Tíminn - 29.08.1976, Blaðsíða 14

Tíminn - 29.08.1976, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Sunnudagur 29. ágúst 1976 BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OG ÖRLYGUR TÍU ÁRA í HAUST Heldur upp á afmælið með því að gefa almenningi kost á að kaupa Dýraríki íslands með vildiskjörum ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR munu ís- lendingar fara að huga að þeirri árlegu bóka- vertið, sem kennd er við blessuð jólin. Það mun nú þegar ákveðið hvers við megum vænta i þess- um efnum á komandi hausti, eða með öðrum orðum: „meðgöngutim- inn” hjá útgáfufyrir- tækjum er senn á enda, og þá er þess ekki heldur langt að biða, að forvitni almennings verði sval- að, og menn fái svar við hinni áleitnu spurningu: „Hvað verður nýtt að lesa i vetur?” Fyrst fór öll starfsemin fram i heimahúsum Eitt útgáfufyrirtæki i Reykja- vik hefur þá sérstöðu að þessu sinni, að það á afmæli á þessu hausti. Þetta er bókaútgáfan Orn og örlygur. í haust eru liðin ná- kvæmlega tiu ár, si'ðan þessi bókaútgáfa sendi frá sér fyrstu jólabók sína. Af þessu tilefni sneri Tlminn sér tii örlygs Hálfdanar- sonar og lagði fyrir hann nokkrar spurningar. Og fyrstaspurningin, sem borin var fram, var á þessa leið: — Hvernig stóö á því að þetta ,,barn” fæddist i heiminn, ef ég má komast svo að orði? — Upphafið var það, að ég hafði unnið mikið að útgáfustarfi og fræöslumálum á öðrum vett- vangi, og þegar þau timamót urðu i lifi minu að ég fór þaðan, þá komst ég að þeirri niðurstöðu, að ég kynni ekkert annað en aö fást við'prentað mái. Annars er staðreyndin sú, aö við vorum búnir að gefa út bækur i tvö ár, áöur en við stofhuðum bókaútgáf- una örn og örlygur. Það voru feröahandbækurnar, sem við gáf- um út strax vorið 1964, og svo aft- ur 1965, og héldum reyndar áfram að gefa þær út, þangað til vega- handbækurnar leystu ferðahand- bækurnar af hólmi. Fyrsta jólabókin okkar kom svo út 25. nóvember 1966. Það var Landiðþitt, sem hinn landskunni ljósmyndari og rithöfundur, Þor- steinn Jósepsson, hafði tekið saman samkvæmt beiðni minni. Og við þessi tfrnamót miðum við aldur fyrirtækisins. — Starfsemin hefur auðvitað verið smá i sniðum fyrsta spöl- inn? — Já, verkið fór allt fram heima í stofu hjá mér, og bókun- um varpakkað i einu kjallaraher- bergi. Og simi fyrirtækisins var einkasiminn minn á stofugangin- um ííbúðinni.Enstarfsemingekk vel. Landið þitt varð strax ákaf- lega vinsæl bók, — raunar met- sölubók, — og hefur selzt i stóru upplagi siðan. Tveimur árum seinna bættum við öðru bindi við hana, eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Þessar tvær bækur „i setti” hafa orðið svo feikilega vinsælar, að mér kæmi ekki á óvart, þótt þær væru einhverjar mest seldu bækur á landinu, æ siðan. Sigild verk og fagrir gripir — Hafið þið ekki gefið út flestar tegundir bókmennta, þennan ára- tug, sem fyrirtækið er búið að starfa? — Já, það hygg ég að sé ekki fjarri lagi. Viðsettumst einu sinni niður og ætluðum að fara að flokka útgáfubækur okkar, en komumst að þeirri niöurstöðu, að sú flokkun yrði harla erfið, þvi að hver flokkurinn greip inn i annan. En ég held, að við séum með „eitthvað handa öllum”, eins og stundum er sagt,enda hefur al- menningur nú þegar kveöið upp sinn dóm um þetta atriði. — Mér skilst, að bók eins og Landið þitt hafi verið nýmæli á sfnum tima. Hafið þið ekki gert þetta oftar, að fitja upp á nýmæl- um i bókaútgáfu? — Jú, víst höfum við reynt að finna okkur nýja farvegi. 1 fram- haldi af „Landinu þinu” höfum við gefið út bækur, sem allar bera heiti.er enda á „þfri”, „þinn” eða „þitt”. Þetta eru uppsláttarrit, og flestir kannast við þau. Það nægir að ég nefni nöfn eins og Heimur- inn þinn, Bibliuhandbókin þin^ Lögbókin þin, Formálabókin þin. Þessar bækur eru allar I sama flokknum. Björgunar-og sjóslysasaga Is- lands, sem komin er út i átta bindum, var lfka nýmæli á sihum tima, þótt áður hefðu komið út bækur um einstök tilvik og at- burði á sjó eða i tengslum við sjó- sókn. En það hafði aldrei verið gerð tilraun til þess að skrifa um alla slika atburði i réttri timaröð. Eins og ég sagði, þá telur sjó- slysasaga okkar nú þegar átta bindi, ogþó hygg ég að annaðeins sé eftir. Ritstjóri þessa bókar- flokks er ákaflega duglegur og mikilvirkur rithöfundur, Steinar J. Lúðviksson, enda er hér vita- skuld um geysimikla vinnu að ræða. Mig langar líka að nefna nafn Björns Þ. Guðmundssonar, sem skrifaði báðar lögbækurnar, Lögbókina þina og Formálabók- ina þina. Björn er ungur maður aðárum, og hefur með þessu unn- ið ágætt verk, bæði að vöxtum og gæðum. Heiminum þinum rit- stýrði Jón ögmundur Þormóðs- son og var það mikið vandaverk. Séra Magnús Guðjónsson þýddi Bibliuhandbókina og leysti það verk vel af hendi. Vegahandbókin, sem við gáfum út, er fyrsta bók sinnar tegundar hér á landi. Hún hefur frá upphafi notið mikilla vinsælda, og gerir það enn. Ekki má ég heldur gleyma Matreiðslubókinni, sem Ib Wessmanþýddi ogstaðfærði af mikilli snilld, og við gáfum út i fyrra. Það er eiginlega fyrsta er- lenda matreiðslubókin, sem er þýdd og færð að islenzkum að- stæðum, enda var henni frábær- — Á næsta jólamarkaði mun að venju verða margt dgætra bóka, þar ó meðal ein, sem vekja mun mikla eftirtekt, en hún fjallar um stórpólitískan atburð íslenzkan, sem olli miklu umróti í hugum fólks ó sínum tíma Hannibal Valdimarsson, þáverandi samgönguráðherra, með fyrstu vegahandbókina sem hann reit formála að. örlygur Hálfdanarson og Steindór Steindórsson með þjóðhátiðarútgáfu Feröabókar Eggerts og Bjarna. gefa þær hingað, og þær eru nú i vörzlu Islendinga. Og svo verð- mætar eru þessar myndir, að þegar við spurðum Danska Visindafélagið, hvort við ættum ekki að tryggja þær á meðan við hefðum þær að láni, þá fengum við þau svör, að það væri ekki hægt. Nú i sumar gáfum við út Dýra- riki íslands eftir Benedikt Grön- dal til þessaðminnasthundrað og fimmtiu ára afmælis hans,sem er sjötta október næstkomandi. Um þessa bókhefúr veriðsagt, aðhún sé „fegursti prentgripur á Is- landi” — og þau orð skrifaði sá maður, sem hefur slika þekkingu og smekkvisi til að bera, að ég er óhræddur við að gera hans um- mæli að minum. Þessar tvær siðast töldu útgáf- ur eru alveg tvimælalaust tima- mótaútgáfur. Og mér er sérstak- lega ljúft að minnast samstarfs okkar Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, ekki aðeins hvað varðar þessar tvær bækur, heldur einnig margt annað, sem við höf- um verið að gera hér i fyrirtæk- inu. Gunnar Friðriksson, forseti Slysa varnafélags Islands, með fyrsta bindi bókarflokksins Þrautgóðir á raunastund, flytur ávarp við út- komu þess. Nýir skáldsagna- höfundar og eftirminnilegir ævisögumenn lega vel tekið af islenzkum hús- mæðrum. Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar i þýðingu Steindórs Steindórssonar, sem við gáfum út 1974, var verðugur áfangi á tiu ára afmæli Ferða- handbóka s.f. Annars er gaman að geta þess, að þessi útgáfa varð til þess, að lituðu frummyndirn- ar, sem upphaflega voruteiknað- ar fyrir bókina, komu hingað heim, ekki til láns, eins og ætlað var í fyrstu, heldur er nú búið að — Viðhöfum nú hér talað um si- gild verk, sem flestir landsmenn kunna væntanlega einhver skil á. En hafið þið ekki lika gefið út bækur eftir nýja og alls óþekkta höfunda? — Jú, það höfum við gert, til dæmis á sviði skáldsagnagerðar. Þar höfum við gefið út bækur tveggja höfunda, sem flestir munu kannast við núorðið. Ég á hér við Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk og Einar Guð- mundsson frá Hergilsey. Við höf- - 3^ 1 ‘-‘S' r 1 4' • 1 $1 I L 1 Listmálarinn, refaskyttan og sagnaþulurinn, Þórður frá Dagverðará, mundar byssu sina á skrifstofum forlagsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.