Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 2
2 26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Ópið til sýnis
Listunnendum verður gefinn kostur
á að berja augum víðfræg þjófstolin
verk Edvards Munch, Ópið og Mad-
onnu, frá og með morgundeginum og
til lokunar á sunnudaginn. Síðan fara
þau í tímafreka viðgerð. Verkin verða
til sýnis á Munch-safninu í Osló.
NOREGUR
NEW YORK, AP „Djöflaræða“ Hugo
Chávez, forseta Venesúela, á
allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í New York, hefur haft
óvænt áhrif á bóksölu þar vestra.
Í upphafi ræðu sinnar hélt
Chávez á lofti eintaki af bók
Nóbelsverðlaunahafans Noams
Chomsky, en hún heitir Hegem-
ony or Survival: America‘s Quest
for Global Dominance. Chávez
hvatti þingmenn og Bandaríkja-
menn til að lesa hana „frekar en
að glápa á Superman-myndir“.
Bókin fór á lista best seldu
bókanna hjá Amazon.com og
Barnes & Noble daginn eftir og er
nú í því fyrsta hjá Amazon. - kóþ
Chávez áhrifamikill vestra:
Chomsky rok-
selst eftir ræðu
HUGO CHÁVEZ MEÐ CHOMSKY Á LOFTI
Bókin, sem kom út árið 2003, er nú
komin í fyrsta sætið á vinsældalista
Amazon.com. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
������������������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
VIÐSKIPTI Skyndileg viðhorfsbreyt-
ing erlendra fjárfesta í byrjun árs
hratt hér af stað aðlögunarferli í
efnahagslífinu. Í nýrri hagspá
Landsbankans, sem kynnt var í
gærmorgun, segir að eftir örstutt
aðlögunarskeið stefni í nýtt hag-
vaxtarskeið á árunum 2008 til 2010
með áframhaldandi stóriðjufram-
kvæmdum.
Viðsnúningurinn í efnahagslíf-
inu er sagður vera að ná fullum
þroska núna. „Fasteignamarkað-
urinn hefur kólnað, bílainnflutn-
ingur hefur minnkað og hægist á
kortaveltu. Allir þessir hefð-
bundnu þættir eru smám saman
að koma fram,“ segir Björn R.
Guðmundsson, sérfræðingur á
greiningardeild bankans. Á næsta
ári er svo reiknað með hröðum
samdrætti einkaneyslu, fjárfest-
ingar og innflutnings. „En vegna
þess að aukið verðmæti útfutn-
ings kemur sterkt á móti verður
ekki samdráttur í landsfram-
leiðslu,“ segir hann. Spáð er 1,3
prósenta hagvexti á næsta ári. Við
tekur svo hagvaxtarskeið þar sem
gert er ráð fyrir að hagvöxtur
verði 5 prósent að meðaltali.
Á næsta ári segir bankinn verð-
bólgu munu lækka hratt, meðal
annars vegna kælingar á fast-
eignamarkaði og hækkandi gengis
krónunnar, en svo aukist verð-
bólga á ný með meiri framleiðslu-
spennu í hagkerfinu. Í næstu
uppsveiflu er því svo spáð að stýri-
vextir nái uppsveiflu í 10 prósent-
um og krónan falli árið 2010. „Við
sjáum fyrir okkur enn eina sveifl-
una í stóriðjunni.“
Fasteignaverð er sagt munu
lítið breytast fram á næsta ár, og
lækka um tvö til þrjú prósent.
Þannig verði fasteignaverð á
næsta ári tæplega 11 prósentum
hærra en árið 2005. „Heilmargir
þættir styðja við fasteignaverð-
ið,“ segir Lúðvík Elíasson, einn
hagspárhöfunda.
Þá segir Yngvi Örn Kristinsson,
framkvæmdastjóri verðbréfasviðs
bankans, að mistök hafi verið gerð
við framkvæmd peningastefnunn-
ar undanfarin ár og mikilvægt sé
að læra af reynslunni í þeim
efnum. Hann segir stórfram-
kvæmdir hér kalla á meiri sveiflu
en svo að peningamálastefna
Seðlabankans ráði við hana. Bank-
inn veltir upp þeirri spurning
hvort ekki þurfi meiri sveigjan-
leika í verðbólgumarkmiðið meðan
á framkvæmdum standi. „Er ráð-
legt að ryðja úr vegi innlendri
framleiðslu sem er arðbær við
eðlilegar aðstæður fyrir tíma-
bundnar fjárfestingar í þessum
mæli?“ spyr bankinn og veltir upp
leiðum til að bæta virkni peninga-
stefnunnar. olikr@frettabladid.is
Á MORGUNFUNDI UM EFNAHAGSMÁL Um 500 manns mættu á morgunfund Landsbank-
ans þar sem kynnt var efnahagspá fram til 2015. Í forgrunni eru Edda Rós Karlsdóttir for-
stöðumaður greiningardeildar, Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar
og Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Spá gengisfalli
að nýju árið 2010
Í hagspá Landsbankans er gert ráð fyrir nýju hagvaxtarskeiði árið 2008. Sagan
er svo sögð munu endurtaka sig með aðlögun og gengisfalli. Bankinn segir fast-
eignaverð lítið. Seðlabankinn er talinn munu lækka stýrivexti hratt á næsta ári.
STJÖRNUSKOÐUN Slökkt verður á
öllum ljósastaurum og öðrum
borgarljósum á höfuðborgar-
svæðinu og víðs vegar um landið
milli tíu og hálf ellefu næsta
fimmtudagskvöld. Tilefnið er að
vekja athygli borgarbúa á
himinhvolfunum. Þorsteinn
Sæmundsson stjörnufræðingur
mun lýsa himninum í beinni
útsendingu á Rás 2 á sama tíma.
Þorsteinn segir erfitt að svara
því hvar sé best að fylgjast með
himninum á fimmtudagskvöld.“
Það fari allt eftir því hvernig
gangi að myrkva borgina. - sþs
Borgarbúar skoða himininn:
Ljósin slökkt
um alla borg
SUÐURNES Erling Ólafsson skor-
dýrafræðingur segir að raunveru-
leg hætta sé á því að kakkalakkar
berist af vellinum inn í íslenskt
samfélag. „Þetta er nokkuð sem
ekki er rétt að
líta framhjá,“
segir hann.
Mikið er um
kakkalakka og
önnur skordýr á
vellinum sem
hafa komið með
vörum frá vöru-
skemmum hers-
ins sem fluttar
hafi verið hing-
að eftirlitslítið. „Á svona stöðum í
Bandaríkjunum er krökkt af
kakkalökkum og alls konar kvik-
indum og við fáum afleggjara frá
því,“ segir hann.
Erling ímyndar sér að „greið
leið“ sé að opnast fyrir kvikindin
af vellinum „án þess að ég vilji
fullyrða mikið um það. Kakka-
lakkanum er lagið að berast með
manninum,“ segir hann.
Kakkalakkar deyja ekki úr
hungri. „Ég held að það finnist nóg
að bíta og brenna í þessum híbýl-
um. Það er enginn svo þrifalegur
að ekki sé nóg handa kakkalökk-
um. Þeir finna sér alltaf eitthvað,“
segir hann og telur einfaldast að
jafna húsin við jörðu til að losna
við kakkalakkana.
Kakkalakkar eru alætur og lifa
á matarleifum eða dauðum skor-
dýrum. „Kakkalakkar eru sóðar
sem skíta um allt, það er fýla af
þeim, fyrir utan það hvað fá kvik-
indi eru eins hvimleið út af sóða-
skap. Þeir skjótast um allt og eru
snöggir inn í fylgsni.“ - ghs
KRÖKKT AF KAKKALÖKKUM „Ég held að það finnist nóg að bíta og brenna í þessum
híbýlum,“ segir Erling Ólafsson skordýrafræðingur.
ERLING ÓLAFSSON
SKORDÝRAFRÆÐ-
INGUR
Skordýrafræðingur segir hættuna á faraldri kakkalakka raunverulega:
Leiðin greið fyrir kvikindin
Fasteignamarkaðurinn
hefur kólnað, bílainn-
flutningur hefur minnkað og
hægist á kortaveltu. Allir þessir
hefðbundnu þættir eru smám
saman að koma fram.
BJÖRN RÚNAR GUÐMUNDSSON
SÉRFRÆÐINGUR GREININGARDEILDAR
LANDSBANKA ÍSLANDS
HLERANIR Síðan árið 1998 hefur
lögreglu 779 sinnum verið veitt
heimild til símhlerana en í flest-
um tilfellum hefur það verið gert
við rannsókn á fíkniefnamálum.
Þetta kom fram í svari Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra
við fyrirspurn Björgvins G. Sig-
urðssonar, þingmanns Samfylk-
ingarinnar, á síðasta þingvetri.
Helgi I. Jónsson, dómstjóri
Héraðsdóms Reykjavíkur, segir
engar reglur liggja fyrir um það
hversu lengi að hámarki lögregl-
an getur beitt símhlerunum til
þess að flýta fyrir rannsókn. „Það
er ekkert í lögum sem segir um
hversu lengi má beita símhlerun-
um að hámarki. Hins vegar er
það alltaf tekið fram í úrskurði
hversu lengi símhleranirnar
mega standa yfir. Þar er sá var-
nagli alltaf settur.“
Skráning hófst ekki með skipu-
legum hætti á beiðnum um sím-
hleranir fyrr en árið 2000. Síðan
þá hefur beiðnum um símhleranir
fjölgað nokkuð en 157 sinnum var
veitt leyfi fyrir símhlerunum með
dómsúrskurði í fyrra, miðað við
117 skipti árið 2000.
Ekki hafa ástæður símhlerana
verið teknar sérstaklega saman í
Héraðsdómi Reykjavíkur, en á
landsbyggðinni var í miklum
meirihluta úrskurða veitt heimild
til hlerana í fíkniefnamálum, í 173
tilfellum af 196. - mh
Símhlerunum hefur verið beitt tæplega 800 sinnum á síðustu tíu árum:
Símhlerunum beitt æ oftar
LÖGREGLUSTÖÐ Lögregla notað símahler-
anir oftast í fíkniefnamálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ómar, hvernig er að vera
loksins kominn í lið?
Gríðarlegur léttir. Allt í einu get ég
látið sjá mig hjá öllum sem ég vil,
talað við alla sem ég vil og sagt það
sem ég vil við alla.
Ómar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður
tilkynnti í síðustu viku að hann ætli sér
að spila með liði umhverfissinna í þjóð-
félagsumræðunni.
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður var í gær dæmdur í 30
daga fangelsi fyrir líkamsárás.
Dómurinn, sem kveðinn var upp
í Héraðsdómi Austurlands, var
skilorðsbundinn.
Manninum var gefið að sök að
hafa aðfaranótt 25. júní 2006
veitt öðrum manni högg í andlit
með þeim afleiðingum að sá síð-
arnefndi hlaut glóðarauga og
skurð á kinnbeini undir vinstra
auga. Ákærði játaði brot sitt ský-
laust fyrir dómnum, eins og því
var lýst í ákæru. Dómurinn
dæmdi árásarmanninn til að
greiða sakarkostnað.
- jss
Tvítugur í mánaðarfangelsi:
Dæmdur fyrir
að kýla mann
BRETLAND, AP Vatnslitamyndir og
skissur sem talið er að séu eftir
Adolf Hitler verða seldar á
uppboði í Bretlandi í dag.
Verkin fundust á búgarði í
Flæmingjalandi í Belgíu, skammt
frá þeim stað þar sem Hitler var
ásamt hersveit sinni í fyrri
heimsstyrjöldinni, en sem ungur
maður sinnti Hitler listmálun af
kappi. Að sögn listfræðings
dettur engum í hug að kaupa
verkin vegna listarinnar, heldur
eingöngu vegna sögulegs gildis
þeirra.
Verk Hitlers hafa áður selst
fyrir yfir 3,5 milljónir íslenskra
króna. - smk
Umdeilt uppboð í Bretlandi:
Vatnslitamynd-
ir Hitlers seldar
MYNDIR EFTIR HITLER Talið er að þessar
myndir séu eftir Adolf Hitler.