sem verið hafa í
matvöru,“ segir Edda Rós Karls-
dóttir, forstöðumaður greiningar-
deildar Landsbankans. Hún segir
kostaboð á matvöru, sem vegi
þungt í vísitöluútreikningi, hafa
mikið að segja. Bankinn spáir nú
0,4 prósenta verðbólgu milli
mánaða, en þar er meðal annars
horft til hækkana á matvöru.
„Ég get ekki tekið undir að
verðstríðið sé búið. Auðvitað er
enn tekist á um hverjir eru
ódýrastir. Við hættum ekki í þessu
stríði,“ segir Hróar Björnsson,
rekstrarstjóri Krónunnar. „Það er
samt greinilegt að Krónan og Bón-
us eru að slást um þetta og alveg
óhætt að segja að Kaskó og Nettó
hafi bakkað út úr slagnum. Við
erum búnir að skilgreina okkur
sem lágvöru-
verslun og
það kostar
á f r a m h a l d -
andi átök.“
Guðmund-
ur Marteins-
son, fram-
kvæmdastjóri
Bónuss, tekur
í svipaðan
streng en tel-
ur þó einsýnt að minna verði um
undirboð á borð við að fólk fái
mjólkurlítrann á krónu, eða jafn-
vel gefins. „Ég held að svona bull-
verð sé úr sögunni, að minnsta
kosti tímabundið. Þetta snýst nátt-
úrlega um stöðugt lágt verðlag,
enda skiptir það neytandann
mestu máli,“ segir hann og telur
augljóst að lágvöruverslanir haldi
áfram að veita hverri annarri að-
hald. Guðmundur segir blöðin full
af auglýsingum matvöruverslana
þar sem afslættir og lágt vöru-
verð er kynnt.
Edda Rós segir að undanfarið
hafi fasteignaverð einna helst ýtt
undir verðbólgu, en nú komi
einnig inn hærra bensínverð og
hækkun á verði matvöru. Hún
segir almennt gert ráð fyrir því að
Seðlabankinn hækki stýrivexti
um hálft prósent til viðbótar í
september til þess að bregðast við
aukinni verðbólgu.
olikr@frettabladid.is
TÓNLIST
SIGTRYGGUR BALDURSSON:
Trommar á
úreld loftnet
FÓLK 30
VEITINGAR
ELÍS ÁRNASON:
Rekur eina veitinga-
sta›inn í Hrísey
TILVERAN 12
Ófróður endurskoðandi
Eignatengsl forsætisráðherra við fyrir-
tæki sem kaupir banka af ríkis-
stjórninni eru ekki viðkvæm einkamál,
segir Guðmundur Andri
Thorsson. Honum finnst
það ráðgáta hvers vegna
Halldór Ásgrímsson hefur
ekki fyrir löngu síðan
losað sig við eign
sína í þessum
fyrirtækjum.
UMRÆÐAN 16
Íslandsmótið búið?
FH-ingar eru búnir að
stinga af í
Landsbankadeildinni
eftir áttunda
sigurleikinn í röð.
Ekkert lið virðist
eiga möguleika
gegn
meisturunum og
fátt sem bendir til
annars en að FH muni
verja titilinn.
ÍÞRÓTTIR 20
VEÐRIÐ Í DAG
Óvissuástand í Búlgaríu:
Enginn hefur
meirihluta
SÓFÍA, AP Að loknum kosningum í
Búlgaríu ríkir ákveðið óvissuástand
með framhaldið. Sósíalista-
flokkurinn fór með sigur af hólmi
en hann hlaut tæpan þriðjung at-
kvæða. Flokkur forsætisráðherrans
Simeon Saxcoburggotski hlaut hins
vegar tæpan fimmtung atkvæða.
Sergei Stanisev, leiðtogi sósíal-
ista, hefur farið fram á stjórnar-
myndunarumboð en það er hins
vegar alveg óvíst með hverjum
sósíalistar geta hugsað sér að
starfa. Stanishev útilokar sam-
starf með þjóðernissósíalista-
flokknum ATAKA og lýsir því yfir
að honum þyki afar ólíklegt að
samstaða náist við flokk Saxco-
burggotskis. ■
JÓN KR. ÓLAFSSON Tróð þrisvar upp á
hátíðinni Bíldudals grænar um helgina.
Bíldudals grænar:
Jón Kr. aldrei
sungi› betur
HÁTIÐ Sumarhátíðinni Bíldudals
grænar lauk í gær. „Hátíðin fór
alveg rosalega vel fram og var heill
hellingur af fólki. Veðrið hefði hins
vegar mátt vera ákjósanlegra. Ég
söng þarna í þrígang. Það var mikið
stuð hérna á Bíldudal alla helgina
og alveg frábær stemmning,“ segir
Jón Kr. Ólafsson söngvari sem
fékk hól frá fólki sem sagði að
hann hefði aldrei sungið betur en á
hátíðinni í ár.
Hátíðin hófst á fimmtudag og
fór nú fram í annað sinn.
Að sögn lögreglunnar á Patreks-
firði var nóg að gera í bænum um
helgina en ekki þurfti að hafa mikil
afskipti af hátíðargestum, sem
voru til fyrirmyndar. ■
EDDA RÓS
KARLSDÓTTIR
Ver›strí› ekki a› baki
Hugsanlega sér fyrir endann á undirbo›um á matvörumarka›i. Forsvarsmenn
Bónuss og Krónunnar segja ver›strí› alls ekki a› baki. Hagfræ›ingur Lands-
bankans segir gyllibo›in hafa haft mikil áhrif á ver›bólgu.