Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						 22. desember 2005  FIMMTUDAGUR24

FRÉTTASKÝRING

HELGA TRYGGVADÓTTIR

helgat@frettabladid.is

Flestir fagna aðventu 

og jólum, en árstíminn 

reynist þó mörgum erfiður. 

Sigríður Guðmarsdóttir 

prestur segir börnin 

leiðarvísi sinn að því að 

eiga góða og afslappaða 

aðventu.

?Aðventan reynist þeim sem eiga 

við þunglyndi að stríða oft hrein-

asta píning,? segir Sigríður Guð-

marsdóttir, sóknarprestur í Graf-

arholtssókn. ?Þetta gerist einkum 

vegna þess að eftir því sem aðrir 

verða glaðari eykst munurinn milli 

þeirra glöðu og þeirra sem eiga erf-

itt með að gleðjast.?

Sigríður bendir einnig á að rút-

ína skipti oft þá sem líður illa miklu 

máli. ?Á aðventunni förum við oft 

út úr rútínunni. Auðvitað gerum 

við það til þess að gera okkur glað-

an dag, en þetta er oft erfitt fyrir 

þá sem eru veikir fyrir.?

?Aðrar ástæður geta þó einnig 

legið að baki kvíða fyrir jólunum, 

þar á meðal ástvinamissir og fjár-

skortur. Fyrstu jólin eftir ástvina-

missi eru oft gríðarlega erfið þar 

sem allt minnir á þann sem farinn 

er,? segir Sigríður. ?Jólin snúast að 

svo miklu leyti um hefðir og venjur 

þar sem allt er í föstum skorðum. 

Þess vegna verður skarð þess sem 

látinn er svo tilfinnanlegt.?

Einnig eru þó dæmi þess að 

jólin geti hjálpað fólki að takast á 

við missi náins ástvinar. ?Ég veit 

um fólk sem hefur fengið talsverða 

lausn við það að takast á við jólin 

og skarð ástvinarins sem látinn 

er,? segir Sigríður. 

Prestar verða einnig mikið 

varir við kvöl þeirra sem ekki hafa 

efni á að halda jól. ?Prestar sinna 

oft tengiliðastarfi við hjálparstarf 

og Mæðrastyrksnefnd og þeir 

sem biðja um úthlutun eru gjarn-

an beðnir um að leita til prestsins 

síns,? segir Sigríður. ?Fyrir jólin 

fer því talsvert mikill tími hjá 

okkur í að spjalla við fólk sem á um 

sárt að binda og hefur neyðst til 

þess að leita sér hjálpar.?

Sigríður segir það þung spor 

að leita hjálpar fyrir jólin. ?Van-

líðunin á sér í raun tvær orsakir,? 

segir hún. ?Annars vegar kemur til 

vanlíðun vegna þess að fólk á ekki 

fyrir jólagjöfum og hins vegar 

upplifir fólk það sem ákveðna nið-

urlægingu að leita sér hjálpar.? 

Sigríður segir að á móti komi að 

þarna gefist kærkomið tækifæri 

til þess að eiga góðar samræður 

við fólkið. ?Ég vonast til þess að 

þrátt fyrir að það sé erfitt að biðja 

um hjálp geti þetta orðið til þess 

að fólk fái einnig stuðning á annan 

hátt en bara mat, þó að það sé auð-

vitað afskaplega mikilvægt líka.?

Sigríður segist hafa borið  undir 

átta og níu ára gömul börn þá spurn-

ingu af hverju sumir hlökkuðu ekki 

til jólanna. Þá hafi lítil stúlka sagt 

að þegar fólk yrði fullorðið hætti 

það að hlakka til jólanna. ?Hún 

taldi tilhlökkun til jólanna eitthvað 

sem eldist af okkur, eins og trúin á 

jólasveininn.?

Sigríður bendir þó á að margir 

fullorðnir fái jafnframt mikið út 

úr jólaundirbúningnum og upplifi 

gleði og fögnuð á þessum árstíma. 

?Maður vill oft hljóma svolítið 

eins og það sé tóm sorg í kringum 

jólin, en það er auðvitað alls ekki 

rétt,? segir Sigríður. ?Bæði börn og 

fullorðnir sækja afskaplega mikið 

í ljósið sem fylgir jólunum, vegna 

myrkursins sem hér ríkir í desem-

ber.?

Börnin eru lykill Sigríðar að því 

að vera glöð og afslöppuð á jólun-

um. ?Börnin eru mér leiðarvísir 

á aðventunni og ég reyni að taka 

mér þau til fyrirmyndar,? segir 

Sigríður. ?Það er svo gaman að 

finna hversu mikið börnin hlakka 

til jólanna og hvernig gleði þeirra 

á sér uppsprettu í sjálfri sér.?

Börnin vísa leiðina að 

fögnuði á aðventunni

SIGRÍÐUR GUÐMARSDÓTTIR PRESTUR segir 

bæði börn og fullorðna leita mikið í ljósið 

sem fylgir jólunum. 

GLEÐI Börnin hlakka mikið til jólanna, enda fylgja þeim ótalmargt skemmmtilegt fyrir yngsta fólkið. Þau hlakka til að opna pakkana, borða góðan mat og geta leikið sér úti í fríinu ef vel viðrar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

?Eitt af því sem skiptir mjög miklu máli 

við að stuðla að betri líðan er það að 

við höfum eitthvað til þess að hlakka til 

og getum fagnað ánægjulegum hlutum 

og tímamótum,? segir Hörður Þorgils-

son sálfræðingur. 

Hörður segir hins vegar að allur gang-

ur sé á því hvort fólk hafi tilefni til þess 

að fagna. ?Í ljósi reynslu af tímamótum 

þegar sorglegir og erfiðir atburðir hafa 

komið upp hefur fólk minna tilefni til 

fagnaðar en aðrir,? segir Hörður. Hörður 

segist leggja mikla áherslu á að fólk sé 

hins vegar frjálst til þess að skapa sitt 

eigið líf og hafa áhrif á eigin líðan. ?Ég 

reyni að hjálpa fólki að taka mið af eigin 

forsendum og falli hvorki í klisjur um 

ofurfögnuð né mikinn dapurleika,? segir 

Hörður. 

Hörður kveðst ekki verða var við að 

jólin hafi mikil áhrif á fólk sem leitar 

til hans. ?Fólk er yfirleitt að vinna með 

mál sem eru alveg óháð jólunum. Hins 

vegar geta jólin auðvitað stundum gert 

það auðveldara eða erfiðara eftir því 

hvernig mál eru vaxin.?

Mikilvægt að hugsa vel um eigin líðan á aðventunni:

Fögnuður og tilhlökkun mikilvæg

HÖRÐUR ÞORGILSSON SÁLFRÆÐINGUR

Hörður leggur mikla áherslu á að fólk sé 

frjálst til að skapa eigið líf og hafa áhrif á 

eigin líðan.

Tilfinningin um fögnuð á að 

mestu rætur að rekja til mið-

taugakerfisins að sögn Þórs 

Eysteinssonar, dósents við 

Lífeðlisfræðistofnun Háskóla 

Íslands.  

?Við vitum að virkni eykst á 

ákveðnum svæðum í heilanum 

þegar við finnum fyrir gleði,? 

segir Þór. ?Eitt þessara svæða 

kallast limbíska kerfið og er 

nátengt tilfinningum.? Þór 

segir fíkn og gleði að mörgu 

leyti skyld fyrirbæri, en sömu 

heilastöðvar koma við sögu í 

báðum tilfellum. ?Þessar heila-

stöðvar eru fremur gamlar í 

þróunarsögunni og hafa verið 

til lengi,? segir Þór.

Taugar frá þessum svæðum 

liggja síðan til annarra svæða 

heilans, þar á meðal heilabarkar. 

Þau efni sem aðallega koma við 

sögu eru serótónín og dópamín.

Komið hefur í ljós að þeir sem 

glíma við þunglyndi og depurð 

hafa minni virkni á þessum 

svæðum heilans að sögn Þórs.

Virkjun ákveðinna svæða í heilanum veldur fögnuði:

Gleði og fíkn   

skyldar tilfinningar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96