Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN10 F R É T T A S K Ý R I N G „Þegar Milestone hóf að skoða mögulega fjárfestingu í Sjóvá var okkur auðvitað ljóst að fyrirtækið var álitlegur fjárfest- ingakostur og gott og spennandi fyrir- tæki í stöðugum rekstri. Það hefði mikla þekkingu á þessum markaði og hæft starfsfólk,“ segir Karl Wernersson, stjórnarformaður Sjóvár og einn aðaleig- andi þess. Með aðkomu nýrra eigenda hafa tals- verðar breytingar átt sér stað á skipulagi Sjóvár og stjórnendateyminu. Í síðustu viku var tilkynnt að Þór Sigfússon taki við af Þorgils Óttari Mathiesen sem forstjóri fyrirtæksins. Ráðning Þórs og Helga Bjarnasonar, tryggingastærðfræðings í starf aðstoðarforstjóra er að mati Karls endapunkturinn á þeirri vinnu sem fram hefur farið við að straumlínulaga rekstur- inn og skerpa áherslur. FJÁRFESTING TIL LANGS TÍMA Karl bendir á að það hafi legið fyrir að Sjó- vá væri kannski ekki nógu góður fjárfest- ingarkostur fyrir Íslandsbanka vegna reglna um að eign fjármálafyrirtækis í öðru fjármálafyrirtæki skerði eigið fé þess fyrrnefnda. Íslandsbanki var að vaxa hratt og ein leið í því að sækja meira eigið fé var að selja Sjóvá. Enda kom á daginn að um 200 milljarðar losnuðu þegar hlut- urinn var seldur. „Af þeim sökum vaknaði sá áhugi hjá Milestone að ganga fram fyr- ir skjöldu og gerast kjölfestuhluthafi og leiðandi afl í Sjóvá,“ segir Karl. Karl leggur ríka áherslu á að Milestone komi inn í félagið til þess að vera þar til langs tíma. Sjóvá hefur um árabil verið eitt af sterkustu fyrirtækjum landsins. Ímynd fyrirtækisins er mjög sterk, inn- viðirnir traustir og starfsfólk býr yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu. Að auki hefur afkoman verið afar góð á síðustu árum og félagið skilað góðri arðsemi. Karl er spurður að því hvernig fjárfest- ingin í Sjóvá falli að fyrri fjárfestingum hans. Hann segir að fjárfestingar hans hafi miðast við það að kaupa eins stóran hlut og hægt var hverju sinni. Markmið hans er alltaf að hafa áhrif. „Þetta tæki- færi sem við fengum til að kaupa stóran hlut í Sjóvá gaf okkur möguleika að koma að einu stærsta og öflugasta fyrirtæki landsins með þeim hætti að geta haft áhrif á reksturinn til lengri tíma.“ Margir töldu að Karl hefði greitt full- hátt verð Sjóvá á sínum tíma eða 17,5 milljarða króna fyrir tvo þriðju hluta hlutafjár en hann lítur ekki svo á: „Þetta er stærsta tryggingafélag landsins sem var metið á 26 milljarða. Til samanburðar var markaðsvirði TM um 22 milljarðar. Af okkar hálfu var þetta talið gott kaupverð. Mikil tækifæri felast í félaginu og það hef- ur staðið undir okkar væntingum varðandi rekstur og hagnað það sem af er ári.“ NÝ FORYSTA Þór Sigfússon, nýr forstjóri hjá Sjóvá, seg- ir að tilfinningin að skipta um starfsvett- vang sé mjög góð. „Ég hef hitt flesta starfsmenn og líst vel á aðstæður. Við Helgi finnum hlýja strauma og teljum að það séu miklir möguleikar hér. Helgi kem- ur inn með reynslu úr tryggingargeiran- um og mun einbeita sér að þeirri starf- semi. Það er mitt hlutverk að leiða hópinn. Við teljum að hópurinn í kringum okkar búi yfir fjölbreyttri reynslu og fjölbreytni í aldri.“ Stærsta breytingin á skipuriti félagsins felst í því að það er betur aðgreint annars vegar á milli vátryggingastarfseminnar og hins vegar fjárfestingastarfseminnar. Innan fjárfestingasviðsins eru tvær sjálf- stæðar einingar og tvær sjálfstæðar tekjueiningar eru innan vátryggingasviðs- ins auk stoðeininga sem styðja við þann flókna rekstur sem felst í tryggingastarf- semi. Karl segir að tækifæri liggi í trygg- ingastarfseminni. „Það er áskorun að gera betur í tryggingaþættinum. Það dylst eng- um sem skoðar afkomu íslenskra trygg- ingafélaga undanfarin ár að afkoman af vátryggingarekstri er neikvæð. Hún er ekki ásættanleg,“ segir hann. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi að taka til í þeim ranni. Allir kostnaðar- og tekjuliðir hafa verið teknir til endurskoð- unar í samvinnu við starfsfólk. „Vinnan er hafin og væntum við þess að sjá árangur erfiðsins á næstu tólf til átján mánuðum.“ ÁHERSLA Á VERND Tryggingamarkaður í eðli sínu er nokkuð þroskaður markaður þar sem mikil sam- keppni ríkir. Bæði Karl og Þór nefna að áherslan á aukna vernd er sterkari hjá neytendum í dag heldur en hún var. Tæki- færin felast í því að bjóða upp á nýjar og fjölbreyttari tegundir trygginga þannig að hagsmunir hvers einstaklings og hverrar fjölskyldu séu uppfylltir betur en gert er í dag. „Við sjáum að allir þeir fjöldamörgu Ís- lendingar sem halda til starfa í útlöndum uppgötva að það sem þeir litu á sem sjálf- sagðan hlut, eins og öryggi og þau lífsgæði sem fólust í því hér heima, er ekki það sama í öðrum löndum. Ég lít svo á að Sjó- vá, sem leiðandi fyrirtæki, hafi mjög stóru hlutverki að gegna í þessum efnum hér heima og það getur verið í tengslum við margháttað forvarnarstarf og við getum séð fyrir okkur í framtíðinni að félagið hafi meiri afskipti af fjárfestingum á þeim sviðum,“ segir Þór. Hann nefnir sem dæmi aðkomu Sjóvár að fjárfestingum í umferðarmannvirkjum í framtíðinni. „Um allan heim eru umferð- armannvirki að verða einkarekin. Hvers vegna skyldi ekki eitt öflugasta fyrirtæki landsins sem hefur hagsmuni af betri um- ferðarmenningu og -mannvirkjum ekki koma með beinni hætti að slíkum þáttum í framtíðinni?“ METNAÐUR HEIMA FYRIR Karl er spurður um sókn Sjóvár á erlend- ar slóðir: „Við munum einbeita okkur á næstu mánuðum að því að ná fullkomnum tökum á rekstri vátryggingafélagsins áður en ráðist verður í mikla útrás á vátrygg- ingasviði. Það er nægur metnaður fyrir því að vinna á innanlandsmarkaði.“ Þór bendir á að félagið hafi hafið útrás á ákveðnu leyti, það er að fylgja sínum fé- lögum eftir í útrás. „Við teljum mikilvægt í þessu að við getum aðstoðað þau hvar sem þau eru og boðið heildstæða þjónustu fyrir þau. Þetta er verkefni okkar í útrás og einmitt þess vegna leggjum við áherslu á náið samstarf við alþjóðlega aðila sem hafa yfirburðaþekkingu á þessu sviði.“ Sjóvá hefur nýverið gert samning við Royal & SunAlliance sem tryggir að Sjóvá getur boðið upp á þjónustu í 130 löndum. „Þetta þýðir að þau fyrirtæki sem við þjónum geta tryggt starfsstöðvar sínar í öllum þessum löndum.“ Einnig sjá menn mikla möguleika felast í dótturfélögum Sjóvár á borð við Securit- as og fasteignafélaginu Klasa sem Þorgils Óttar mun stýra og vera einn stærsti eig- andi að. „Það félag hefur á einu ári vaxið úr engu í að það verða með eignir upp á 5,5 milljarða,“ nefnir Karl að lokum. Sjóvá undir nýrri forystu Hið rótgróna tryggingafélag Sjóvá-Almennar hefur farið í gegnum talsverðar breytingar á árinu í kjölfar eigendaskipta. Karl Wernersson, stjórnarformaður Sjóvár, segist hafa mikinn metnað fyrir því að efla félagið sem hann lítur á sem langtímafjárfestingu. Eggert Þór Aðalsteinsson hitti þá Karl og Þór Sigfússon, nýskipaðan forstjóra, að máli og spjallaði við þá um fyrirtækið. ÞÓR SIGFÚSSON, NÝR FORSTJÓRI SJÓVÁR, OG KARL WERNERSSON, STJÓRNARFORMAÐUR „Þetta tækifæri sem við fengum til að kaupa stóran hlut í Sjóvá gaf okkur möguleika að koma að einu stærsta og öflugasta fyrirtæki landsins með þeim hætti að geta haft áhrif á rekst- urinn til lengri tíma,“ segir Karl. Fr ét ta bl að ið /G VA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.