Tíminn - 30.06.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.06.1977, Blaðsíða 1
SMIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Simi 76-606 Slöngur — Barkar — Tengi *.......—... < GISTING MORGUNVERÐUR SÍMI 28866 - Ekki segja samningum upp — segir sjávarútvegsráðherra um veiðar Færeyinga, Norðmanna og Belga Fiskveiðisamningar islendinga við Fær- eyinga, Norðmenn og Belgi voru ekki bundn- ir við ákveðinn tima, en uppsagnarfrestur sex mánuðir. Fisk- veiðisamningurinn við Þjóðverja rennur aftur á móti sjálfkrafa út í haust. í Visi i gær er það haft eftir Matthiasi Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra, að hann hafi „marglýst þvi yfir, að það eigi ekki að segja upp samningunum” við þær þjóðir þrjár, sem fyrst voru nefndar. „Veiðar Norð- manna og Belga skipta ekki sköpum fyrir okkur — Fær- eyingar veiða meira”, er haft eftir ráðherranum. Togarar Belga hér við land eru tuttugu, 220-380 lesta, og ráðherrasegir i viðtalinu, að Norðmenn muni veiða hér 1700-2600 lestir. Segir hann um veiðar Norðmanna að okkur sé „nauðsynlegt að hafa áframhaldandi samn- inga við þá vegna skiptingar á hvalveiðikvóta.” Skessurnar dagaði uppi hér á fyrri tímum á meðan þær voru og hétu. Nú er vélaöld en ekki trölla, og nú ber það við, að dráttarvélar dagar uppi úti á víðavangi. Það hefur hent þessa, og það óviðbúna, því að hún hefur verið i þökuflutn- ingum, þegar kallið kom. En einhverjum hefur blöskrað umkomuleysi hennar og skreytt hana á marga vegu. — Timamynd: Kristinn. telst hins vegar sannanlegur og scint i gærkvöld var skip- stjórinn dæmdur i sekt og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Dómurinn var ekki lesinn upp fyrr en mjög seint i gærkvöld, en hann kvað upp Erlendur Björnsson, bæjarfógeti á Seyðisfirði og meðdómendur hans voru Baldur Svein- björnsson, skipstjóri og Arni J. Sigurðsson, vélstjóri. Sjóréttur i máli þessu hófst þegar kl. 9 i gærmorgun. — Það varð dráttur á málinu i nokkrar klukkustundir meðan skipstjórinn á færeyska bátnum var að athuga hvort hann ætti að verða sér úti um lögfræðing, en niðurstaða hans varð neikvæð og var þá málinu haldið áfram, sagði Erlendur Björnsson i samtali við Timann i gærkövöld. Erlendir handfærabátar mega veiða fyrir utan 4 milna — fyrir landhelg- isbrot — Skipstjórinn neitaði, en var dæmdur sekur mörkin, en þau eru dregin i grunnlinu úr Glettinganesi i Norðf jarðarhorn, en báturinn var tekin SA af Glettinganesi. Samkvæmt fyrri mælingu varðskipsmanna, reyndist hann vera 0,8 sjómilur fyrir innan þessi mörk, og i seinni mælingu, 0,6 sjómilur fyrir innan. Færeyski handfærabáturinn Antares.erfjörutiu brúttótonn að stærð. Nokkuð mun um færeyska báta á fyrrnefndum slóðum um þessar mundir. ísland á toppnum Gsal-Reykjavik — Sala geð- lyfja, svefnlyfja og róandi lyfja er meiri á tslandi og i Danmörku en annars staðar á Norðurlöndum. Svefn- lyf jum er mest ávisað hér á landi, en neyzla þeirra hefur minnkað nokkuð siðustu árin. Um 3/4 hlutar svefn- og róandi lyfja, sem ávisað er á tslandi, eru valium, diazepam og mogadon. Hlut- föll þessara lyfja af sölunni eru þau sömu i Danmörku, en i Noregi eru þau 40% og í Sviþjóð 50%. Af mogadoni, sem er svefnlyf, er ávisað nær helmingi meira á tslandi og i i Danmörku en á öðrum Norðurlöndum. Þetta eru m.a. niðurstööur af kerfisbundnum athugunum landlæknisem- bættis og lyfjamáladeildar heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytis, sem fram hafa farið allt frá árinu 1972, á lyfjaneyzlu fólks á Reykja- vikursvæðinu. Auk hins hefð- bundna eftirlits hefur verið fylgzt náið með sölu lyfja, lyf jaávisanafjölda og neyzlu fólks. Einn liður könnunar- innar var að rannsaka hundrað og fimmtiu þúsund lyfjaávisanir. gébé Reykjavik — Varðskipið Þór kom aö færeyska hand- færabátnum Antares SA 199 að ólöglegum veiðum innan 4 milna fiskveiðimarkanna um kl. 14.30 á þriðjudag og færði varðskipið bátinn til hafnar. Skipstjórinn, Sverri Petersen, telur sig ekki hafa verið innan markanna og neitaði þvi fyrir sjórétti á Seyðisfirði i gær. Vitnisburður varðskipsmanna FJALLAÐ UM BREYTINGAR Á STARFSEMI KIRKJUNNAR — á presta- stefnu að Eiðum KEJ-Reykjavik — Þessa dag- ana er haldin árlega presta- stefna tslands og nú i fyrsta skipti á Austurlandi, nánar tiltekið á Eiðum i S-Múla- sýslu. Að sögn séra Einars Þ. Þorsteinssonar, sóknarprest- ins að Eiðum, er ráðstefnan vel sótt, menn eru i góðu skapi og allt gengur friösamlega Þaö mál, sem ráðstefnan fjallar einkum um, er álitsgerð starfsháttanefndar þjóðkirkj- unnar, en i henni eru fólgnar viðamiklar tillögur um ýmis málefni kirkjunnar. — Kirkjan verður alltaf öðru hverju að endurskoða stöðu sina i þjóðfélaginu og var s tar fshá 11anef nd þjóðkirkjunnar einmitt skipuð með það sjónarmið i huga, sagði Einar Þ. Þorsteinsson. Frá nefndinni eru nú komnar ýmsar ályktanir um starfsemi og stjórnun kirkjunnar sem prestaráðstefnan nú tekur af- stöðu til. Sagði séra Einar, að tillögur nefndarinnar og ráð- stefnunnar verði siðan kynntar sóknarnefndum og héraðsnefndum viðs vegar um landið og einnig alþingi og al- menningi. Mun ráðstefnan kjósa nefnd til að fylgja mál- inu eftir, ásamt starfshátta- nefndinni. Veður var gott á Eiðum i gær A ráðstefnuna eru mættir 70 prestar og hafa sumir þeirra konur sinar með I för. r " . .............................................■™1^ 137. tölublað — Fimmtudagur 30. júni 1977 —61. árgangur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.