Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 72
52 28. janúar 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Valsmaðurinn Baldur Aðalsteinsson fær ekki samning hjá norska liðinu Lyn en hann var við æfingar hjá liðinu í síðustu viku. „Hann fær ekki samning hjá okkur að svo stöddu, sagði Henn- ing Berg, þjálfari Lyn, við Frétta- blaðið í gær. „Við erum alltaf að leitast við að styrkja liðið og við fengum veður af því að Baldur væri góður leikmaður og ákváð- um því að skoða hann,“ sagði Berg en Baldur lék æfingaleik með liðin í fyrradag en kom aftur til landsins í gær. „Hann er góður leikmaður en ekki betri en þeir sem við höfum fyrir. Þegar við kaupum leikmenn verða þeir að vera betri en þeir sem við erum með fyrir. Hann er fínn leikmaður en við ætlum okkur ekki að fá hann til okkar.“ Stefán Gíslason er einnig á mála hjá Lyn en hann hefur gegnt lykilhlutverki í liðinu síðan hann gekk til liðs við Lyn fyrir tæpu ári. „Hann er mjög góður leikmað- ur og hefur staðið sig virkilega vel fyrir liðið,“ sagði Berg um Stefán. „Hann spilar ávallt á miðj- unni fyrir okkur þrátt fyrir að spila sem miðvörður með íslenska landsliðinu en það fer auðvitað eftir því hvaða leikmenn eru í boði. Ég er mjög ánægður með Stefán og hans spilamennsku,“ segir Berg sem kveðst alltaf vera með augun opin fyrir íslenskum leikmönnum. „Mér líkar viðhorfð þeirra til leiksins. Íslendingar eru ávallt baráttuglaðir leikmenn sem leggja sig 100% fram og þannig leikmenn er alltaf hægt að nýta í norska boltanum.” - hþh - vig Henning Berg, þjálfari norska liðsins Lyn og fyrrum leikmaður Man. Utd: Baldur fær ekki samning hjá Lyn HENNING BERG Ætlar ekki að fá Baldur til sín. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES KR hefur ákveðið að segja upp samningnum við Omari Westley sem leikið hefur frábærlega með liðinu í vetur. Í leiknum gegn Keflavík um síðustu helgi gerði Westley sig sekan um mjög ljótt brot þegar hann gaf einum leikmanni Keflavíkur olnbogaskot og fékk fyrir vikið fjögurra leikja bann. Átta leikir eru eftir af deildarkeppninni í körfubolta en KR er í harðri toppbaráttu og sá sér einfaldlega ekki fært að vera án jafn sterks leikmanns í fjóra leiki. „Við töldum að á þessum tímapunkti á tímabilinu þá yrði of erfitt fyrir okkur að fara Kanalausir í næstu fjóra leiki þar sem baráttan á toppnum er gríðarlega hörð og við urðum að grípa til þessara aðgerða,“ sagði Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, við Fréttablaðið í gær. „Það er mjög leiðin- legt fyrir okkur að láta hann fara þar sem Omari hafði staðið sig frábærlega og fallið vel inn í hópinn. Það er mikið áfall fyrir okkur að lenda í þessu en þegar atvik á borð við þetta gerist urðum við að leita lausna til að halda áfram af sama krafti og við höfum gert.“ KR hefur fengið tvo leikmenn til liðsins í staðinn, Melvin Scott, sem lék með B-liði KR í bik- arkeppninni gegn Grindavík þar sem hann fór á kostum, og Serbann Ljubodrag Bogavac. „Melvin Scott er skráður í KR þar sem hann spilaði með B-liðinu okkar og er því enn skráður í klúbbinn,“ sagði Böðvar um Scott. „Það er mikill happafengur að fá hann enda hefði Melvin alveg eins getað verið kominn í eitthvert annað lið. Ég hefði ekki verið spenntur fyrir því að fara út í hið eilífa lotterí með að finna Bandaríkjamann og fá hann til landsins án þess að sjá hann spila. Það er einfaldlega of mikil áhætta fyrir okkur.“ KR-INGAR SEGJA OMARI WESTLEY UPP: TVEIR ERLENDIR LEIKMENN KOMA Í STAÐINN Urðum að grípa til þessara aðgerða FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knatt- spyrnu dróst í F-riðil undankeppni EM með sterkum þjóðum en dreg- ið var í Sviss í gær. Í riðli með Íslendingum er Svíþjóð, Spánn, Danmörk, Lettland, Norður- Írland og Liechtenstein. Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari bíður spenntur eftir sínu fyrsta verk efni með A-landsliðið en ljóst er að um sannkallaða Norðurlandaslagi verður að ræða. „Mér líst bara vel á þetta. Þetta er nágrannaslagur og ekki mikil ferðalög sem er mjög þægilegt en riðillinn er mjög erfiður. Við höfum ekki riðið feitum hesti frá viðureignum okkar við Svía og Dani og höfum fengið skelli frá báðum þjóðum í okkar síðustu leikjum gegn þeim. Spánverjar eru svo að sjálfsögðu með ógn- arsterkt lið og það er ljóst að við ramman reip verður að draga í þessum erfiða riðli. En þetta er spennandi verkefni,“ sagði Eyjólf- ur við Fréttablaðið í gær. Eins og margir vonaðist Eyj- ólfur til þess að Ísland yrði loks- ins með Englandi í riðli en honum varð ekki að ósk sinni að þessu sinni. „Því miður þá forðumst við England enn einu sinni. Það verð- ur þá bara að gerast næst,“ sagði Eyjólfur bjartsýnn á dráttinn fyrir heimsmeistaramótið árið 2010. Eyjólfur játaði því að mögu- leikar Ísland á að komast upp úr riðlinum væru hverfandi. „Já, þeir eru það. Við ætlum okkur bara að safna stigum og reyna að ná hagstæðum úrslitum úr leikj- unum okkar. Lykilatriðið er að komast upp um styrkleikaflokk og það leggjum við höfuðáherslu á. Við vorum neðstir núna í fimmta styrkleikaflokki og það má ekki mikið út af bera til að við föllum niður í þann sjötta. - hþh Katrín aftur í Val Valsstúlkur hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Landsbankadeild kvenna en Katrín Jónsdóttir hefur gengið til liðs við félagið. Katrín hefur áður leikið með Val og snýr nú aftur eftir dvöl í Noregi. Auk þess hafa Dóra María Lárusdóttir og Pála Marie Einarsdóttir skrifað undir nýja samninga við félagið. Við ramman reip að draga Íslendingar duttu heldur betur í lukkupottinn í gær þegar dregið var í und- anriðla EM. Ísland er með þremur gríðarlega sterkum þjóðum í riðli og geta forráðamenn KSÍ gengið að því vísu að fá góða aðsókn á heimaleiki liðsins. KÁTIR Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska landsliðsins, og Eggert Magnússon, formaður KSÍ, mega leyfa sér að brosa yfir frábærum andstæðingum íslenska liðsins í komandi und- ankeppni EM í Sviss og Austurríki. Andstæðingarnir eru afar áhugaverðir og flest ferðalög eru viðunandi stutt svo að drátturinn hefði í raun ekki getað farið betur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR A-RIÐILL Portúgal Pólland Serbía/Svartf.land Belgía Finnland Armenía Aserbaídsjan Kasakstan B-RIÐILL Frakkland Ítalía Úkraína Skotland Litháen Georgía Færeyjar C-RIÐILL Grikkland Tyrkland Noregur Bosnía/Herseg. Ungverjaland Moldóva Malta D-RIÐILL Tékkland Þýskaland Slóvakía Írland Wales Kýpur San Maríno E-RIÐILL England Króatía Rússland Ísrael Eistland Makedónía Andorra F-RIÐILL Svíþjóð Spánn Danmörk Lettland Ísland Norður-Írland Liechtenctein G-RIÐILL Holland Rúmenía Búlgaría Slóvenía Albanía Hvíta-Rússland Lúxemborg > Ólafur með á sunnudag Fyrirliðinn Ólafur Stefánsson verður að öllum líkindum með Íslandi í lokal- eik C-riðils á Evrópumótinu í Sviss á morgun þegar leikið er gegn Ungverjum. Óttast var að Ólafur væri með brákað rifbein eftir slagsmálin gegn Serbum á fimmtudag en svo er ekki og mun hann ætla að gera allt sem í sínu valdir stendur til að spila þrátt fyrir að vera hrakaður vegna meiðslanna. Hugsanlegt er að hann þurfi sprautu til að lina sársaukann fyrir leikinn en Ólafur átti stórleik gegn Serbum í fyrsta leik Íslands á mótinu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JANÚAR 25 26 27 28 29 30 31 Laugardagur ■ ■ SJÓNVARP  10.50 Ítölsku mörkin á Sýn. Öll mörkin úr leikjum síðustu helgar.  11.20 Spænsku mörkin á Sýn. Öll mörkin úr leikjum síðustu helgar.  14.30 Enski bikarinn á Sýn. Bein útsending frá leik Everton og Chelsea.  15.10 EM í handbolta á Rúv. Bein útsending frá leik Spánverja og Frakka.  16.50 Ensku mörkin á Sýn. Mörkin úr ensku 1. deildinni.  17.20 Enski bikarinn á Sýn. Bein útsending frá leik Bolton og Arsenal.  19.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik úr umferð dagsins.  19.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik úr umferð dagsins.  15.10 EM í handbolta á Rúv. Bein útsending frá leik Spánverja og Frakka. FÓTBOLTI Ungmennalandslið Íslands mætir Andorra í tveimur leikjum í undankeppni riðlakeppni Evrópumótsins árið 2007. Leik- dagarnir hafa ekki verið ákveðnir en báðum leikjunum þarf að vera lokið fyrir 15. júlí. Það lið sem vinnur í umspil- inu fer svo í riðlakeppnina þar sem það mætir Ítölum og Austur- ríki en þar verður leikin einföld umferð og fær hver lið einn leik á útivelli og einn á heimavelli. Ítalir eru mjög sterkir í þessum aldurs- flokki og hafa meðal annars orðið Evrópumeistarar í fimm af síð- ustu sjö keppnum.“ - hþh Ungmennalandsliðs Íslands: Undanleikir gegn Andorra U-21 ÁRS LANDSLIÐIÐ Gæti mætt Ítölum. FÓTBOLTI Djibril Cisse framherji Liverpool var handtekinn og yfir- heyrður af lögreglunni í Liverpool eftir að hann réðst á eiginkonu sína á fimmtudagskvöldið. Kona Cisse er ófrísk en þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Cisse er handtekinn en hann viður- kenndi að hafa slegið fimmtán ára gamlan dreng í október síðastliðn- um. Liverpool hefur ekki tjáð sig um málið að svo stöddu en Cisse er sterklega orðaður við brottför frá Evrópumeisturunum innan skamms. - hþh Djibril Cisse handtekinn: Réðst á eigin- konu sína FÓTBOLTI Grétari Rafni Steinssyni er hrósað sérstaklega í dálki sem birtist á heimasíðunni Soccernet í gær en þar er talað um byltinguna sem Louis van Gaal hefur staðið að með AZ Alkmaar í Hollandi. Van Gaal hefur verið lunkinn á leikmannamarkaðnum og meðal annars fengið menn á borð við Shota Arvaladze og Grétar Rafn frítt til liðsins. Þetta er rós í hnappagat Grétars sem vakið hefur athygli í Hollandi með stöðugum og góðum leik en hann var fenginn til liðsins til að fylla í skarð eins besta leikmanns liðsins í fyrra, Jan Kromkamp sem nú leikur með Liverpool. - hþh Grétar Rafn vekur athygli: Frábær kaup
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.