Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 54
Upphaflega voru jólasveinarn-
ir ekki bara níu eða þrettán.
Svartiljótur, Lungnaslettir og
Flotnös eru nú flestum gleymdir.
Í gamla daga gengu sögur af mun
fleiri jólasveinum en þeim sem
sungið er um í vísunni eftir
Jóhannes úr Kötlum. Af einhverj-
um ástæðum heltust þó ansi marg-
ir úr lestinni. Svo margir að í dag
tölum við einatt um jólasveinana
einn og átta, eða þrettán, eftir því
sem við á. Ástæðan að baki því að
svo margir heltust úr lestinni er
m.a. talin vera þessi vísa Jóhann-
esar sem hefur með tímanum
orðið sígild en einnig hafa erlend
áhrif komið við sögu. Í Evrópu og
Bandaríkjunum er aðeins um einn
jólasvein að ræða en á Norður-
löndunum eru einnig svokallaðir
jólanissar, eða álfar á ferð.
Íslensku jólasveinarnir eru
einskonar blanda af gömlu
hrekkjalómunum sem gerðu víð-
reist um landið fyrr á öldum,
dönskum jólanissum og hinum
búsældarlega Santa Klás sem upp-
haflega kom frá Hollandi.
Eins og við vitum hafa nöfn
jólasveinanna eitthvað að gera
með það hvernig þeir hegða sér.
Því þarf ekki mikið ímyndunarafl
til að sjá fyrir sér hegðun eða útlit
Lungnaslettis, Lummusníkis,
Svartaljóts og Reykjasvelgs. Í
raun má telja að þessir jólasvein-
ar hafi verið öllu verri og ofbeldis-
hneigðari en þeir sem við höldum
eftir í dag, í það minnsta voru sög-
urnar af þeim ekki fagrar. Lungna-
slettir gekk t.d. með lungun fram-
an á sér og ef illa lá á honum,
hikaði hann ekki við að slá fólk
með lungunum. Flotnös tók flot í
nefið þegar fólk leit af öskunum
sínum. Það er því um að gera að
draga sængina upp fyrir haus og
láta sem maður sé ekki á svæðinu
ef slík vera birtist á glugganum
eitthvert kvöldið fram að jólum.
Ausa, Baggalútur, Baggi, Banda-
leysir, Bitahængir, Bjálfansbarn-
ið, Bóla, Bjálfinn, Bjálminn sjálf-
ur, Drumbur fyrir alla, Dúðadurtur,
Efridrumbur, Faldafeykir, Flauta-
þyrill, Flotnös, Flaska, Flotgleyp-
ir, Flórsleikir, Froðusleikir, Ganga-
gægir, Guttormur, Hlöðustrangi,
Hrútur eða Hnútur, Kattarvali,
Kleinusníkir, Klettaskora, Lampa-
skuggi, Litlipungur, Lummusníkir,
Lungnaslettir, Lútur, Lækjarræg-
ir, Moðbingur, Móamangi, Pönnu-
skuggi, Rauður, Redda, Reykja-
svelgur, Skefill, Sledda,
Smjörhákur, Steingrímur, Syrju-
sleikir, Strympa, Svartiljótur,
Svellabrjótur, Tífall, Tífill, Tígull,
Tútur og Þambarskelfir, Þorlákur
og Örvadrumbur.
Ekki bara einn og átta
Tífall og Tútur,
Baggi og Hnútur,
Rauður og Redda,
Steingrímur og Sledda,
sjálfur Bjálfinn og Bjálfans barnið,
Bitahængir, Froðusleikir,
Gluggagægir og Syrjusleikir
Hreinsar loftið
Eyðir lykt
Drepur bakteríur
ECC Bolholti 4
Sími 511 1001
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI