Tíminn - 14.01.1976, Blaðsíða 15

Tíminn - 14.01.1976, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 14. janúar 1976. TÍMINN 15 Hveragerði — Ölfus Framsóknarfélag Hveragerðis og ölfuss, auglýsir áriðandi fé- lagsfund n.k. fimmtudag á venjulegum fundarstað. Stjórnin. Viðtalstímar Kristinn Finnbogason formaður Fulltrúaráðs Framsóknarfélag- anna i Reykjavik verður til viðtals á skrifstofu Framsóknar- flokksins Rauðarárstig 18, laugardaginn 17. janúar frá kl. 10 til 12. Kópavogur Þorrablót framsóknarmanna verður i Félagsheimili Kópavogs laugardaginn 24. janúar næstkomandi. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra flytur ávarp. Þátttaka tilkynnist i sima 40656 — 41228 — 40322 og 41815 fyrir 20. þessa mánaðar. Stjórnin. Árshótíð á Akureyri Framsóknarmenn á Akureyri og við Eyjafjörð halda árshátið laugardaginn 17. janúar að Hótel KEA og hefst hún kl. 19 með borðhaldi. Avarp flytur Þráinn Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins. Flutt verða skemmtiatriði og dans stiginn til kl. 2 eftir miðnætti. Upplýsingar og miðasala á Hótel KEA. FUF, Reykjavík Aðalfundur FUF i Reykjavik verður haldinn miðvikudaginn 28. janúar að Hótel Hofi, Rauðarárstig 18 kl. 20.30. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) önnur mál. O Þröstur heldur hinu, að togaraskip- stjórarnir hafa aldrei nokkurn tima verið jafn vakandi. I byrj- un siðasta túrs t.d. þá völsuðum við innan um togarana — að visu hálf dulbúnir — og togararnir hifðu hvað eftir ann- að fyrirhvaða skipi sem nálgað- ist, hvort heldur það var fragt- skip, loðnubátur eða brezkur togari. — Þú nefnir að brezku togararnir hafði híft upp veiðar- færi sin þegar eitthvað skip nálgaðist. Hvernig heldur þú að ástandið verði á miðunum þeg- ar og ef loðnuflotinn kemur á Austfjarðamið? — Það verða örugglega tals- vert meiri truflanir á veiðum brezku togaranna heldur en nú er, ef loðnuflotinn verður á hreyfingu á sömu svæðum og Bretar eru á. En það er aldrei nema hálfur mánuður, sem loðnuflotinn verður fyrir Aust- fjörðum. Þá færir hann sig sunnar. — Að lokum, Þröstur. Eru brezku togaraskipstjórarnir ekki orðnir langþreyttir á þvi að veiða undir flotavernd og á af- mörkuðum veiðisvæðum? — Togaraskipstjórarnir skor- ast dcki undan þvi, að hlýða boðum flotaforingjans, en þeir fara að boðum þeirra með sem- ingi, ef svo má segja. Togara- skipstjórarnir greiða oft at- kvæöi sin á milli um það, hvort breytingar eigi að gera á veiði- svæðinu — oft eru slikar at- kvæðagreiðslur einu sinni á hverjum sólarhring — og það er misjafnt, hvort það fæst meiri- hluti til slikra breytinga. Það sem togaraskipstjórarnir hafa hins vegar verið að jarma um allan timann,. er það, að fá tvö veiðisvæði. Og það liggur i loft- inu, að fái þeir tvö svæði, verði annað svæðið fyrir Vestfjörðum Þessari ósk þeirra hefur ekki verið sinnt. Ég hygg að ástæðan fyrir neitun brezkra stjórnvalda sé sú, að þeir vilji ekki senda fleiri verndarskip á Islandsmið, annað hvort vegna þess að þeir skammast sin fyrir frekari flotaihlutun, eða vilja ekki stofna til meiri átaka. Tvö veiði- svæði krefjast nefnilega 8 frei- gáta, miðað við varðskipafjölda okkar. Eini raunhæfi árangurinn sem við höfum unnið er sá, að þeir hafi ekki látið brezku togurunum i té fleiri en eitt veiðisvæði. Að lokum kvaðst Þröstur Sig- tryggsson, skipherra á Ægi, bú- ast við þvi, að Bretar muni á sumri komanda vera með 60-80 skip á Islandsmiðum að stað- aldri, ef þorskastriðið verður þá enn óleyst deila. A Siðustu sýningar á hinu vinsæla leikriti Þjóðleikhússins, Milli himins og jarðar, verða n.k. sunnudag. Síðustu sýningar á „Milli himins og jarðar" gébé Rvik — Þá fer að fækka sýn- ingum á barnaleikriti Þjóðleik- hússins, MILLI HIMINS OG JARÐAR. Um næstu helgi verða tvær siðustu sýningarnar, báðar á sunnudag, kl. 11 og kl. 15. Leikrit- ið, sem einkum er ætiað yngstu aldursflokkunum, hefur notið mjög mikillarhylli, og þá ekki að- eins hjá yngrikynsióðinni, heldur einnig eldri börnum og fullorðn- um. Leikritið er samið af sænska brúðuleikhúsmanninum Staffan Westerberg, og er byggt á sögum leikritahöfundarins Ionesco um Jósettu litlu og foreldra hennar. Briet Héðinsdóttir leikstýrir verkinu og leikur einnig i þvi, ásamt Þórunni Magneu Magnús- dóttur og Sigmundi Erni Arn- grímssyni. Brúður, sem notaðar eru í leikritinu, eru hannaðar af Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur en undirleik annast Vilhjálmur Guð- jónsson. Versta veður víða um land Mó-Reykjavik. I gær var versta veður um land allt, en langverst var það við Suðurströndina. Páll Jakastífla í Ölfusá Mó-Reykjavik. Það hefur verið jakastifla i ölfusá, skammt fyrir neðan Selfossbæina i nokkra daga og I gær lokaðist renna fram hjá henni og tók að hækka i ánni. Verslunarstjórinn i bygginga- vöruverslun KA sagði i viðtali við Timann i gær, að það væri orðið mjög hátt i ánni, og menn óttuðust nokkuð að hún flæddi yfir bakka sina, og rynni inn i hús. Þó sagði hann að ekki væri mikil hætta á ferðum meðan frost væri. Bergþórsson veðurfræðingur sagði, að á Stórhöfða hefði verið fárviðri — og yfir 12 vindstig. Viða væru 7-8 vindstig og snjó- koma um Suður og Suð-Vestur- land. Einnig snjóaði fyrir norðan, en bezt var veðrið á Norð-Austur- landi. Þar var þó versnandi veður i gærkvöld. Viða lá umferð niðri, og t.d. komust mjólkurbilar frá Vik i Mýrdal ekki nema út fyrir Gatnabrú i gærmorgun. Það er um 5-6 km fyrir utan Vik. I gær var fært norður yfir Holta- vörðuheiði. í nágrenni Reykjavikur voru viða tafir á umferð og i úthverf- um borgarinnar áttu vegfarendur i erfiðleikum. Þá var viða felld niður kennsla i skólum. Fólksvagninn fauk á flutn- lOOO- 900- 800 ■ 700 ■ 600 • 500 ■ 400- 300 ■ ■ ■ 200- • ÍOO ■■ "i---1---1----1---1---1----1---1——i----1----1---1----1---r 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 —i---1---1----1---1----1--1-----1--1----1___l____i ■ ■ ■ Línurit með grein Reynis Hugasonar á bls. 9 ingabílinn — fimm manns á sjúkrahús Gsal-Reykjavik — Alvarlegt um- ferðarslys varð kl. 4.20 i gærdag við svonefnt Grænáshiið, skammt hjá lögregiustöðinni á Kefla- vikurflugvelli. Þar fauk Volks- wagen-bifreiö i hvassviðrinu, framan á stóran fólksflutninga- bil, og siasaðist allt fólkið sem i fólksbilnum var, 5 talsins, mest kona, sem flutt var meðvitund- ariaus á hersjúkrahúsið á Kefla- vikurflugvelli. Fólkið er allt bandariskt, utan einn litill drengur, sem er islenzk- ur Grímu- búningar á börn og fullorðna til leigu. Grimubúningaleig- an. Simi 7-26-06.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.