Ísafold - 15.10.1904, Blaðsíða 3

Ísafold - 15.10.1904, Blaðsíða 3
271 lögð smáönglalóð í fjarðarmynnið, því að nú átti að merkja þorsk, ef hann fengist þar. Ofluðust 127 ýsur og 130 þorskar á ýmissi stærð. þeir voru látnir af önglinum í sjókassa og geymdir þar þangað til þeir áttu að merkjast. Að því var þannig farið, að einn maður tók hvern fiak gætilega upp úr kassanum, annar lagði hann á mælifjöl og mældi lengdina, þriðji festi merkið í tálknlokið og hinn fjórði 8krifaði í bók númer og lengd fisksins. Jafnskjótt og þessu var lokið, var fisk inum fleygt útbyrðis. Flestir áttuðu sig fljótt og héldu sem hraðast til átt- haga sinna, hróðugir yfir dekóratíón inni, en á sumum var einhver víma; hafa ef til vill ekki getað áttað sig á því í fljótu bragði, hvers vegna þeir höfðu fengið orðuna. Ails voru merkt- ir um 200 fiskar þar f firðinum. Seiima. 28. júlí, voru merktir um 400 fiskar í Héraðsflóa. |>eir fengust þar í botnvörpu inni undir sandi. Var þar svo mikið af fiski, að vér fengum þar í 6 dráttum í vora litlu vörpu nær 3 þús. af 8tútungi og þyrsklingi, og margt af öðrum fiski. þar var alt krökt af loðnu og hvítfugii. Frá því hefir verið skýrt í blöðun- um, í hvaða tilgangi þessi merking var gerð, og vil eg biðja alla góða menn að verða vel við bón dr. Schmidts um að halda merkjunum til skila og mæla fiskana nákvæmlega, ef þeir fást. f að ætlar að gacga vel. Eg hefi feng- ið 4 merki, þar á meðal úr Mjóafirði og Reyðarfirði, og spurt til þriggja. {>etta er líka gert í vora þágu ekki síður en vísindanna; því alt sem mið- ar til þess að auka þekkingu vora á lífi fiskanna, mun fyr eða síðar koma fiskiveiðunum að liði, og fiskimenn ættu að láta sér vera ljúft (og eg veit að þeim er það mörgum), að aðstoða rannsóknirnar eftir föngum. þegar þessum merkingum var lokið, átti -skipið að fara til Færeyja til að gera hafrannsókuir þaðan til Islauds. Var því farið til Seyðisfjarðar næsta dag og þar tekin kol m. m. Að morgni hins 30. fór skipið til Eskifjarðar og þaðan sama dag á leið til Færeyja, en setti mig upp í Mjóafirði, því eg gat ekki komið því við, að fara til Færeyja. Eg skoðaði þar hina miklu hvalveiða- stöð á Asknesi, og mætti rita um hana langt mál. En rúmið leyfir það eigi. Eg vil geta þess að eins, að við hval- skrokkana, sem voru á floti, var mergð af þyrsklingi á 1. og 2. ári. þeir voru þar að fá sér æti, en sjórinn gul- ur af fitu og óþverra. Ekkí voru þeir sjóvandir! Eg fór síðan heim með Vestu frá Seyðisfirði 3. ágúst og kom til Reykja- víkur 10. Thor kom aftur til Austurlands um það leyti og fór norðan um land til Reykjavíkur. Kom þangað 25. ágúst og fór þaðan heim á leið 29. ágúst. f>að má með sanni segja, að í sum- ar var starfað að rannsóknunum með engu minni atorku og áhuga en i fyrra, enda er rannsóknarsvæðið afar- víðáttumikið, svo að ekki veitir af að nota timann vel, og útgerðin er dýr; hún kostar 250 kr. á dag. En þetta stóra svæði gefur rannsóknunum góða uppskeru, og mér er nær að halda, að fáum af skipum þeim, er starfa að þessum samvinnu-rannsóknum, hafi orðið meira ágengt en Thor, það sem komið er. þess skal getið þakklátlega, að Nátt- úrugripasafn vort fekk aftur góðan við- bæti af nýjum gripum. Vonandi verður skipið aftur hér við land á næsta ári. Af ófriðinum ná fi éttir til 6. þ. m. f>á um morg uninn, fyrra fimtudag, höfðu Rússar gert enn tilraun til að komast út af höfuinni í Port Arthur með flotaleifar sínar, en Japanar tóku í móti og hröktu hina inn aftur. Skothríðin heyrðist til Chifu í Kína, 16—17 mílur dansk- ar frá Port Arthur, og stóð la/2 stund; það hefir verið langt nokkuð þaðan, sem fundum bar saman. fætta var löngu fyrir fótaferð. Rússum tekst við og við að lauma vistum og jafnvel skotfærum inn í Port Arthur, á kínverskum skútum. Japanar höndla þær margar. En nokkrar skjótast gegu um greipar þeim á náttarþeli. Talað er um ógurlegt mannfall af Japönum í sókninni að Port Arthur. Eina vikn, 19.—26. sept., eiga þeir að hata mist 10,000. Nú kváðu þeir búast við að umsát- in standi langt fram á vetur. Norður í Mandsjúríu hafa engin tíð- indi orðin síðan lauk orustunni miklu við Líaó yang í fyrri mánaðamót. Hvorirtveggja þurfa tfma tíma til að jafna sig eftir þau ósköp. Nú kann- ast Rússar sjálfir við, að þar hafi fallið af þeim 3000 og 13000 orðið ó- vígir. f>eir segja, að Japanar hafi mist þar 30,000. Mikið þarf til að fylla það skarð. Lftill vafi á því úr þessu, að leið- angurinn stendur vetrarlangt. Tryggvi kongur, Thorefélagsgufuskipið, kom hér i fyrri nótt frá Khöfn og Leith. f>að fekk allra versta veður alla leið frá Khöfn. Við Orkneyjar var svo mikið rok, að skipið varð að liggja þar kyrt heilan sólahring. Mjög dást farþegar að því, hve vel Tryggvi kongur fari í sjó, hvað sem á dynur. Farþegar voru 19 hingað: frá Khöfn frú Kr. Hafstein amtmannsekkja, frk. Kristjana Jónsdóttir (þórarinssonar) frá Hafnarfirði, frk. Borghildur Thor- steinsson frá Bíldudal, frú Karolína f>orkelsson, kaþ. prestur Múnlenberg, kaupmennirnir Páll og Kristján Torfa- synir (frá Flateyri), cand. juris Guðm. Eggerz, jþorkell f>orláksson stjórnar- assistent, verzlunarm. Hjálmar Guð mundsson (frá Flatey) með unnustu sinni, o. fl. En frá Leith frú Bergljót Siguróardóttir og frk. Sigríður Zoega. Minst 15 ferðum ætlar félagið að halda uppi næ3ta ár milli Khafnar, Leith og Reykjavíkur. Fyrstu ferðina byrjar Ingi kongur snemma í janúar frá Khöfn. Næsta vor kvað félagið ætla að bæta við sig 2 nýjum skipum. Veðurathuganir 1 Reykjavik, eftir Sigriði Björnsdóttur. 1904 okt. Loftvog 1 millim. 1 Hiti (C.) í»- trr- ct- <5 CD cx p N cr i ox œ vr B » 3 Urkoma millim. Minstur hiti (C.) Ld 8.8 756,1 -0,3 E í 10 1,4 2 746,0 -0,6 E 2 10 9 733,2 5,7 S 2 3 Sd 9.8 733,2 3,6 s 2 7 21,3 2 735,6 3,4 s 1 5 9 737,4 4,3 sw 1 5 Mdl0.8 737,3 2,6 sw 1 8 2,0 2 739,2 3,5 s 1 6 9 740,1 2,1 ssw 1 2 Þdll.8 744,3 2.4 0 2 5,5 2 747,3 3,4 NE 1 8 9 744,5 0,1 0 2 Mdl2.8 759,5 3,6 E 1 10 0,2 2 754,6 3,6 SE 1 10 9 744,5 7,7 s 3 10 Fd 13.8 738,8 7,6 sw 1 10 43,8 2 738,5 4,6 s 1 5 9 736,8 4,5 s 3 4 Fdl4.8 744,1 6,2 sw 1 10 5,0 2 740,0 6,8 s 2 10 9 735,9 5,8 s 2 10 Prófessor Willard Fiske, tslandsvinurinn góðfrægi, er dáinn 17. f. mán., í hárri elli. Síðdegiguðsþjónusta i dómk. A morgun kl 5 (sira Bjarni Hjaltested). ■ Fórn Abrahams. (Prh ) Búar höfðu slegið tjöldum þar á vétt- vangi á örskatnmri stundu. þeir gengu gegnum þær herbúðir, du Wallou og gestir hans, og hjalaði hann við þá á leiðinni ljúfmannlega og góðlátlega. f>að var efnislaust skraf, en lét vel í eyrum. Foley riddarahersir gekk við hliðiua á honum og var hinn kátasti. f>að lá við að hann gleymdi því, hvar hann var staddur, gleymdi ósigri þeim, er hann hafði beðið, og því að hann var hertekiun maður. f>að átti svo vel við hann, þetta hjal. Honum þótti sem hann væri horfinn í liðsforingja hjalstofurnar heima í herbúðum Breta. Liðsforingjarnir gengu á eftir. Kenne- dy lautinant hafði slegist í för með þeim. f>eir virtu fyrir sér það sem fyrir augun bar, og voru hálfforviða. f>að var og eigi láandi. f>eim gafst á að líta. Búadátarnir þokuðu góðlát- lega úr leið fyrir þeim, háir vexti, mok óhreinir, með skeggið í flóka, líkari Stigamönnum en hermönnun. f>eir námu staðar, er hinir voru gengnir fram hjá, og horfðu á eftir þeim áhyggjusamlega. Vögnum hafði verið raðað í hring. f>ar sást innan um þá heil vistalest, sem hafði verið tekin frá Bretum. Liðsforingjarnir brezku létu sem þeir sæju hana ekki. f>eir skoðuðu í þess stað vandlega fall- byssurnar, sem glentu ginin út yfirflat- neskjuna. Stórskotaliðarnir voru enn óhreinni að sjá en félagar þeirra, Hinir herteknu menn gátu eigi varist brosi, er þeir sáu þá. (Jr því að það lítið, sem fjendur þeirra höfðu á að skipa af reglulegu herliði, leit svona út, þá mátti nærri geta, hvað í hitt mundi varið. Nokkrir ökumenn af Kaffa- kyni hoppuðu háværir til og frá innan um vagnana, gáfu hestunum, kembdu þeim og struku þá og gerðu hundr- að viðvik, sem gera þarf hvenær sem áð er. Búahermennirnir lágu endilangir kringum stórt bál, eða voru á rangli til og frá með pípur í munni. f>eir voru heldur garmalegir að sjá þarna í rökkrinu. þeir voru í gauðslitnum og rifnum frökkum, klunnalegum stíg- vélum, sem þeir pjökkuðu í jörðina, og hattarnir svo barðabreiðir, að varla sá í andlit þeim. Hingað og þangað heyrðist sunginn sálmur digrum róm og óþyðum, og að honum loknum gengur fram rykugur merkisvaldur, tekur ofan og fer að prédíka. Liðsforingjarnir herteknu bitu á vörina. f>eim sveið það, að hafa farið halloka fyrir þessum sigalega alþýðu- mannahóp, er þeir vissu vel að ekki var meira samheldi í en það, að þeir mundu tvístrast í allar áttir næsta skifti sem þeir yrðu fyrir einhverju áfalli. Eu þeir hugguðu sig við það, að liðsmunur hefði verið svo mikill, og að hér hefði mestu ráðið tóm tilviljun, svo sem hundraðshöfðiuginn hafði verið svo kurteis að friða þá með. f>eir hvísluð- ust á spurningum, þarna sem þeir fálm- uðu sig áfram f myrkrinu eða klofuð yfir um sofandi Búa, sem hafði dottið út af með byssuna í hendinni. Hver varþessi du Wallou? Hafði nokkur maður heyrt hann nefndan áður? f>eir höfðu veitt því eftirtekt, hvað stigvélin hans voru vandlega gljáð, hve vel hann var búinn, hve fyrir- mannlega hann bar sig og hve létt honurn var um mál. f>eir gizkuðu á, að þetta mundi vera einhver útlendur fyrirliði, en skildu ekki f, hver það gæti verið, með því að þeir höfðu flýtt sér á brott alt hvað af tók jafnskjótt sem Búar tóku til að fara hverja hrakförina eftir aðra; þeim hafði að eins veitt bet- ur allra fyrst. Vér höfum gert oss að reglu, herrar mínir, anzaði du Wallou kurteislega, að gera aldrei það, sem búist er við af oss. f>að er eins og vopnaviðskifti verði tilbreytingameiri með því lagi. • HAFNARSTRÆTI 17 18 19 20 21 KOLASUND I 2 * • RE YKJAVIK • Nýhaf nardeil d in fékk nú með Kong Trygve mikið af alls konar vörum, t. d.: Kpli, Perur, \ inber, Hfelónur, Paukur, (jitrónur Ennfremur: Qsta^ pylsur^ piesk, o. m. fl. Lifandi myndir sýndar i Báru- búð sunnuduginn 16. október. Ol. Johnsen & Co. Ef einhver Rangæingur brúkar íjár- markið hamarskorið hægra og tvírif- að í stúf vinstra eða á von á vetur- gömlum sauð mórauðum með því, þá láti hann mig vita þaö sem fyrst. Mhv. 9. okt. 1904. i»orst. Thorarensen. Rauðnr hestnr klárgengnr tapaðist frá Lágaielli nýlega. Finnandi skili til rakara Magnúsar Þórarinssonar Rvík. Eg undirskrifuð tek að mér eins og að nndanförnu guitarskenslu og hann- yrðir. Yestargötu 32. Halla Vaage. Þrifin stúlka óskast í vist nú þegar, fáment heimili, hátt kaup. Einar Vigfússon Þingholtsstræti 11. „Dan“-brennarinn, langbezta, bjartasta og ód/rasta stein- olíu glóðarljósið, sem völ er á, fæst að eins hjá St. Runólfssyni, Pósthússtræti 17 — Reykjavík. aö koma og velja jólagjaíir yöar nú áður en Laura fer (24. þ. m.). Þá fáið þér munina í desember. — Munið að koma i tima. St. Runólfsson. PósthÚ8str. 17. SKANDINAVISK Exportkaffi-Surrogat Kjobenhavn. — F Hjorth & Co-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.