Ísafold - 19.09.1894, Blaðsíða 1

Ísafold - 19.09.1894, Blaðsíða 1
’Kemur út ýmist emu sinni tvisvar í vikn. Verí) árg minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis B kr. efta l1/* doll.j borgist fyrirmibjan júlímán. (erlend- is fyrir fram). ÍSAFOLD. Uppsögn(skrifleg) bundin vit* áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.októ- berm. Afgreibslustofa blabs- ins er i Austuntrœti 8 Reykjavík, miðvikudaginn 19. september 1804. XXI. árg. Kaupstaðasótt. »Æ! Blessuð góðasta! Láttu manninn þinn fá embætti í kaupstað, helzt í Reykja- vík!« eða: »Láttu manninn þinn flytja i kaupstað, helzt í Reykjavík!« Á þessa eða þessu líka leið ávarpa stund- tm kaupstaðakonurnar sveitakonurnar, ým- ist í brjefum eða í samræðum, er fundum þeirra ber saman, og síðan útmála þær með einstakri málsnild eða mælgi sæluna •og dýrðina, unaðinn og ánægjuna, metorð- in og mannvirðinguna, sem fylgi kau.p- staðalíflnu. í augum sumra kvenna eru kaupstað- irnir, einkum Reykjavík, sem sje fyrir- beitna landið, sem flýtur í mjólk og hun- angi og þar sem smjör drýpur af hverjum kvisti — reyndar stundum bæði dýrt og iila verkað; en hvað um það: það er kaup- staðarlykt orðin af því, og hún er betri ■en nokkur hunangseimur; er hún eins og »blessaður Braminn«; hún á við öllu. Jú! Það er regluleg sótt, nokkurs kon- ur andleg inflúenza, þessi ástríða hjá mörg- um manni, að komast í kaupstað, einkum i Reykjavík. Þegar embættismenn úti um landið deyja •og láta eptir sig konu og dætur, þá kostar það þær sjaldnast mikil heilabrot, að koma sjer niður á því, hvernig þær skuli haga ráði sínu eptirleiðis; því þær eru stundum, jeg vil ekki segja opt, búnar að hugsa sjer það áður þegjandi, hver í sínu iagi, og öllum hefir komið það sama í hug: að flytja sig í Reykjavík. Tárin þorna svo undurfljótt á kinnunum á blessuðum ungu stúlkunum, þegar þær hugsa til þess, að »dauðsfallið« hefir þær afleiðingar, að þær komast í Reykjavík. Það er einungis um að gjöra, að geta fengið bústað i hentugri götu, ekki of langt frá almannafæri; þær liafa sínar ástæður til þess. Já! Það er blessaður staður, hún Reykja- vík; hún uppfyllir alla »hjartans eptirlang- an« bæði fyrir fullorðnum konum og ung- um stúlkum. Ekkjurnar finna þar friðsæla hvíld eptir »ólukkans búskaparumstangið«; þær setjast þar, reyndar ekki í »belgan stein«, heldur í annað ekki lakara, kaup- staðarsæluna. Þar er þessi einstaka hægð á með alla skapaða hluti, sem kemur öldr- uðu og lúnu fólki svo vel; ekki eru tor- færurnar á að komast milli bæja ! Al- menningi er ekki vorkunn á að vita, hve heilnæmt það er fyrir sumar gamlar konur, hve hressandi og styrkjandi bæði fyrir sálu og líkama, að heyra við og við eitthvað af högum náungans, og hvergi er önnur eins hægð á slíku sem í kaupstöð- um, ekki sízt í Reykjavík; þar er meiri fróðleik að finna en nokkursstaðar annars- staðar á landi hjer. Raunar er í Reykja- vik enginn »telegraf« og ekki nema einn | »telefón« — og hann ekkert notaður í þess- um efnum —, og enginn meðgengur að flytja sögur um náungann. En það er það er það sama; þangað berst samt það sem talað, er út um landið, og stundum það, sem ekki er talað og meira að segja i einkis manns huga' hefir komið; þangað berst það, sem gjört er, og stundum það, sem aldrei heflr verið gjört eða mun verða gjört. Ekki koma sögurnar með regninu - úr skýjunum, ekki með vindinum og ekki n pp úr jörðunni. Nei! Þær eru eins og »inflúenzan« í vor, sem leið, eða bakterí- urnar eptir kenningu hinna yngri vísinda- manna; þær líða og skríða, þær læðast og smjúga, laumast og pota sjer áfram og inn í kroppinn og holdið á þeim, sem eru móttækilegir fyrir þær; en þegar þær eru komnar þangað, þá er þeim borgið. þvi þá »aukast þær og margfaldast og upp- fylla jörðina«. Er það kannske munur eða í strjálbygðum sveitum, þar sem fann- kyngi og illviðri hepta nauðsynlegar sam- göngur dögum sarnan og menn ætla að deyja úr leiðindum og hniga niður örmagna undir »ólukkans búskaparumstanginu!» Þá er ekki minna tilhlökkunarefni fyrir ungu stúlkurnar að komast í Reykjavík. Þar er »allt, sem auga mannlegt kætir«; þar er latínuskóli, læknaskóli og prestaskóli, kaupmenn, verzlunarþjónar og skrifarar, kennarar, málafærslumenn og kandídatar í öllum vísindagreinum; allt er þetta girni- legt til fróðleiks, og það má ekki lá ungu stúlkunum stórum, þótt þær fýsi á þang- að eða þótt þær langi til að »prófa lukkuna« og reyna, hvort þeim auðnast ekki að draga einhvern happadrátt að borði! Þetta hefir líka margri stúlku orðið að Y—-• góðu, og allar vonir hennar uppfyllzt, allir æskudraumar ræt.zt vonum bráðar eptir að hún kom í Reykjavík. Skemmtanirnar og iðjuleysið, sem sumum virðist fylgja Reykja- víkurlíflnu svona innan um og saman við, — þó að margir sjeu þar engu minni iðju- menn en í sveitum — eiga líka mikinn þátt í að draga marga unga stúllcu þangað. Þeim þykir mörgum fýsilegra að ganga þar um göturnar, hús úr húsi og búð úr búð, þótt erindin sjeu opt æði smá, að fara á samsöngva, sjónleiki, dansleiki og annað fleira, en að ala aldur sinn í fá- menninu og tilbreytingarleysinu uppi í sveit, fjarri kaupstaðarglaumnum og höfuð- staðarunaðinum. ^ Svo mun þeim sumum þykjai' mæt.ara í munni, veglegra og/tign- arlegra, að heita »fröken úr Reykjavík«, heldur en blátt áfram »stúlka úr sveit<</ og ólíklegt að þeirra hugsun, að menn finni ekki mun þann, sem er á bragðinu að tvennu svo ólíkn. 62. blað.j Reykjavík hefir mikið og töfrandi að- dráttarafl; hún seiðir að sjer unga og gamla, því hún býður hverjum aldri það sem bezt á við ; hægðina hinum öldruðu, skemmt- unina hinum ungu. En því miður flnna ekki allir það, sem þeir leituðu að. Hægðin reynist stundum æði-dýr og kostn- aðarsöm, og sumt, sem á »markaðinn« er flutt, þykir ekki útgengileg vara og finn- ur ekki kaupanda. Hún Reykjavík hefir það til, að vera dálítið svipuð veröldinni; hún er öðruvísi er hún er skoðuð gegn um rósrauð tilhlökkunar- og eptirvænting- argleraugu, heldur en þegar farið er að reyna hana; hún hefir lika margt gott að geyma og marga kosti, eirhún hefir einnig, sem allir aðrir staðir, einhverja ókosti; það eru einhverjir agnúar á verunni í þeim kaupstað sem öðrum, hvað fýsilegt og girnilegt sem konum, ekkjum og ungum stúlkum þykir þangað að komast. Hún er ískyggileg og viðsjárverð, þessi kaupstaða- og Reykjavíkursótt, og þess eru dæmi, sem nefna má, að hún heflr komið mönnum á kaldan klaka. Menn, sem hafa búið upp í sveit við góð efni, hafa leiðzt til að flytja sig þangað sjer til tjóns og skaða, stundum fyrir nauð og nudd úr konu og dætrum, og stundum af eigin skammsýni og heimsku. Menn hafa gjört sjer glæsilegar, en heimskulegar von- ir um veruna þar, ímyndað sjer, að þar mætti lifa án fyrirhafnar, vinnu og erfiðis- muna. En reynslan heflr kennt þeim ann- að. Þar þarf að vinna og starfa eitthvað nytsamt, eins og annarsstaðar, ef vel á að fara. Eins og það er óhjákvæmilegt, að hafa kaupstaði á landi voru sem annarsstaðar, eins er hitt heimskuleg hugsun, að allir geti hrúgast þangað og verið þar; og það er einfeldni, að láta sjer detta í hug, að það sje í sjálfu sjer nokkuð veglegra eða tignarlegra, að vera kaupstaðarbúi en sveitamaður. Það skiptir í þeim efnum minnstu, hvar maburinn er; hitt skiptir mestu, að hann reyni að vera nýtur mað- ur, þar sem hann er. Ef maðurinn er iðjulaus slæpingur, þá er hann jafn-gagns- laus og fyrirlitningarverður hvort sem hann slæpist í kaupstað eða í sveit; og sje hann á hinn bóginn gagnlegur, nýtur og heiðarlegur, þá rýrir það ekki gildi hans, þótt liann sje sveitarbúi, að minnsta kosti ekki í augum skynsamra manna; um dóma heimskingjanna má einu gilda. Það er opt og tíðum illa gjört, að koma þessari kaupstaðarflugu í höfuð mönnum, konum og körlum, því það er sannreynt, að þá er menn eru búnir að fá þessa sótt, verða menn leiðir á vanalegum störf- um, sem menn hafa haft með höndum, flnna sjer allt til óánægju, þykir ekkert

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.