Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 72
32 4. september 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Ítalski knattspyrnumaðurinn Gianfranco Zola ætti að vera
öllum áhugamönnum um fótbolta vel kunnur. Hann kom
víða við á löngum ferli sem leikmaður en starfar nú sem
aðstoðarmaður Pierluigi Casiraghi hjá ítalska ungmenna-
landsliðinu.
Zola fór fögrum orðum um Eið Smára Guðjohnsen,
fyrrum félaga sinn hjá Chelsea, þegar Fréttablaðið
spurði hann um hans álit á Eiði. „Ég hef alltaf haft
mikið álit á honum og dáist að honum. Hann er
mjög góður leikmaður og mjög klókur. Stundum
finnst mér að hann hefði getað náð lengra og mér
fannst oft eins og hann væri vanmetinn. Hann getur
spilað margar stöður og er mjög góður leikmaður.
Hann er nú kominn til Barcelona og það sýnir hversu
góður hann er,“ sagði Zola um landsliðsfyrirliðann Eið
Smára.
„Ég er enn í góðu sambandi við Chelsea og fylgist ennþá
með ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Zola. Hann sagði að
hugarfar leikmanna væri öðruvísi í Ítalíu en á Englandi. „Í
Ítalíu er meira skipulag, en á Englandi eru leikmenn fastari fyrir og
ákveðnari. Á Englandi er meira lagt upp úr því að vinna alla leikina
en í Ítalíu er meira spáð í veikleika andstæðinganna og reynt að
nýta sér þá. Á Englandi er ráðist á alla þó andstæðingurinn sé betri
en þú,“ bætti Zola við.
Spurður hver væri besti leikmaður sem hann hafi leikið með
sagði Zola að hann ætti ekki í erfiðleikum með að svara
því. „Maradona,“ sagði Zola án þess að blikka auga. „Ég lék
með honum hjá Napoli og það var frábær reynsla fyrir mig.
Hann var frábær náungi. Góður maður sem allir elskuðu.
Þannig er Maradona,“ bætti Zola við.
Zola var greinilega mikið niðri fyrir þegar hann var spurður
út í skandalinn í kringum fótboltann í Ítalíu. „Þetta er
sorgarkafli í ítölskum fótbolta. Sem fótboltamaður og sem
íþróttamaður vil ég ekki sjá fótboltanum vera blandað í
svona ljótt mál. En svona er lífið, því miður. Fólk gerir mistök.
Það mikilvægasta er að þegar menn gera mistök þurfa þeir að
taka afleiðingunum. Það er ekki bara skoðun mín á þessu máli
heldur á öllum málum,“ sagði Zola.
GIANFRANCO ZOLA: FYRRUM SAMHERJI EIÐS SMÁRA ORÐINN AÐSTOÐARÞJÁLFARI U-21 ÁRS LIÐS ÍTALA
Eiður Smári er vanmetinn leikmaður
FÓTBOLTI Það þurfti engan
Nostradamus til að spá því fyrir
að Valsstúlkur myndu tryggja sér
Íslandsmeistaratitilinn í Lands-
bankadeild kvenna í gær. Til stóð
að fá FH í heimsókn og kraftaverk
þurfti til að Valur klúðraði þessu.
FH mætti hins vegar ekki til
leiks og samkvæmt reglum fékk
Valur skráðan sigur, 3-0. Það var
því nokkuð skrítið andrúmsloftið
á Valbjarnarvellinum í gær. Vals-
stúlkur skiptu í tvö lið og spiluðu á
stuttan völl til að drepa tímann
fram að verðlaunaafhendingu og
Elísabet Gunnarsdóttir sagði að
tilfinningin væri örlítið skrítin.
„Tilfinningin er skrítin en hún er
samt góð,“ sagði Elísabet.
Valur hefur haft töluverða yfir-
burði í deildinni og athygli vekur
hve mörg mörk liðið hefur skorað.
„Liðsandinn er búinn að vera frá-
bær og það eru engin vandamál í
þessum hópi,“ sagði Elísabet um
sitt lið.
„Við vorum rosalega spenntar
að fá að spila þennan leik og klára
þetta og gá kannski hvað við
næðum inn mörgum mörkum en
því miður tókst það ekki dag. En
sigurinn var kominn í höfn og það
er það sem skiptir máli,“ sagði
markadrottningin Margrét Lára
Viðarsdóttir. Margrét Lára sagði
að það hefði verið svolítið erfitt að
fagna til að byrja með en þegar
bikarinn hefði verið kominn og
allt fólkið hefði þetta verið frábær
tilfinning. „Þetta er rosalega
sterkur hópur. Við gerum allt
saman, erum bestu vinkonur utan
vallar og innan og það er erfitt að
brjóta svoleiðis hóp niður. Við
erum með frábæran þjálfara og
aðstoðarþjálfara. Stjórnin og allt í
kringum liðið hefur verið frábært.
Það er stór hópur sem á þetta skil-
ið og hefur unnið saman að þessu
markmiði,“ sagði Margrét Lára.
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals,
var ekki í nokkrum vafa um hvað
hafi skilað þessum sigri. „Sterk
liðsheild. Við höfum verið dugleg-
ar að æfa alveg frá því í vetur,
höfum lagt hart að okkur. Við
höfum misst stelpur í meiðsli en
fengið inn nýjar og erum með
mjög góðan hóp.“
dagur@frettabladid.is
Frábær liðsandi og sterkur hópur
Valsstúlkur tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Andrúms-
loftið var samt sem áður skrítið vegna þess að FH mætti ekki til leiks. Sigurgleðin leyndi sér þó ekki.
TOLLERUÐ Elísabet
Gunnarsdóttir, þjálfari
Valsstúlkna, fékk fína
flugferð eftir bikar-
afhendinguna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TIL HAMINGJU
VALSSTÚLKUR
BIKARINN Á LOFT Katrín Jónsdóttir sést hér taka við
Íslandsmeistarabikarnum glæsilega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VALUR Leikmenn Vals stöfuðu nafn félagsins.
LANGBESTAR Valsstúlkur eru
einstaklega vel að Íslands-
meistaratitlinum komnar.
Fljótlega eftir að leikur Vals og FH var
flautaður af vegna fjarveru FH-liðsins barst
Fréttablaðinu eftirfarandi tilkynning frá
kvennaráði FH í knattspyrnu:
„Sl. haust ákváðu nær allir leikmenn sem
spiluðu fyrir FH á síðasta keppnistímabili
að hætta knattsspyrnuiðkun, en þrjár fóru
yfir í önnur lið. Ástæða þessa voru ýmiss
uppsöfnuð vandamál frá fyrri árum.
Þrátt fyrir þetta áfall var ákveðið að gef-
ast ekki upp og leggja niður meistaraflokk,
heldur stofnað var nýtt kvennaráð, reynt að
fá til okkar leikmenn til að styrkja þann
hóp sem við höfðum af leikmönnum í öðrum
og þriðja flokki auk eins leikmanns á fyrsta
ári í meistaraflokki, fyrirliðinn Hrönn Hall-
grímsdóttir, sem hefur staðið sig óaðfinnan-
lega við að berja stelpurnar áfram. Eins var
mikið reynt að fá þær stelpur sem lögðu
skóna á hilluna að halda áfram án árang-
urs.
Ráðinn var góður þjálfari sem hefur gefið
sig 100% í verkefnið. Fengnir voru 3 leik-
menn frá Serbíu. Einn af þessum leikmönn-
um varð að fara til baka í júni þar sem hún
fékk ekki framlengingu á atvinnuleyfi – en
hún hafði komið sem leikmaður til Hauka
2004 og hafði verið búsett hér í tæp tvö ár,
þegar henni var vísað úr landi. Þetta veikti
liðið umtalsvert – þar sem um sterkan varn-
armann var að ræða sem ekki hefur verið
vanþörf á í sumar.
Þrátt fyrir loforð forsvarsmanna annara
félaga um leigu á leikmönnum til okkar frá
öðrum liðum, sem treyst var á, var ekki stað-
ið við þau loforð sem endanlega var ljóst
nokkrum dögum fyrir mót, og hófum við því
leik í vor með aðeins 4 leikmenn á meistara-
flokksaldri – aðrar voru úr 2. og 3. flokki.
Eins og búist var við var þetta verkefni
stelpum úr 2. og 3. flokki ofviða – þær urðu
að spila alla leiki í sínum flokkum auka erf-
iðra meistraflokks leikja, stundum 2–3 leikir
á viku. Þetta er stórt afrek hjá þessum stelp-
um og eiga þær skilið mikið hrós fyrir bar-
áttu og dugnað sem þær hafa sýnt í sumar.
Fækkað hefur í hópnum um 1-2 leikmenn
í viku vegna meiðsla. Í dag var staðan orðin
sú að í liðinu voru aðeins 7 leikmenn leik-
hæfir til að spila þennan leik – aðrar voru
meiddar, sumar treystu sér til að spila 10-15
mín. en ekki heilan leik. Því miður var þetta
ekki endanlega ljóst fyrr en stelpurnar
mættu á hefðubundnum tíma fyrir leik.
Um leið og við óskum Val til hamingu
með Íslandsmeistaratitilinn viljum við biðj-
ast afsökunar á því að hafa ekki getað mætt
með fullskipað lið til leiks í dag. Allt var
reynt til að fá leikmenn í þennan leik en því
miður áttum við ekki fleiri leikhæfa leik-
menn í dag vegna álags sem hefur verið á
þeim í allt sumar.“
Undir yfirlýsinguna skrifar Kolfinna
Matthíasdóttir formaður kvennaráðs FH.
Yfirlýsing frá kvennaráði FH
ENGINN LEIKUR Sigurður Óli Þorleifsson,
fyrirhugaður dómari leiksins í gær, sést
hér ræða við fulltrúa Vals og KSÍ í gær.
Skömmu síðar flautaði hann leikinn af.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Þetta er uppákoma sem
maður átti ekki von á að gæti gerst.
Þetta er mjög sorglegt og áfall fyrir
Knattspyrnusambandið og íslenska
kvennaknattspyrnu,“ sagði Geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
KSÍ, spurður um viðbrögð við
fjarveru FH-stúlkna í leiknum gegn
Val í gær. Hann bætti því við að
málið yrði skoðað í framhaldinu og
reynt yrði að komast að því hvað
hefði nákvæmlega gerst.
„Í reglugerð okkar er ákvæði
um sektir og þess háttar. Það er
augljóst að því verður beitt en
það er auðvitað eitthvað þarna að
baki. Við munum skoða það og
verðum að tryggja það að þetta
geti ekki endurtekið sig.“
Geir sagði að hann hefði fengið
tilkynningu um að FH næði ekki í
lið u.þ.b. hálftíma fyrir leik þegar
Valsmenn hefðu hringt í hann á
skrifstofu KSÍ. Það verður að
teljast undarlegt að FH-ingar hafi
ekki hringt sjálfir í KSÍ til að
tilkynna um þetta mannahallæri.
- dsd
Geir Þorsteinsson:
Mikið áfall
FRAMKVÆMDASTJÓRI KSÍ Sorglegt.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Landsbankadeild kvenna:
VALUR - FH 3-0
FH mætti ekki til leiks og því er Val dæmdur sigur.
STJARNAN - BREIÐABLIK 0-2
ÞÓR/KA - KEFLAVÍK 1-3
FYLKIR - KR 1-11
LOKASTAÐAN:
VALUR 14 13 0 1 90-8 39
BREIÐABLIK 14 12 0 2 64-14 36
KR 14 10 0 4 81-23 30
STJARNAN 14 8 0 6 36-25 24
KEFLAVÍK 14 7 0 7 43-34 21
FYLKIR 14 4 0 10 15-82 12
ÞÓR/KA 14 1 0 13 15-68 3
FH 14 1 0 13 6-96 3
1. deild kvenna
Leikur um sæti í Landsbankadeild að ári:
FJÖLNIR - ÍR 1-0
Fjölnir er því komið upp í Landsbankadeild en ÍR
mætir Þór/KA í tveimur leikjum um laust sæti í
efstu deild.
LEIKIR GÆRDAGSINS
> Við fordæmum...
... skammarlega og óafsakanlega framkomu kvennaliðs FH
í knattspyrnu í garð Valsstúlkna og íslenskrar kvennaknatt-
spyrnu í gær. Það er eitt að mæta ekki til leiks en að gera
það í síðustu umferð deildarinnar, í leik þar sem áhangendur
Vals og aðstandendur leikmanna liðsins voru samankomnir
til að samfagna sínum nánustu, er ömurleg og niðurlægj-
andi ákvörðun sem setur svartan blett á það ágæta starf
sem unnið hefur verið í knattspyrnudeild FH undanfarin ár.
Aumkunarverð yfirlýsing frá kvennaráði FH er til lítils og gerir
uppákomuna í raun enn neyðarlegri því þar er því haldið
fram að forföllin í leikmannahópnum á leikdag hefði ekki
verið hægt að sjá fyrir. Til að bæta
gráu ofan á sótsvart voru það síðan
Valsmenn sem tilkynntu KSÍ um
fjarveru FH-inga. Það er vonandi að
FH-ingum verði refsað harðlega af
KSÍ fyrir framkomuna.
SKÁL Valsstúlkur fóru mikinn
með kampavínið í búningsklefa
sínum. Gera má ráð fyrir því að
fagnaðarlætin hafi staðið yfir
fram undir morgun.