Ísafold - 06.04.1907, Blaðsíða 1

Ísafold - 06.04.1907, Blaðsíða 1
Síemur út ýmist einu sinni eða •tvisv. i viku. Verð úrg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eÖa 1 */, doll.; borgist fyrir miöjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Dppsögn (skrifleg) baad.n víÖ áramót, ðgild nema kom»n sé til útgefanda fyrir 1. október og kaup- andi skuldlaus viö biaðiö. AfgreiÖsla Austurstrœti 8. XXXIV. árg. Reykjavik laugardaginn 6. apríl 1907. 21. tölublað I. 0. 0. F. 884128 >/, Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 í spital. iForngripasafn opió A mvd. og ld. 11—12. Hlutabankinn opinn 10—2 V* og o»/a—7. K. F. U. M. Lestrar- og skrilstofa frá 8 árd. til 10 síðd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 V* aiðd. Landakotskirkja. öubsþj.91/* og 6 á helgidögum. Landakotsspítali f. sjúkravitj. 10 */*—12 og 4—5. Landsbankinn 101/*—2 */*. Bankastjórn við 12—1. JLandsbókasafn 12—3 og 6—8.' Landsskjalasafnið á þrd^ fmd. og ld. 12—1. Lœkning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12. 2íáttúrugripasafn á sd. 2—8. Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11—1 FánamáKs-blekking. Alt má segja Dönum. Flastir fóru nærri um, til hvers ref- arnir mundu skornir, er »húsbóndinn« lét »Sann8öglia«-8endil sinn ganga meðal kaupmanna hér o. fl. og lokka þá til þess að ljá nöfn sín undir mótmæli gegn fánanum íslenzka. |>að var í eama skyni gert alveg eins og þegar gamalárskvelds-gatnalýð- ur var gintur að bústað húsbóndans með fyrirheit um kerlingarelda og því um líkt. Alt þetta er gert vegna d ö n s k u m ö m m u suður í Kaupmannahöfn. Hún vill helzt ekki annaðheyraog m á ■ ekki annað heyra en að hér séalt með himnalagi undir stjórn»rétta mannsins á réttum stað« og að lyðurinn ráðisér varla fyrir fögnuði yfir að hafa þann snill- ing yfir sér, stórvitran, réttlátan og röksaman. • þ> e 8 s vegna er áminst gaml árs-skemtun »fyrir fólkið« notuð til þess að senda til Khafnar hraðskeyti um, að »2—3000 borgarar í Reykjavík hafi flutt ráðgjafanum fagnaðarkveðju á gamlárskveld*. Fréttin eú er meira að segja látin koma t v i s v ar í dönsk blöð, fyrst héðan beina leið, og þvi næst nokkuru síðar frá Seyðisfirði. |>að heldur svo Danskurinn að eé ný fagn- aðarkveðja, og ímyndar sór þá, að sel skinnabróka-fólkið »þar uppi« geri varla annað, milli þess sem það er að háma í sig lýsið og tólgina, en að hópast að bústað ráðgjafans og æpa þar honum til dýröar, og þá um leið Danskinum, eem hefir hjálpað því um djásnið það. jbess vegna er ennfremur beitt evipuðum brellum f fácamálinu. Danska mamma vill ekki láta taka fram hjá dannebrog. Ein þjóð — einn fáni ! segir hún. Og með því að Danir og íslendingar eru e i n þjóð, alveg eins og Amakurbúar og Khafnarmenn eru ein þjóð, Begirhún, þá eru það landráð að vera með annan fána á íslandi. þessu er ráðgjafinn alveg samdóma. Hann er góður sonur mömmu sinnar og dyggur erindreki. En hann er hræddur um, að augljós mótspyrna af hans hendi í móti íslenzkum fána verði miður vel þokkuð hér. En krókaleið má reyna að fara, — þá krókaleið t. d., að láta einhvern skósvein sinn lokka þá, sem fána nota almennast, til þess að Ijá nöfn sín undir eitthvað, sem má láta fáfróða menn f öðru landi írnynda sér að sé mót8pyrna móti fánanum. það er því næst jafnharðan símað út yfir pollinn. í>ar er það birt í öllurn blöðum og vekur almennan fögnuð. þau fagnaðartíðindi eru svo látandi — og virðist bezt við eiga að birta 4>au á sjálfrar yfirþjóðarinnar tungu — blöðin þar bæta sjálf við viðeigsndi fyr- irsögn : Man önsker intet nyt Flag. Der telegraferes i Gaar til Ritz. Bur. fra R e y k j a v i k: 35 Mænd, deribland alle de störste Köbmænd og Fiskerskibsrhedere i Rey- kjavik og Seltjarnarnæs, samt alle 5 Köbmænd paa Akranæs ofíentliggör i Dag i Bladet »Reykjavik« en Erklæ- ring om, at det ikke falder dem ind at vrage Rigets lovlige Handelsflag og optage et nyt, ikke lovhjemlet Flag istedetfor. það hefir ekki orðið lítill fögnuður í ísrael út af þessu skeyti. íslendingar vilja hreint ekki hafa með neinn nýjan fána að gera ! hrópa menn hástöfum. þeir elska dannebrog, b a r a dannebrog ! Sagan segir, að sumir hafi verið lokk- aðir til að skrifa undir með því að telja þeim trú um, að vfirlýsingin væri alls ekki stfluð f móti íslenzka fánan- um, heldur væri ekki annað með henni sagt en það, að undirskrifendur ætluðu sér ekki að brjóta lög með því að fara að nota annan verzlunar-fána en al- ríkisins, m e ð a n ekki væri annar fáni löggiltur þ a r, sem nokkurar lög- gildingar þarf við. En það er svona hér um bil sama sem að skrifa undir Ioforð um að stela ekki, né beita toll- svikum, meðan tollur er í lögum o. s. frv. Og þó að slíkt mundi þykja hlægilegt, þá gerir það alt um það þetta gagn andspænis eftirtektarlitlum hugsunarleysingjum, að þeir líta svo, að undirskrifendur sé íslenzkum fána gersamlega andvígir og megi ekki sjá né heyra annan fána nefndan en danne- brog. Og til þ e s 8 eru refarnir skornir. Heilsuhælisfélagið. Um fram áður auglýstar undirtektir undir það mál hafa yfirstjórn félagsins borist með síðustu póstum sk/rslur um þessar deildarstofnanir: Fél. árst. Akraueshreppur ytri..........105 109 Austur-Landeyjahreppur ... 13 13 Hvammshreppur í V.-Skaftaf. 28 41 Laxárdalshreppur............. 23 30 Reykholtsdalshreppur......... 41 43 Svínavatnshreppur ........... 16 23 Þingeyrarhreppur í Dyraf. . . 96 126 Við þessi samtals 295 ársgjöld (= 590 kr.) bætist 1 æfigjald (200 kr), frá héraðslækni A. Fjeldsted á Þingeyri, sem gengist hefir fyrir félagsstofnun í sín- um hreppi með hinni mestu atorku og orðið prýðisvel ágengt, fengið 126 árs- gjöld frá 89 heimilum alls í hreppnum; h a n n- þakkar það samt sjálfur einkum áhuga 2 kvenfélága, er heita atinað Hug- rún (í Haukadal) og hitt Von (á Þingeyri). Nokkrir hafa svarað, að þeir séu í undirbúningi með deildarstofnun í sínu bygðarlagi; ilt að hafa saman fundi fyr eu með vorinu. Dönsk tillaga um sambandsmálið. Fyrverandi ráðgjafi kirkju- og kenslu- mála í Danmörku, S c a v e n i us kamm- erherra, hefir ritað í Nationaltidende um sambandsmál vort. Efnið er í stuttu máli þetta : Hanu lítur svo á, sem Danir hafi átt fylsta rétt á að ákveða stöðu ís- lands með lögunutr 2. jan. 1871, og neitar því þar af leiðandi óbeinlínis, en afdráttarlaust, að vér höfum að réttu lagi verið frjálst sambands- 1 a n d. Að hinu leytinu þykir honum sann- gjarnt, að íslendingar fái tryggingu stjórnar8töðu sinnar með lögum, sem alþingi samþykki, auk rlkisþingsins. Hann heldur því fram, að sameigin- leg eigi þau mál að vera, er nú skal greina: 1. Konungur og konungsættfólk. 2. Fáninn. 3. Alt samband við önnur lönd, þar á meðal konsúlar. 4. Strandvarnir. 5. Rétturinnborinna manna; »og þar af leiðandi verða réttindi allra danskra manna á íslandi og í landhelgi við það á öllum tímum hin sömu, sem réttindi íslendinga*. Minna segir höf. að Danir geti ekki sætt sig við vegna ríkisheildarinnar. Og hann varar gestina í sumar alvar- lega við því, að Iofa í veizlugleðinni hér nokkuru meira, »sem menn geta ekki efnt, og eiga ekki heldur að efna«. Ekki lítur ’nöf. svo á, sem það geti komið til nokkurra mála, að konungur tiefni sig konung Danmerkur og ís- lands. þá mundu menn fárangahug- mynd um stöðu íslands í ríkinu. þar á móti gæti konungur nefnt sig kon- ung Danmerkur m e ð íslandi. En bezt færi á, því, að hann nefndi sig konung Danmerkur, íslendinga, Vinda og Gauta. Ekkert sér höf. því til fyrirstöðu, að Danir greiði tillagið alt f einu. Og ekki ætlar hann oss að leggja neitt fé fram til sameiginlegra mála að sinni. En þegar fram líða stundir, gerir hann ráð fyrir þvf, að íslendingar muni sjálfir óska að leggja eitthvert fé fram til sameiginlegra ríkisþarfa, og þá þurfi að lögfesta það bæði af alþingi ogrík- isþingi. En þó að þeir leggi fé fram, ætlar hann þeim enga fulltrúa á ríkis- þingi Dana. |>á tilslökun vill hann gera íslend- ingum, að danskur ráðgjafi skrifi ekki undir skipun íslandsráðgjafans. Og eins það, að íslandsráðgjafinn þurfi ekki að fara frá embætti, þó að danska ráðaneytið alt leggi niður völdin. Og ábyrgð ætlar hann honum að hafa fyr- ir ríkisþingi á tillögum sfnum í þeim málum, sem koma við bæði íslandi og Danmörku. f>etta er fyrirkomulagið, sem fyrir Seaveniua vakir. Og mjög sennilegt er, að þessu fyrirkomulagi verði að oss haldið af Dana hálfu. Nú verður fróðlegt að sjá, hvort nokkur þeirra manna, sem hafa lýst yfir því, að ísland eigi að vera f r j á 1 s t Betri sæti Almenn sæti 50 a. 25 a. Alveg nýjar myndir sýndar i Reykjavik Biograftheater Betri barnasæti Alm. barnasæti 25 a. 15 a. sambandsland, vill aðhyllast þetta. Breytingarnar verða ekki aðrar en þessar: a ð alþingi samþykkir lög eftir vild Dana; a ð vér fáum tillagið greitt alt í einu ; og a ð danskur ráðgjafi skrifar ekki undir skipun íslandsráðgjafans. Hvað ætli þeir verði nú margir, ís- lendingarnir, sem halda, að með þess- um breytingum verði ísland frjálst sambandsland? Hvað ætli þeir verði margir íslend- ingarnir, sem reyna að telja sjálfum sér og öðrum trú um það, að þá höf- um vér fengið viðurfeenning þess, að vera frjáls sambandsþjóð, er vér höf- um sjálfir afsalað oss um aldur og æfi valdi á vorum eigin fána, voru eigin landi, vorri eigin landhelgi; og á öllum samningum við aðrar þjóðir, á allri löggæzlu við strendur landsíns ? Sjálfsagt verða þeir einhverir. En verður unt að telja meiri hluta þjóðar vorrar trú um aðra eins fjar- stæðu ? Önnur hlið er á málinu, sem mér virðist ekki ástæðulaust að athuga. íslendingar eru sjálfir farnir að telja eftir Dönum þau ógrynni fjár, sem þeir verji til heilla þessu landi. Eitt af því, sem eftir er talið, er strandvarn- irnar. Ef íslendingar athuguðu þetta minstu vitund, þá hefðu þeir ekki þolinmæði til þess að hlusta á slíkar fortölur. Hvað 8egir Scavenius ? Hanntelur strandvarnirnar eitt þeirra mála, sem Danir megi a 1 d r e í láta sér koma til hugar að sleppa við ís- lendinga. Vegna hvers ? Vegna þess, að strandvarnir Dana hér við land eru, að sínu leyti eins og fáninn, tákn hins danska valds hér á landi, stöðug auglýsing sjálfum oss og veröldinni um það, að ísland sé •danskt land«. Og ekki eingöngu vegna þess. Strandvarnirnar eru jafnframt trygg- ing þeirra hlunninda, sem Danir vilja ekki láta ganga sér úr greipum — hlunninda, sem einn góðan veðurdag geta numið mörgum, mörgum miljón- um, þar sem strandvarnirnar eru tald- ar nema nokkurum tugum þúsunda, eu nema í raun og veru engu fyrir þjóð,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.