Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 34
J ovan Zdravevski byrjaði seint að æfa körfubolta. Hann var orðinn 15 ára þegar hann byrjaði að æfa íþrótt- ina af einhverjum krafti en áður hafði hann að mestu leyti verið í fótbolta. Hann var þó ekki lengi að sýna sig og sanna því tveimur árum eftir að hann byrjaði að æfa, árið 1997, varð hann Evrópumeist- ari með U-18 ára landsliði Make- dóníu í Belgíu. Hann spilaði með einu besta liði Makedóníu, MZT Skopje, en eftir þriggja og hálfs árs dvöl hjá félaginu fékk hann nóg af pólitíkinni og virðingarleysi hjá liðinu eins og hann orðar það og hélt út í heim, nánar tiltekið til Íslands. VILL VERÐA ÍSLENDINGUR „Ég veit ekki hvernig ég endaði hérna á Íslandi en ég get sagt að ég gæti ekki hafa verið heppnari. Þetta var auðvitað erfitt í byrjun, mikil viðbrigði, en eftir að hlutirn- ir fóru að ganga vel inni á vellin- um varð allt auðveldara. Borgar- nes er fallegur lítill bær með vinalegu fólki og hér líður mér vel,“ segir Jovan um hartnær þriggja ára dvöl sína í Borgarnesi. Honum líður svo vel að hann hyggst sækja um íslenskan ríkis- borgararétt. „Ég er orðinn mikill Íslendingur eftir dvöl mína hér og vonast til að fá ríkisborgararétt. Það væri frá- bært að spila með íslenska landslið- inu en ég veit ekki hvort þjálfarinn hefur not fyrir mig,“ segir Jovan. GET EKKI AÐ ÞESSU GERT Jovan hefur verið sakaður um leikaraskap af andstæðingum sínum og að hafa ekki alltaf rétt við og hann viðurkennir það fús- lega fyrir blaðamanni að stundum komi það fyrir að hann ýki og leiki. Allt er það þó í þeim eina tilgangi að vinna. „Körfubolti snýst um það að vinna og ég geri allt til að vinna. Ég veit af þessari gagnrýni en ég get bara ekki gert að þessu. Þetta er hluti af mínum leik, hluti af upp- eldinu og jafnvel þótt ég myndi vilja hætta því þá er það erfitt. Dómarar vita af þessu og leik- menn en mér er í raun alveg sama hvað þeim finnst um þetta. Mitt hlutverk er að sjá til þess að Skalla- grímur vinni leiki og ég beiti öllum brögðum til þess,“ segir Jovan, sem hefur fengið sinn skammt af fúkyrðum frá andstæðingum sínum í deildinni. „Það eru aðallega leikmenn Njarðvíkur og Keflavíkur sem tala við mig allan tímann. Og sumt af því er ekki fallegt. Þetta er bara hluti af leiknum og ég tek það ekki nærri mér. Ef menn vilja tala þá tala þeir. Ef þeir halda að sigur vinnist með því þá finnst mér eðli- legt að þeir geri það.“ LATUR Í VÖRNINNI Eins og fram hefur komið er það samdóma álit flestra sem vit hafa á körfubolta að Jovan sé einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Hann er frábær sóknarleikmaður en þykir kannski ekki leggja alveg sama metnað í varnarleikinn. Hann segist sjálfur geta kvittað undir þessa lýsingu. „Helsti styrk- leiki minn er þriggja stiga skotin og ég held að leikmenn þurfi að vita í hverju þeir eru bestir og ein- beita sér að því. Helsti veikleiki minn - úpps ég vona að Valur [Ingi- mundarson, innsk. blm.] þjálfari lesi þetta ekki – er að ég er stund- um latur í vörninni,“ segir Jovan og hlær. Aðspurður um besta leikmann deildarinnar segir Jovan erfitt að dæma um það. „Það eru margir frábærir leikmenn í deildinni en ætli það sé ekki bara ég,“ segir Jovan og hlær dátt. „Nei, nei, þetta er grín. Það bara erfitt að segja því menn hafa hæfileika á mis- jöfnum sviðum,“ segir Jovan, sem á þó ekki í vandræðum með segja hver sé erfiðasti andstæðingur- inn. „Það er Brenton Birmingham hjá Njarðvík. Hann virðist alltaf eiga stórleiki gegn Skallagrími en hann er frábær leikmaður. Hann er ekki ósvipaður leikmaður og ég. Hann er alhliða leikmaður og með langa handleggi sem nýtast honum í vörninni.“ GETUM ORÐIÐ MEISTARAR Lið Skallagríms vakti mikla athygli í fyrra þegar það komst í úrslitaleikina um Íslandsmeistara- titilinn gegn Keflavík. Liðið tapaði reyndar þeirri rimmu en miðað við gott gengi á þessu tímabili ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn í ár og jafn- vel taka titilinn. „Ég held að við getum unnið titilinn en það þarf þá allt að ganga upp hjá okkur. Allir lykilmenn liðs- ins verða að vera heilir en ég trúi því að við getum unnið öll lið á góðum degi.“ 10 sport „ÉG GERI ALLT TIL AÐ VINNA“ Nafn: Jovan Zdravevski Fæddur: 22. apríl 1980 Fæðingarstaður: Skopje, Makedóníu Félag: Skallagrímur Fyrri lið: MZT Skopje Meðalstigaskor í vetur: 21,2 stig Makedóníumaðurinn Jovan Zdravevski þykir vera einn besti leikmaður Iceland Express-deildarinnar í körfu- bolta. Hann á stóran þátt í því að Skallagrímur er orðið eitt af toppliðum landsins og segist gera allt til að vinna, jafnvel hluti sem eru ekki alltaf vinsælir hjá dómurum og andstæðingum. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON » BRENTON UM JOVAN „Hann er einn af bestu leikmönnum deildar- innar og er leikmaður sem fær mig til að spila betur þegar ég mæti honum. Hann er búinn að gera frábæra hluti hérna á Íslandi og ég ber mikla virðingu fyrir honum sem körfuboltmanni,“ segir Brenton Birmingham. Jovan Zdravevski á sér þann draum að spila með íslenska landsliðinu og segist fullviss um að geta gert það að mun betra liði en það er í dag. SPORTMYND/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.