Tíminn - 13.01.1978, Blaðsíða 11

Tíminn - 13.01.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 13. janúar 1978 17 Dýraspitali Watsons opnar hjálparstöð Stjórn „Dýraspitala Mark Wat- sons” ákvaö á fundi sinum 6. janúar sl. aö opna nú þegar i hús- næöi spitalans viö Fáksvöll i Viöi- dal viö Vatnsveituveg hjálparstöö fyrir dýr. Vonast stjórnin til þess að sú starfsemi gæti stuðlað að þvi, aö starfsemi hins eiginlega dýra- spitala þar gæti hafizt af fullum krafti um leið og læknir fæst til starfa þar. Akvöröunin um opnum Hjálparstöövarinnar var tekin eftir aö formaöur stjórnar spital- ans haföi gert grein fyrir margra mánaöa viöræöum viö þá aöila, sem þessi mál heyra undir, — en litt hafa færzt nær takmarkinu, en þaö er ráöning dýralæknis aö spitalanum. Dýrahjúkrunarkonan Sigfrið Þórisdóttirhefur verið ráöin til aö veita hjálparstööinni forstööu. Stöðinni hafa verið settar eftir- farandi reglur til að starfa eftir: a) Skyndihjálp viö særð og sjúk dýr, þar til þau komast undir læknishendi. b) Þjónusta viö hesta, þ.a' m. af- not af röntgentækjum spitalans og öörum tækjum, sem þörf er fyrir hverju sinni. c) Móttaka og umönnun dýra sem hafa villzt frá heimilum sinum eöa eigendur hafa yfirgefið eða óska ekki eftir aö hafa hjá sér. Einnig umönnun dýra eftir ósk eigenda þeirra. d) Leit að heimilum fyrir heimilislaus dýr. e) Rannsókn á kvörtunum yfir illri meðferö á dýrum. f) Vinna I nánu sambandi við lög- reglu og dýraverndarfélög, vegna slysa, sem dýr valda, svo og um öll ofangreind atriöi. g) Vinna aö ábendingum um endurbætur á löggjöf um dýra- vernd. h) Hvers konar upplýsingastarf- semi um dýravernd s.s. Utgáfa bæklinga og fleira i samvinnu við dýraverndarfélög. Stöðin veröur opinalla virka daga kl. 1-6 og auk þess er svarað i sima 76620 (Dýraspitali Wat- son’s) 26221 (dýrahjúkrunar- kona) og 16597 (Samband dýra- verndunarfélaga Islands). Nýr deildarstjóri í Fjármálaráðuneytinu Fjármálaráðherra hefur sett Gunnlaug M. Sigmundsson, við- skiptafræðing, til að vera deildar- stjóri i fjármálaráöuneytinu frá 1. janúar 1978. Gunnlaugur M. Sigmundsson mun veita gjalda- deild ráðuneytisins forstöðu. Aðalviöfangsefni gjaldadeildar er gerð greiösluáætlana gjalda rikissjóðs og eftirfylgni þeirra áætlana. Jafnframt sér gjalda- deild um samantekt tillagna ráðuneytisins um fjárveitingar til stofnana ráðuneytisins og aðal- skrifstofu þess. Gunnlaugur M. Sigmundsson er fæddur 30. júni 1948. Hann hefur verið fulltrúi i f jármálaráöuneyt- inu frá 1. júni 1974. (frá Fjármálaráðuneytinu) Gunnlaugur M. Sigmundsson 267 fengu aðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd Enn til fatnaður handa þeim er þurfa Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar er nú að baki. Fé það, sem safnaðist, nam samtals kr. 2.449.12500 og er þaö hærri fjár- hæö en safnazt hefur nokkru sinni fyrr. Auk þess safnaðist mikiö magn fatnaöar sem ekki hefur enn verið ráðstafaö til fulls. Mæðrastyrksnefnd færir Reyk- vikingum og öörum þeim, er lögöu fram fé eöa sendi fatnað að gjöf i Jólasöfnun nefndarinnar, innilega þökk og fullvissar þá um, að framlög þeirra komu aö mjög góöum notum. Samtals nutu 267 aðilar aðstoð- ar Mæörastyrksnefndar aö þessu sinni, þar af 76 fjölskylduheimili, en þar að auki einstaklingar, gamalmenni og sjúklingar. Nokkrar af fjölmennustu fjöl- skyldunum, er aöstoöarinnar nutu, voru einstæðar mæður meö 6-7 börn á framfæri sinu. Þeir, sem fyrst og fremst nutu aöstoðar nefndarinnar aö þessu sinni, voru einstæðar mæöur, gamalmenni, oft og tiöum sjúklingar og fjöl- skyldur þar sem sjúkleiki og/eöa drykkjuskapur hrjáir. Mikil sjálf- boðavinna var aö venju unnin af nefndarkonum viö framkvæmd söfnunarinnar og nam þvi allur rekstrarkostnaöur ekki nema ulþ.b. 125 þúsund krónum. Eins og áöur segir hefur enn ekki veriö ráöstafaö öllum þeim fatnaöi er barst. Einstaklingar og fjölskyldur, sem þurfa á honum að halda og vilja þiggja hann aö gjöf, geta átt þess kost komi þeir á skrifstofu Mæörastyrksnefndar aö Njálsgötu 3 næstkomandi þriðjudagog miövikudg, 17. og 18. janúar, kl. 2-5 siðdegis. Mæörastyrksnefnd itrekar þakklæti sitt til allra þeirra, sem af örlæti sinu og rausn létu nokk- uö aö hendi rakna i jólasöfnun hennar og fullvissar þá um, að framlög þeirra og fatagjafir komu hvarvetna aö mjög góðum notum. Barnageð- læknir og félagsmála- fulltrúi gestir á fundi i Félagi einstæðra foreldra Fundur veröur haldinn i Félagi einstæöra foreldra fimmtudaginn 19. jan. nk. og hefst hann kl. 21 aö Hótel Esju. Þar mun Steinunn ólafsdóttir, félagsmálafulltrúi tala um hegðunarvandamál bama og unglinga og Helga Hannesdóttir barnageölæknir fjallar um geöræn einkenni hjá börnum og unglingum. Aö fram- söguerindum loknum gefst fundargestum kostur á aö bera fram spurningar. Þetta umræöu- efni ætti umfram margt aö höföa til einstæðra foreldra og þvi hvet- ur stjórn FEF félaga til að fjöl- menna, og skal tekið fram aö nýir félagar eru velkomnir. ! Tímínner penlngar { Auglýsúf l í Timanum Lengi getur gott botnuð! Ennþá betri MfRYGGIIlG NYTT!l SUMARLEYFISROF FYRIR HEIMILI OG FJOLSKYLDU Sem bætir óhjákvæmileg aukaútgjöld og endur- greiðir ónotaðan feróakostnað, ef sumarleyfisdvöl er rofin vegna ýmissa ófyrirsjáanlegra atvika NÝTT!< BÓNUS vegna tjónlausra ára, allt að 20% lækkun á iðgjaldi ALTRYGGING ÁBYRGDAR er ný heimilistrygging sem bætir missi eóa tjón á persónu- legum lausafjármunum, sem á rætur að rekja til ein- hverra skyndilegra og ófyrirsjánlegra atvika og tryggingin gildir í öllum heiminum! - bæði menn og munir eru vemdaáir á ferðalagi sem við dvöl ALTRYGGING ÁBYRGOAR tekur einnig til: Skaóabótaskyldu -bætir lífs-eóa líkamstjón meÖ allt að 10.000.000 kr. og eiejíiatjon allt aÓ 4.000.000 kr. Réttarverndar - SkaÖabótaréttar Slysa -örorku, lækniskostnaðar, tanntjona Feróa-og sjúkratryggingar + aukakostnaÓur vegna fæðis og húsnæÖis Ef pabbi missir málninguna ofan i nýja teppió þa bætir ALTRYGGINGIN tjónió Ef þu fotbrýtur þig i Napoli e&a Neskaupstaó ALTRYGINGIN grei&ir aukakostnaóinn ABYRGD TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN Skúlaj'ótu li.i - I0.1* Kt*\kja\ik - Simi 21)122 H r

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.