Ísafold - 27.08.1910, Blaðsíða 1

Ísafold - 27.08.1910, Blaðsíða 1
út tvisvar i vikn. Verö Arg. (80 arkir rainst) á kr., oriendis 5 ki eöa 1 A/a dollur; borgist fyrir miöiao júll (erlendÍB fyrir íram). Unpsðgn (sbrifieg) bnndin við Aramót, er ógiid nema komln sé ti) útgefanda fyrir 1. okt. og aaapandi sknldlans viö blabib Afgreiösla: Anstnrstrroti 8, XXXVII. árg, Reykjavík laugardaginn 27. ágúst 1910. 55. tðlublað l. O. O. P. 918199 Forngripasafn opið hvern virkan dag 12—2 íslandsbanki opinn 10—2 x/s og 51/*—7. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstoía frá 8 árd. til 10 siVd. Alm. fnndir fsd. og sd. 81/* siMegis Landakotskirkja. öuðsþj. 81/* og 6 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10V*—12 og 4—5 Landsbankinn 11-2 »/*, öVt-61/*. Bankastj. vi5 12-2 Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—3 Landsbúnaóarfólagsskrifstofan opin trá 12—2 Landsfóhirðir 10—2 og 5—6. Lands8kjalasafnió á þrd. fmd. og ld. 12—1 Lækning ók. í lroknask. þriójd. og föstd. 11—12 Náttúrugripasafn opið l1/*—21/* á sunnudögum Tannlœkning ók. Pósth.str. 14, 1. og 3. md. 11—1 Lárus Fjeldsted yfirréttarmálafærslumaður Lækjargata 2 Heima kl. n—12 og 4—5. Faxaflóagufubáturian Ingólfnr fer til Borgarness 30. ág.; 5. 11. 14- og 17. sept. ------Keflavíkur og Garðs 7. 9. 20. og 30. sept. — -— Sandgerðis 20. sept. Ólafur Þorsteinsson háls- nef- og eyrnalæknir Vonarstræti 1 (Iðnskólinn). Heima ld. 11 — 1 alla virka daga. Ýms erlend tiðindi, ---- Kh. 13. ág. ’10. Banatilræði við borgarstjórann í New-York er eitt af aðalumræðuefnum heimsins um þessar muudir. G a y n o r heitir borgarstjórinn í New- York og var kosinn í það embætti í fyrra af Tammany-flokknum alræmda, er mestu hefir ráðið í bænum á síðari árum. En flokki þessum varð ekki kápan úr því klæðinu, því að Gaynor snerist alger- lega á móti honum, fjársvikum hans og mútuveldi, því að maðurinn er skörung- ur mikill og einúrður, Borgarstjóranum var 9. þessa mán. sýnt banatilræði af manni einum úr Tammany-flokknum, Gallagher að nafni, er gerður hafði verið að nætur- verði í einni skipakví bæjarins af póli- tískum ástæðum, en verið rekinn úr þeirri stöðu af Gaynor sakir drykkju- skapar. Hann skaut á Gaynor, þá er hann var ferðbúinn í skemtiför til Evrópu og særði hann svöðusiri í hálsinn. Tví- syni er talið á íífi borgarstjórans, en þó vona andstæðingar mútuveldisins,að lækn- unum takist að bjarga lífi hans, því að maðurinn er vinsæll og grjótpáll hinu mesti gegn svívirðingum Tammány- flokksins. Atburður þessi hefir orðið til þess, að settar hafa verið nýjar reglur um vornd- un embættismanna í borgarstjórn New- Yorkar og Taft forseti hefir tvöfaldað lífvörð sinn. Nýtt meðal við syfilis (fransós) hefir hinn frægi læknir Þjóðverja E h r- 1 i e h prófessor fundið nýlega. Nefnir hann meðal þetta »Hata« eða nr. 606 og hefir það reynst svo vel enn sem komið er, að talið er líklegt, að hægt verði að útrýma sjúkdómi þessum á fá- um árum. Það er sem óðast að ryðja sór til rúms og hefir það til þessa verið reynt á 3300 sjúklingum. 2000 af þeim hefir meðalið bjargað frá bráðum dauða. Meðalið er sagt mjög óskaðlegt og er þó í því talsvert af arseniki. Af þess- um framangreindu sjúklingum, sem með alið hefir verið reynt á, hafa einir 4 dáið og þykir víst, að einungis einn þeirra hafi dáið af völdum arseniksins. Að vísu er meðal þetta eigi þrautreynt enn þá, þareð svo stutt er síðan það var fundið og því eigi fullséð enn, hvort batinn verður endingargóður, eu læknirinn hefir þó von um, að svo reynist. Konumorðinginn Crippen og frilla hans verða flutt til Englands innan fárra daga. Þræta þau þverlega fyrir glæpínn, en nú hefir það sannast af fæðingarblettum, að líkið, er fanst í húsi læknisins, var af konu hans. Frá menningarstríðinu á Spáni, er getið var um síðast, er það að segja, að ekkert varð úr óeirðum þeim, er boðað- ar voru í borginni San Sebastian á sunnu- daginn var. Er sagt að páfadómurinn muni hafa sóð sitt óvænna og komið í veg fyrir, að úr þeim yrði. Sáttatilraunir eru nú gerðar miklar af páfans hálfu, en Canelejas yfirráðgjafi er hinn harðasti í horu að taka og mun eigi ganga að neinum verulegum tilslökunum á stefnu- skrá sinni, enda á hann ilt með að láta undan síga, úr því að á hólminn er koraið, vegna styrktarmanna sinna í þing- inu og fylgis í landinu yfirleitt. Kólcran í liússlandi ágerist enn af- skaplega og skifta spítalasjúklingar nú orðið þúsundum og um helmingur deyr, þeirra er sýkina taka. Almúginn gætir engrar sóttvarnarvarúðar og er ilt við hann að tjónka fyrir ofurmegui hjátrúar. Rússneska stjórnin hefir nú gert út læknaflokk í verstu sóttarbælin með svo að segja alræðisumboði, til þess að reyna að.útrýtna þessum voðagesti, sem nú er orðinn hættulegri alríkinu en Finnar, þó að þeir sóu kúgaðir á alla lund. Framkvæmdorstjóri dýragarðsins í Khofn í stað Jul. Sohiött, þess er lézt á dögunum, var kosinn í dag D r e j e r, læknir í Rmgsted. 0 anaveldi. Ríkisheildarkreddan. Erindi dr. Norman-Hansens. Island og Danmörk kallaði hr. Nor- man-Hansen erindý það, er hann flutti í Bárubúð síðastliðið laugardagskveld. En Danaveldi — eða »det samlede danske Rige« — hefði verið meira rétt- nefni. Rauði þráðurinn hjá lækninum var sem sé þessi: Danaveldi, eins og pað er nú, er skúta hnarreist og vel d sig komin. En ef Island skerst úr leik — tel eg skút- una liöggna upp. Það md aldrei vcrða. Arið 1883 kom eg hingað fyrsta sinni, sagði hr. N.-M. Þá var ís- lenzka þjóðin að dragast upp, úr fram- taksleysi, vondeyfð og sinnuleysi. Misl- ingarnir voru búnir að fara herskildi yfir landið og strádrepa mannfólkið árinu áður, og íslendingar bjuggu þá enn við búsifjarnar aí þeirri plágu. Arið 1910 kom eg hingað aftur. Það var munur. Allstaðar þrifalegt og þokkalegt. — Æskulýðurinn fjörugur og framsækinn, framflug á mýmörgu — en —----------- Arið 1883 var eg farþegi á Láru. Hún kom þá fyrst allra skipa með valsmerkið frónska á siglutoppnum. Og gleðin yfir því var mikil og sönn, hvar sem við komum. En nú? Nú mundi engin gleði í íslenzkum herbúðum, þótt Lára brun- aði hér inn á höfnina með valinn í bláum feldi, gnæfandi við loft. Þarna er líka breytiug I Það er kominn kali á milli þjóð- anna — ekki í beiskri merkingu þess orðs — kali, ef til vill ekki orðið, heldur: viljaleysi til náinnar samvinnu. Eg veit vel, að skuldin er mikil af Dana hálfu: skilningsleysi, tómlæti o. s. frv. — og miður affarasæl, jafnvel heimskuleg aðferð, eins og t. d. stofnun Atlanzeyjafélagsins. Vænti eg og þess, að það félag brátt deyi drqtni sínum, þvi að það er í eðli sínu tilgangslaus, órétt- rnæt móðgun við íslendinga. En vér verðum að festa hendur á einhverju samvinnunnar, sameiningar- innar tákni. Skilningsleysið á að hverfa. Samvinnan að aukast. Vér eigum að taka hqndum saman, Danir og íslend- ingar. Snæfellsjökullinn heiður og fagur — á að verða, ef eg svo má segja, helga fjallið ríkisheildarinnar. Vér Danir töldum oss hafa teygt oss svo langt sem auðið væri með Uppkastinu. Og það er mér óhætt að segja, að lengra teygjum vér oss ei. — Hingað og ekki lengral Frumvarp síðasta alþingis verður á- reiðanlega ekki tekið upp af Dönum, heldur skoðað sem loft væri (som ikke eksisterende). Eg met mikils sjálfstæðishugsun ís- lendinga og baráttuna, sem henni fylgir — en markið — markið, sem síðasta alþingi kvað upp úr með — pað er mér þyrnir í augum — því að sam- eiginlegur konungur er 'sama og ekk- ert samband. Þá er skútan — hnarreista skútan, Danaveldi, höggvin upp. Það má aldrei verða. Þetta var aðalinntakið í erindi herra Norman-Hansens. Að lokum las hann upp kvæði i óbundnu máli, saknaðar- ofð um vin sinn Ólaf lækni Guðmunds- son á Stórólfshvoli, ort á leiði hans eystra í sumar. Ríkisheildarkreddan danska hefir brugðiðþokuslæðu fyrir augu þessa ment- aða og frjálshuga manns — eins og svo margra annarra samlanda hans. Hún er það sker, sem allir samn- ingar hafa strandað á hingað til og gera ef til vill enn um árabil — því miður. Og þó sætir það furðu um menn eins og dr. Norman-Hansen, sem mjög hefir tekið þátt í sjálfstæðisbaráttu ann- arrar þjóðar: Finna, og óefað fundið mjög til samúðar með Norðmönnum í þeirra sjálfstæðisbaráttu, að hann og þvílíkir menn skuli ekki geta skilið, að hugur vor íslendinga einnig standi til þess að verða sjálfstæð þjóð, er ráði sjálf högum sínum. Utan vébanda þess, er þeir nefna Danaveldi — skilja þeir sjálfstæðisvið- leitnina og meta sjálfstæðismarkið. En innan vébandanna — nei, nei! Þá er alt öðru máli að gegna. í athugasemdunum við Uppkastið fræga segja Danir, þeir er i millilanda- nefndinni voru: að peim sé Ijúft að verða við óskum hinnar islenzku pjóðar um pjóðlegt og stjórnlegt sjálfstceði og að pað sé vilji peirra að sýna á penna hátt virðingu hinnar dönsku pjóðar fyrir pjóðernisrttt- inum, svo að enginn purfi pað að ótt- ast á íslandi, að Dönum sé í mun að pröngva landinu á nokkurn hátt, beint eða óbeint, undir forrceði sitt. Gullvægt i orði en hvernig verður það á borði: Uppkastið! Uppkastið! Meðan svo »skilur haf hjarta og vör« — verður sambúðin milli Dana og íslendinga aldrei eins og skyldi! En stigi Danir skrefið fult — fari þeir því feti framar, sem þjóðarviljinn íslenzki fór fram á við síðustu kosn- ingar og umboðsmaður hans, síðasta alþingi, túlkaði — pd verður »Fróða- friður« í sambandinu Danmörk — ís- land. Keppum að þvíi Karl í Koti. Dauðamein Jóns læknis í Þistilfj .héraði var að líkindum heilablóðfall eftir því sem ísa- fold hefir verið símað austan úr Vopnafirði. Hann lá aðeins eitt dægur. Flugfréttir. --- Kh. 13. ág. 1910. Hringflugið mikla íi Frakklandi. París — Landamærin — Parls. Flugkappinn Leblanc. Eins og getið var um í ísafold í fyrra, hét stórblaðið »Matin« á Frakk- landi 100,000 franka verðlaunum fyrir flug í flugvél frá París tii þýzku landa- mæranna í stórum boga og aftur til París. Átti flug þetta að fara fram á tíu dögum með tilteknum lendingar- stöðum á hverjum degi. Flug þetta hófst eftir áætlun 8. þ. m. og tóku þátt^í því fjöldi Frakka og einn Þjóðverji. Þó er þar enginn hinna frægustu, Paulhan, Latham, Far- man eða Bleriot. Þegar á fyrsta degi urðu allir frá fyrir slysni, hrap ag önnur óhöpp, nema eitthvað fjórir, og nú eru ekki eftir nema 2 — 3. Einn þeirra er lang- fremstur og vinnur eflaust verðlaunin, ef alt fer með feldu og honum hlekk- ist eigi á. Það er Frakkinn Leblanc, sem er alkunnur flugmaður, en þó eigi talinn fyr en nú í flokki hinna fremstu, svo sem þeir, er nefndir voru. Ein af aðalástæðunum til þess, að svo margir gengu úr leik, var sú, að þeir viltust í loftinu og fóru margir langt úr leið. Aðrir tóku kunnuga menn fyrir farþega og leiðsögumenn, en það þyngdi vélarnar og dró úr fluginu. Leiðin er þessi: París — Troyes (8. ág.) — Nancy (10. ág.) — Mez- ieres (12. ág.) — Douai (14. ág.) — Amiens (16.) — París (18. ág.). Sá er sigurvegari, er farið hefir um alla þessa staði á styztum tíma, en kom- ist enginn keppinautanna alla leið, verður verðlaununum eigi útbýtt i heild, heldur fær sigurvegarinn eigi nema 50,000 franka. Gasið og gasstöðin. Samtal við Pál Einarsson borgarstjóra 0. fl. Eg hitti borgarstjórann á förnum vegi núna á dögunum og mæltist til þess að fá að segja lesendum ísafold- ar dálítið frá gasinu, fyrirkomulaginu á því og hagnýting þess af bæjarbúa hálfu, kostnaði o. s. frv. — Borgar- stjóri brást vel við og stundu síðar sat eg inni í skrifstofu hans umkringd- ur af gasi í orði og á borði. Þar eru sem sé ekki einungis gaslampar — af ýmsum stærðum, heldut einnig gasojn, lílill, ljómandi fallegur, og skíðlogar óð- ar en gasi er í hann hleypt. »Hversu margir bæjarbúar eru nú búnir að fá sér gas« — spurði eg borgarstjóra. »Nálægt 200 heimili eru búin að panta gas, ýmist til suðu eðalýsingar eða hvorttveggja. — Og fólki, sem langar til að fá sér gas, fjölgar óð- um. En fyrir mörgum manninum strandar á því, að efni skortir til að Önnur myndin sýnir fluggarpinn Leblanc, en hin vél hans, um leið og hann er að halda á stað í þessa Bjarma- landsför. Hæsta flug. Mesta háflug, sem enn hefir tek- ist, gerði Ameríkumaðurinn Drexel i gær í kappflugi í Lanark á Skotlandi. Hann komst 6750 fet. Næstur á und- an honum í háflugi var Chavez, er flaug 5850 fet við flugstefnuna í Black- pool 3. þ. m. í viðurvist 10,000 manna og hélt sér í þessari hæð 20 mínútur. Ameríkumaður einn,|Walter Btookin að nafni, flaug að vísu rúm 6000 fet í sumar, en hámælisverkfæri hans var ekki fullkomlega nákvæmt, svo að flug hans var ekki tekið gilt. Þessi sami Leblanc. maður varð nýlega fyrir því slysi að detta úr háalofti og særðist hann til ólifis. Margir hafa og síðustu daga hrapað og drepið sig — og nú eru menn í óða önn að reyna að finna upp fall- hlífar til þess að koma í veg fyrir þetta, m. a. enska skáldið Rudyard Kipling, er ritað hefir um þetta efni í enskt tímarit. láta leggja inn gasið. — Það þyrftiað veita efnaminna fólki lán til að leggja inn gaspípur — líkt og gert var þeg- ar vatnsveitan var á ferðinni®. »Búist þér við, að gasstöðin svari kostnaði fyrst um sinn?« »Því er auðvitað ekki gott að svara með vissu, en sjálfur trúi eg á, að svo verði á 1. eða öðru ári — og ekki er eg í neinum vafa um, að gas- stöðin með tímanum verður mikilvæg tekjugrein fyrir þenna bæ. Það nægir að vísa til reynslunnar arlendis. Þar er gasreksturinn venjulega einhver bezta tekjugrein bæjanna, — og bæ- irnir keppast um að eignast gasstöðv- arnar, þar sem þær eru á einstakra manna höndum. T. d. má nefna Ála* borg í Danmörku. Prívatfélag nokk- urt hafði einkaleyfi til að reka gasstöð þar. Einkaleyfistíminn var útrunninn í fyrra. Félagið bauð þá 700,000 kr. gjald fyrir einkaleyfi næstu 20 ár. En bæjarstjórnin kaus heldur að kaupa gasstöðina fyrir 2 miljónir króna.« »Hve mikið hefir gasstöðin kostað eins og hún, er nú?«

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.