Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						28  27. mars 2006  MÁNUDAGUR

sport@frettabladid.is

HVAÐ? HVENÆR? HVAR?

MARS

24 25 26 27 28 29 30

Mánudagur

? ?  LEIKIR

?

 19.15 Skallagrímur og Keflavík 

mætast í úrslitakeppni Iceland 

Express-deildar karla í körfubolta í 

Borgarnesi.

? ?  SJÓNVARP

?

 16.00 Ensku mörkin á Rúv. Öll 

mörkin í ensku úrvalsdeildinni um 

helgina verða sýnd.

?

 18.00 Þrumuskot á Enska bolt-

anum. 

?

 18.50 Enska knattspyrnan á 

Enska boltanum. Bein útsending frá 

leik Tottenham og WBA.

?

 20.00 Skólahreysti á Sýn.

?

 20.45 Ítölsku mörkin á Sýn.

?

 21.15 Ensku mörkin á Sýn. Mörkin 

úr ensku 1. deildinni.

?

 21.45 Spænsku mörkin á Sýn.

HANDBOLTI Alexander Petersson 

minnti rækilega á sig þegar hann 

skoraði átta mörk fyrir Gross-

wallstad sem sigraði Hamburg 

naumlega, 28-27, í þýsku úrvals-

deildinni í handbolta á laugardag. 

Þetta var fyrsti leikur Alexanders 

með liði sínu eftir að hann kjálka-

brotnaði í leik með íslenska lands-

liðinu á EM og er ljóst að endur-

koma hans styrkir Grosswallstad 

mikið. Einar Hólmgeirsson bætti 

við sex mörkum fyrir liðið.

Sigfús Sigurðsson skoraði eitt 

mark fyrir Magdeburg sem vann 

Lubbecke, 32-31, en Þórir Ólafsson 

skoraði ekki fyrir Lubbecke. Arnór 

Atlason er enn að jafna sig eftir 

meiðsli og lék ekki með Magde-

burg. Þá skoraði Róbert Sighvats-

son tvö mörk fyrir Wetzlar sem 

tapaði fyrir Melsungen, 36-32, en 

Markús Máni Michaelsson náði 

ekki að skora fyrir Düsseldorf sem 

tapaði fyrir Kronau/Östrigen. 

 - vig

Þýski handboltinn: 

Alexander 

stimplar sig inn

ALEXANDER PETERSSON Sýndi styrk sinn í 

Þýskalandi um helgina.

HANDBOLTI Düsseldorf, liðið sem 

Markús Máni Michaelsson leikur 

með í þýsku úrvalsdeildinni í 

handbolta, hefur kært úrslitin í 

leik liðsins gegn Kronau-Östrigen 

á laugardagskvöldið vegna hrika-

legra mistaka hjá dómurum leiks-

ins. 

Málsatvik eru þau að í stöð-

unni 10-8 fyrir Kronau skoraði 

Frank Berblinger fyrir Düsseld-

orf og minnkaði muninn í 10-9. 

Starfsmenn á ritaraborðinu virð-

ast hafa ýtt á vitlausan takka því 

á markatöflunni stóð að staðan 

væri 11-8, Kronau í vil. Dómar-

arnir tóku eftir mistökunum og 

létu ?leiðrétta? markatöfluna 

þannig að hún sýndi að staðan 

væri 11-9, þrátt fyrir að hún væri 

í raun 10-9. Aðstandendur Düss-

eldorf trúðu vart sínum eigin 

augum en hörð mótmæli þeirra 

báru engan árangur. 

Leikurinn hélt áfram og svo 

fór að Kronau sigraði með einu 

marki, 26-25. Düsseldorf átti kost 

á því að jafna metin á síðustu sek-

úndu en náði ekki að nýta sína síð-

ustu sókn. Ljóst er að þar sem 

munaði aðeins einu marki á liðun-

um í leikslok voru mistök dómar-

anna afar dýrkeypt og ákvað 

Düsseldorf því að kæra úrslit 

leiksins strax að honum loknum. 

Málið verður tekið fyrir hjá stjórn 

úrvalsdeildarinnar á næstu 

dögum.  - vig

Skandall í Þýskalandi: 

Düsseldorf 

kærir úrslit

KÖRFUBOLTI KR-ingar áttu engin 

svör við stórleik Njarðvíkinga í 

fyrsta leik liðanna í undanúrslit-

unum í gær og voru flestir þeirra 

eins og hver annar áhorfandi í 

Ljónagryfjunni í Njarðvík í gær. 

Heimamenn spiluðu sinn besta 

leik í langan tíma og er óhætt að 

fullyrða að þegar Njarðvík kemst 

í sama gír og í gær eru fá lið sem 

standa því snúning. Lokatölur 

urðu 101-65 í leik þar sem Njarð-

víkingar juku forystu sína jafnt og 

þétt allan tímann.

?Þetta var frábær leikur hjá 

okkur. Varnarleikurinn var frá-

bær og baráttan til mikillar fyrir-

myndar,? sagði Einar Árni Jóhann-

son, þjálfari Njarðvíkur, eftir 

leikinn. Allir lærisveinar hans 

stóðu sig frábærlega í leiknum, 

hvort sem þeir byrjuðu inn á eða 

komu af bekknum, og gat Einar 

nánast skipt um leikmenn að vild 

án þess að veikja lið sitt. ?Við 

erum að halda áfram að bæta 

okkur í þessari úrslitakeppni og 

það fylgja allir með í stemning-

unni,? sagði Einar Árni.

Leikurinn í gær var algjör ein-

stefna frá upphafi. Heimamenn 

náðu strax yfirhöndinni, komust í 

12-7 og síðan 16-9 og í lok 1. leik-

hluta settu leikmenn liðsins í 

fluggírinn og skoruðu sex síðustu 

stigin. Að fyrsta leikhluta loknum 

var staðan orðin 28-11 og strax 

komið stórt bil sem vitað var að 

KR-ingar myndu eiga erfitt með 

að brúa. Sóknarleikur KR var 

afleitur, eins og svo oft áður í 1. 

leikhluta, og það nýttu Njarðvík-

ingar sér til hins ýtrasta með því 

að sækja hratt í gagnsóknum. 

Leikurinn jafnaðist eilítið út í 2. 

og 3. leikhluta, KR-ingar reyndu 

hvað þeir gátu en heimamenn voru 

alltaf með leikinn í hendi sér og 

hleyptu gestunum aldrei of nálægt 

sér. Þegar KR náði góðum leikkafla 

var einfaldlega gefið í að nýju og 

var frábær leikkafli í upphafi 4. 

leikhluta gott dæmi um það. Á 

örskömmum tíma breyttu Njarð-

víkingar stöðunni úr 67-50 í 87-53 

og lauk þeim leikkafla með við-

stöðulausri troðslu Egils Jónas-

sonar yfir Ljubodrag Bogovax hjá 

KR. Stórkostleg tilþrif sem sjást 

ekki oft í íslenskum körfubolta.

Eftir þessa útreið var allur 

vindur úr KR-ingum og áttu 

yngstu leikmenn Njarðvíkur eftir 

að bæta enn við forskotið áður en 

yfir lauk. Um var að ræða sigur 

liðsheildarinnar þar sem allir skil-

uðu sínu, en þó ber sérstaklega að 

nefna þátt Friðrik Stefánssonar, 

sem átti frábæran leik í vörninni, 

og Jóhanns Árna Ólafssonar, sem 

skoraði 15 stig með mörgum glæsi-

legum körfum. Þá var Jeb Ivey 

traustur að vanda.

?Mér fannst við bara vera á 

hálfum hraða. Varnarleikurinn 

var enginn hjá okkur og þegar 

Njarðvík skorar 101 stig þá vinn-

um við ekki. Það er ljóst,? sagði 

Herbert Arnarsson, þjálfari KR, 

eftir leikinn. - vig

Njarðvíkingar settu upp 

sýningu í Ljónagryfjunni 

Njarðvíkingum héldu engin bönd í fyrstu viðureign þeirra gegn KR-ingum í 

undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar. Njarðvík sigraði með 36 stigum, 

101-65, og gerði hreinlega lítið úr andstæðingi sínum.

Ísland verður með nýja fulltrúa í ensku 

úrvalsdeildinni í knattspyrnu á næsta 

tímabili því á laugardag tryggði Reading 

sér loksins sæti í deild hinna bestu. Eins 

og kunnugt er leika þeir Brynjar Björn 

Gunnarsson og Ívar Ingimarsson með 

liðinu og voru þeir báðir í byrjunarliðinu 

þegar Reading gerði jafntefli við Leicest-

er á laugardag og fékk þar með stigið 

sem vantaði upp á til að gulltryggja 

sætið í úrvalsdeildinni. 

?Loksins er sætið í höfn,? 

sagði Brynjar Björn við 

Fréttablaðið í gær, en 

Reading hefur haft mikla 

yfirburði í 1. deildinni í 

Englandi í ár og hefði 

það í raun verið 

stórslys hefði 

liðið ekki náð að komast upp. ?Það var 

gaman eftir leikinn í gær, það er ekki 

hægt að segja annað. En þó að það hafi 

auðvitað verið fagnað höfð-

um við samt hemil á okkur. 

Það eru sex leikir eftir í 

deildinni og við ætlum 

að klára þá með stæl. 

Því er þessi sigurtil-

finning er ekki alveg 

sokkinn inn ennþá,? 

sagði Brynjar Björn 

sem játti því þó að skál-

að hefði verið í kampavíni 

að leik loknum. ?Jú, jú. 

Það var mikið stuð í 

klefanum.?

Segja má að 

úrvalsdeildarsæti 

sé einnig persónulegur áfangi fyrir 

Brynjar Björn, sem hefur spilað með 

hinum ýmsu liðum í neðri deildunum í 

Englandi allt frá því að hann 

kom fyrst til Englands 

árið 1999 en aldrei 

áður verið á mála 

hjá félagi í úrvals-

deild. ?Vissu-

lega er þetta 

náttúrulega búið 

að vera markmið 

fyrir mig í nokkur 

ár svo að það er ekki 

hægt að segja annað en 

að það sé gamall draumur 

að rætast. Þetta er mjög 

ljúf tilfinning,? segir Brynjar 

Björn.

BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON OG ÍVAR INGIMARSSON HJÁ READING: SPILA Í ÚRVALSDEILDINNI AÐ ÁRI 

Langþráðu markmiði er loksins náð

Guðjón til Bodö/Glimt 

Framherjinn Guðjón Baldvinsson er á 

leið til Bodö/Glimt í Noregi þar sem 

hann verður á reynslu hjá liðinu í um 

vikutíma. Bodö/Glimt leikur í norsku 2. 

deildinni en Guðjón leikur með Stjörn-

unni í Garðabæ og var markahæsti 

leikmaður 2. deildarinnar í fyrra með 

14 mörk. 

> Bæði unnu tvöfalt 

Björgvin Björgvinsson frá Dalvík og 

Dagný Linda Kristjánsdóttir báru sigur úr 

býtum í svigkeppni Skíðamóts Íslands 

í gær og tryggðu sér þar með tvöfald-

an sigur á mótinu því bæði urðu þau 

Íslandsmeistarar í stórsvigi á laugar-

daginn. Rétt eins og í stórsviginu varð 

Kristján Uni Óskarsson að láta sér lynda 

annað sætið á eftir Björgvini í sviginu 

en hjá stúlkunum var það Salóme 

Tómasdóttir sem hafnaði í öðru sæti. Þá 

stóð Björgvin uppi 

sem sigurvegari 

í Icelandair Cup 

mótaröðinni sem 

fram fór samhliða 

Íslandsmótinu, en 

annar varð Kristján 

Uni og Christophe 

Roux frá Sviss varð 

þriðji.

HANDBOLTI Hornamaðurinn Bjarni 

Fritzson átti stórleik fyrir lið sitt 

Créteil þegar það vann 30-26 sigur 

á þýska liðinu Göppingen í fyrri 

leik liðana í undanúrslitum EHF-

keppninar. Bjarni skoraði tíu 

mörk, þar af fjögur úr vítaköstum, 

og var langmarkahæstur Créteil 

sem lék á heimavelli sínum í París. 

Jaliesky Garcia lék ekki með 

Göppingen vegna meiðsla en 

Andreas Stelmokas, fyrrverandi 

leikmaður KA, skoraði tvö mörk.

Créteil fór illa að ráði sínu á 

lokamínútunum því það hafði yfir, 

29-21, þegar skammt var eftir. 

Einbeitingarleysi á lokamínútun-

um gerir það að verkum að staða 

Göppingen er mun betri fyrir síð-

ari leikinn í Þýskalandi um næstu 

helgi. Sigurvegarinn mætir ann-

aðhvort Gummersbach eða Lemgo 

í úrslitum keppninnar. - vig

EHF-keppnin í handbolta: 

Bjarni frábær

HANDBOLTI Ólafur Stefánsson og 

félagar hans í Ciudad Real eru í 

góðri stöðu eftir fyrri viðureign-

ina gegn Flensburg í undanúr-

slitum Meistaradeildarinnar sem 

fram fór í gær. Ciudad vann 

öruggan sigur á heimavelli 

sínum, 31-22, og skoraði Ólafur 

fjögur marka spænska liðsins.

Flensburg sá aldrei til sólar í 

leiknum og sýndi stjörnum prýtt 

lið Ciudad allar sínar bestu hlið-

ar. Enginn lék þó betur en sló-

venska stórskyttan Siarhei 

Rutenka, en hann skoraði níu 

mörk. Vendipunktur leiksins 

kom eftir um tíu mínútna leik 

þegar Ciudad breytti stöðunni úr 

3-3 í 11-4. Eftir það varð ekki 

aftur snúið og varð munurinn 

mest 11 mörk í síðari hálfleik. 

Flensburg náði aðeins að laga 

stöðuna áður en yfir lauk en 

staða liðsins fyrir síðari leikinn 

er engu að síður afar vond. 

Í hinni undanúrslitarimmunni 

hafði Fotéx Veszprém betur gegn 

Portland San Antonio á heima-

velli sínum í Ungverjalandi, 29-

27, og stendur spænska liðið því 

nokkuð vel að vígi fyrir síðari 

leikinn. - vig

Undanúrslit Meistaradeildarinnar í handbolta: 

Ciudad Real í góðri stöðu

SIHAREI RUTENKA Var frábær fyrir Ciudad 

í gær.  NORDICPHOTOS/AFP

JÓHANN ÁRNI ÓLAFSSON 

Kom gríðarlega sterkur 

inn af bekknum í gær og 

skoraði 15 stig í leiknum.  

 FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR

 Hefur

 sé? D

V 

  í

 dag

?

?ú

 sé? D

í dag?

LITLA HRYLLINGSBÚÐIN FRUMSÝND

FJÓRAR STJÖRNUR

Á AKUREYRI

DV-2x10  26.3.2006  21:11  Page 1

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82