Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						6  9. apríl 2006  SUNNUDAGUR

VIÐSKIPTI Á þriðja tug erlendra 

blaðamanna mætti á kynningar-

fund Glitnis í íslenska sendiráð-

inu í Kaupmannahöfn í vikunni. 

Er það til marks um þann mikla 

áhuga sem danskir fjölmiðlar 

hafa sýnt íslenskum efnahagsmál-

um þessi misserin. Á fundinum 

kynntu forsvarsmenn bankans 

starfsemi hans og þróun efna-

hagsmála auk þess sem Þórður 

Friðjónsson, forstjóri Kauphallar-

innar, ræddi um íslenska verð-

bréfamarkaðinn.

Að sögn Péturs Þ. Óskarssonar, 

forstöðumanns hjá Glitni, er það ný 

staða fyrir íslensk fyrirtæki að 

þurfa að kynna sig með þessum 

hætti. Hann telur mikilvægt fyrir 

íslensk fyrirtæki að sinna sam-

skiptum við erlenda fjölmiðla betur 

en þau hafa gert enda sé nauðsyn-

legt að koma réttum upplýsingum á 

framfæri. Forráðamenn íslensku 

bankanna hafa gagnrýnt umfjöllun 

danskra fjölmiðla og fjármálastofn-

ana um þá og íslenskt efnahagslíf 

og sagt hana einkennast af of lítilli 

þekkingu. 

?Það er okkar hlutverk að koma 

réttum upplýsingum á framfæri og 

með þessum kynningarfundi erum 

við að ná til danskra fjölmiðla.?

Berlingske tidende hefur fjall-

aði ítarlega um lækkun hluta-

bréfaverðs í íslensku bönkunum 

þar sem meðal annars kom fram 

að virði þeirra hefði lækkað um 

allt að fjórðung síðan í febrúar. - ks

Glitnir hélt kynningarfund í sendiráðinu í Kaupmannahöfn:

Tugir blaðamanna upplýstir

MENNTAMÁL Háskóli Íslands og 

Landssamband íslenskra útvegs-

manna hafa skrifað undir samning 

um kostun starfs sérfræðings til 

rannsókna í auðlindarétti við Laga-

stofnun Háskóla Íslands. Markmið 

samningsins er að efla rannsóknir á 

sviði auðlindaréttar. 

Ráðinn verður starfsmaður í fullt 

starf til þriggja ára, sem mun hafa 

rannsóknir í auðlindarétti á sviði 

fiskveiðiréttinda og fiskveiðistjórn-

unar að aðalstarfi.

Að sögn Páls Hreinssonar, for-

seta lagadeildar, er undirritun samn-

ingsins liður í sérstöku átaki á sviði 

auðlindaréttar hjá lagadeild en í 

mars var gerður sams konar samn-

ingur við Samorku um kostun rann-

sóknarstöðu í auðlindarétti á sviði 

orkurannsókna.

Framlag Landssambands 

íslenskra útvegsmanna gerir kleift 

að hefja víðtækar rannsóknir á 

íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu. 

Fullveldisréttur Íslands í fiskimál-

um verður meðal annars skoðaður 

sem og lagagrundvöllur fiskveiði-

stjórnunarkerfisins, eignaumráð 

fiskiauðlinda, reglur um fiskveiði-

stjórnun, veiðigjald og fleira. - sdg

UNDIRSKRIFT SAMNINGSINS Fulltrúar 

Háskóla Íslands og Landssambands 

íslenskra útvegsmanna skrifa undir sam-

starfssamning.

Háskóli Íslands og Landssamband íslenskra útvegsmanna gera samning:

Rannsóknir í auðlindarétti styrktar

FÉLAGSMÁL Óvirkur spilafíkill fékk 

ekki að fara inn í Gullnámuna við 

Ingólfstorg í gær til að komast á 

salerni nema með því skilyrði að 

hann færi í kassann til að spila. 

Spilafíkillinn, Hermann Ólason, 

sem kveðst hafa eytt aleigunni í 

spilakassa áður en hann hætti, 

segir þessa framkomu starfs-

manns Gullnámunnar forkastan-

lega.

?Ég er lærður áfengis- og vímu-

efnaráðgjafi,? segir Hermann. 

?Þrátt fyrir það eyðilagði ég þrett-

án ára edrúmennsku mína á 

spilafíkn í kringum 1999-2000. 

?Þegar allt var farið, bæði móður-

arfur minn og það sem ég hafði 

eignast, auk lána og yfirdrátta, 

náði ég mér út úr þessu. Það var 1. 

febrúar 2004. Ég náði einnig að 

borga niður skuldirnar. Líklega 

hef ég farið með 4-5 milljónir í 

spilakassana.?

Í gærmorgun var Hermann svo 

á gangi í miðborginni, þegar hann 

þurfti að bregða sér á salerni til að 

kasta af sér vatni. Honum datt í 

hug að fara inn á Gullnámuna, en 

þar fékk hann þau svör að hann 

færi ekki á sal-

ernið nema hann 

væri í viðskipt-

um.

?Ég spurði 

starfsmanninn 

hvort ekki væri 

nóg að taka af 

mér rúmlega 

aleiguna einu 

sinni og hvað það kostaði eigin-

lega að fá að pissa inni í Gullnám-

unni,? segir Hermann, sem kveðst 

hafa horfið frá að því búnu.

Starfsmaður 

Gullnámunnar, 

sem ekki vildi 

láta nafns síns getið, sagði að stað-

urinn hefði verið lokaður þegar 

Hermann bar þar að. Auk þess 

væru salernin alltaf læst, því borið 

hefði á því að fólk utan af götunni 

vildi komast inn á þau ýmissa 

erinda. Loks hefði framkoma Her-

manns ekki gefið tilefni til þess að 

undantekning yrði gerð á reglunni 

um að einungis viðskiptavinir not-

uðu salernin.  - jss

GULLNÁMAN Óvirkur spilafíkill fékk ekki að nota salernið nema 

hann spilaði líka, þótt hann gerði grein fyrir aðstæðum sínum.

Varð að spila til að 

fá að nota salerni

Hermann Ólason, sem hefur verið óvirkur spilafíkill í rúm tvö ár, fékk ekki að 

nota salerni í Gullnámunni nema að spila líka. Hann tapaði meira en aleigunni 

á sínum tíma. Hann telur framkomu starfsmanns Gullnámunnar óverjandi.

DÓMSMÁL Ökumaður bíls og 

Vátryggingafélag Íslands hf. töp-

uðu í gær máli gegn stefnanda 

vegna greiðslna á dráttarvöxtum á 

skaðabótum sem hann fékk dæmd-

ar eftir umferðarslys. 

Stefnandi var farþegi í aftursæti 

bílsins sumarið 1996 þegar ökumað-

urinn missti stjórn á honum og fór 

bifreiðin út af veginum og valt eina 

veltu. Við það lentu lausir hlutir á 

höfði stefnanda. Hann hefur eftir 

slysið þjáðst af höfuðverk og verk í 

hálsi, herðum og baki. Tveir læknar 

mátu meiðslin. Annar þeirra taldi 

að stefnandi hefði þjáðst í þrjá mán-

uði og að varanleg örorka væri 

fimm prósent. Hinn áleit að slysið 

hefði ekki haft neinar afleiðingar á 

heilsu hans. Bæturnar námu rúmum 

fimm milljónum auk vaxta.  - gag 

Farþegi fékk í sig lausahluti:

Fær 5 milljónir 

í skaðabætur

MENNTAMÁL Menntamálaráðuneyt -

ið hefur birt drög að aðalnámskrá 

í listdansi á heimasíðu sinni og er 

um að ræða fyrstu heildstæðu 

námskrána í þessari listgrein.

Námskráin er tvískipt, annars 

vegar fyrir grunnnám og hins 

vegar fyrir framhaldsskólastig.

Lýst er uppbyggingu námsins, 

markmiðum og inntaki ásamt til-

högun náms og kennslu.

Hagsmunaaðilum og almenn-

ingi gefst kostur á að senda inn 

athugasemdir og ábendingar um 

námskrárdrögin og einstaka 

þætti fram til 24. apríl. - sdg

Fyrsta heildstæða námskráin:

Námskrár í list-

dansi kynntar

LETTLAND, AP Forsætisráðherra 

Lettlands, Aigars Kalvitis, hefur 

stokkað upp í stjórn landsins, til að 

fylla í ráðherrasæti eftir að stærsti 

stjórnmálaflokkurinn dró sig úr 

samsteypustjórninni.

Sex ráðherrar flokksins Nýir 

tímar sögðu af sér í gær, eða varn-

armála-, dómsmála-, félagsmála-, 

vísinda- og menntamála-, fjármála-  

og upplýsingatækniráðherrarnir. Í 

kjölfarið skipaði Kalvitis eftirsitj-

andi ráðherrum að taka yfir skyld-

ur þeirra, en hann mun sjálfur sjá 

um störf fjármálaráðherrans. 

Kosningar verða haldnar í landinu 

í október. - smk

Ríkisstjórn Lettlands:

Ráðherrar 

segja af sér

Uppstokkun stjórnar Forsætis-

ráðherra Spánar, Jose Louis Rodriguez 

Zapatero, tilkynnti á föstudag um 

uppstokkun innan stjórnarinnar og 

skipti um varnarmála-, innanríkis- og 

menntamálaráðherra landsins. 

SPÁNN

KJÖRKASSINN

Á nýja Idol-stjarnan eftir að 

verða vinsæll söngvari?

Já  

56%

Nei  

44%

SPURNING DAGSINS Í DAG

Skilaðir þú skattframtalinu á 

réttum tíma?

Segðu þína skoðun á visir.is

SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinn-

son sjávarútvegsráðherra sagði í 

ræðu sinni á Fiskiþingi á föstu-

dag umhverfismerkingar og rekj-

anleika vöru 

eflaust verða 

hluta af alþjóð-

legum fiskvið-

skiptum í fram-

tíðinni.

Einokun á 

umhverfismerk-

ingum og við-

miðum kunni 

hins vegar ekki 

góðri lukku að 

stýra og hags-

munatengsl 

bjóði hættunni heim. Ráðherra 

telur að stefnumótun eigi að vera 

á vettvangi greinarinnar og þar 

sé eðlilegast að Fiskifélagið sé í 

lykilhlutverki.

Ráðherra talaði jafnframt um 

bjartari tíma fram undan með 

breytingum á gengi krónunnar og 

að sjávarútvegsfyrirtæki myndu 

uppskera ríkulega í kjölfar 

þeirra.

 - sdg

Þing um sjávarútveg:

Merkingar á 

sjávarafurðum

EINAR K. 

GUÐFINNSON

FORSTJÓRI KAUPHALLARINNAR

Þórður Friðjónsson ræddi um 

íslenska verðbréfamarkaðinn á 

kynningarfundinum í íslenska 

sendiráðinu.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82