Ísafold - 16.11.1907, Blaðsíða 2

Ísafold - 16.11.1907, Blaðsíða 2
286 IS AFOLD Erlendar ritsimafréttir til ísafoldar frá R. B. Kh. 14. nóv. kl. 5 sd. Morð og sjálfsmorð i Khöfn. Sofus Basmussen, stjórnleysingjaleið- togi og ritstjóri sijórnleysingjablaðsins Skorpionen, skaut í gær lögrngluþjón, er dtti að sœkja hann til að afplána dóm, og því nœst sjálfan sig. Rússneska þingíð. Fulltrúaþingið í Pétursborg var sett í dag með mikilli viðhöfn. Það er skip- að 195 hægrimönnum, 128 miðlunar- mönnum, 41 miðftokksmönnum (kadett- um), 15 Pólverjum, 28 vinstrimönnum og 6' Múhameðstrúarmönuum, m. m. Vilhjálmur keisari. Keisarahjónin þýzku eru i kgnnisför til Lundúna. Lúalegt óþokkabragð bafa ein- hverjar Danasleikjur af lægsta tægi af sér gert hér í nótt: skorið á fánataugar hjá þeim, er hafa islenzkan fána, þar sem til hafa náð, með þvi að til stóð, að þeir yrði dregnir á stcng i dag, á afmæli Jón- asar Hallgrimssonar. Danska fánanum hefir aldrei verið nema fylsta kurteisi sýnd alla tið siðan er hófst fánahreyfingin islenzka. Þeir mega vara sig á þvi, misvitrir Dana-dindlar, að þeir spilli henni ekki með heimskupörum sinum og óþokka-strákskap. Hálftíræður varð Páll Melsteð sagn- fræðingur á miðvikudaginn 13. þ. m. og var þá fáni dreginn á hverja stöng i hæn- um. Ekki er honnm að sjá neitt aftur farið frá því i fyrra. Hann hefir fótavist meiri hluta dags, er ern og hress i anda, og fagn- aði glaður og ánægður hinum mörgu af- mælisgestum. Prestkosning. Prestur er kosinn á Hofteigi Haraldur Þórarinsson prestaskóla- kandídat. Laust prestakall. Staður i Stein- grimsfirði. Núverarandi mat kr. 1313,13. Prestsekkja er að vísu í brauðinu, en hún fær væntanlega eftirlaun úr landssjóði. Auglýst 12. nóvember. Umsóknarfrestur til 16. janúar 1908. YeitÍ8t frá næstu fardögum. Gufuskipin. Laura komst á stað á sunnudaginn 10. þ. m., með allmarga farþ. Strandferðabátarnir Hólar og Skálholt komu um helgina sem leið, ld.kveld og mánudagsmorgun, troðfnllir af farþegum. Hólar komust á stað áleiðis til Khafnar í fyrradag og Skálholt í gærmorgun. Guluskip Capri kom frá Newcastle á mánu- daginn, með pantaðan steinolíufarm frá Zöllner. Vesta ókomin enn norðan um land og vestan. Orðin 10 dögum á eftir áætlun. Veðráttu. Hægviðri fyrri part viku með nokkru fjúki og litlu sem engu frosti. Hlánaði mvd. með austanstormi og rigning um kveldið. Næstu daga tvo hvass á út- sunnan og rigndi mikið. Sama átt í dag, en þurr, og snjóað í nótt dálítið. Likt veður norðanlands og austan. Hiti sem hér segir kl. 7 að morgni: Bv. Bl. Ak. Gr. Sf. Sd. 10. 4- 0.5 -ú- 4.5 4- 4.5 4-5 4- 3.5 Md. 11. 0 -i- 4.4 4- 3.4 4- 4.5 + 1.2 Þrd. 12. 4-1.1 4- 3.2 4- 6.2 4- 11 4- 3.4 Mvd. 13. 4-0.8 0 0 4- 6.0 4- 3.5 Ed. 14. -j- 1.1 -j- 1.6 -j- 2.5 0 -j- 6.7 Fsd. 15. -j— 2,4 -j- 1.8 -j- 3.0 + 0.3 -j- 4.0 Ld. 16, + 1.1 + 0.5 + 2.5 4- 1.0 + 6.1 Rv. = Reykjavik. Bl. = Blönduós. Ak. = Akureyri. Gr. = Grimsstaðir á Fjöll- nm. Sf. = Seyðisfjörðnr. Stjörnarbyltingin á Russlandi. það er ekki von, að almeuningur átti sig á kosningafréttunum frá Rúss- landi eða skipun hins nýja þings, sem segir frá í nýjustu ritsímafréttum frá Khöfn, öðru vísi en með nokkrum leið- beinandi skýringum. |>að er engin Bmáræðis-breyting, sem orðið hefir á þinginu í kosningunum í haust. Hægri menn (ákveðnir stjórnarliðar) voru á fyrra þinginu, þessu sem var rofið í sumar snemma, ekki nema 72, en eru nú orðuir 195, og er þó þingið fámennara nú en þá; þá var tala þing- manna 520 alls, en keisari gerði það eitt meðal annars í nýrri kosningatil- skipun f sumar, að hann fækkaði þing- mönnum niður 1 442. þá koma 128 miðlunarmenn, sem voru ekki nema 32 á fyrra þinginu; og hefir þvi stjórnin mikinn meiri hluta á þingi í þeim málum, er þeir fylgja henni. Vinstrimenn voru á fyrra þinginu 214, en eru nú ekki nema 28. Hinna flokkanna gætir svo sem alls ekki neitt. Hægrimenn voru á fyrata þinginu, 1906, ekki nema 20, og.miðlunarmenn 33. — Margur mun spyrja, sem vonlegt er, hvernig muni standa á þessum stór- kostlegu umskiftum, — hvort rúss- neskir frelsisvinir muni vera alveg gugnaðir og af baki dotnir. |>ví fer fjarri, heldur er það hitt, að afturhaldsstefnan með keisaraein- veldi er að verða ofan á aftur. Keis- ara hefir tekist að fá þjóðina til að bjósa á þing eins og honum líkaði nokkurn veginn, — ekki með góðu móti vitaskuld, heldur auk annars með afar-ófrjálslegum kosningalögum, er hann fyrirskipaði í sumar með sinu einræði og að þinginu fornspurðu. Með því að kjósendur í fjölmennum bæjum eða kaupstöðum höfðu sent framgjarnasta fulltrúa á þing og stjórn- innióþjálasta, var nú bæjunumflestöllum skotið inn í sveitabjördæmin og látnir ekki kjósa fulltrúa sér. Kosningar- réttur stóreignamanna í sveitum var aukinn stórum, en fátækra bænda rýrð- ur að því skapi. Pólskum þingmönn- var fækkað úr 46 niður í 10. Kák- assuslönd og öll Asíulönd Rússakeis- ara senda nú aðeina 39 fulltrúa á þing, en á anuað hundrað áður. f>að er ekki ólíklegt, að með þessu lagi og betri skipun eða dreifing her- valdsins út um allar hálfur ríkisins takist keisara og stjórn hans að halda byltingamönnum í skefjum um hríð. En það verður fráleitt til langframa. Fyrri þingin fengu að vísu ámæli fyrir vanstilling og frekju, og má vera, að nokkuð hafi verið í því hæft um um fyrsta þingið, 1906. En hið næsta, þetta frá í vor (5. marz—15. júní), gætti fullkomins hófs og stillingar eða hinn frjálslyndi meiri hluti þess. f>að voru keisaravinir á þingi, þeir er sig kölluðu »sanna Rússa<, sem sátu sig aldrei úr færi að egna meiri hlutann upp til ógætni og vanstillingar, í því skyni einu, að útvega keisara átyllu til þingrofs. En er það tókst ekki, var það ráð tekið, að misbjóða þinginu með því að heimta framseldan tafar- laust og umhugsunarlaust til sakamáls- rannsóknar og dýflissuvistar á meðan nokkurn hóp jafnaðarmanna á þingi, er sakaðir voru um hlutdeild í bylt- ingarsamsæri. Og er meiri hlutinn bað um frest til að umþótta sig, var þing óðara rofið. f>á höfðu afturhaldsmenn fengið sín- um vilja framgengt. Framhaldið var hin nyja kosninga- ófrelsistilskipun keisara, sem fyr segirfrá, með ávöxtum hennar, kosningunum í haust. Gull og silfur í einu lagi hefir nú fundist í Vatns mýrinni, á 133—136 feta dýpi. Gull hafði fundist áður á 2 stöðum. Sýn- ishornin öll hafa þeir rannsakað, Ás- geir Torfason efnafræðingur, Erlendur Magnússon gullsmiður og Björn kaupm. og alþm. Kristjánsson, er hefir bezt áhöld hér á landi til slíkra rannsókna og mikla verklega þekkingu. Sama er þó óvissan enu um það, hvort tilvinnandi er eða ekki að stofna til málmnáms þarna, og fæst því mið- ur líklega engin vissa um það fyr en grafinn er með ærnum kostnaði námu- gígur niður að gullinu. Borinn er nú kominn rúmt l1/^ hdrað fet niður. Maöur druknaði á bát á Stöðvarfirði 20. f. m., Jón að nafni Daníelsson, ungur mað- ur ókvæntur. |>eir voru 2 á bát, og varð hinum bjargað af kili, Páli Skarp- héðinssyni frá Hvalnesi. Vatnsveitaii. Geir kaupmaður Zoega hefir látið grafa í haust nýjan brunn skamt frá húsi sfnu, hjá Glasgow gömlu, og feng- ið þar óþrjócandi vatn ágætt, eða svo er að sjá og heyra; og þykir mörgum sem það sé fyllilega rannsóknarvert, hvort fengist geci eða ekki nægar vatns- birgðir handa bænum þar undan Landa- kotshæðinni, áður en farið er að sækja þær upp að Hólmi. Mannalát. Hór andaðist í fyrri nótt frú Míren Ragnheiður Friðrika Lárusdóttir ekkja Jóhannesar sýslumanns Guðmunds- sonar (f 1869), nær áttræð að aldri. Hún var einkabarn Lárusar sýslumanns Thoraiensen í Enni, Stefánssonar amt- manns Þórarinssonar (f 1864) og konu hans Elínar Jakobsdóttur Havsteins. Hún fluttist skömmu eftir lát manns síns til Reykjavíkur með börnum þeirra hjóna, þá öllum ungum, hafði þar ofan af fyrir þeim (meðfram) með því að halda mönnum borð og mannaði þau vel. Þau vcru, sem upp komust: Jó- hannes sýslumaður og bæjarfógeti á Seyðisfirði; Ellert vélastjóri í Ólafsdal; Lárus aðstoðarprestur < Sauðawesi (f 1888); Anna, er átti Dr. Valtýr Guðmundsson (t 1903); Sigríður, gift Kjartani pró- fasti í Hruna; og Katrín, ógift, heima hjá móður sinni. — Frú Maren sál. hafði á sér almenningsorð fyrir val- mensku og ráðdeild, atorku og ástríki við börn sín. Þ ó r u n n Ó 1 a f s d ó 11 i r frá Grjótá < Fljótshlíð, kona Þórðar Sigurðssonar (frá Múlakoti) andaðist 15. f. m. að heimili þeirra Móhúsum á Miðnesi, 55 ára að aldri, eftir 28 ára hjónaband. Af börnum þeirra lifa 5 móður sina. Hún var myndarkona, einkar brjóstgóð og vel látin og er það mikill og sár missir manni hennar og börnum. p. Fórn Abrahams íFrh.l. Á miðri leið þessa ærslastraums datt hestui; aðrir hnutu um hann og ultu um koll, og stöðvun varð á ferðinni. Vögnum var ekið saman; þeir rákust á og steyptust saman í eina bendu. Og á Bvipstundu hrúgaðist þar upp stór haugur af trjáviðarrusli og alls konar hlutum, og á þessari stíflu, er á þenna hátt hafði hrúgast upp, braut binar æðandi öldur flóttans. þessr farartálmi, sem skifti flóttanum í tventr veitti þeim, er á undan voru komnir, færi á að sleppa; en bak við virkið, sem hlaðist hafði úr brotnum vögnum, tryldum skepnum og mölvuðum hús- gögnum, æddu nokkur hundruð manna,- sem sáu að för þeirra var tept — eu höfðu mist alla hæfileíka til þess að ráða fram úr vandræðunum á skyn-- samlegan hátt. Nokkrir hugrakkir menn ætluðu að reyna að koma skipulagi á, en sætto alls konar hindrunum, voru troðnir og urðu að hætta við svo búið. Enm þustu vagnar að útjöðrum virkisine- og urðu þar fastir, óreglan jókst stór- um, allir þrengdu sér saman < þyrping, menn létu sem óðir væru og vissu ekki hvað þeir gerðu. Alt, sem miðað hafði til þess að halda flóttamönnunum saman, var nú með öliu horfið, og við fallbyssuskot, sem alt í einu heyrðisti bak við þá, urðu þeir enn truflaðri og, óttaslegnari en áður. Englendingum tókst að koma tveim-- ur fallbyssum við, og eftir nokkur ár- angurslaus skot voru þær kðmnar f hæfilegt færi. Orustan var byrjuð. Fylking sú, er de Vlies hafði skilið’ flóttamönnunum eftir, var að eins eitt hundrað manna, sem tvístruðust, er þeir heyrðu fallbyesuskotin. Fyrstcr- sprengikúlurnar lentu að vísu allfjarri, og gátu þvf engan skaða gert; en« enginn gat búist við að svo færi um- þær, er á eftir kæmi. þessir hundrað' menn héldú þvi á stað upp eftir hæð- inni, beggja megin við virkis-kösina, riðu fram hjá henni og létu forlögin- ráða, hvað um hana yrði. f>eir höfðu gjört það sem í þeirra valdi stóð, og það var ekki til neins að vera að bíða eftir sprengikúlum óvinanna, enda ekki fýsilegt. Samantvinnuð fúkyrði voru æpt á eftir þeim, er þeir höfðu sig uudan. f>að var ausið yfir þá bölbænum, gamal- mennin báðust fyrir, konurnar hljóð- uðu og börnin grétu. Og með jöfnu> millibili dundu stórskotin álengdar; þau yfirgnæfðu hávaðann um stund, eu svo gekk hann aftur fjöllunum1 hærra, hamslaus og tryldur, eins og ýlfur æstra, óteljandi kvikinda. Eftir að varnarliðið hafði látið und- an síga, voru Dornenborgarar sá hluti Búahersins, er næstur var óvinunum, Og þótt ófriðurinn hefði átt að vera búinu að herða í þeim þolrifin, þá störðu þeir þó óeðlilega st.órum og óttafullum augum niður í dalverpið. En er sprengikúla þaut fram hjá og reif upp jörðina allnærri þeim, skipuðu þeir sér f röð, eins og þeim var sagb fyrir. þeir voru naumast komnir á stað, er Westhuizen reisti sig upp í söðlinum og varð eins og ósjáifrátt litið niður yfir órafárið að baki þeim. Hann varð náfölur og þrýsti hendinni á hjarta Btað. í miðri þvögunni, þar sem menn og dýr ruddust um og lögðu ótal tálmanir hvert fyrir aunað, var bent til hans með Htilli hendi, og barnsrödd heyrðist hrópa í aumkunarverðum róm : — Pabbi.........pabbi minn! Röddin var að vísu veik, en svo örvæntingarfull og bitur, að hún skar gegnum hávaðann og náði einmitt til þeirra eyrna, sem henni var ætlað að ná. Westhuizen kannaðis við hreiminn í röddinni; það var eins og hvíslað væri að honum, að það væri hann, sem kallað var á. Og hann leibþang- að og sá litla scúlku, sem stóð upp í vagni og veifaði með hendinni. — Ruth..........dóttir mln!

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.