Fréttablaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 2
2 16. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Rannsókn á flugslysinu í Grikklandi heldur áfram:
Svörtu kassarnir sendir til Frakklands
AÞENA, AP Talið er að bilun í jafn-
þrýstibúnaði hafi orðið til þess
að flugvél kýpverska Helios-
flugfélagsins fórst á sunnudag-
inn.
Svörtu kassar Boeing 737 þot-
unnar sem fórst norður af Aþenu
í fyrradag hafa verið sendir til
Frakklands til frekari rann-
sókna. Flest virðist hins vegar
benda til að bilun í jafnþrýsti-
búnaði vélarinnar hafi valdið
slysinu og er jafnvel talið að þeir
sem voru um borð hafi látist
vegna súrefnisskorts löngu áður
en vélin hrapaði. Flugmenn F-16
orrustuþotnanna sem fylgdu vél-
inni um skeið sögðust hafa séð
flugmanninn meðvitundarlausan
í flugstjórnarklefanum og far-
þega reyna að stýra vélinni.
Áhafnir annarra véla Helios-
flugfélagsins neituðu í gær að
fljúga eftir að spurðist út að oft
hafði verið kvartað yfir ýmiss
konar bilunum í vélinni sem
fórst. Talsmenn fyrirtækisins
vísuðu því hins vegar algerlega á
bug.
Ættingjar hinna látnu fóru til
líkhúsa í Aþenu í gær til að bera
kennsl á ástvini sína. Þriggja
daga þjóðarsorg hefur verið lýst
yfir á Kýpur og í dag verður fán-
um flaggað í hálfa stöng í Grikk-
landi.
Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar:
Slá upp tjaldi vi› Tjörnina
MÓTMÆLI Mótmælendur Kára-
hnjúkavirkjunar og álvers við
Reyðarfjörð hafa slegið upp upp-
lýsingatjaldi við Tjörnina í
Reykjavík. Til stendur að hafa
tjaldið uppi í um tvær vikur að
sögn Birgittu Jónsdóttur, tals-
manns mótmælenda. Í tjaldinu á
meðal annars að halda fyrir-
lestra og sýna myndir að sögn
Birgittu.
Birgitta segir tvo lögreglubíla
hafa fylgst með fólkinu meðan
tjaldað var en lögregluþjóna ekki
haft afskipti af fólkinu. Einungis
einum mótmælendanna hefur
verið birt bréf Útlendingastofn-
unar frá því fyrir helgi, en stofn-
unin hefur hótað að vísa 21 er-
lendum ríkisborgara sem mót-
mælt hefur Kárahnjúkavirkjun
úr landi. Fólkið hefur sjö daga
eftir birtingu bréfsins til þess að
koma á framfæri andmælum
vegna málsins. - ht
Ung varnarli›skona
stungin til bana
Tvítug bandarísk varnarli›skona lést af sárum sem henni voru veitt á
herstö›inni á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt. Varnarli›sma›ur á flrítugsaldri
var handtekinn í kjölfari› gruna›ur um a› hafa or›i› henni a› bana.
MORÐ Tvítug bandarísk varnar-
liðskona fannst látin í húsnæði
varnarliðsmanna á Keflavíkur-
flugvelli um miðnætti á sunnu-
dagskvöld. Rúmlega tvítugur
varnarliðsmaður var í kjölfarið
handtekinn, grunaður um að hafa
orðið konunni að bana.
Maðurinn var ennþá í haldi lög-
reglu varnarliðsins í gær en ekki
fékkst uppgefið hjá Sýslumannin-
um á Keflavíkurflugvelli hvort
hann hefði játað á sig glæpinn.
Þá var íslensk kona tekin til yf-
irheyrslu hjá Lögreglunni á
Keflavíkurflugvelli en hún er tal-
in hafa verið gestkomandi í hús-
næðinu þegar atburðurinn átti sér
stað. Henni var sleppt síðdegis í
gær og má því telja að hún tengist
málinu ekki beint. Ekki fékkst
staðfest hvort konan varð sjálf
vitni að atburðinum.
Eftir því sem næst verður
komist hafði hin látna verið
stungin margsinnis áður en hún
lést.
Maðurinn sem grunaður er um
verknaðinn hafi áður átt í deilum
við hina látnu fyrir nokkrum mán-
uðum þar sem hann hafði, í félagi
við annan varnarliðsmann, stolið
umtalsverðum fjárhæðum af
greiðslukorti hennar. Málið komst
upp og var vitorðsmanninum vik-
ið úr hernum en enn átti eftir að
rétta í máli hins grunaða.
Ekki fæst uppgefið hver fann
hina látnu en enn var lífsmark
með henni þegar hún fannst, að
sögn Jóhanns Benediktssonar
sýslumanns, á Keflavíkurflug-
velli. Konan var í kjölfarið flutt á
hersjúkrahús á vellinum þar sem
hún var úrskurðuð látin.
Konan fannst í húsnæði ein-
hleypra varnarliðsmanna og er at-
burðurinn talinn hafa átt sér stað
þar að sögn Jóhanns. Hún hlaut
áverka á hnakka en ekki hefur
fengist staðfest hvers kyns áverk-
arnir voru né heldur hvort morð-
vopn hafi fundist.
Lögreglan á Keflavíkurflug-
velli rannsakar málið í samvinnu
við rannsóknardeild sjóhersins.
Þá var seint í gærkvöld von á
bandarískum rannsóknarmönnum
á vegum hersins til landsins.
Mennirnir koma frá Bretlandi og
verða lögregluembættunum til
aðstoðar við rannsókn málsins.
helgat@frettabladid.is
Neytendasamtökin:
Taka undir
áskorun FÍB
NEYTENDUR Neytendasamtökin
taka undir með Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda um að stjórnvöld-
um beri að lækka álögur sínar á
eldsneyti með tilliti til gríðarlegra
hækkana á heimsmarkaðsverði
undanfarna mánuði.
Hafa samtökin sent Geir H.
Haarde fjármálaráðherra bréf
þess efnis en hann hefur áður sagt
að hækkanirnar gefi ekki tilefni
til að stjórnvöld grípi í taumana.
Félagar í FÍB hafa hafið undir-
skriftasöfnun af þessu tilefni en
ráðherra hefur ekki svarað
tveimur bréfum þeirra enn sem
komið er. - aöeLÍKIÐ BRENNT Ættingi Kadirgamar heitins
sést hér faðma Ragee Kadirgamar, son
hins fallna ráðherra, við útför hans í gær.
Srílönsk stjórnvöld:
Vilja a›sto›
erlendra ríkja
KÓLOMBÓ, AP Lík Lakshman Kadir-
gamar, utanríkisráðherra Srí
Lanka sem myrtur var fyrir helgi,
var brennt í gær og var þjóðar-
sorg lýst yfir í landinu við sama
tækifæri. Afar ströng öryggis-
gæsla var við athöfnina.
Enda þótt Tamíl-tígrarnir svo-
nefndu hafi staðfastlega neitað að
hafa staðið á bak við tilræðið segj-
ast srílönsk stjórnvöld ætla að
skera upp herör gegn samtökun-
um. Þannig hefur AP-fréttastofan
eftir háttsettum embættismanni á
Srí Lanka að þau vilji að fylgst
verði með ferðum stuðnings-
manna tígranna erlendis og þeim
bannað að safna fé til styrktar
þjóðfrelsisbaráttu Tamíla. ■
SPURNING DAGSINS
Stefán, hefur›u einangrast í
starfi?
„Nei, það held ég ekki.“
Stefán Björnsson lætur senn af störfum sem
umsjónarmaður Einangrunarstöðvar gæludýra
í Hrísey.
HARMLEIKUR Ættingjar þeirra sem fórust í flugslysinu flugu frá Larnaca á Kýpur til Aþenu í
gær. Auk fimm manna áhafnar voru 116 farþegar um borð, þar af 21 barn. Enginn komst
lífs af.
M
YN
D
/A
P
M
YN
D
/A
P
LÖGREGLUFRÉTTIR
TVEIR SLÖSUÐUST
Tveir spænskir ferðamenn slös-
uðust lítillega þegar bíll rann í
lausamöl og lenti úti í skurði
nærri bænum Sólheimum við
Svínavatn.
BLOKKIN ÞAR SEM MORÐIÐ VAR FRAMIÐ Tvítug varnarliðskona fannst helsár í fjölbýlishúsi fyrir einhleypa varnarliðsmenn, hún var
úrskurðuð látin þegar komið var með hana á hersjúkrahús. Rannsóknarmenn frá Bretlandi komu í gærkvöld til að rannsaka málið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
TJALD MÓTMÆLENDA Tjaldið á að standa í
um tvær vikur við Tjörnina í Reykjavík.
ÁSGEIR ÁSAMT JÓHÖNNU SIGURÐAR-
DÓTTUR Ásgeir ætlar ekki að taka sæti á
Alþingi í stað Guðmundar Árna sem tekur
við sendiherraembætti í næsta mánuði.
Ásgeir Friðgeirsson:
Tekur ekki
sæti á flingi
ALÞINGI Ásgeir Friðgeirsson, fyrsti
varaþingmaður Samfylkingarinnar
í Suðvesturkjördæmi, hefur ákveð-
ið að taka ekki sæti á Alþingi í haust
þegar Guðmundur Árni Stefánsson
tekur við sendiherraembætti.
Ásgeir kveðst ætla að helga sig
núverandi störfum sem ráðgjafi
fyrirtækja og fjárfesta, einkum
þeim sem starfa erlendis. Með
ákvörðun sinni segir Ásgeir sig
jafnframt af lista Samfylkingarinn-
ar, en í síðustu þingkosningum hlaut
hann bindandi kosningu í fimmta
sæti listans í Suðvesturkjördæmi.
Valdimar L. Friðriksson er annar
varaþingmaður Samfylkingarinnar
og tekur sæti á þingi. - jh
LÖGREGLUFRÉTTIR
FARTÖLVUM STOLIÐ
Brotist var inn í Upplýsingamiðstöð-
ina í Varmahlíð í gærmorgun og
tveimur tölvum stolið. Málið er í
rannsókn.
SLAPP VEL ÚR VELTU
Ökumaður vörubíls slapp vel þegar
hann missti tengivagn út af veginum
eftir að kind hljóp í veg fyrir bílinn.
Ökumaðurinn hélt bílnum á veginum
og þótti hafa sloppið mjög vel.
LÖGREGLA ELTIR KINDUR
Lögreglumenn á Ísafirði hafa nær
daglega þurft að reka kindur út úr
bæjarlandinu síðustu vikuna. Kind-
urnar hafa verið á beit í görðum
húsa, nýrækt í snjóflóðavarnargarð-
inum og í Tunguskógi við litla
ánægju bæjarbúa. Eigendur kind-
anna benda á bæjaryfirvöld og segja
í þeirra verkahring að girða bæjar-
landið af.