Tíminn - 17.06.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.06.1977, Blaðsíða 1
GISTING MORGUNVERÐU R SÍMI 28866 Slöngur — Barkar — Tengi 9BS33S1S3!!1H SMIÐJUVEGI 66 Kópavögi — Sími 76-60Q - I dag blakta fánar á hverri stöng, og ungir og aldnir fagna á þjóðhátíðar- degi íslend- inga. Timinn sendir öllum landsmönn- um kveðjur og árnaðar- óskir á þessum degi með þeirri ósk, að þeim verði jafnan sem ríkast í huga, að land, þjóð og tunga eru sú þrenn- ing, sem við eigum mestar skyldur við. Dagur iðnaðarins á Self ossi: 65 iðnf yrir tæki starfandi í SOOOmannabæ Gsal-Reykjavik — Dagur iðn- aðarins var i gær haldinn á Selfossi og er þetta i fimmta sinn sem islenzk iðnkynning efnir til sliks dags til kynning- ar á islenzkum iðnaði, en áður hafa sams konar iðnkynningar verið haldnar á Egilsstöðum, Borgarnesi, Kópavogi og Sauðárkróki. Selfoss er vax- andi iðnaðarbær og er talið að um eða yfir 10% Ibúa staðar- ins hafi beina atvinnu af þess- ari atvinnugrein. Alls eru starfrækt á Selfossi 65 iðnfyr- irtæki og er þá bæði átt við þjónustu- og framleiðslufyrir- tæki, og er það hlutfallslega mjög há tala, þar sem ibúarn- ir eru rétt rúmlega þrjú þús- und talsins. Á degi iðnaðarins i gær skoðuðu margir forystumenn islenzks iðnaðar nokkur iðn- fyrirtæki á staðnum og var Gunnar Thoroddsen iðnaðar- ráðherra i broddi fylkingar. Byrjað var á að skoða Mjólkurbú Flóamanna, en það fyrirtæki hóf starfsemi sina árið 1929 og telst elzta iðnfyr- irtækið á Selfossi. Þá voru heimsóttar smiðjur Kaupfé- lags Arnesinga, trésmiðja og bilasmiðja en bæði þessi iðn- fyrirtæki eru rótgróin i at- vinnulifi Selfyssinga, bila- smiðjan hóf rekstur árið 1939 og trésmiðjan 1949. Þá var ungt iðnfyrirtæki heimsótt, Selós sf. að nafni, en það fyrirtæki annast nýbygg- Meöal iðnfyrirtækja, sem iönaðarráöherra og ýmsir forystumenn íslenzks iönaöar heimsóttu I gær á Selfossi, var trésmiöja Kaupfélags Árnesinga. A þessari Tímamynd Róberts má sjá Gunnar Thoroddsen iönaöarráöherra og konu hans fylgjast meö starfsmönnum viö vinnu sina i trésmiöjunni. ingar og innréttingasmiði. Rekstur þess hófst árið 1974. Að lokum var Sláturfélag Suðurlands heimsótt og gafst gestum kostur á að fylgjast með nautgripaslátrun. Sveitarstjórn hélt siðan há- degisverðarboð fyrir gestina og i þvi boði var Selós sf. veitt viðurkenning fyrir snyrtileg- ustu iðnaðarlóðina á Selfossi. Hlaut fyrirtækið farandbikar að verðlaunum. Var ákveðið að veita svona viðurkenningu árlega 17. júni þvi fyrirtæki sem þætti skara fram úr á þessu sviði á Selfossi. Klukkan fjórtán var opnuð iðnsýning i gagnfræðaskólan- um á Selfossi, en þar sýna 25 iðnfyrirtæki i bænum fram- leiðslu sina. Við opnun iðnsýn- ingarinnar flutti Guðmundur Jónsson skósmiður ávarp og sagði m.a. að iðnskólinn á Sel- fossi hefði útskrifað 600 iðn- nema fráþvihann tók til starfa árið 1943. Siðdegis var svo fundur um iðnaðarmál i Selfossbiói. Samningarnir - sjá bls. 2

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.