Fréttablaðið - 12.02.2007, Blaðsíða 73
Nú er komið að flutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í
máli ákæruvaldsins gegn mér
og fleirum í eftirhreytum
Baugsmálsins. Aðalmeðferð
hefst með skýrslutökum og
vitnaleiðslum mánudaginn 12.
febrúar 2007 og er áætlað að
málflutningi ljúki 30. mars nk.
Sér þá loks fyrir endann á máli
sem hófst með húsleit lögregl-
unnar á skrifstofum Baugs hf.
28. ágúst 2002. Um leið og
húsleit var heimiluð var gefin
út handtökuskipun á hendur
mér sem stjórnar-formanni
Baugs og Tryggva Jónssyni sem
forstjóra Baugs. Mikið lá við.
Tryggvi fékk að dúsa í fanga-
geymslum lögreglunnar þessa
nótt en ég slapp þar sem ég var
staddur í viðskiptaerindum í
Lundúnum. Að kvöldi innrásar-
dagsins kom í ljós að ásakanir
Jóns Geralds Sullenbergers um
fjárdrátt okkar Tryggva fengu
ekki staðist. Menn gerðu ekki
greinarmun á debet og kredit.
Nærtækar og eðlilegar skýring-
ar voru til á öllum reikningum
er tengdust viðskiptum Baugs
og fyrirtækis Jóns Geralds,
Nordica, en á þær skýringar
var ekki hlustað af hálfu
lögreglunnar.
Niðurstaða rannsóknarinnar lá fyrir áður en hún hófst.
Við vorum glæpamenn. Ekkert
gat því breytt. Málið var að
finna sannanir. Hófst þá leit –
sumir kalla hana saum-nálarleit
– í bókhaldi Baugs að ávirðing-
um er réttlætt gætu upphafið
eftir að fyrir lá að ásakanir
Jóns Geralds féllu dauðar niður.
Mér og fleirum varð fljótlega
ljóst að of mikið lá undir af
hálfu lögreglunnar til að aftur
yrði snúið. Heiður áhrifamanna
var í húfi. Manna sem höfðu
ljáð ásökunum Jóns Geralds
fulltingi og hvatt lögregluna til
dáða. Síðar kom í ljós hverjir
þeir voru þegar tölvupóstar
Styrmis voru birtir í Fréttablað-
inu. Styrmir, Kjartan, Jón
Steinar, Haraldur og ónefndur
foringi hinna innmúruðu að
nafni Davíð. Miklu veldur sá er
upphafinu veldur.
Frá upphafi hefur legið fyrir að rannsókn lögreglunnar
hvílir á veikum grunni. Hún
hefur ávallt einkennst af fumi
og fáti og lítilli þekkingu á
viðskiptum og bókhaldi. Sífellt
var beðið um afhendingu nýrra
gagna og oft á tíðum var beðið
um gögn og
skýringar sem
þegar höfðu verið
afhent. Starfsmenn
félagsins máttu
þola endalausar
yfirheyrslur og
dulbúnar hótanir.
Stjórn félagsins sat
undir hótunum um
að aftur yrði gerð
innrás í Baug Allt
var reynt. Rangar
upplýsingar voru
bornar á milli
vitna, þeim var
hótað og þau vöruð
við afleiðingum þess að spila
ekki með lögreglunni, þá yrðu
þau sett á sakamannabekk.
Rannsóknin var illa skipulögð
og hroðvirknisleg. Stjórnendur
hennar lögðu fyrirfram engan
trúnað á skýringar sakborn-
inga, starfsmanna félagsins,
endurskoðenda þess eða
stjórnar. Allt kapp var lagt á að
finna glæpinn. Sama hvað það
kostaði. Með reglulegu millibili
var því lekið í fjölmiðla að
rannsóknin væri að vinda upp á
sig og hún krefðist sífellt nýrri
og nýrri aðgerða. Loks dró til
tíðinda þegar fyrsta ákæran í
Baugsmálinu leit dagsins ljós 1.
júlí 2005.
1) Héraðsdómur vísaði málinu
frá í heild sinni 20. septemb-
er 2005.
2) Hinn 10. október 2005
staðfesti Hæstiréttur
frávísunina að stærstum
hluta en lagði fyrir héraðs-
dóm að taka átta ákæruliði til
efnismeðferðar.
3) Ríkislögreglustjóri sagði sig
frá málinu daginn eftir.
4) Héraðsdómur sýknaði
sakborninga í öllum þeim
liðum sem eftir voru.
5) Hæstiréttur staðfesti
sýknudóma varðandi þá sex
ákæruliði sem komu til kasta
dómsins með áfrýjun
ákæruvaldsins.
6) Björn Bjarnason skipaði
nýjan saksóknara til að halda
málinu áfram. Sesar var
fallinn sagði Björn en sagan
var ekki öll! Áfram skyldi
haldið þessari vegferð.
7) Hinn 31. mars 2006 voru
nýjar ákærur gefnar út í 19
liðum.
8) Hinn 21. júlí 2006 vísaði
Héraðsdómur viðamesta
ákæruliðnum frá
dómi með þeim
rökstuðningi að
þar væri ekki lýst
fjársvikum heldur
viðskiptum!
Hæstiréttur
staðfesti frávísun-
ina nokkru síðar.
Aðgerðir lögreglu
gagnvart fyrir-
tæki mínu,
fjölskyldu minni,
samstarfsmönn-
um og mér
sjálfum hafa nú staðið yfir í
hartnær fimm ár. Loks sér fyrir
endann á þessum ósköpum. Eins
og að framan er lýst hafa
aðgerðir lögreglunnar ein-
kennst af kappi fremur en
forsjá – afar lítilli fagmennsku -
og reyndar hafa helstu forkólf-
ar og ábyrgðarmenn málsins,
Haraldur, Arnar og Jón H.B.,
hrökklast frá því við illan leik,
rúnir öllu áliti og trausti. Eigi
að síður hefur þetta verið mjög
erfiður tími fyrir mig, fjöl-
skyldu mína, vini og samstarfs-
menn. Ég get ekki óskað
neinum þess að ganga í gegnum
slíka raun. Systir mín og faðir
lágu undir ásökunum í málinu í
rúm 4 ár. Þau hafa nú verið
sýknuð af öllum ákærum. Eftir
situr þó biturleiki og reiði.
Hvernig er hægt að halda fólki í
gíslingu sem þessari í svo
langan tíma? Um leið hlýtur
maður að spyrja hvað þeir
menn hafa eiginlega verið að
hugsa sem ábyrgð bera á
þessari rannsókn og staðið hafa
að henni með þeim hætti sem
raun ber vitni. Ómögulegt er að
átta sig á því hvað þetta hefur
kostað ríkissjóð. Eru engin
takmörk fyrir því hve langt
menn mega ganga í slíkum
ofsóknum? Verður enginn
dreginn til ábyrgðar? Nú þegar
hefur ríkið þurft að greiða tugi
milljóna króna til sakborninga
vegna málskostnaðar.
Þrátt fyrir allt framangreint er stórkostlegt að hugsa til
þess að á sama tíma og klúður
lögreglunnar hefur staðið yfir
hefur okkur Baugsmönnum
tekist að efla fyrir-tækið og
vera í fararbroddi þeirra
íslensku fyrirtækja er staðið
hafa fyrir útrás atvinnulífsins,
byggt upp eignir og starfsemi í
öðrum löndum. Baugur er í dag
margfalt öflugri en í ágúst
2002. Ég er þakklátur öllum
þeim stóra hópi vina og vanda-
manna sem gert hafa mér og
samstarfsfólki mínu þetta
kleift. Ekki er þó vafi í mínum
huga um að félagið hefur orðið
af viðskiptatækifærum er nema
hundruðum milljarða króna.
Þó að lyktir Baugsmálsins sýnist loks í sjónmáli er
framundan mikill sirkus í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Áætlað er að aðalmeðferð í
málinu taki 6-7 vikur. Rétt þykir
mér því að draga saman í stuttu
máli um hvað verður deilt og
hvað mér er ætlað að sanna í
réttarhöldunum. Lögreglan og
ákæruvaldið virðast nefnilega
líta svo á, að sakaðir menn sýni
fram á sakleysi sitt. Sú er í öllu
falli reynsla mín af samskiptum
við þessa aðila. Ákærunni má í
grófum dráttum skipta í þrjá
flokka:
Í fyrsta lagi eru meintar
ólögmætar lánveitingar þar sem
ákæruvaldið reynir að gera
viðskipti milli Baugs og Gaums
tortryggileg en Gaumur er
fyrirtæki í eigu fjölskyldu
minnar. Gaumur gekk á undan í
ákveðnum viðskiptum og tók
áhættu. Ekkert er í lögum sem
bannar slíka hluti. Ekki var
verið að hygla Gaumi á nokkurn
hátt eins og sýnt verður fram á
undir rekstri málsins þar sem
skýrt mun koma fram hvernig
Gaumur studdi við framgang
félagsins með myndarlegum
hætti. Vondir menn hvísluðu því
að lögreglunni og ákæruvaldinu
að orðatiltækið „að gefa gaum“
hefði öðlast nýja merkingu. Það
er þó fjarri lagi en þannig
starfar nú Gróa á Leiti.
Í öðru lagi eru meint bók-
haldsbrot þar sem ákært er
fyrir einstakar færslur og
staðhæft að þeim hafi verið
ætlað að fegra uppgjör félags-
ins og hafa þannig áhrif á gengi
Baugs á hlutabréfamarkaði.
Hafi slíkt verið tilgangurinn
voru til aðrar, mun einfaldari
aðferðir líkt og allir þeir vita
sem fást við rekstur og bókhald
fyrirtækja. Ekki er horft á
ársreikninga Baugs í heildar-
samhengi. Með ákærunni
opinberar ákæruvaldið skiln-
ingsleysi sitt á ýmsum lykilhug-
tökum í viðskiptalífinu. Þetta
verður opinberað undir rekstri
málsins, jafnvel á fyrstu dögum
réttarhaldanna.
Í þriðja lagi er meintur
fjárdráttur þar sem ákæruvald-
ið byggir á framburði Jóns
Geralds Sullenbergers sem m.a.
hefur hótað mér lífláti. Yfirvöld
gerðu ekkert með þær hótanir.
Um er að ræða greiðslur til
fyrirtækis fyrir þjónustu. Fleiri
fengu slíkan stuðning frá Baugi
á þessum tíma er gegndu
svipuðu hlutverki og hann gagn-
vart íslenskum heildsölum.
Ekki stendur steinn yfir steini í
ásökunum Jóns Geralds og
ákæruvaldsins eins og fram
mun koma undir rekstri
málsins. Bækur félagsins gefa
rétta mynd af stöðu félagsins.
Þetta er staðfest af
endurskoðendum og stjórn. Ég
sem forstjóri hef haft fullan
stuðning allra hluthafa í málinu.
Því má í raun segja þegar horft
er á þessar staðreyndir að það
sé ótrúlegt að málið sé á leið
inn í réttarsal.
Valdamiklir stjórnmálamenn og háttsettir menn innan
lögreglunnar hafa um nokkra
hríð hvíslað því að fólki – ekki
síst fjölmiðlafólki - að Baugs-
málið sé eitt umfangsmesta
,,fjársvikamál” sem yfirvöld
hafa fengist við. Síðar bættist
við ,,stærsta skattsvikamál
sögunnar”. Þegar liggur fyrir
hvað er svona stórt og mikið við
þetta mál. Í fyrsta lagi eru þess
fá ef nokkur dæmi að æðstu
yfirvöld landsins hafi haft
önnur eins afskipti og lagt eins
mikið undir í nokkru opinberu
máli. Í öðru lagi eru þess fá ef
nokkur dæmi að helstu áhrifa-
menn í stærsta stjórnmála-
flokki þjóðarinnar, fyrir atbeina
ritstjóra eins helsta morgun-
blaðs landsins, hafi haft önnur
eins áhrif á aðkomu lögreglu í
opinberu máli. Í þriðja lagi eru
þess fá ef nokkur dæmi að
opinbert mál hafi verið rekið
áfram af öðru eins ofstæki og
eins miklu kostað til og raun
ber vitni. Í fjórða lagi eru þess
fá ef nokkur dæmi að blásið
hafi verið til sóknar í áberandi
máli á eins veikum forsendum
og í Baugsmálinu. Í fimmta lagi
eru þess fá ef nokkur dæmi að
ákæruvaldið hafi blásið til eins
umfangsmikillar aðalmeðferðar
fyrir dómi – ég vil kalla þetta
sýndarréttarhöld – og í þessu
máli. Hvað eiga öll þessi vitni
að bera um? Þetta er stórt mál
en einkum er það stórt vegna
þess að þegar hátt er reitt til
höggs og af rangindum þá
verður fallið hátt og drunurnar
miklar svo að undir tekur í
fjöllunum þegar málið hrynur
fyrir hinum innmúruðu og
innvígðu valdsherrum og
erindrekum þeirra sem ábyrgð
bera á málatilbúnaði ákæru-
valdsins í Baugsmálinu.
Höfundur er forstjóri Baugs
Group.
Umfangsmestu sýndarréttarhöld Íslandssögunnar?
Hvort sem þú ert sérfróður um viðskipti eða einn af þeim sem finnst viðskiptafréttir
yfirleitt of flóknar og háfleygar, getur þú fylgst með öllu því sem er að gerast í viðskiptalífinu
í gegnum Markaðinn. Við færum þér fréttirnar skýrt og skorinort.
MARKAÐURINN
EINA VIÐSKIPTABLAÐIÐ SEM ÞÚ ÞARFT
Með Fréttablaðinu alla miðvikudaga Í hádeginu kl 12:12 á Stöð 2 Markaðurinn á Vísi alla daga