Ísafold - 02.07.1910, Blaðsíða 3

Ísafold - 02.07.1910, Blaðsíða 3
ISAFOLD 171 Úr andófsherbúðmmm. Nota flest í nauðum skal. Það grysjar i yandræðaskapinn og ein- feldnina i hvert sinn, sem minnihlutablöðin fara að naga. Eins og t. d. nú, er þan tyggja það upp hvert á fætur öðru, að i sáttayfirlýsingu þeirri, er ritstjóri ísafoldar birti út af máls- höfðun y'irdómsins standi ritstjúrn, en ekki ritstjóri Isafoldar, og þetta sé ógurlegt. Og svo ilskast þau. Ekki nema það þó! Nú er svo mál með vexti, að ritstjóri ísafoldar tók alls ekki eftir, að orðalagið var svona, fyr en honum eftir útkomu blaðsins var bent á það, og þvi bætt við, að minnihl,- blöðin myndu nota þetta til narturs i harð- ærinu. — Sú spá hefir og ræzt. Þess skal getið, að yfirdómararnir hafa orðað yfirlýsinguna, og mun dÖDskumælið: Bladets Redaktion hafa verið rikt í huga þeirra. Þann veg mun tilkomið orðalagið: ritstjórn ísafoldar. Öðru visi getum vér eigi skýrt það, því að Isafold ræður engina yfir nema ritstjórinn einn. Hann á blaðið, hann ber ábyrgð á þvi, og eng- inn annar; jórtur minnihl.biaðanna um »launritstjóra« o. s. frv. er því ekkert annað en margendurtekin ósannindatugga, og furðar oss á, að þau skuli ekki vera farin að þreytast á að tönlast á henni. En ef til vill er harðærið og röksemda- þrotin þeim nokkurt afsökunarefni. Síra Úorvaldur Böðvarsson 1816—1896. Hann þorði’ að standa við öll sin orð. þótt ættu þeir stóru i hlut, — og sannleikann aldrei hann bar fyrir borð, — hann bældi sig aldrei í skut: á langskipi kirkjunnar sterkur hann stóð í stafni þótt ólgaði sjór, og lyginni’ og varmensku valkesti hlóð, svo veglyndur, göfgur og stór. í gleðisveit allra hann glaðastur var og góðvinir sóttu’ á hans fund; hann trúði’ ekbi’ á mennÍDa, en tryggur var þar sem hann tók því, með bjargfasta lund. Þvi voru’ einatt með honum fáir í för, en frltt var það einvala lið, sem klerksins hinn sárbeitta sannleikans hjör og svörin hans könnuðust við. Og löngum er við brugðið ljúfmensku hans við langþjáða’ og snauða, í raun hann rétti þeim blíðlega kærleikans krans, en kunni’ ekki’ að spyrja um laun, Hann vissi’, að i hreysi hins vesalamans á veglegast klerkurinn starf, og þar sem við kórsöng í kirkjunni hacs hann kærleikans vorbliðu þarf. Og því var við látið hans þrungin hver brá og þögull 1 »barnanna« sveit, er leiðtogÍDn ástríki fallinn var frá og falinn i guðsvlgðum reit. Og enn er af minninga síbliðri sól um svipmikla skörunginn ljóst, sem guði til dýrðar hér aldur sinn ól við ættjarðar hjartkærrar brjóst. Eg vildi’ að vér ættum i sérhverri sveit jafn sannkristinn, göfugan mann, sem rækti jafn trúlega’ og héldi sín heit, — þá hlýnaði’ um aumingjans raun, og kjarkurinn forni og karlmenskan snjöll þá kveikti hér manndáð á ný, og þá yrði farsælli þjóðin vor öll og þrautbetri mannraunum i. Guðm Guðmundsson. Reykjavikurannáll: Dáin: Lovisa Jónsdóttir (frá Finnboga- bæ), á Yegamótum á SeltjarnarneBÍ, 40 ára. Dó I. júlí. Guðsþjónusta á morgun: í dómkirkjunni: kl. 12 sr. B. J., kl. 5 dómkirkjuprestur. — í Frikirkjunni hádegismessa. Hjúskapur: Guðfinnur Þórðarson frá Nýjabæ, Eyrarb. og ym. Rannveig Jónsdóttir sst. Gift 28. júni. Jón Jónsson frá Bóli i Biskupstungum og ym. öuðbjörg Sveinsdóttir sst. Gift 29. júni. Landlæknir G. Björnsson fór á Vestn eftirlitsferð vestur á land, Kemur aftur þ. 22. júli. Sira Haraldur Níelsson fer i dag á Ceres til Englands til þess að leita sér lækninga og jafnframt til þess að reyna að kippa i lag bibllumálinu, sem um var getið í siðasta blaði. Slys. Átta ára gamall piltur, sonur Har- alds Jónassonar Grettisgötu 54, datt á þriðjudagskvöldið á götunni og beið bana af. — Þýzka sfórskipið fyrsta kemur i kvöld með fjölda ferðamanna og verður hér 2—8 daga. — Ýmislegt verður ferðamönnunum gert til skemtunar, t. d. syngja tvær söng- sveitir úr bænum fyrir þá. -------------- íslenzkir námsjötnar og efnismenn. Skúli Jónsson vesturíslenzki náms- maðurinn, sem hlaut Cecil llhodes- verðlaunin í fyrra, kom hingað á Ceres um daginn. Hann ætlar að dveljast hér á landi fram á haustið. Skúli er kornungur maður, fæddur að Hlíð á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu 1888, og er náskyldur síra Sveini heitnum Skúlasyni. Hann var ömmu- bróðir Skúla. — Skúli fluttist vestur um haf með foreldrum sínum, þegar hann var á öðru ári og hefir gengið í enska skóla við frábæran orðstir. í fyrra varð Skúli fyrir þeim heiðri að fá styrk úr Cecil Rhodes-sjóðnum. Þeim styrk er úthlutað þar vestra í Manitoba einu sinni á ári og hlýtur sá styrkinn, sem talinn er efnilegasti námsmaðurinn í öllu fylkinu. Styrk- urinn nemur alls 4500 dcllurum (16.630 kr.) og á að duga námsmanni til 3 ára vistar við hinn nafnfræga há- skóla í Öxnafurðu á Englandi. Skúli hefir nú verið þar 1 vetur, en er nú að nota sumarleyfið til ferðalags hér um land. Hann fór á Vestu til ísafjarðar og ætlar að hafast þar við mánaðartíma hjá ættfólki sínu þar, Helga útibússtjóra Sveinssyni og því fólki. — Þaðan fer hann svo norður til átthaga sinna í Húnavatns- sýslu og kemur aftur hingað til bæ- jarins undir haustið. Það þótti mikill sómi íslendingum í Vesturheimi, er landi þeirra var kjör- inn styrkþegi Cecil Rhodes-verðlaun- anna í fyrra, því að margra þjóða námsmenn keptu þá um hann. En ekki rénaði hróður landans þar vestra þetta árið, því að einnig nú hefir íslendingur verið viðurkendur beztur og efnilegastur námsmaður Manitobafylkis og honum veittur Cecil Rhodes-styrkurinn. Sá heitir Jósef Thorson, ættaður úr Biskupstungum, sonur Stefáns Thorson (Þórarinsson- ar) og Helgu Jónsdóttur, er eitt sinn bjuggu á Bryggju í Biskupstungum og siðar hér í Reykjavík. Sjálfur er hann fæddur fyrir vestan haf og er nú rúmlega tvítugur. Hann fer til Öxna- furðu í haust. Enginn má ætla, að námsmenn þessir séu bóka-ormar aðeins, pappírs- búkar grafnir niður i skræður. Ef þeir væru það, mundu þeir aldrei hafa hlotið Rhodes-verðlaun. Þau eru sem sé einnig þeim skil- yrðum bundin, að styrkþegi taki öðr- um fram í líkamsatgjörfi allri og í þrótt- um. — Þeir hafa báðir þessir ungu landar vorir átt mikið við iþróttir og á þeim véttvangi einnig getið sér hinn bezta orðstír. Aðflutningsbannið. Svar frá Magmisi Einarssyni V. (Síðasti kafli). lAjengislöggjöfin. Hver sá, sem orðið hefir svo hepp- inn að komast inn í hugsanaferil bann- manna og skilja þá til hlítar, á hægt með að sjá það, að frá þeirra sjónar- miði getur ekki meiri fjarstæðu en þá, að með bannlögunum sé skerðing gerð á mannfrelsiuu. Og það er ekki mót von. — Eins og kunnugt er, hafa bannmenn marg- sannað sjálfum sér, »á vísindalegan hátt«, að á viðskiftum áfengis og manna séu mennirnir engu ráðandi, »því að drykkjuskapurinn er áfenginu að kenna og engu öðru«. Sé því um einhverja frelsisskerðing að ræða, er stafi frá bannlögunum — en því neit- ar hvorki hr. J. Þ. né aðrir bannmenn — þá hlýtur sá aðilinn, sem öllu ræður, að verða fyrir skakkafallinu. Það er líka víst, enda í fullu sam- ræmi við kórvillu bannmanna, að þeir telja bannlögin ekki óviðurkvæmiiega mannfrelsisskerðing, heldur fyllilega réttmæta skerðing á [persónu-] frelsi áfengisins. Eðá mundi nokkur telja óréttmætt að takmarka frelsi kólerubakteríunn- ar eða kláðamaursins eða hvers þess kvikindis, sem lifir á því að gera mann- inum mein ? Og þegar áfengið er sömu tegundar, hver vill þá áfella bannmanninn, þótt hann vilji hirða freisi þess ? Bannmenn elú ekki aitaf eins reik- ulir í röksemdum sínum og margur hyggur, en það er ekki öllum gefið að fylgja þeim á rásinni og skilja þá til fullnustu. — Nú þegar hver óval- inn hlutur fer að eiga persónulegt frelsi, er t. d. vel skiljanlegt, hve mjög það hefir lækkað á verðlagsskrá bannmanna, enda meta þeir það nú ekki mikils. Ef bannmenn hefðu frá upphafi haft sömu tök á að gera sig skiljanlega eins og herra stórkanzlarinn upp á síð- kastið, mundi margt orðið hafa spar- ast í umræðunum um þetta mál. Alt veltur nú á því einu, hvort á- fengið er lifandi eða ekki. Vér, sem vantrúaðir erum á líf þess, fáum þá vonandi bráðum óhrekjandi »vísinda- lega« sönnun fyrir því, að það sé lif- andi, enda trúi eg bannmönnum til þess að grafa upp einhvern ,heims- frægan, líffræðing eða lækni, sem bera megi fyrir þvi. Þeir hafa oft færst annað eins í fang, og ekki orðið sknta- skuld úr. Hr. J. Þ. er eflaust talinn í sinn hóp ágætur bannmaður, en þó vill honum verða það á að afneita »kór- villunni«, þegar hann hættir huganum lengra út í málið og gjörist þá óviss í rásinni. Hann segir að »auðvitað verður því ekki neitað, að frelsisskerð- ing er það« (bannið), og bætir svo við: »En svo er um flestöll lög, að þau takmarka frelsi manna á einhvern hátt«. Sýnir hr. J. Þ. með þessu, að hann gefur ekki áfenginu alla skuldina fyrir drykkjuskapinn, en ætlar manninum einhver völd í viðskiftunum og því telur hann bannið frelsisskerðing þeim til handa. Þetta mun nú vera burtrekstrarsök úr fylkingu bannmanna, enda nálgast hr. J. Þ. hér skoðanir vorar svo, að talandi mun vera við hann í alvöru. En það leynir sér ekki nér frekara en annarsstaðar, að grunnvæður er bannmaðurinn. Hr. J. Þ. segir engan eðlismun vera á lögum um aðflutningsbann á á- fengi og innflutningsbann á útlendutn kvikfénaði og vill með því gefa í skyn, að með áfengisbannlögunum sé ekki gerð nein óvanaleg skerðing á frelsi manna. Annaðhvort vill hr. J. Þ. vera slæg- ur sem refur eða hann -er einfaldur sem dúfa og mun það sannast, að hann líkist meir tvífætta kyninu. Auðvitað er í aðflutningsbanni á áfengi út af fyrir sig ekki fólg in meiri frelsisskerðing en í svo mörg- um öðrum lögum, sem að einhverju leyti takmarka atvinnufrelsið og því gæti það verið slóttugt að bera sam- an þessi tvenn bannlög, án þess að líta til hægri eða vinstri, í trausti þess, að grunnhygnir glæpist. En það er í meira lagi einfeldnis- legt að gera ráð fyrir því, að lesend- ur alment viti ekki, að áfengislöggjöf vor er þar e k k i öll. sem aðflutnings- bannlögin eru. Þetta veit hr. J. Þ., euda kemur það fram í grein hans, og vissulega ættu allir bannmenn að vita, að til eru lög frá 12. janúar 1900, sem banna tilbúning á áfengi hér á landi. Um tilbúningsbannlögin út aý jyrir sig má hið sama segja og um aðfl.bannlögin, enda hreyfðu menn engum verulegum mótmælum gegn þeim, er þau voru á leiðinni. Það er fyrst, er þessi tvenn lög fara saman, bann á tilbúningi og að- flutningi áfengis, að löggjöfin kemst yfir á óleyfilega braut, verður haft á persónulegu frelsi manna, og þessu hafti er smeygt á með þeim lögun- um, sem seinna eru sett. Þess vegna er þeim gefin öll skuldin og móti þeim barist. Hefði aðflutningsbannið verið lög- leitt fyrst, þýddi það ekkert annað en að tekin var atvinna af þeim, sem flytja vildu inn áfengi, um leið og hlynt var að þeim, er brugga vildu á- fengi innanlands, eða með öðrum orð- um: verndarbann til liðs innlendum iðnaði. Mannfrelsisskerðingin hefði þá fyrst komið með tibúningsbann- lögunum og þá hefði stríðið staðið um þau lög. Það er í hæsta máta undarlegt, að bannmenn skuli »gleyma« öðrum þess- arra laga, þegar um , eðli áfengislög- gjafarinnar er að ræða, eins og hún er nú, því að þótt smiðshöggið hafi verið lagt á með aðflutningsbannlög- unum, þá eru hin þó engu þýðingar- minni: í sameiningu verða þau að þrælalöggjöf, ,þótt hvort um sig séu þau ekki annað en haft á atvinnu- frelsi. Það munu nú allir sjá, að samlík- ing hr. J. Þ. á aðflutningsbannlögun- um — viðbótinni, sem gjörir áfeng- islöggjöfina að þrælalögum — og inn- flutningsbanni á útlendu kvikfé er æði villandi og gæti því að eins náð nokkurri átt, að á undan innflutnings- banni á kvikfé væri gengið annað bann, er samsvaraði tilbúningsbanni á áfengi. En mér vitanlega hefir al- þingi ekki ennþá samþykt tilbúnings- bann á kindum, kálfum eða öðrum kvikfénaði; og væntanlega verður það ekki tekið til bragðs fyr en »jurtæt- ur« hafa náð sömu þrælatökum á atkvæðum almennings og banntempl- urum tókst nú fyrir skemstu. Líklega styður hr. J. Þ. og skoð- anabræður hans að þeirri »frelsis lög- gjöf« og hennar verður varla lengi að bíða, ef öfgar og vitleysa fara eins hröðum fetum vaxandi á næstu árum og gert hafa nú um hríð. Bannmönnum ætti ekki síður að vera það kunnugt en öðrum mönn- um, að öll löggjöf hjá siðuðum þjóð- um miðar að því að verja einstakl- inginn fyrir »árásum« annarra eða heildarinnar eða heildina fyrir ein- staklinginn. Sú þjóð sem tekur upp á því að setja lög til þess að verja einstakling- inn fyrir sínum eigin »árásum«, er of- viti í löggjöf. Hún veit ekki, að slík löggjöf er helber heimska, sem bann- ar einstaklinguum athafnir, er að eins koma honum siálfum við og pví að eins verða heildinni til tjóns, að þær jyrst skaðskemmi þann, sem framdi þær. Slík »persónuleg« lög eru fyrst og fremst heimska af því að þeim er ómögulegt að fylgja fram, »og þvi verri en ekki«. Þau eru heimskuleg einnig af því, að heildin hefir þegar áður fulla tryggingu fyrir því, að ein- staklingurinn muni ekki með fullu ráði og fúsum vilja vinna heildinni tjón með því að skaða sjálfan sig og sú trygging er fólgin í vilja hvers eins til að lifa. Heimskuleg eru þau loks fyrir það, að þau bægja frá, »gjöra óþarft« eina ráðið sem heildin hefir til þess að firra sig tjóni gegn- um sjálfsníðslu einstaklingsins, en það ráð er að fræða þann fáfróða um skaðsemi athafnarínnar fyrir sjálfan hann, og þetta ráð hefir ætíð gefist bezt og mun svo gjöra hjá öllum þjóðum á öllum tímum. Eða hvort mundi heppilegra að gefa út lög um limaburð og klæða- burð, matarræði og dtykkjarföng, svefn og vöku, eða fræða fólkið um hvað því muni hollast og hentast í hverju einu? Afengislöggjöfin vill skipa fyrir um hverra drykkjarfanga íslendingar skuli ekki neyta, og að því leyti er hún heimskuleg, en það hefir hvorki bannmönnum eða löggjöfunum nægt; þeir hafa líka gert hana að prœlalög- gj'ój-. Við jrjálsa menn getur löggjöfin sagt (þótt það í þessu falli sé auðvit- að heimskulegt af löggjöfunum): pú skalt ekki drekka ájengi eða gera þetta eða hitt, sem orðið getur þér til skaða og þarmeð valdið almenningi tjóns, að viðlagðri refsingu. í þessu formi hefir allri löggjöf verið haldið. En þegar boðið er: pú skalt ekki geta drukkið áfengi, eða geta gert þetta eða hitt, þá er prœlsmarkið hverjum manni sýnilegt og þannig hljóða áfengislög vor í raun og veru, og þess vegna eiga þau engan sinn lika. En þrælalög eru hver þau lög, sem hafa í sér fólgið eitthvert það ákvæði, sem gerir mönnum ómöguhgt að brjóta þau, lög sem ræna mann- inn jrjálsrœðinu til að velja og hafna, valfrelsinu, þeirri guðs gjöf sem hverju barni var gefin í vöggugjöf. Og þessa löggjöf styðja prestarnir, margir hverir ? Þótt undarlegt sé, er alveg eins og komið sé við hjartað í bannmönnum, þegar vér höfum bent þeim á að gjörlegt mundi að lækna fleiri bresti vora með þvingunarlögum, úr því að ráðið er fundið. Ef hægt er að afnema áfengisfýsn og áfengisnautn til fulls með þving- un, þá á það að sjálfsögðu að vera jafnlétt að afnema tóbaksfýsn og tóbaksbrúkun, kaffifýsn og kaffidrykkju og ótal fleiri fjíenir og girndir. Og því þá ekki að gera það? Það er engín ástæða til að blifa tóbaki og kaffi af því að það gerir ekki eins mikið tjón og áfengi, eins og hr. J. Þ. ætlar, og því skyldu tóbaks og kaffibannlög fremur brotin en áfengis- bannlög. Eflaust er jafnauðvelt að koma upp aðflutningsbrotum á tóbaki sem á áfengi og víst mundi tóbaks- lyktin ekki segja síður til sín en áfengisþefurinn. Auk þessa mundi tóbaks og kaffibannmenn standa bet- ur að vígi að því er snertir innlendan tilbúning en áfengisbannmennirnir. Áfengi getur hvermaður búið til, en kaffi og tóbak yrði víst torvelt að láta vaxa hér á landil Er ekki tóbak kanske altaf eitur og á það ekki heima i eiturskáp lyfsal- ans? Er ekki nautn þess undir öll- um kringumstæðum skaðvænleg, og gefum vér ekki of fjár fyrir þetta eitur árlega? Og má ekki segja sama um kaffið? Væri ekki peningunum betur varið ti annars þarfara? Slíkum spurningum virðist auðsvar- að af bannmönnum og það alt á einn veg. »Excelsior«-bannstefnan, »að láta ekki lausan liggja fyrir þjóðfélags- mönnum hvaða varning sem vera vill« ætti að vera sjálfsögð stefna allra bannmanna, enda er hún ein af l’ám rökréttum hugleiðingum þeirra. En hvert leiðir hún? Vænti svars. Bráðapestarbóluefni verður nú selt hér á landi í haust eins og auglýst er hér í blaðinu og costar 3 kr. i 100 fjár. Er nauðsynlegt að menn panti sem lýrst, svo hægt sé, ef þarf, að fá meira tilbúið og sent hingað, áður en í ótima er komið. Ttláíarar. Þeir sem vilja gera tilþoð í að mála húseignina í Þingholtsstræti 5 geri svo vel að snúa sér til JTlagnúsar Erlendssonar gullsmiðs. Nýlegt reiðhjól til sölu. Afgr. ávísar. í fjarveru minni frá 4.—ié. þ. mán. gegnir herra læknaskólakennari Guðm. Magnússon læknisstörfum mínum. Reykjavik 2. júlí 1910. Matth. Einarsson. Reikningur sparisjóðsins í Keflavik 1909. • T e k j u r : kr. a. 1. í sjóði 1. jan. 1909 . . . 1056 63 2. Borgað af sjálfskuldarábyrgð- arlánnm......................... 1785 00 3. Sparisjóðsinnlög................ 9696 70 Vextir fyrir 1909 .... 373 53 4. Diskonto......................... 223 11 5. Vixlar innleystir .... 8778 00 6. Vextir af lánnm.................. 419 60 7. Ýmsar tekjnr..................... 25 25 Kr. 22357 72 G j ö 1 d : kr. a. 1. Lánað gegn sjálfsknldar- ábyrgð.......................... 3140 00 2. Vixlar keyptir................ 10663 00 3. Útborgað af sparisjóðsinnlög- um.............................. 6362 14 4. Ýmisleg gjöld................... 168 35 5. Vextir af innBtæðnfé með sparisjóðskjörnm .... 373 58 6. í sjóði 31. des. 1909 . ■ ■ 1660 70 Kr. 22357 72 A k t i v a : kr. a. 1. Skuldabréf fyrir lánnm: a. Sjálfsknldar- kr. a. ábyrgðarlán . 5275 00 b. gegn ábyrgð sýslnfélags. , 2000 00 7275 00 2. Vixlar óinnleystir .... 3830 00 3. I sjóði 31. des....... 1660 70 Kr. 12765 70 P a s s i v a : kr. a. 1. Innieign 163 samlagsmanna 12310 53 2. Varasjóðnr............. 455 17 Kr. 12765 70 Keflavík 31. des. 1909. Kristinn Danielsson, Þorgr. Þórðarson p. t, formaður. p. t. gjaldkeri. Arnbjörn Ólafsson. Reikning þenna böfnm við nndirritaðir rannsakað og ekkert fnndið við hann að athnga. Keflavik 28. febrnar 1910. Sig. Þ. Jónsson. Ólafur V. Ófeigsson,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.