Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.03.1966, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 07.03.1966, Blaðsíða 2
2 Mánudagsblaðið Mámidagur 7. marz 1966 Jónas Jónsson frá Hrífíu: Aldamótamennt Söngkennsla á villustigum Söngmennt er nokkuð stund- uð í skólum ríkisins, en þar hefur kennslan komizt á hættu- lega villustigu. Mest gætir tvennskonar og þó allólíkra meinsemda. Fyrri og enn til- ■ finnanlegri yfirsjónin er . mis- notkun kórvinnubragða í söng- M æfingum almenningsskólanna. Þar hafa söngkennararnir gleymt því,.að þeir æfa venju- lega ungmenni, sem eru undir : þeirra umsjá eitt, tvö eða mest þrjú missiri. Alla þessa stund eru ungmennin æfð til að vera einskonar sérfræðingar í söng- mennt. Nemendur eru flokkaðir eftir gáfum í sérgreinar kór- söngsins, og æfingunum hagað eftir því. Búast mætti við að þessi kórkennsla í fjölmörgum skólum leiddi til þess að fólkið beitíi þessari söngmennt í kirkj- unum. En það er öðra nær. Al- mennur messusöngur er miklu sjaldgæfarí í íslenzku þjóð- Jkirkjunni heldur en við guðs- \ þjónustur í Englandi. Hér á : landi hefur meir og meir orðið að gripa til launaðra söng- flokka við messur og aðrar há- tíðlegar samkomur í þjóðkirkj- unni. Ástæðan er auðsæ. Þrátt fyrir hinar tímafreku kóræf- ingar í ríkisskólunum er þetta unga og söngvana fólk of lít- ið menntað í almennum söng til að geta tekið eðlilegan þátt i messugerðinni nema með því að litlir æfðir flokkar einskonar sérfræðinga á háu kaupi bjargi hinni lútersku messugerð frá því að verða þagnarmessa. Hin villigatan í söngkennsl- unni er allt annars eðlis. Sam- hliða atómtækni í myndlist hef- ur algerlega ný grein söng- mennla reynt að reyðja sér nýj- ar leiðir. Tónsmíðar af þessu tagi eru svo vélrænar, að þegar snjöllustu og lærðustu söng- mennta menn eins og t.d. Páll Isólfsson tónskáld og Björn Ólafsson fiðlusnillingur hlusta á þessa atómhljóma, þá hafa þeir ekkert gagn af æfilangri hljómlistannennt sinni til að skilja þessi nýmæli. Þeir mæta hér algerlega nýjum og fram- andi heimi. Hér hefur verið gerð uppreisn móti allri undir- stöðu menntaðra þjóða í hljóm- listarmálum. Þessi síðari villa er fremur hættulítil tónmennt líðandi stundar. Hún er of vél- ræn, sálarlaus og köld til að geta hrifið hugi æskumanna sem eru gæddir heilbrigðu lífs- fjöri og skapandi listrænum gáfum. Kórsöngurinn á ekki erindi í baraa- og ungmennaskóla landsins. Starfsemi kóranna er hættuleg tízikuhreyfing í þeim stofnunum, sem starfa fyrir ungt fólk á vaxtarskeiði. Eitt sinn voru nokkrir bekkir vel æfðra skólanemenda sunnan- lands að skilja með kveðjuhófi í Hótel Borg. Söngstjórinn varð skyndilega að hverfa úr saln- um til að ráða fram úr erindi annars eðlis. Söngurinn átti að hefjast, en þá gat söngvélin ekki byrjað að starfa, þó að um algeng sönglög væri að ræða. Nú skorti forystuna. Verkstjórinn var ekki inni í salnum. Þetta litla dæmi sýndi að skólafólkið var að vísu vel æft í vissum lögum en háð skipulagi kennslustofunnar. Nú voru þéssir nemendur að skilja eftir vetrarlanga samveru og sennilegt að fæstir þeirra mundu síðar á ævinni vera í einum sal og reiðubúnir til að raða sér í kórsveitir skóladag- anna. Hér er um að ræða eina af megin yfirsjónum kóræfinga i skólum. Kórstarfsemin er þar einskonar sníkjujurt. 1 stað kóræfinga þurfa mæður, fóstr- ur, systkyni, leikbræður og skólafélagar að æfa eftir því sem frekast má við koma ein- raddaðan náttúrlegan söng og leggja þar stund á fagran framburð móðurmálsins. Ein- raddaður söngur er undirstaða allrar hljómlistar. Efst í frægð- arstiga hinna miklu söngmanna er ein mannsrödd hæsta stig lisfarinnar ef nógu vel er til vandað um meðfædda hæfileika og þjálfun. Meginundirstaða í söngþjálf- un þjóðarinnar er að æfa vel og með öruggri en mildri þjálf- un söngrödd barna og ung- menna. Þar er móðirin fyrsti og áhrifamesti kénnarinn. Móð- irin syngur við barn sitt. Ylur móðurástarinnar lyftir hug og síðar rödd barnsins. Því þykir mannvænlegu fólki yndislegt að syngja lítil en falleg lög. Söngkennarar skólanna eiga að koma til liðs við vandafólk barnsins sem fetar hægum skrefum inn á leiðir söngsins. Siðan taka við skólar, félög, og íþróttaleiðangrar. Ef vel væri haldið á söng- menntamálum æskunnar mundi söngur almennings í langferða- bílunum verða til gleði og sæmdar þjóðinni fremur en ver- ið hefur hingað til. En þó að kórsöngvar eigi ekki erindi inn í ungmennaskóla landsins, er allt aðra sögu að segja um hina mörgu kóra sem starfa árum og jafnvel ára- tugum saman í sömu sveit eða kaupstað. Þar er öruggur grundvöllur. Margir þvílíkir kórar hafa átt mikinn þátt í aukinni söngmennt í landinu og jafnframt aukið frægð þjóðar- innar í öðrum löndum; þar er byggt á klöpp en ekki á sandi. Ef þróun söngmála hér á landi yrði með þeim hætti, sem hér er mælt með, ættu kirkjur landsins að fyllast með fögram söngröddum, sem tækju þátt í guðsþjónustunni af innri hrifn- ingu en ekki fyrir áhuga á að fá auknar skattskyldar tekjur. Sölubörn sem vilja selja Mánu- dagsblaðið i áthverfum geta fengið það sent heim Auglýsið í Mánudagsblaðinu PHILIPS sjónvarpstæki Fyrst um sinn munum við halda áfram að selja hin heimsþekktu Philips sjónvarpstæki með b'áðum kerfunum með aðeins kr. 3000,00 útborgun og eftirstöðvunum eftir samkomulagi. Erum að taka heim tæki með 25" skermi í mjög fallegum teak-kassa. Einnig fyrirliggjandi borðloftnet fyrir ís- lenzku sjónvarpsstöðina. Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10 — Sími: 1 28 52. INDESIT ísskápar Fyrst um sinn munum við halda áfram að selja hina vinsælu INDESIT ísskápa með aðeins kr. 2000,00 útborgun og eftirstöðvar eftir samkomulagi. Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10 — Sími: 1 28 52. ÍBÚÐARHÚS úr timbri útvegum við frá Póllandi Stærðir 51 fermeter, 72 fermetrar og 115 fermetrar. Mjög hagstætt verð. Húsum þessum fylgir parket-gólf rörlagnir og raflagnir. Hppsetningu annast erlendir sérfræðingar og verður húsunum skilað tilbúnum til að flytja í þau. Leitið upplýsinga. Ásbjörn Ólafsson h.f. Grettisgötu 2 — Sími 2 44 40.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.