Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 32
■■■■ { vesturland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Árni Þórarinsson mun lesa upp úr bók sinni Tími nornarinnar, Þor- steinn frá Hamri les upp úr bókinni Dyr að draumi, Súsanna Svavars- dóttir les upp úr erótíska krimm- anum Dætur hafsins og Þorsteinn J. mun lesa upp úr sögu sinni um fótboltakappann Guðna Bergsson, sem var lengi vel atvinnumaður á Englandi. Tíundi bekkur grunnskólans á Ólafsvík mun sjá um kynningu á höfundunum og selja nýbakað- ar vöfflur með rjóma ásamt heitu súkkulaði. Veitingarnar kosta 1.000 krónur en frítt er fyrir fimmtán ára og yngri. Ókeypis er á upplestur- inn. Þekktir höfundar í Ólafsvík Súsanna Svavarsdóttir mun lesa upp úr bók sinni Dætur hafsins í Ólafsvík á mið- vikudagskvöld. Fjórir þekktir rithöfundar munu lesa upp úr nýjustu bók- um sínum á Klifi í Ólafsvík á miðvikudagskvöld. Hvað kom til að þú ákvaðst að hætta störfum sem bæjarstjóri? Ég var nú búinn að gegna starfi bæjarstjóra í ein átján ár og tvö ár þar áður gegndi ég starfi bæj- arritara þannig að ég var búinn að starfa í tuttugu ár fyrir Akra- nesbæ. Þetta er búinn að vera ansi fjölbreyttur og skemmtileg- ur tími. Síðan er það svo að þessi möguleiki kom bara upp núna á haustdögum að mér bauðst starf hafnarstjóra. Þetta er bara eins og gengur og gerist í lífinu, tækifærin skjóta upp kollinum og maður veit stundum ekki hvert maður stefnir eða hvar maður endar. Á endanum varð þetta sú niðurstaða sem allir aðilar gátu sætt sig við. Hvernig er staða Akranesbæjar í dag? Það er nú einu sinni þannig að þegar maður stendur á tímamótum eins og ég geri núna á mínum starfsferli þá er það auðvitað skemmtilegur bónus að eftir að hafa verið allan þennan tíma að störfum hjá Akra- neskaupstað hefur staðan aldrei verið betri en einmitt þegar maður stígur upp úr stólnum. Þá er nán- ast sama hvert við horfum, það eru tækifæri í öllum hornum og tölu- verð aukning íbúa og aukinn fjöldi íbúðarhúsnæðis. Þá eru til viðbót- ar ýmsir áhugasamir aðilar sem vilja fá svæði á Akranesi til frekari uppbyggingar íbúðarbyggðar og atvinnustarfsemi. Það er því óhætt að segja að bærinn sé að stækka. Því er einnig hægt að halda fram með góðri samvisku að fjárhagur bæjarins hafi aldrei staðið betur frá landnámstíð. Það má því segja að allt ástand á Akranesi sé mjög gott nú um mundir og það sem betra er, það er hægt að horfa fram á veginn með töluverðri bjartsýni. Mörg spennandi tækifæri blasa við bænum og gaman verður að sjá hvernig bæjarfélagið vinnur úr þeim. Hvað hefði að þínu mati mátt betur fara? Í vaxandi og gróskumiklu samfélagi er það svo að verkefnunum lýkur aldrei. Menn hafa alltaf hugmyndir um hvað megi gera betur og hverju þurfi að stefna að. Ég hefði viljað sjá smáiðnað vaxa í auknum mæli á Akranesi, sem myndi fylla mjög vel inn í þá atvinnumynd sem er þegar til staðar. Nú er það reyndar svo að á Skaganum eru starfrækt mörg afskaplega góð smærri fyrir- tæki en þeim mætti gjarnan fjölga að mínu mati. Hvað er þér minnisstæðast frá löngum ferli sem bæjarstjóri? Þegar maður lítur til baka leita ansi mörg af þessum bæjarmálum á mann. Einhvern veginn er það svo að maður man alltaf langbest eftir góðu stundunum og því sem vel hefur verið gert. Ég gæti auð- vitað tínt til ýmis verkefni í skóla- málum og íþróttamálum, svo dæmi séu tekin, sem hafa heppnast vel í gegnum tíðina. Þrátt fyrir það lendi ég nú alltaf í að staðnæmast við þetta gríðarstóra verkefni sem Hvalfjarðargöngin voru og eru enn. Það var einstakur heiður að fá að taka þátt í því verkefni með mörgu frábæru fólki. Enn fremur hefur það sýnt sig að frá opnun ganganna árið 1998 hefur orðið gjörbylting í ansi mörgum þáttum. Við getum til dæmis nefnt hugarfar fólks þar sem menn nýta sér þessa samgöngubót nú til dags í aukn- um mæli til að sækja vinnu eða nám. Síðan er auðvitað hitt sem hefur fylgt í kjölfarið að sameining orkufyrirtækjanna við Orkuveitu Reykjavíkur hefur haft gríðarlega þýðingu fyrir Akranessvæðið. Ég held því að göngin eigi eftir að virka í auknum mæli á þann veg að það opnist fleiri möguleikar fyrir fólkið sem býr á þessu svæði og verði hagkvæmt bæði fyrir svæðin norðan Hvalfjarðar og sunnan. Hvernig líst þér síðan á hinn nýja starfsvettvang? Nú er það svo að ég var á sínum tíma hafnarstjóri Akraneshafnar og Grundartanga og hef verið formaður hafnarsambands sveitarfélaga og verið í stjórn hafnarsambandsins í tíu ár þannig að ég er alls ekki ókunnugur hafnarmálum. Eg hef alltaf sagt að einn af skemmtilegustu þáttunum í starfi bæjarstjórans hafi verið aðkoma að hafnarmálum. Ég er því á þeirri skoðun að ég hafi lent á leikvelli sem er mjög spennandi. Þetta fyrirtæki, Faxaflóahafnir, býður upp á gríðarlega möguleika og hefur á að skipa öflugu starfs- fólki þannig að fyrstu þrjár vikurn- ar hafa verið mjög fróðlegar og gefa Hvalfjarðargöngin eru minnisstæðust Gísli Gíslason hefur í næstum tuttugu ár gegnt embætti bæjarstjóra á Akranesi. Hann hefur nú látið af störfum og tekið við starfi hafnarstjóra Faxaf lóahafna sf. sem á og rekur hafnirnar á Akranesi, í Borgarnesi, í Reykjavík og á Grundar- tanga. Við ræddum við hann um árin í starfi bæjarstjóra og hið nýja starf sem við honum blasir. Gísli Gíslason starfaði sem bæjarstjóri á Akranesi í tæp tuttugu ár. Hann segir tímabilið hafa verið bæði fjölbreytt og skemmtilegt. 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.