Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 70
30 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is MEÐ ÁGÚSTI BJÖRGVINSSYNI60 SEKÚNDUR Valur eða Haukar? Séra Friðrik. Kvenna- eða karlalið Hauka? Kvenna- liðið. Helena Sverrisdóttir eða Anna María Sveinsdóttir? Helena Sverrisdóttir. Besti leikmaður Íslands frá upphafi? Pétur Guðmundsson. Besti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi? Michael Jordan. Besti kvenkyns leikmaður á íslandi? Helena Sverrisdóttir. Besti karlkyns leikmaðurinn á Íslandi? Sævar Haraldsson. Stoðsending eða troðsla? Stoðsending. Verður þú landsliðsþjálfari fyrir þrítugt? Tíminn verður að leiða það í ljós. Er glasið hálftómt eða hálfullt? Hálffullt. Magic eða Bird? Bird. Detroit eða San Antonio? San Antonio. Íslenskur körfubolti er... á uppleið. Kaffi eða te? Kaffi. Að kasta stólum er... Pass. Hvert er þitt uppáhalds “move”? Up and under. TENNIS Kim Clijsters vann baráttuna á milli tveggja bestu tenniskvenna heimsins í dag þegar hún lagði Lindsay Davenport á meistaramótinu í Hong Kong. Belgíska stúlkan vann í tvimur settum, 6-3 og 7-5, og hin ameríska Davenport sá aldrei til sólar. „Þetta mót hefur verið fullkomið til að prófa nokkra nýja hluti og skoða að hverju við þurfum að vinna,“ sagði sigurreif Clijsters eftir mótið. Hún er í öðru sæti á heimslistanum í tennis en Davenport í því fyrsta. - hþh Tennismót í Hong Kong: Clijsters vann Davenport KÖRFUBOLTI Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson átti mjög góðan leik fyrir lið sitt Carpisa Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í fyrradag þegar það lagði Lottomatica Rom, 90-74. Með sigrinum komst Carpisa í efsta sæti deildarinnar ásamt Climamito og Benetton, en öll lið hafa hlotið 22 stig. Jón Arnór lék í 36 mínútur og var með afar góða skotnýtingu í þriggja stiga skotum, en hann skoraði fimm slíkar körfur úr sjö tilraunum. - vig Jón Arnór Stefánsson: Stigahæstur í góðum sigri JÓN ARNÓR Eftir slaka byrjun á tímabilinu er Carpisa Napoli nú komið á toppinn á Ítalíu. HANDBOLTI Yfir þúsund manns mættu á opna æfingu þýska lands- liðsins í handbolta í fyrradag og er ljóst að mikill áhugi er fyrir þát- töku liðsins á EM í Sviss á meðal almennings. Þeir fjölmörgu sem mættu á æfingasvæðið voru æstir í að láta mynda sig með leikmönn- um liðsins og gáfu þeir sér góðan tíma eftir æfinguna til að gefa æstum aðdáendum eiginhandar- áritanir. Undirbúningur þýska liðsins, undir stjórn Heiner Brand, er nú í fullum gangi og um helgina mun liðið mæta Svisslendingum í tveimur æfingjaleikjum. Eftir mikla endurnýjun á landsliðshópn- um á síðustu árum gerir almenn- ingur í Þýskalandi sér vonir um að liðið sé nú búið að stilla strengi sína og gerir sér vonir um góðan árangur liðsins í Sviss. - vig Þýska handboltalandsliðið: Mikill áhugi fyrir liðinu > Sigurður Sæberg hættur Sigurður Sæberg Þorsteinsson, sem leikið hefur með Val undanfarin ár, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Að sögn Willums Þórs Þórssonar, þjálfara Vals, er líklegt að þeir Kristinn Lárusson og Stefán Helgi Jónsson fari sömu leið en hann gerir sér meiri vonir um að Guðmundur Benediktsson og Sigþór Júlíusson leiki með liðinu eitt tímabil til viðbótar. Guðmundur sagðist við Fréttablaðið í gær ekki enn vera búinn að ákveða sig en hann er ekki byrjaður að æfa með Valsmönnum. Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar: KR B-GRINDAVÍK 69-92 Stig KR B: Melvin Scott 42, Ólafur Jón Ormsson 8, Baldur Ólafssson 8, Hermann Hauksson 6, Birgir Mikaelsson 5. Stig Grindavíkur: Jeremiah Johnson 30, Þorleifur Ólafsson 15, Páll Axel Vilbergsson 15, Páll Kristinsson 14, Helgi Jónas Guðfinnsson 7, Ármann Vilbergsson 6, Nedzad Biberovic 5, Hjörtur Harðarson 3. KONUR 16-LIÐA ÚRSLIT HAUKAR-TINDASTÓLL 20-0 ÍS-FJÖLNIR 101-26 EHF-keppni kvenna: HAUKAR-PODRAVKA 24-37 Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 11, Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, Harpa Melsted 4, Martha Her- mannsdóttir 2, Inga Fríða Tryggvad´´ottir 1, Hann G. Stefánsdóttir 1. Varin skot: Krstiana Matuzeviciute 7, Helga Torfadóttir 3. DHL-deild kvenna: GRÓTTA-ÍBV 25-31 Mörk Gróttu: Ivana Veljkovic 10, Gerður Einarsdótt- ir 5, Karen Smith 4, Hera Bragadóttir 3, Karólína B. Gunnarsdóttir 1, Arndís M. Erlingsdóttir 1, Kristín Þórðardóttir 1. Mörk ÍBV: Renata Horvath 8, Ingibjörg Jónsdóttir 7, Simona Vintila 7, Pavla Plaminkova 4, Ester Óskars- dóttir 3, Ragna Karen Sigurðardóttir 2. FRAM-KA/ÞÓR 32-26 Mörk Fram: Anett Köbli 14, Guðrún Þóra Hálfdáns- dóttir 5, Ásta Birna Gunnarsdóttir 4, Þórey Rósa Stef- ánsdóttir 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Eva Hrund Harðardóttir 2, Elísa Ósk Harðardóttir 1. Mörk KA/Þórs: Inga Dís Sigurðardóttir 11, Guðrún Helga Tryggvadóttir 4, Jurgita Morkevinte 4, Erna Heiður Tryggvadóttir 3, Þórsteina Sigurjónsdóttir 2, Aður Ómarsdóttir 1, Jóhanna Tryggvadóttir. HK-FH 28-34 Mörk HK: Auksé Vysniauskaité 9, Erna Sif Pálsdótt- ir 7, Tatjana Zukovska 4, Auður Jónsdóttir 3, Tinna Rögnvaldsdóttir 1, Rut Jónsdóttir 1, Hjördís Rafns- dóttir 1, Líney Guðmundsdóttir 1, Brynja Magnús- dóttir 1. Mörk FH: Ásdís Sigurðardóttir 8, Maja Gronbæk 7, Þóra B. Helgadóttir 6, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 6, Erna Gunnarsdóttir 3, Eva Albrechtsen 2, Gunnur Sveinsdóttir 1, Katrín Vilhjálmsdóttir 1. STJARNAN-VÍKINGUR 24-18 Mörk Stjörnunar: Rakel Dögg Bragadóttir 6, Sólveig Lára Kjærnested 5, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Kristín Clausen 3, Hind Hannesdóttir 2, Tamina Argena 2, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1, Elín Ýr Ólafsdóttir 1. Mörk Víkings: Natasa Damiljanovic 5, Hekla Daða- dóttir 3, Gyða M. Ingólfsdóttir 3, Anna Kr. Árnadóttir 2, Ásta Björk Agnarsdóttir 2, Þórhildur Björnsdóttir 1, Helga Guðmundsdóttir 1, Andrea Olsen 1. STAÐAN ÍBV 8 6 1 1 220-172 13 HAUKAR 7 6 0 1 218-174 12 FH 8 6 0 2 218-196 12 STJARNAN 7 5 1 1 187-162 11 VALUR 7 5 0 2 177-153 10 HK 8 3 1 4 227-239 7 GRÓTTA 8 2 0 6 178-188 4 FRAM 8 2 0 6 183-219 4 KA/ÞÓR 8 2 0 7 189-241 2 VÍKINGUR 7 0 1 6 162-215 1 ÚRSLIT GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI „Ég er fyrst og fremst ánægður með að þetta sé búið og að við unnum leikinn, sem var það eina sem skipti máli,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir leikinn. KR-ingar leiddu í byrjun leiks og var það fyrir tilstilli Melvin Scott sem fór á kostum og skor- aði alls 42 stig og körfur í öllum regnbogans litum. Hann fór fyrir sínum mönnum í sókn og vörn og sýndi stórskemmtileg tilþrif. „Það er erfitt að segja nokkuð um Melvin Scott. Hann kemur hingað og spilar með neðrideild- arliði og fékk að skjóta og gera það sem hann vildi. Hann virkar á mig sem ágætisleikmaður en þó svo að hann hafi skorað yfir 40 stig í dag segir það ekkert um það hvort hann yrði einhver yfir- burðaleikamaður í efstu deild,“ sagði Friðrik Ingi. Jeremiah Johnson var stiga- hæstur hjá Grindvíkingum en hann skoraði 30 stig en Páll Axel Vilbergsson og Þorleifur Ólafsson fimmtán hvor. „Bumburnar stóðu sig stórkostlega. Þetta var mjög gott fram í fjórða leikhluta þegar bumburnar fóru að segja til sín og munurinn á liðunum kom virki- lega í ljós,” sagði Hörður Gauti Gunnarsson, þjálfari KR-B, eftir leikinn. Grindavík leiddi allan leikinn en munurinn fór minnst í þrjú stig, 51-54, um miðbik þriðja leik- hluta. „Ég er mjög sáttur við þetta en við vissum að okkar möguleiki lá í því að halda hraðanum niðri sem og stigaskorinu. Ég hélt að við værum virkilega að fara að taka þetta þegar við minnkuðum þetta niður í þrjú stig en þá fór Melvin að missa taktinn og það skipti sköpum í þessum leik. Þeir fengu líka verulega ódýrar körfur á köflum en 23 stig er enginn stórkostlegur munur á móti topp úrvalsdeildarliði,“ sagði Hörður að lokum, stoltur af lærisveinum sínum. hjalti@frettabladid.is Bumburnar stóðu í Grindavík B-lið KR í körfubolta stóð lengi vel í úrvalsdeildarliði Grindavíkur í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í gær en undir lokin var getumunurinn greinilegur. BUMBAN OG ELÍTAN Birgir Mikaelsson sýndi gamalkunna takta í leiknum við Grindavík í gær og sést hér fara framhjá Páli Kristinssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. FÓTBOLTI Valsmenn hafa endurskipulagt æfingaáætlun sína og eru byrjaðir að æfa á morgnana til að dreifa álaginu á leikmennina sem æfa fjórum sinnum í viku. „Við erum ekki að fjölga æfingum heldur aðeins að skipuleggja þetta þannig að menn fái sem mesta hvíld,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, við Fréttablaðið í gær. „Það er lítil æfingaaðstaða á Hlíðarenda vegna framkvæmd- anna og því tökum við kraft- þjálfunina svona tvisvar í viku. Við vorum að æfa úti um allan bæ en með þessu náum við að æfa sem mest á einum stað. Auk þess spilum við miðnæturbolta í Egilshöllinni en þetta er allt gert til að koma æfingunum fyrir í áætluninni,” segir Willum. „Það er bæði neikvætt og jákvætt að gera þetta svona á þessum óvenjulegu tímum. Það er nauðsynlegt að leikmenn fái góða hvíld á milli æfinga og til að mynda er heill frídagur eftir miðnæturboltann enda ekki annað hægt.” - hþh Óvenjulegir æfingatímar hjá liði Vals í Landsbankadeild karla: Miðnæturbolti og morgunbrölt WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON Valsmenn eru byrjaðir að æfa á óvenjulegum tímum. HANDBOLTI Þungur róður bíður Haukastúlkna í síðari leiknum gegn króatíska liðinu Podravka Vegeta í EHF-keppninni í hand- bolta í dag eftir 13 marka tap á Ásvöllum í gær, 24-37. Ef fyrstu mínútur leiksins eru undanskild- ar voru gestirnir miklu betri aðil- inn og var hreinlega við algjört ofurefli að etja fyrir Haukana, enda lið Vegeta gríðarlega öflugt atvinnumannalið sem varð Evr- ópumeistari fyrir ekki svo mörg- um árum. Það var greinilegt að leikmenn Vegeta vanmátu Hauka í upphafi því Hafnfirðingar komust í 3-0 og keyrðu yfir vankaða leikmenn Vegeta, sem höfðu komið til lands- ins aðeins fjórum klukkustundum fyrir leik. Þær skoruðu hins vegar níu mörk gegn einu marki Hauka í kjölfarið og breyttu stöðunni í 5- 9. Eftir það jókst munurinn jafnt og þétt eftir því sem leið á hálf- leikinn en með ágætum leikkafla undir lok fyrri hálfleiks náðu Haukastúlkur að minnka muninn í 13-19 fyrir hlé. Haukar héldu í við gestina í upphafi síðari hálfleiks en eftir því sem á leið kom glögglega í ljós að langt var síðan leikmenn liðsins léku alvöru leik og að því kom að úthaldið þraut og leikmenn Veg- eta gengu á lagið. Þær náðu mest 14 marka forystu, 20-34, en loka- tölur leiksins urðu 24-37 og þurfa Haukar nánast á kraftaverki að halda til að eiga möguleika á að komast áfram. Ramune Pekarskyte átti stór- leik fyrir Hauka og skoraði 11 mörk í öllum regnbogans litum en miklu munaði um að Hanna G. Stefánsdóttir lék langt undir getu og þá var markvarsla liðsins með versta móti. - vig Haukar töpuðu illa í Evrópukeppninni: Við ofurefli að etja HINGAÐ OG EKKI LENGRA Leikmenn Hauka voru einfaldlega minni máttar gegn leikmönnum Vegeta. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Íslenskur sigur í Noregi Norska blakliðið BK Tromsö varð í gær norskur bikarmeistari í blaki karla þegar það sigraði Nyborg, 3-0. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þjálfari liðsins er Íslendingurinn Magnús Aðalsteinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.