Tíminn - 12.11.1975, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.11.1975, Blaðsíða 1
 JöJtf'V* %^*v$ A»\*k*OK mw >Yvt»«tt tASAiLót V ATN A j< >K UI -I. l&NSF. Scalc lil.>00.000 rt<) ytormA>»» v*v f ** Bezta síldarsala íslenzks skips — SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ KANNAR HVAR AFLINN HAFI FENGIZT gébé—Rvik — Gullberg VE 292 seldi i gærmorgun 35,6 lestir sild- ar I Ilirtshals i Danmörku aö verömæti 5.236.442.00 kr., og var meöalveröiö mjög gott, eöa hvorki meira né minna en 146.79 kr. pr. kg, sem er taliö langbezta meöalverö, sem islenzkt skip hef- ur fengiö. Þegar vöknuöu grun- semdir um þaö, aö skipið heföi fengiö þessa sild á miöunum viö Suðurland, en þar hefur þaö veriö viö veiöar undanfariö, en hélt á Norðursjávarmið, þegar sild- veiðikvótinn hér viö land haföi veriö fylltur. Rannsókn á feröum skipsins fer nú fram i sjávarút- vegsráöuneytinu, og sagöi Jón B. Jónasson i viðtali viö blaöiö i gær, aö unnið væri aö þessu máli hér, og einnig heföi veriö beöiö um upplýsingar frá Hirtshals. Sjávarútvegsráðuneytiö fær upplýsingar um allar sölur is- lenzkra skipa erlendis og þótti grunsamleg i gær hin góða sala Gullbergs VE, þegar önnur skip, sem seldu á sama tima, voru með miklu lélegra hráefni. Súlan EA seldi 38,8 lestir fyrir 2.408.159.- kr., meðalverð pr. kg 62,07 kr., og Hákon ÞH seldi 64,7 lestir fyrir 3.663.400.00 kr., meðalverð 56,57 kr. Timinn hafði samband við út- gerðarfyrirtækið Ufsaberg hf. i Vestmannaeyjum, sem gerir Gullbergið út, og sagði ólafur Jónsson starfsmaður þar, að Gullberg hefði landað siðustu löndun i Vestmannaeyjum 5. nóv- ember,haldið á Norðursjávarmiö daginn eftir og verið komið þang- að á laugardagskvöld. Taldi ólaf- ur ótrúlegt, að skipið hefði getað fengið umræddan afla við Is- landsstrendur, þar sem um þetta leyti hefði verið bræla á miðun- um. Eins og kunnugt er var afla- kvótinn 215 tonn fyrir sildveiði- skipin hér við land, en Gullberg landaði alls 242 lestum, sam- kvæmt skýrslu Fiskifélagsins. Skipstjórinn á Gullbergi sagði á mánudag, að þeir hefðu sprengt nótina i Norðursjó, þegar þeir fengu stórt kast. Samkvæmt upp- lýsingum frá sjávarútvegsráðu- neytinu mun Gullberg hafa verið við veiðar á sömu slóðum og Súl- an EA um og eftir helgina, eöa beint austur af Shetlandseyjum. Svipaö mál og þetta kom upp fyrr á þessu ári, þegar grunur lék á að Reykjaborgin RE hefði veitt sild á friðuðum miðum við Hroll- augseyjar og selt aflann i Dan- mörku. Rannsókn máls þessa tók nokkuð langan tima.eðaþar til unnt var að yfirheyra skipshöfn- ina, og var eitthvað ósamræmi i framburði vitna, einum skips- manna bar ekki saman við félaga sina.sem allir neituðu algjörlega. Málið var sent rikissaksóknara, og taldi hann að frekari aðgerða I málinu væri ekki þörf og það látið niður falla. rannsakað Gsal-Reykjavik — 6g tel fulla ástæöu til aö eíningahús veröi rann- siikuö mjög náiö og itarlega, enda eru þessi hús reist hér svo hundruðum skiptir, sagöi Báröur Daniclsson brunamálastjóri I viötali viö Timann i gær, en sem kunnugt er brann einingahús i Vestmannaeyjum til grunna i fyrri viku. Athygli vekur, að engin rannsókn hefur farið fram á einingahús- um með tilliti til eldsvoöa, og þvi hafa grunsemdir vaknað um þaö hjá fólki eftir brunann I Vestmannaeyjum, aö þessi hús þoli verr eld en heilsteypt hús. Bárður Danielsson kvað Brunamálastofnunina ætla aö gera at- hugun á þessum húsum, og ástæða væri til að gera rannsókn á þessum byggingarmáta varðandi eldþol. Bárður sagði, að aldrei heföi verið leitað eftir þvi við stofnunina að þessi mál væru rann- sökuð. — Ég vil á engan hátt fordæma þennan byggingarmáta vegna þessa eina atviks. Fljótt á litið sýnist mér þetta ekki vera einstakt tilfelli, þvi staöreyndin er sú,. aö ef hús með steyptum veggjum en timburlofti veröur alelda á skömmum tima, — er það nánast allaf ónýtt á eftir. 1 öðru lagi liggur ekki ljóst fyrir, hvort húsið i Vestmannaeyjum var fullfrágengið, og ég hef heyrt, að m.a. hafi festingar vantað. Ef það er rétt, kann það að hala valdiö þvi aö húsiö hrundi, sagði Báröur. IW m • 27 BANASLYS hafa oröiö i uinferðinni á tslandi þaö sein af er árinu og eru þau oröin fleiri en nokkru sinni fyrr. Mönnum stendur oröið ógn af þessari slysahryðju. Þaö viröist Htiö stoða, þvi daglega berast Iréttir af enn nýjum hörmungum. Eftirtektarvert er, aö banaslysum 1 Reykjavik hcfur ekki fjölgaö miöaö viö fyrri ár. Aukningin er úti á landi, hvaö sem veldur? Á þessu korti sést hvar banaslysin i um- feröinni hafa oröiö á þessu ári. Hver punktur merkir eitt banaslys og sést að þau dreiiast um allt landiö. En banaslysin segja ekki alla söguna. Auk þeirra hafa orðiö fjölinörg önnur slys og eiga margir uin sárt að binda vcgna þcirra og aldrei áöur hafa jafnmargir legið á sjúkrahúsum vegna umferöarslysa og nú. 21 af 40 skipum með umframafla gébé—Rvik— Tuttugu og eitt af fjörutiu sildveiðiskipum, sem hafa fengið einhvern afla, hafa nú fyllt kvóta sinn, og rúmlega það. Aðeins eitt þeirra hefur þó verið kært, Hrafn GK 12, með 345 lestir, en tvö skip önnur fóru einnig yfir þrjú hundruð lestir, Bjarni Ólafsson AK 70 með 329 lestir, og Eldborg GK 13 með 316 lestir. Nokkur skipanna, sem hafa farið fram úr leyfðu kvóta- magni, en það er 215 lestir eins og kunnugt er, eru þó aðeins með örfá tonn framyfir, en flest eru þau með 15 til 30 lestir framyf' " leyfilegt magn. ---------► o Sjálfstæði einstakra skóla aukið SJ-Reykjavík. A þessu ári verður dregiö úr samræmdum prófum i gagnfræðaskólum, en þau hafa haft geysilega mikil áhrif á skóla- starf og kennslu á undanförnum árum. i fréttabréfi frá mennta- málaráðuneytinu, þar sem greint er einnig frá fleiri væntanlegum breytingum, segir að þær beinist m.a. i þá átt að auka sjálfstæöi einstakra skóla að þvi er varðar kennslutilhögun og auka hlutdeild þeirra og ábyrgð i brautskrán- ingu nemenda við lok grunnskóla. Stefnt er að auknum sveigjan- leika I námi og kennslu og meiri fjölbreytni i námsframboði, eink- um i efstu bekkjum grunnskólans og á framhaldsskólastigi. Meö þessu móti verður unnt að miða kennslu og námskröfur meira við hæfileika og sérstök áhugasvið nemenda en veriö hefur til þessa. t þessu skyni er fyrirhugað að taka nýja námsþætti til meðferð- ar i grunnskóla, og má þar t.d. nefna kynningu verklegra greina. Hlutur þeirra nemenda, sem ekki eru hneigðir fyrir bóklegt nám, hefur verið fyrir borð borinn, með þvi fyrirkomulagi, sem tiðkazt hefur siðustu árin, og er þvi talið nauðsynlegt að breyta prófatil- högun og brautskráningu nem- enda úr grunnskóla á þann veg, að þeir megi njóta fulls réttlætis i þessum efnum á við aðra. — Með þessum breytingum verða skólarnir ábyrgari fyrir brautskráningu nemenda sinna erf verið hefur, sagði Guðný Helgadóttir hjá skólarannsóknum menntamálaráðuneytisins, þegar við ræddum við hana um þetta mál. Vitnisburður skólanna kemur til með að ná til fleiri þátta i námsstarfinu en áður. Næsta vor veröa samræmd próf i fjórum greinum i 9. og 10. bekk (3. og 4. bekk), islenzku, dönsku, ensku og stærðfræði. Samræmd- um prófum a landsprófi mið- skóla fækkar úr 7 sl. vor i 4. í is- lenzku verður aðeins eitt sam- ræmt próf i stað tveggja áður. Aður hafði samræmdum prófum á landsprófi verið fækkað úr 9 i 7. Einkunnir veröa gefnar i heil- um tölum frá 0 til 10. Eldþol einingahúsa

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.