Tíminn - 11.12.1976, Blaðsíða 6

Tíminn - 11.12.1976, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 11. desember 1976 Gagnrýnir listamenn, Valtýr Pétursson, ólafur Kvaran og Jónas Guðmundsson. GAGNRÝNENDUR EFNA TiL MYNDLISTARSÝNING- AR Á KJARVALSSTÖÐUM Flóabáturinn Baldur- auglýsir Áætlunarferðir yfir Breiðafjörð verða sem hér segir yfil jól og áramót: Laugardaginn 18. desember, fimmtudag- inn 23. desember, fimmtudaginn 30. desember, þriðjudaginn4. janúar, laugar- daginn 8. janúar. Alla dagana er brottför kl. 9 árdegis frá Stykkishólmi og kl. 13 siðdegis frá Brjáns- læk. Eftir 8. janúar verða áðurnefndar ferðir eingöngu á laugardögum á sama tima. Allar nánari upplýsingar hjá afgreiðslum Baldurs, i Stykkishólmi simi 93-8120 og Brjánslæk simstöð um Haga. Samtök gagnrýnenda voru sem kunnugt er stofnuð fyrr á þessu ári. Hefur félagið þegar sannað ágæti sitt, og m.a. verð- uropnuð á laugardaginn sýning á úrtaki gagnrýnenda á mynd- list á árinu 1976. Myndlistargagnrýnendur dagblaðanna fengu pata af þvi, að Kjarvalsstaðir, eða vestur- salur þeirra, yrðu lausir, vegna forfalla, og ákváðu þvi að taka salinn á leigu undir sýningu á þvi merkasta, sem þeir töldu að fram hefði komið á árinu, sem nú er að liða. í ljós kom þó, að tilnefning ákveðinna verka hefði orðið of flókin, þar eð sum hafa verið seld, og þvi varð það að ráði að valdir voru nokkrir málarar til að sýna, og myndir siðan valdar af málurunum sjálfum og þá, ef svo bar undir, með hjálp gagn- rýnenda. Eftirtaldir gagnrýnendur standa að sýningunni: Valtýr Kalmar-/NNRÉrriNGAR hf. Grensásvegi 22 — Sími 8-26-45 — Reykjavík Pétursson og Bragi Asgeirsson frá Morgunblaðinu, Aðalsteinn Ingólfsson frá Dagblaðinu, Ólafur Kvaran frá Þjóðviljan- um og Jónas Guðmundsson frá Timanum. Eftirgreindir myndlistar- menn sýna þarna verk sin að þessu sinni: Hjörleifur Sigurðsson, Jóhannes Geir, Karl Kvaran, Kristján Daviðsson, Haukur Dór, Gunn- ar Örn, Magnús Kjartansson, Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Ragnheiður Jónsdóttir, Asgerð- ur Búadóttir, Sigurjón ólafsson, Riehard Valtingojer, Magnús Pálsson, Torfi Jónsson og Kristján Kristjánsson Sá háttur var á hafður við val myndlistarmanna til að taka þátti sýningunni, að hver gagn- rýnandi tilnefndi einn mynd- listarmann. Siðan voru greidd atkvæði um nafnalista, eða ein- staka menn á lista, þeirra er sýnt höfðu á árinu og til greina þóttu koma. Þeir, sem flest atkvæði hlutu,eru með verk á sýning- unni, nema Þorvaldur Skúlason, sem ekki gat verið með, þótt hann hlyti nægjanlegt atkvæða- magn. Sýningin verður opnuð á laugardag kl. 16.00 og stendur i viku. Verður hún opin á venju- legum safntima. Myndlistargagnrýnendur taka það fram, að þetta er til- raun til yfirlits yfir markverða myndlist á árinu, sem er að liða. Auðvitað voru skiptar skoðanir um val listaverka og mynd- listarmanna, en þetta úrtak er fengið með lýðræðislegri at- kvæðagreiðslu. Ef v.l tekst til, mun þetta verða árviss sýning. JG Mynd eftir Jóhannes Geir. Happdrætti arflokksins Vinningarnir i happdrættinu eru 15 að þessu sinni kr. 1.500.000,- aö verðmæti. Dregið verður 23. desember n.k. og drætti ekki frestað. Framsóknarfólk og aðrir, sem fengið hafa heimsenda niiöa, er beöiö að taka þátt i miöakaupum eftir fremstu möguleikum og eru trúnaðar- menn flokksins um land allt sérstaklega hvattir til að vinna rösklega að sölu miðanna, hver á sinum stað. Framsókn- Þaö styttist óöum til dráttar- dags. Greiöa má eftir meðfylgj- andi giróseðli i næstu peninga- stofnun, til næsta umboðs- manns eða til happdrættis- skrifstofunnar, Rauðarárstfg 18, Rvik. (inng. Njáls- götumegin). Skrifstofan Rauðarárstfg er opin til hádegis I dag, Iaugar- dag og til kl. 6 á kvöldin næstu iaga eftir helgi. Einnig er tekið á móti uppgjöri á Af- greiöslu Tfmans. Aöalstræti 1 Jg þar eru einnig miðar til iölu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.