Tíminn - 12.11.1978, Blaðsíða 19

Tíminn - 12.11.1978, Blaðsíða 19
Sunnudagur 12. nóvember 1978 39 Kristján Sigurösson, 19 ára nemi. Leikur sem miöherji og hefur leikiö 20 unglingalands- leiki. Lék fyrst meö 1R 1977. Sigurbergur Bjarnason, 22 ára nemi. Leikur stööu framherja og hefur 6 unglingalandsleiki aö baki. Lék fyrst meö 1R 1973. Jón Jörundsson, 23 ára nemi. Hefur leikiö 23 landsleiki og leikur stööu fraipherja. Lék fyrst meö 1R 1972. Siguröur V. Halldórsson, 24 ára skrifstofumaöur. Leikur sem fram- og miöherji og lék fyrst meö ÍR 1973. Koibeinn Kristinsson, 26 ára bakvöröur. Hefur leikiö 30 landsleiki og lék fyrst meö 1R 1969. segir Skotinn i ÍR liðinu. Paul Stewart tveimur þjóöum eins og Islend- ingum og Þjóöverjum. —Þjóö- verjarnir eru óhemju leiöinlegt fólk, montnir og hræsnisfullir i alla staöi og reynsla min af þeim er ákaflega neikvæö. Keypti strax orðabók Strax og gengiö var frá þvi, að ég kæmi hingað keypti ég mér orðabók og reyndi að lesa mér éins mikiö til og hægt var um Island. —Ég veit nú um Golf- strauminn og jöklana og margt fleira um landið, sagði Paul og hló. mjög illa út úr Reykja- vikurmótinu, en þaö hefur hjálpaðokkurtalsvert i upphafi úrvalsdeildarinnar, þvi aö liö okkar hefur greinilega veriö vanmetið af andstæöingunum i undanförnum leikjum. —Nú hins vegar þurfum viö ekki á slikri hjálp að halda þvi að viö erum komnir á fulla verð, en liðið hefur samt ekki sýnt nema brot af þvi, sem það getur. —Við höfum að undanförnu veriö að æfa fráköstin, en leikmenn okkar eru ekki mjög sterkir likamlega og þá veröur aö beita „teknik” i staðinn og þaö höfum við verið aö æfa aö undanförnu. Dunbar sá besti Hvaö finnst þér um tsland og lslendinga? —Mér finnst landiö einstaklega hrifandi og þessi sifelldi breytileiki i veðrinu á vel viö mig ólikt svo mörgum öðrum. — Annars er þvi þannig farið með mig að mér liður langbest ef ég er ekki langt frá sjó og þvi kann ég einstaklega vel viö mig hér. Hvaö finnst þér um körfu- boltann hérna? —Hann er miklu betri en þar sem ég lék I Þýskalandi og ég er ekki fjarri þvi að úrvalsdeildin hér sé fullt eins góð og 1. deildin I Þýskalandi. —Þaö eru margir mjög góöir leikmenn hérna og ég vil i leiðinni benda á, að lið KR og 1S i kvennakörfubolt- anum myndu sóma sér mjög vel i keppni á meðal bandarisku háskólanna. —Þessi tvö liö eru mjög góö að minu mati og hreint undravert aö tvö svo góö lið skuli finnast i ekki stæri borg en Reykjavik. Hvaö um þitt liö—tR — og hverjir telur þú aö möguleikar ykkar séu i úrvalsdeiidinni? —Við vorum mjög seinir i gang, þvi við byrjuðum ekki aö æfa fyrr en flest hinna liðanna voru komin vel af staö meö sinar æfingar, en liðiö vex nú með hverjum leik. —Við fórum Hvaö finnst þér um hina „útlendingana”? —Ég held ekki að ég halli á neinn, þó ég segi aö Dirk Dunbar sé langbestur af okkur öllum hérna. —Hann er óhemju „tekniskur” og myndu sóma sér vel I hvaða atvinnuliöi sem væri. —Hann er bara alltof mikill yfirburðamaöur i 1S—liöinu til þess aö hann komi að nógu góðum notum. —Hugsanir hans eru alltaf tveimur, þremur augnablikum á undan áætlunum samherj- anna, og þeir vita oft hreinlega ekki við hverju á að búast frá honum og þess vegna nýtist leikni hans ekki sem skyldi. —Ég er hins hins vegar fullviss um það, að hann getur leikið með sem „liðsspilari” , en ekki sem einstaklingur ef hann hefur réttu mennina meö sér. —Ég hef heyrt að koma eigi á leik i vetur, þar sem allir útlend- ingarnir leiki saman og ég hlakka óhemju mikið til þess að fá tækifæri til að leika i þeim leik. —Þá fyrst kemur i ljós hversu góður Dunbar er. —John Hudson hjá KR er einnig mjög sterkur leikmaður, en ég hef enn ekkert sérstakt séð til Bee, en hann er mjög sterkur leik- maður og fyrst og fremst varnarmaður. Málaí frístundum Hvernig eyðir þú frltimanum þinum Paul? —Þegár ég er ekki að þjálfa þá mála ég reiðinnar ósköp. —Ég mála olíumyndir, en ég hef enn ekki fengið allan þann útbúnað sem til þarf, en ég geri ráð fyrir að eyða miklum tima i að mála I vetur. —Ég haföi hugsað mér að reyna að renna fyrir lax —Jón Jörundsson er mikill veiðimaður — en þegar ég kom hingað var laxveiði- timinn að renna út, þannig að það verður að biða vorsins, en ég hlakka mikið til að renna fyrir lax. —Nú ef svo ber undir, þá labba ég bara um niður i bæ, eða fer i heimsókn til einhvers vina minna, en við erum allir góðir vinir „útlendingarnir” i bænum. Blööin ekki hlynnt ÍR Er eitthvað, sem þú vilt segja I lokin Paul? —Já, endilega eitt atriði. —Mér finnst blöðin ekki vera nógu hlutlaus I skrifum sinum og sérstaklega þó eitt þeirra og birtist t.d. i þvi frásögn af leið- indaatviki, sem gerðist i leik okkar við UMFN nú I vikunni, er við vorum að að keppa á vellinum. —Frásögnin var mjög einhliða og gaf ekki rétta mynd af atburðarásinni. —Ekki það, að ég sé að lýsa mig saklausan af þvi sem gerðist, fjarri þvi. —Ég æsti mig upp og þetta er aðeins i annað skiptið á ævinni sem ég lendi i handalögmálum, og ég vil taka þaö fram i lokin, að ég er rólegur að eðlisfari og kýs rólegt umhverfi. 1 þessu heyröist kallað fram úr sal: „Paul ertu ekki aö koma!” og þar með var spjallinu lokið. —SSv—■ Stutt ágrip af sögu ÍR Körfuknattieiksdeild 1R var stofnuö árið 1949 og var fyrsti formaöur deildarinnar hinn kunni hlaupagarpur Finnbjörn Þorvaldsson. Finnbjörn var „primus motor” I fyrsta hraða- upphlaupskerfinu, sem notað var hérlendis, vegna þess hve hann var frár á fæti. Kvennakörfubolti var tek- inn upp hjá 1R 1950 og var fyrsti þjálfari liðsins Hrefna Ingimarsdóttir, sem var þá nýútskrifuð sem iþrótta- kennari, frá Laugarvatni. IR er eina félagið, sem tekiö hefur þátt i öllum Is- lands- og Reykjavikurmót- um frá upphafi. Af þeim 27 tslandsmeistaramótum, sem haldin hafa veriö til þessa hefur IR sigrað i 15. 1 Reykjavikurmótunum hefur 1R s.igrað 10 sinnum, en alls hefur veriö keppt I 21 skipti. Islandsmeistarar hafa IR-ingar orðiö árin 1954-5, 1957, 1960-4, 1969-73, 1975 og 1977. Reykjavikurmeistarar 1958, 1960-4, 1968-70 og 1975. Glæsilegustu ár 1R til þessa voru tvimælalaust árin 1960 til 1965 en á þeim árum var IR-liðið gjörsamlega ósigrandi og vann öll mót. 1R lék þá samtals 47 leiki i röö i islands- og Reykjavikurmót- um án þess að tapa. Fyrsti ósigurinn eftir þessa ein- stæðu sigurgöngu, kom á móti KR i seinni umferð Is- landsmótsins 1965. Höfðu IR-ingar þá veriö ósigraðir i fimm ár. I Reykjavikur- og tslands- mótum hefur IR leikið alls 332 leiki. Af þeim hafa 246 unnist, 65 tapast og einum lauk með jafntefli, en þaö var áður en reglurnar um að engin jafntefli skyldu vera, tóku gildi. I þessum leikjum hefur IR gert alls 22.873 stig og fengið á sig 18.944. Mesta stigaskor 1R i leik og jafnframt er það íslands- met var gegn Snæfelli I 1. deildinni 1976.1R vann þann leik með 148 stigumgegn 76. Núverandi formaöur körfuknattleiksdeildar 1R er Edvard Ragnarsson. —SSv—

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.