Tíminn - 02.10.1976, Blaðsíða 13

Tíminn - 02.10.1976, Blaðsíða 13
Laugardagur 2. október 1976 TÍMINN 13 Notar áhöld föður sins — Ég hef notað áhöld föður mins við þetta. Unnið er svo út frá mælingum. Mér er ekki kunnugt um, að þetta efni hafi áður verið notað til myndgerð- ar, en auðvitað hafa menn gert klippimyndir löngu áður — og notað margvislegustu lim og efni. Þetta var i stuttu máli það helzta, sem Hörður Agústsson hafði að segja um sjálfa mynd- gerðina. llörður Agústsson listmálari er löngu þjóðkunnur maður fyrir myndlistarstörf og fyrir rannsóknir sinar á húsagerð. Hann er fæddur árið 1922 i Hafn- arfirði. Varð stúdent frá Menntaskólanum i Reykjavik árið 1941 og hóf um likt leyti myndlistarnám i Handiða- og myndlistarskólanum og siðar i Kaupmannahöfn og Paris. Hann vakti mjög snemma athygli sem myndlistarmaður. Hörður var búsettur i Paris 1947-1952, en hefur siðan starfað hér heima. Hann var um skeið skólastjóri Myndlistar- og handiðaskólans og um langt skeið hefur hann notið styrks til rannsókna á byggingalist fyrri alda. llörður Agústssonhefur hald- ið fjölda sýninga, en fyrst sýndi hann i Paris árið 1949 og siðar á sama ári á Reykjavikursýning- unni i Listamannaskálanum. Siðasta einkasýning Harðar Agústssonar var i Norræna hús- inu í fyrra. Hörður Agústsson fyrir framan eina af myndum sinum. Hörður Ágústsson Sýning á verkum úr myndasmiðju á Kjarvalsstöðum 1.—12. október JG-RVK. Hörður Agústsson, listmálari opnar myndlistar- sýningu, er hann nefnir úr lit — og formsmiðju 1953-1976, og mun hér vera um að ræða úr- vinnslu á tilraunum listamanns- ins á sjónskyni mannsins. A blaðamannafundi, sem listamaðurinn hélt, hafði hann m.a. þetta að segja: — Þessar myndir eru limdar á harðplast (hvitt), og það sem notað er við myndgerðina eru bókbandsvörur, marglitir borð- ar, eða limbönd og ég hef komizt að raun um, að þetta eru sterk efni, þola meira að segja terpentinuþvott. — Þetta eru tilraunir með frumform, eins og linu, fern- inga, þrihyrninga og hringi, sem er grundvöllur allrar myndsköpunar. Ég hef áður haldið svipaða sýningu i Galleri Súm árið 1972, en þær voru svart-hvitar. Nú hefur liturinn bætzt við. — Að bæta litnum við skoðun á formum leiðir ýmislegt merkilegt i ljós, sagði listamað- urinn. Ef maður hefur t.d. einn fersentimetra af rauðu og ber saman við 10 fersentimetra af sama lit, kemst maður að raun um, að þetta er ekki „sami” lit- ur. Magnið hefur allt að segja. Ef maður svo stillir þessum rauða lit upp með öðrum litum, t.d. bláum, þá breytist rauði lit- urinn i hlutfalli við þann bláa, eða magn hins siðarnefnda. — Má segja, að þessi sýning séeins konar niðurstaða af ára- löngu starfi minu við rannsóknir á formi og lit. — Við myndgerðina er notað- ur veggfóðrarahnifur og ýms á höld önnur, svo sem vinklar og fl. Efniviðurinn er „bókbandsvara” limbönd, marglit og niðsterk. Bridgesamband islands: HELDUR FRAM GAGNI BRIDGE GEGN UNGLINGA VANDAMÁLUM Dagana 25. og 26. sept. var þing Bridgesambands fslands haldið hér i Reykjavik. Fjárhagur sam- bandsins er mjög erfiður og stendur það starfseminni fyrir þrifum, segiri frétt frá B.S.l, þótt öll vinna t.d. i sambandi við undirbúning keppnismóta og kynningarstarfsemi sé gefin og verðlaun sömuleiðis. Samþykkt var mjög skorinorð ályktun á þinginu til stjórnvalda um frekari stuðning til B.S.I. og kemur þar m.a. fram, að draga megi úr unglingavandamálum nútimans með frekari starfsemi hugiþrótta Ferming Fermingarbörn i Langholts- kirkju sunnudaginn 3. okt. kl. 13:30. Guðbjörg Einarsdóttir, Grýtubakka 4, Lára Bryndis Björnsdóttir, Hliðarenda, ölfusi, Sigriður Birna Thorarensen, Langholtsvegi 94, Særún Reynisdóttir, Skúlaskeiði 32, Hafn., Elfar Rúnarsson, Glaðheimum 12, Jón Þór Einarsson, Grýtubakka 4. Anna Haiisdóttir, Safamýri 56. Asta Sveinina Aðalsteins- dóttir, Sólvallagötu 27, Brynja Dis Björnsdóttir, Brekkusel 25, Jóna Björg Jónsdóttir, Þórisstöðum Grimsnesi, Kristin Asgeirsdóttir, Miðtúni 34, Vilborg Edda Jóhannsdóttir Þórsgötu 12. Gunnar Sigurðsson, Rauðarárstig 42, Hörður Jónsson, Þórisstöðum Grimsnesi. Pétur Þórir Hugus, Alftamýri 50. eins og bridge. Þvi er skorað á stjórnvöld að huga betur að mál- efnum bridgestarfseminnar og bent er á stuðning þann, sem iþrótta- og félagasambönd fá með beinum fjárstyrk hins opinbera t.d. til byggingar o.fl. og væntir B.S.Í. hliðstæðrar stöðu sér til handa. A alþjóðavettvangi gætum við náð mun lengra með frekari þátttöku i erlendum keppnis- mótum og æfingum og tilsögn hér heima. Alls eru nú i B.S.Í. 27 félög viðsvegar að af landinu. Á þing- inu var rætt um fjármál sam- bandsins og skipulagsmál, keppnisreglur og lagabreytingar. Forseti B.S.t. var kjörinn Hjalti Eliassson Aðrir i stjórn voru kjörnir Rik- harður Steinbergsson, Hörður Arnþórsson, Helga Bachman, Al- freð G. Alfreðsson, Tryggvi Gislason, Ragnar Björnsson. Varamenn i stjórn: örn Vigfús- son, Haraldur Snorrason, Ólafur G. Ólafsson. Endurskoðendur: Ingi R. Jó- hannsson, Sigvaldi Þorsteinsson. Þingforsetar voru kjörnir Tryggvi Gislason og Friðrik Karlsson. Þingritarar voru kjörnir Matthias Andrésson og Þorsteinn Kristjánsson. Listasafn ísiands: Tvær kvikmyndir sýndar í dag í Listasafni Islands verða i dag sýndar tvær kvikmyndir um bandariska málaralist. önnur heitir „Hinn ameriski draumur” og fjallar um bandariska málara- list i 150 ár, en siðari myndin fjallar um málarann Andrew Wyeth. Þessar sýningar eru öllum opn- ar og aðgangur er ókeypis. BERKLAVARNA- DAGUR sunnudagur 3. október 1976 Afgreiðslustaðir merkja og blaða í Reykjavík og ndgrenni: SIBS, Suðurgötu 10 Kvisthagi 17 Fálkagata 28 Grettisgata 26 Eskihlið 10 Hrisateigur 43 Kambsvegur 21 Barðavogur 17 Sólheimar 32 Háaleitisbraut 56 Háagerði 15 Langagerði 94- Skriðustekkur 11 Arbæjarskóli Fellaskóli simi 22150 ” 23966 ” 11086 ” 13665 ” 16125 ” 32777 ” 33558 ” 30027 ” 34620 ” 33143 ” 34560 ” 32568 ” 74384 Seltjarnarnes: Skálatún Kópavogur: Langabrekka 10 Hrauntunga 11 Vallargerði 29 Hafnarfjörður: Þúfubarð 11 Reykjavikurvegur 34 Lækjarkinn 14 simi 18087 ” 41034 ” 40958 ” 41095 AAerki dagsins kostar 100 krónur og ársritið „Reykjalundur" 200 krónur. AAerkið gildir sem happdrættismiði: Vinningur er litasjónvarpstæki. Sölubörn komi kl. 10 árdegis. — Há sölulaun. S.Í.B.S.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.