Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 29.06.1970, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 29.06.1970, Blaðsíða 2
2 Mánudagsblaðið Mánudagur 29. júni 1970 „Guð lætur ekki að sér hæða“ Á vortánia (milli 1820—25) bar svo við, að formenn noikikrir a Siglunesi nyTðra vo'ru, þegar langt var liðið á vorvertíð þeirra, á garngi millum búða niður á tanganum að taila um afflablögð sín um vorið. Farrnst það á mörgum, að þeim þóttu hlutir sínir með minna móti orðnir, eintoum einum, sem hét Jón og var Bjamason; hann átti heima í Hrísey Undanfarin ár hafði hann aflað með þeim beztu, en nú aðeins fengið meðailhlut. Hann kvað svo að oröi, að guð hefði séð til að sikammta sér í vor. Orð þessi mælti hann með hálfkærings hæðnissvip og mól- fari og eins konar óviðfeflldnu kuddabrosi. Piltur einn ungur stóð við búðarvegg, þar sem mennimir gengu fram hjá, og gáfu þeir honum engan gaum, en hann heyrði tal þeirra og at- kvæði Jóns, og reis honum hug- ur við að heyra það. Skörnmu síðar komu vertíðarlokin Fór þá hver heim til sín; eins gjörði og Jón. En strax og hann var heim kominn, tók hann svo mikið gigt- armein í mjöðminni, að hann lagðist í rúmið og lá lengi nær dauðvona. Mjöðmin og lærið hol- gróif allt með beini. Hann fékk góða læknishjálp. Vorið eftir kom-í’sami - pi'rturinn ■ í rHrísey ó- bæ Jóns, og lá hann þá enn rúminu, aðeins málhress, en mjög torkennilegur. og svo lá han'ri * það’ ‘ ‘sumar LÍ>ks komstí Jón til heilsu. en lifði þó við ör- kumsl; mjöðmina og lærið dró sarnian og hnýtti, svo fóturinn þeim megin varð mikið styttri en hinn, og varð Jón því að hökta við hækju, ef hann vildi eitthvað fara. Mun hann og siíðar ekki hafa verið formaður við hákarla- veiðar á Siglunesi. Þótti piltinum sem hér hefði það sannazt, „að guð lætur ekki að sór hæða“. Formenn á sandi Fyrrum og langt fram á þessa öld var edn hin bezta fiski- og verstaða undir Jökii, bæði í Dritvík, á Hjailasandi og annars staðar, og sóttu menn þangað til sjóar hvaðanæva af landinu. Var þá oft mannmargt undir Jökli á vertíðum og misjafn sauður i mörgu fé, þar sem sjómennimir voru, og munnsöfnuður og sdð- ferði í verbúðunum stundum heldur en ekki krumfengið. Sagt er, að sjómenn á Hjallasandi hafi þó verið einna gálauslegastir um orðbragð sitt og að formenn þar hafi jafnvel verið hættir að lesa sjómannabæn eða ýta í Jesú nafni, sem þó er annars alsiða, heldur hafi þeir jafnvel verið famir að ákalla þann, er verstur þykir allra, þegar þeir reru frá landi eins og segir í bögunni: Formenn á Sandi brölta frá landi bölvandi hrópa og kalla á háscta alla: Flýttu þér, fjandi! Er eins og mönnum út í frá hafi ekki dámað að þessum munnsöfnuði og ætlað, eins oa! von var, að hann mumdi ekki gg$ri,,Wkku §týrö. í)n(ia sumurn ekki þótt það einleikið hvemig fiskur hefur nú á siíðari tímuim lagzt frá undir Jökli, o.g ét það trú suniira mahna, að nogii mikið muni hafa verið gjálífið þar í veiðistöðuinum fyrrum. Kálfatindur Efstí tindux á Hombjargi á Ströndum heitir Kálfatindur, og er nafnið svo til komið. að frændur tveir bjuggu á Homi, næsta bæ við Hombjörg. Var annar páfatrúanmiaður, ein hinn hatfði tekið Lútherstrú og þrætt- ust mijög um það, hvor trúin væri betri, því hvor hólt með sinni trú. Kom þedm svo að lokum á- samt um, að þeir skyldu reyna kraft trúar sinnar. Þeir frændur áttu báðdr aflikálfa, og með þá fóru þedr upp á efstu gnípu bjargsins og beiddust þar fyrir Sá, sem hafðd Lútherstrú, beiddi guð þríeinam að bjarga kálfi sín- um, og hinn beiddi Mariu mey og alla helga menn að varðveita kálfinn sinn. Var svo kálfunum báðum hrundið ofan fyrir bjarg- ið. En þegar að var komdð, var kálfur þess, sem Lútherstrú hafði- lifandi og var að leika sér í fjör- unni, en hinn var horfinn, svo ekki sást eftir af honum nema blóðslettur einar. Játaði þá páfa- trúmaðurinn, að Lútherstrú væri betri, og snerist til hennar. Síðan heitir þar Kálfatindur, sem kálf- unum var hrundið fram af. Séra Hallgrímur Pétursson Sú sögn er um HaPilgrím prest, að hann kvað tófu dauða, og stóð svo á því, að tófa lagðist á fc manna í svedtinni, og var það , hinn mestj bitvargur og kallaður stetfnivargu-r og varð ekki unn- in með nokkru móti. Einn sunnu- dag, er prestur messaði og stóð alskirýddur fyrir altarinu, leit hann út um kórgluggann og sá. hvar tófa var að bíta kind. Varð honum það þá, að hann gleymdi hvar hann var staddur, og hvað: „Þú, sem bítur bóndans fé. bölvuð í þér augun sé; stattu nú sem stofnað tré stirð og dauð á jörðunne.“ Þetta reið lágfótu að fullu. En af þvi að Hallgríimur hafði var- ið skáldskapargáfu sinni svo illa og það í miðri þjónustugjörð- inni, mdssti hamn giáfuna með öllu, þamgað til hann iðraðdst þessarar yfirsjónar og hét þvi fyri rsér, að hann skyldi yrkja eitthvað guði til lotfs og dýrðar, ef hann véitti sér gáfuna aftur. Leið svo og beið. þan-gað til um haust eitt eða veturinn fyrir jói. að faira átti hengja upp ket i eldhús. Var vinnumaður hans að því, og fór hann up á eJd- húsbitann og sedldist þaðan með ketið upp á rámar. Enginn var til að rétta vinnumanndnum krof- ið nema prestur.. Þá segdr prest- ur: „TaJaður nú eitthvað til mín, Sp 3 Þjóðsögur Mánudagsblaðið því nú finnst mér gáfan vera að koma yfir m,ig.“ Maðurinn segir þá: „Upp, upp“, og átti við það, að prestur skyldi rétta sér upp fallið. En þau orð er sagt, að Hallgrímur notaði f fyrsta versis í fyrsta Passíusálminum, sem hann fór þá að yrkja og byrjar svo: Upp, upp mín sál og allt mitt geð. Þó segja aðrir svo frá, að hann hafi verið búinn með tvo fyrstu sálmana, þegar hann kvað tótfuna dauða, og hafi hamn notað þessi orð vinnumamnsins í 1. versi í 3. sálmi, sem svo byrjar: Enn vil ég, sál mín, upp á ný upphaf taka á máli því. Og þykir það benda til þess, að eitthvert hlé haö orðið á milli þess hann kvað tvo fyrstu sólm- ana og Hinn þriðja, og segja sumir, að þetta olli. En aðrir segja, að Tyrkja-Gudda. kona hans, sem áva/llt þótti nokkuð blendin f trú sinni, hafi átt að fela eða brenna fyrir honum handritið, er tveir fyrstu sálm- amir voru búnir, og hafi það fengið svo mikið á hann, að hann hætti þá við um hríð, en byrjaði aftur á þirðja sálmi etftir nokkurt millibil. Sú saga er höfð eítir Vigtfúsd prótfasti Jónssyni í Hítairdal, að einn vetur biti refur sauðfé fyr- ir presti, og vannst ekki, þó til þess væri leitað. Gudda talaði oft um það tjón, sam dýrið gjörði. við mann sinn með beizkju mikilli og geðofsa, þvi hún var skapstór mjög og ólþýð í lund. Vítti hún séra Halligrím og sagði, að það sæd ekki á, að hann væri kraftaskáld, þar sem hann gæti ekki fyrirkomið ein- um ref. Prestur þoldi lengi vél frýjuorð hennar, þangað til eitt kvöld, sem Gudda var frammd i búri að hræra flautir, að þar kom inn skollatófa til hennar, settist fyrir framan flautakerald- ið, geispaði ámótlega upp á prest- konuna og datt síðan dauð aftur á bak. Við það brá Guddu svo, að hún leið í óvit og lá svo, til þess einhver heimamanna kom að henni. Eftir það létti af bdtn- um, enda er sagt, að Gudda hatfi' aldrei skapraunaö manni sínum' eins eftir og áður. Þó er það í frásögur fært um hana, að einu sdnni léti hún rífa hrís og flytja heim á sunnudegi, meðan prestur embættaði. En þegar hann kom úr kirkju, gekk hann að hrís- kestinum og i kringum hann. Lystí þeigar eldi í kösttnn, og brann hanm upp til kaldra kola. Er svo að skilja sem í kestínum hatfi kviknað fyrir bænastaö prests, svo hafi hann verið bæn- hedtur. ..................................... ■ Auglýsið í Mánudagsblaðinu Höfum fyrirliggjandi frá hinu þekhta norska fyr- irtæki ELGESÆTER appelsínu- og jarðaberjasafa á I-V2 liters plastbrusum. Mjög hentugt til ferða- laga. Hinar vinsælu þiljur fást nú í eftirfarandi íegundum: Wenge Oregon Pine Palisander Álm Eik Furu ÁSBJÖRN ÓLAFSSON H.F. Borgartúm 33, Sími: 24440. Einnig spónlagt hilluefni og skilrúms- veggir. ÁSBJÖRN ÓLAFSSON H.F. Vöruaígreiðsla Skeifunni 8.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.