Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 12
12 3. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR NEKTARDANS Ásgeir Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Goldfinger, segir að nektardans- meyjar frá sínum stað hafi verið leigðar út til að dansa utan næt- urklúbbsins. „Þetta hefur verið gert og þá hefur verið borgað fyrir þetta eins og einkasýn- ingu,“ segir Ásgeir. „Þetta hefur kostað tíu til fimmt- án þúsund og þá koma dyraverðir með til að sjá til þess að allt fari vel fram. Þetta er ekki eins og einkadans, heldur fer stelpan, skilur sig eftir hálfn- akta á sviðinu og labbar svo út. Svona hefur ekki verið gert nema kannski tvisvar síðan á áramót- um.“ Ásgeir segir engar reglur vera til staðar yfir þetta og nektar- dans eiga sér stað um allan bæ. Nú til dags fari einkasýningar af þessu tagi fram með milligöngu einkamálasíðna á netinu. Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins, seg- ist hafa áhyggjur af vinnuaðstöðu nektardansmeyjanna. „Stelpurnar eru sendar út í auglýsingaskyni, án þess að fá borgað fyrir. Það er komið fram við þær eins og vöru, en ekki vinnandi manneskjur sem eiga að fá laun. Stóra vandamálið er að þó að við séum með lögreglu- samþykktir í kringum þessi mál er ekkert aðhafst í þeim. Einka- dans er ólöglegur bæði í Reykja- vík og Kópavogi, en þó það sé vitað að hann fari fram þá er ekkert gert í því,“ segir Katrín. - sgj Nektardans seldur með milligöngu einkamálasíðna: Nektardans tíðkast úti um allan bæ KATRÍN ANNA GUÐ- MUNDSDÓTTIR ÁSGEIR DAVÍÐSSON Eigandi Goldfinger segir nektardansmeyjar fá greiddar um tíu til fimmt- án þúsund krónur fyrir að fara í einkasamkvæmi og dansa. LÍBANSKUR HUNDUR Það eru ekki bara mennirnir sem þjást vegna átakanna í Líbanon þessa dagana. Þessi hundur leitaði eiganda sinna í rústum húsa í Srifa í Líbanon þegar ljósmyndara bar þar að garði fyrr í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVÍÞJÓÐ Sífellt fleiri ungar sænsk- ar konur eru lagðar inn á sjúkra- hús með alvarlega áfengiseitrun. Þetta kemur fram í nýrri sænskri rannsókn sem fjallað var um á fréttavef Svenska Dagbladet. Drykkja Norðurlandabúa hefur aukist mjög á undanförn- um árum og eru nú þrisvar sinn- um fleiri unglingsstúlkur lagðar inn á sænsk sjúkrahús með áfengiseitrun en var árið 1987. Í Noregi hefur þessum sjúkling- um einnig fjölgað mikið á síðasta áratugnum, eða um 63 prósent meðal kvenna á aldrinum 18 til 24 ára, kemur fram á fréttavef norska blaðsins Aftenposten. Ástæðurnar eru margþættar, að sögn Mats Ramstedt við Háskólann í Stokkhólmi sem leiddi rannsóknina, en meðal ann- ars hafa þær með slæma andlega líðan stúlknanna að gera, því að þær drekka til jafns við pilta og þær byrja oft afar snemma að drekka, stundum allt niður í tíu eða ellefu ára. Innlögnum eldri sænskra kvenna vegna áfengiseitrunar hefur einnig fjölgað og tvöfaldast hjá aldurshópnum 50 til 74 ára. Hið sama má segja um sænska karla á aldrinum 50 til 87 ára, en á síðustu 10 árunum má sjá 87 pró- senta aukningu meðal norskra karla sem eru eldri en fimmtugir. Hins vegar hefur innlögnum sænskra karla á aldrinum 20 til 49 ára fækkað frá árinu 1987. - smk Drykkja ungra kvenna á Norðurlöndunum eykst til muna: Fleiri konur fá áfengiseitrun MEIRI DRYKKJA Sífellt fleiri ungar konur fá áfengiseitrun. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL LÖGREGLUMÁL Annar mannanna sem rændu skrifstofur Bónus- vídeós í Hafnarfirði rétt eftir hádegi á mánudag er enn ófundinn. Vegfarendur yfirbuguðu félaga mannsins eftir að sá hafði stokkið út um glugga af annarri hæð, með hluta af ránsfengnum. Lögreglan handtók manninn á staðnum og hefur úrskurðað hann í viku gæsluvarðhald. Hann hefur ekki sýnt samstarfsvilja við yfir- heyrslur og neitar að gefa upp hver félagi hans er eða hvar hann gæti verið niður kominn. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglu. - mh Ránið í Bónusvídeó: Annar ræn- ingja ófundinn ÞJÓNUSTA ÁTVR hefur ákveðið að Vínbúðin í Vestmannaeyjabæ fái að standa opin til klukkan 16.00 föstu- daginn fyrir verslunarmannahelgi. Áður hefur verslunin verið lokuð frá föstudegi til og með mánudegi um verslunarmannahelgi. Í auglýsingu ÁTVR um opnunar- tímann stóð þó að þetta væri gert samkvæmt ákvörðun bæjarstjórn- ar. „Þetta er bara okkar afstaða, við gerum engar athugasemdir við þetta. Vonandi táknar þetta þjón- ustu fyrir þjóðhátíðargesti,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri. - sgj Þjóðhátíð í Eyjum: Vínbúð verður opin lengur Vespualda Mun fleiri leita sér læknis- hjálpar vegna geitungastungna í Noregi í ár heldur en flest önnur ár og kenna heilbrigðisyfirvöld óvenju heitu sumri um. Biðja þau fólk um að fara varlega þegar það snæðir utandyra, því geitung- ar sækja gjarnan í mat og gosdrykki. NOREGUR - Bretland, Ástralía, Nýja Sjáland, Mið-Austurlönd og Suður-Afríka Móðgun - USA: Tveir - Frakkland: Friður - Þýskaland: Sigur 70-90% afsláttur af öllum útsöluvörum Útsölulok KRINGLUNNI ����������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ����������������������� ��������������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� � ��� ��� �� �������������� ��� �������������� �����
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.