Tíminn - 23.01.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.01.1976, Blaðsíða 1
Leiguflug— Neyðarfluq HVERT SEAA ER HVENÆR SEM ER FLUGSTÖÐIN HF Símar 27122-11422 4ætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður í Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur ' Gjögur — Hólmavík , Hvammstangi — Stykkis- , hólmur—Rif Súgandafj. jSjúkra- og leiguflug um iallt land Simar: Í2-60-60 & 2-60-66 Hermann Jónasson látinn JH-Reykjavik — Her- mann Jónasson, fyrr- verandi forsætisráð- herra og formaður Framsóknarflokksins í nær tuttugu ár, andað- ist i gærmorgun klukk- an hálf-niu eftir lang- vinnan sjúkleika, 79 ára gamall. Með hon- um er horfinn af svið- inu einn svipmesti og mikilhæfasti stjórn- málamaður íslendinga um miðbik þessarar aldar, skörulegur for- ingi, sem jafnan var einbeittastur, er mest á reyndi, en jafnframt vinsæll maður, sem ekki lét stjórnmála- deilurnar myrkva huga sinn. Hermann Jónasson var skag- firzkrar ættar, fæddur 25. desember 1896, sonur hjónanna Pálinu Björnsdóttur og Jónasar Jónssonar, bónda og smiðs á Syðri-Brckkum í Blönduhlið. Hann lauk stúdentspróf i i menntaskólanum i Reykjavík 1920 og lögfræðiprófi i háskólan- um 1924. Ári siðar gekk hann að eiga eftirlifandi konu sina, Vig- disi Steingrimsdóttur, tré- smiðameistara, Guðmundsson- ar. Börn þeirra tvö eru Stein- grimur alþingismaður og Pálina, húsmóðir i Garða- hreppi. Að loknu lögfræðiprófi var Hermann fuiltrúi við bæjar- fógctaembættið i Reykjavik nokkur ár, unz hann var skipað- ur lögreglustjóri 1929. Hafði hann áður kynnt sér lögreglu- mál i nágrannalöndunum. Hermann hlaut skjótari stjórnmálaframa en nokkur annar íslendingur. Það var árið 1934, er hann var þrjátiu og sjö ára gamall. Framsóknarflokk- urinn klofnaði veturinn 1933-1934, og stofnuðu þá aII- margir þingmanna hans Bændaflokkinn. Gengið var til kosninga um vorið, og börðust Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hlið við hlið i þeim kosningum. Mun flestum hafa sýnzt með ólikindum, að þeir gætu borið sigur úr býtum einsog komiö var. Hermann var kvaddur til framboðs i Stranda- sýslu gegn mikilhæfasta og ást- sælasta þingmanninum, sem gengið hafði i Bændaflokkinn, Tryggva Þórhallssyni, fyrrver- andi formanni Framsóknar- flokksins. Svo fóru leikar, að Hermann bar hærri hlut, þótt hann kæmi heimamönnum ókunnugurtil framboðs i hérað- ið. Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn náðu meiri- hluta, og hinum unga lögreglu- stjóra, nýkjörnum á þing, var falin stjórnarmyndun. Þctta var sú rikisstjórn, er nefnd hefur verið stjórn hinna vinnandi stétta, og varð Eysteinn Jóns- son fjármálaráðherra og Haraldur Guðmundsson at- vinnumálaráðherra. Með þessum atburðum var teninguin kastaði lifi Hermanns og honum mörkuð braut sem stjórnmálaforin gja. Þetta gcrðist mitt i ægilegustu heimskreppunni, þegar at- vinnuleysi var geigvænlegt og mikil ólga i landinu, og mun ekki önnur rikisstjórn hafa átt við meiri vandamál að glima. Með ströngum gjaldeyris- hömlum og miklum stuðningi við nýjar atvinnugreinar og ný atvinnufy rirtæki tókst þó að verja þjóðina stóráföllum, bægja frá þeim voða, sem að henni steðjaöi, og halda i horf- inu um verklegar framkvæmd- ir. Að frumkvæði Hermanns var þcgar fyrsta sumar hans á ráð- herrastóli komið á afurðasölu- lögunum, sem urðu landbúnað- inum sannkallað bjargráð og hafa að mestu leyti staðizt timans tönn til þessa dags. Eigi að siður kostaði þessi nýskipan, sem og önnur úrræði þessarar fyrstu rikisstjórnar Hermanns Jónasspnar, afar harðar og óvægilegar sviptingar, og kom sér þá vel, hvilíkt karlmenni hann var i lund. Hermann var siöan forsætis- ráðherra óslitið til ársins 1942. Árið 1938 visaði hann á bug kröfu Þjóðverja, ernokkru áður höfðu sent hingaö einkasnekkju Adólfs Hitlers i „kurteisisheim- sókn”, um flugvöll hér á landi, og munu nú allir geta látið sér skiliast, hversu miklum ófarn- aði hann afstýrði með þessari einöröu neitun sinni, rétt áður en heimsstyrjöldin fyrri hófst. Þegar Bretar hernámu island árið 1940, kom það enn i hlut Hermanns Jónassonar að verja þjóðina áföllum, eftir þvi sem mögulegt var. Árið 1950-1953 var Hermann landbúnaðarráðherra i ríkis- stjórn Steingrims Steinþórsson- ar, og árið 1956 myndaði hann vinstristjórnina fyrri, sem færði landhclgina út i tólf sjómilur. Var hann þá forsætisráðherra til ársins 1958. Hermann var kosinn formað- ur Framsóknarflokksins áriö 1944, og gegndi hann þvi starfi til ársins 1962. Þingmaður Strandamanna var hann allar götur þar til kjördæmaskipan- inni var breytt, og siðan þing- maður i Vestfirðingafjórðungi til ársins 1967. Hermann Jónasson var mikill iþróttamaður og glimukóngur islands árið 1921. An efa hefur hann verið mest karlmenni allra islenzkra stjórnmálafor- ingja, og kemur þar Hannes Hafstein einn til samjafnaðar. Hermann hafði mikið yndi af ræktun ogfékkst mjög við skóg- rækt með ágætum árangri. Alþjóð kveður nú Hermann Jónasson með þakklátum huga fyrir allar þær mikilvægu ákvarðanir, sem honum auðn- aðistaö taka henni til farsældar. GEIR HALLGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA: Þetta verða ein göngu könn- unarviðræður FJ-Reykjavik. — Þetta verða eingöngu könnunar- viðræður, svo ég á ekki von á þvi að koma heim aftur með nein drög að samkomulagi, sagði Geir Hallgrimsson for- sætisráðherra I samtali við Timann I gær. Aðalatriðiö er að ganga úr skugga um, hvort samkomulagsgrund- völlur er fyrir hendi. Forsætisráðherra heldur til London um næstu helgi. Ekki kvaðst forsætisráð- herra geta sagt nákvæmlega til um, hverjir yrðu i för með honum, en sagði, að hann færi ekki einn. Rikisstjórnin samþykkti á fundi i gær, að höfðu samráði við utanrikismálanefnd Alþingis og landhelgisnefnd (Sjá bls 2), að forsætisráð- herra skyldi taka viöræðuboði Harolds Wil- sons, forsætisráðherra Breta. Forsætisráðherra sagði, að bréfi Wilsons hefði fylgt skýrsla brezkra fiskifræð- inga um veiðar á Islands- miðum. Þessi skýrsla verður yfirfarin af islenzkum fiski- fræðingum, og mun forsætis- ráðherra hafa álit þeirra með sér til London. Efni þessara skýrslna vildi for- sætisráðherra ekki tiunda nánar. Varðskip Oliusjóð- stuggar urinn ill- við viðróðan- togurunum legt ferlíki —► O —♦ o Rikisstjórn- Þjóðhótta- in skipar fræðingar í sóttanefnd kapphlaupi —► o —^ O

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.