Ísafold - 19.11.1910, Blaðsíða 3

Ísafold - 19.11.1910, Blaðsíða 3
IS A F-’O L D 287 Heilsuhælisgjafir og áheit. Halldór Bjarnason Isaf. og kona^hans 20.00 Elin Guðmundsdóttir Rvík . 5.00 P.H. 1.50; N.N. 2.00; Kona í Strandas. 1.00; J. [. 5.00 9.50 Kvenfélag Norðfjarðar. . . 100 00 Steindór Egilsson frá Hlíðar- enda i Ölfusi 50.00 10.00 Kr. 190,50 Rögnvaldur Ólafsson bygginga- meistari hefir gefið hælinu fortepíanó og látið flytja það. í ártíðaskrána hafa goldist í októ- ber kr. 150.00. Jón Rósmkranz. Jónasarmyndin. Eg sé, að greinar höfundi einum í Iugólfi verSur skraf- drjúgt um það hve ljót hún só, stand- myudin af Jónasi Hallgr/mssyni, sem stendur á túninu landlæknisins — og sveigir dálítiS aS Eitiari Jónssyni 1 því santbandi Falleg er hún eigi — þaS skal játaS. En þó mundi hún líta miklu betur út, ef almennilegur stallur væri undir henni. ÞaS sem eg vildi þó aSallega sagt hafa er þaS, aS orSin í garS Einars eru dá- lítiS óréttlát. H a n n mátti engu ráSa um gerS myndarinnar. Hotntm var aS- eins sagt aS gera hana sent allra raun- verulegasta eftir þeim myndum og lys- ingum af Jónasi, sem fyrir heudi votu. Og Einar g e r S i myndina svo — eigi af neinni löngun heldur af nauSsyn. Sjálf- ur var hann alls eigi ánægður með hana, — og tnundi sízt vilja láta telja hana mælikvarða á list sína. Kunnugur. Skipaferðir: Yestri kom loks úr strandferð 12. þ. mán. að kveldi. AIl margir farþegar m. a. Björn Sveinsson kaupm. Sth., Sigur- björn Magnússon bondi frá Glerárskóg utii, C. F. Möller verzlunaragent o. fí., o. fl. Ceres kom frá útlöndum mánudags- morgun 14. þ. mán., 2 dögum á undan áætlun. Farþegar: Jón Brynjólfsson kaupm., Magnús Stephensen verzlunarm., Bjarni Björnsson leikmálari, JónasGunn- arsson kaupm. frá Akureyri o. fl. Reykjavikur-annáll: Aflabrögð: Þrjá skip fórn út til veiða I okt. og eru nú komin inn. Þau hafa aflað: Haraldur (Duusverzlun) 4—5 þús., Sjana (Edinborg) 8000, Morning Star (Edinborg) 11000. Árni Pálsson sagnfræðingur flytur á morg- un kl. 6 fyrsta erindi af fyrirlestrabálk er nefnist Höfuðþættir úr kirkjusiigu Islands fram á daga Jóns Arasonar. — Árui er prýðisvel máli farinn og ættu menn eigi að láta undir höfuð leggjast að hlýða á ræðu hans. — Það er Alþýðufræðsla stú- dentafélagsins, sem stofnar til fyrirlestr- anna. Þeir verða haldnir i Iðnaðarmanna- húsinu. Fasteignasala Þingl. 17. nóvbr. Jónatan Jónsson gullsmiður selur Bene- diktu Gabriellu Kr. Benediktsdóttur svo- nefnda Kasthúsalóð, 960 ferálnir, liggjandi við Laugaveg 25, með bæjarhúsum, skúr og girðingu fyrir 950 kr. Dags. 15. nóvbr. Ari Jónsson alþm. fær afsal fyrir hús- byggingu i Sauðagerði samkvæmt bygging- arsamningi við Harald Guðmundsson. Dags. 5. nóvbr. Fisksalan til Englands. Botnvörpungarn- ir frónsku hafa nýverið selt fiskfarm sinn á Englandi: Marz fyrir 575 pd. St. (10350 kr.), Jón forseti fyrir 500 pd. (9000 kr.) og Snorri fyrir 452 pd. St. (8136 kr.). Fjárhagsáætlun Reykjavikur var rædd — 2. umræða — á bæjarstjórnarfundi á fimtu- daginn. Stóðu umræður 6 tíma og varð eigi lokið. Niu menn úr bæjarstjórn höfðu komið fram með margar breytingartillögur i þá átt að færa niðnr gjöldin — svo að út8vörin lækkuðu. Varð úr þessu mikil rimma. — Umræðum frestað til aukafundar, næstkomandi fimtudag. Guðsþjónusta: í Dómkirkjunni kl. 12: Prestsvigsla. — Engin siðdegismessa. I Prikirkjunni kl. 12 Frikirkjuprestur. Hjuskapur. Ólafur Halldórsson ym. frá Fróðastöðum i Hvitárslðu og ym. Sigr. Snorradóttir Melkoti. Gift 12. nóv. Eiríkur Þorsteinsson ym. Vesturgötu 26 og ym. Jóhanna Björnsdóttir Vesturg. 26 Gift 18. nóv. Ekkjurn. Júst. Guðmundsson Vesturg. 54 °S ym. Guðrún Jónsdóttir. G.ft 12. nóv. Þórður Jónsson Skólav.stlg 45 og ym. Gróa Steinnnn Sveinbjarnardóttir. Gift 18. nóvbr. Prestsvígsla. Herra Þórhallur biskup vígir á moTgun i Dómkirkjunni, cand. theol. Þórð Oddgeirsson aðstoðarprest að Sauðanesi. Síra Bjarni Jónsson lýsir vigslunni. Binn nýi prestur prédikar. Erlendar fréttir miklar verða að bíða næsta blaðs vegna þrengsla. Úr andófsherbúðunum. Alt á sðmu bókina. Einar Hjörleifsson simaði til danska blaðs- ins Politiken, að á Ölfusárbrúarfundinum befði tillaga um að kalla þing saraan á reglulegum tima verið feld. Síðan hafa fundarstj. og fundarskrifari vottað, að tillaga þessi hafi komið fram og verið feld. En höfðingja-þernan Lögrétta er ekki al- veg ófeimin! Hún gerir sér lltið fyrir og simar Poli- tiken — meira að segja með nafni — að simskeyti það er E. H. hafi sent — og blaðið alls ekki hafði séð — sé hlut- drœgnisleg ósannindi (tendenties Usand- hed). Dásnotur mælikvarði á gætni embættis- manuamálgagnsins og samvizkusemi! Dálitil saga nm sannleiksást »Lögréttu« og »Reykjavikur«. Einhverntima i haust sagði Lögrétta frá því, að Sveinn Björnsson yfirdómslögmaðnr væri i félagi vit: þrjá aðra menn um leigu á silfurbergsnámum landssjóðs i Helgustaða- fjalli. í næsta blaði leiðrétti S. B. þetta; sagðist eigi vera í neinum félagsskap um leiguna á námunni, eða yfirleitt um námnna. í blaðinn þar á eftir segir Lögr., að það sé óþarfi fyrir S. B. að vera að neita þessu; bann sé i félagi við umrædda menn um námuleiguna. £r svo frjálslynd nm leið að bjóða S. B. rúm i blaðinu, ef hann vilji segja frá þvi hversvegna hann sé að neita þessu. S. B. mun ekki hafa nent að vera að endnrtaka leiðréttingu sina; áleit að henni yrði að trúa; órökstntt gaspur Lögr. um málið væri skoðað sem bæri. Enda þagði nú »Lögrj«. um málið. A laugar- daginn var kemur svo systirin, »Reykjav.«, og segir, að »allir viti« að S. B. sé í fé- lagi nm námu þessa. í siðasta blaði fer »Lögr.« eitthvað likum orðum um mál þetta. Ganguiinn er þessi: »Lögr.« skýrir rangt frá; réttur aðili leiðréttir. Svo liður nokk- ur timi; menn eru búnir að gleyma leið- réttingunni. Þá koma bæði blöðin og syngja í kór: *Allir vita, að S. B. er einn af fé- lögunum um silfurbergsnámuna«, þetta, sem þau bæði vita að hann hefir sjálfur lýst yfir að ekki sé! Tilgangurinn helgar meðalið. Það þarf altaf að vera að hnýta i ráðherrann. Ef ekki vill betur til þá er búin til saga um, að sonur hans sé að semja sér i hag við stjórnina. Og slikt er, auðvitað, óhæfa! Sonur ráðherrans lýsir þvl yfir að I ér sé rangt farið með. Þá er beðið nokkra stnnd. En sama sagan vakin upp eftir hæfilegan tima, i trausti þess að mennn hafi annað að gera en að vera altaf að leiðrétta mis- sagnir blaðanna Lögr. og Reykjav. Slikt mætti æra óstöðugan. En falleg og góðgjarnleg er aðferðin! -----503------ Landar erlendis. Prófessorsembætti í norrænu er nú fullyrt að eigi að verða tvö regluleg framvegis við haskóla Khafnar og eigi D a h 1 e r u p að fá annað, en F i n n u r J ó n s s o n hitt. Það ætlar þá ekki að reynast rótt, nema að nokkru leyti að Dahlerup eigi að setjast í embætti Wimmers. Þó er öðru nær en að ráð- stöfun þessi só fullráðin enn, því að til þess þarf íhlutun og samþykki þjóð- þingsins. Finnur Jónsson er sem stendur deild- arformaður (dekanus) í heimspekisdeild- inni. Páll Egilsson læknir er nýfarinn frá Khöfn til Víkur (Vig) á Vestur-Sjálandi til þess að gegna þar læknisstörfum í veikindum læknisins. Verður hann þar fyrBt um sinn ár. Jón Sveinbjörnsson cand. jur., er skipaður af verzlunarráðuneytinuþýðandi og túlkur í íslenzku — samskonar starfi og Jónas Einarsson cand. polit hefir á hetidi. íslcndingafélag hafði allfjölsóttan skemtifuud 5. nóv. í Kronprinsens- gade 7, þar sem íslenzku blöðin eru. Þar söng Sveinbjörn söngskáld Svein- björnsson og lék undir sjálfur; ennfrem- ur söng þar danskur leikari, Arvid Ringheim vísur og sagði skrítlur og loks sungu þau Einar Indriðason og Anna Klemensdóttir (landritara). Síðan hófst dansinn. Nokkru eftir miðnætti settust menn að sumbli og voru þar ræður fluttar. Meðal annars mintist Bjarni Jónsson frá Vogi á minnisvarðann yfir Jón Sigurðs- son og var í það tekið með miklnm fögnuði. Á skemtun þessari fór fram happ- dráttur á listaverki eftir Einar Jónsson (smámynd af Skýstróknum) og hlaut myndina maður norðan af Akureyri, er staddur var í Höfn. MÚmlnlL íæstkvö!dsogmorgna liymjUIH i Laugav. 18 A uppi, Skrifstofa Borgarstjóra Rvíkur er flutt í Kirkjustræti 4 »Ásbyrgi« Inngangur frá Tjarnargötu. Hreinar verksmiöjur og hrein og ómenguð sápa standa i nánu sambandi við hrein föt. Það stafar engin hætta af SINIIGHTSAPU Hún er áreiðanlega hrein og omenguð. ® »<Q A Leikfélag Reykjaviknr Nýársnóttin leikin á morgun (sunnudag 20. þ.m.) kl. 8 síðd. í Iðnaðarmannahúsinu. Aðgöngumiðar seldir á sama stað á morgun frá kl. 10—12 og 2—8. Dömuhaítar seljast með afarmiklum afslætti, alt að hálfvirði, hjá Kr. Biering-Petersen Suðurgötu 10, uppi. (Vanal. heima kl. 2—7 siðd.) Nýútkomið á Eyrarbakka: Söngvar handa U. M. F. Verð 25. aurar. Fást á Aýgreiðslu Suður- lands, Eyrarbakka. Lærlingur óskast Ungur og efnilegur piltur getur fengið að læra gullsmíði hjá Magnúsi Erlendssyni gullsmið. Þingholtsstræti 5. Tapaöur hundur. Fimm krónur í fundarlaun. Hundur tapaðist, gulur að lit, með hvítan kraga um hálsinn, svart trýni, með uppstandandi eyru, fremur loð- inn. Ef einhver skyldi finna hann er hann beðinn að skila honum til und- irritaðs. Laugaveg 20. E. Milner. Systrakvöld i st. Dröfn nr. 55 þriðjudag næstk. Allir meðl. velkomnir. Dugleg og ráðvönd stúlka getur fengið vist nú þegar. Ritstj. visar á. Kvennúr tapaðist i miðbænum á miðvikudaginn. — Skilist í Her- kastalann. / cfag verður tiýja vefnaðarvörubúðin tilheyrandi verzl. Jóns f>órðarsonar opnuð. Inngangur frá Bankastræti 8. Jiorf margs konar, falleg og ódýr (2—10 aur.), nýkomin / bókverzíun Ísafoídar. Leiðrétting «1 grein strandarbúa. í 65. tölubl. ísafoldar er grein frá strandar- búa áhrærandi kennarana þar, og eins og mór þykir yænt um að heyra sagt frá Haraldi sem góðum dreng, eg þekki hann dálitiö og veit aö hann er efnismabur, kann eg þvi illa hve hnýtt er að ArnaTheodór Péturssyni, sem var kenn- ari í Njarðvikum. Eg vil þvi leyfa mér að gefa til kynna, að næstliðinn vetur stundaði hann kennarastarf sitt i Njarðvikum með mestu alúð og börnun- um þótti mjög vænt um liann. í prófinu fengu börnin góðan vitnisburð. Mér virðist og ástæðulaust að kasta skugga á hann fyrir það, að hann ekki hafi gengið 1 skóla, geti hann gert börnin jafnvel úr garði og skólagengnir kennarar. Keflavik 18. okt 1010. AgúBt Jónteon, (íorm. skólanefndar i Kefiav. skólahéraði.) Góð kaup í boði! Undirskrifaður hefir nú sem fyr til sölu ýmsar ágætar eignir, svo sem íbúðarhús og verzlunarhús á ágætum stöðum hér í bænum. Sömul. hefi eg til sölu jarðir mjög góðar, sem liggja í grend við Reykjavík. — Eignaskifti geta vel átt sér stað, svo sem á húsum, þilskipum, vélabátum o. fl. — Áreiðanlega er hér um mörg sérlega góð tækifæriskaup að ræða, og ættu menn því að hagnýta sér það. Bréflegar upplýsingar gefnar mönnum út um land, ef óskað er. Heima hvern virkan dag kl. io—n og 8—9. Reykjavík, Laugaveg 40. Talsími 152. Guðmundur Egilsson. Jiver sá sem þarf að láta innramma myndir ætti að koma með þær í Banka- stræti 14, því að þar er innrömmun áreiðanlega endingarbezt og ódýrust. Talsími 128. Jón Zoega. Talsími 128. Næshi sex daga verður alls konar vefnaðarvara seld með mjög niðursettu verði í verzlun G. Zoéga. Nú býðst tækifæri til að eignast með hægu móti hinar ágætu vörur, sem verzlunið er orðlögð fyrir að flytja. Gerið svo vel að koma, skoða og kaupa. Teppaúísala hjá Tý. Tborsfeinsson, íngóífsbvofi. Um 20 teppi verða seld fyrir hálfvirði. Brússelbútar er áður hafa kostað 5.65, seljast a kr. 3.00. Neftóbak, afbragðs gott og vel skorið, fæst hja Guðm. Olsen. Hjúpur kaupir bæzta verði Jiic. Bjarnason JJusfursfræfi í. Ol ía! 60 tunnur koma með Sterl- ing. Þeir sem hafa skrifað sig fyrir oliu hjá undirrituÖum, gjöri svo vel og veiti henni móttöku strax eftir komu Sterlings, á steinbryggjunni. Jón Árnason Vesturgötu 39. Talsími 112. Skinnkragi fundinn. Vitja má til stjórnarráðsdyravarðar gegn kostn- aðargreiðslu. Arstíðaskrá heilsuhælisins er flutt í Aðalstræti 18. Gjöfum veitt viðtaka þar á hverjum virkum degi kl. 1-3._________________________ Epli, «risk' Vínber, Appelsínur nýkomið til Guðm. Olsen. Tapast hefir bleik hryssa með marki: biti framan hægra og bragð aftan. — Vinsamlegast beðið að gera aðvart að Bergskoti á Vatnsleysuströnd. Styrktarsjóðnr skipstjóra og stýrimanna við Faxaflóa. Þeir er sækja vilja um styrk úr nefndum sjóði, verða að hafa sent bónarbréf þar að lútandi stíiuð til stjórnar Öldu-félagsins til undirritaðs fyrir útgöngu þessa árs. Styrkurinn veitist einungis félags- mönnum Öldu félagsins, ef þeir sök- um heilsubrests eður ellilasleika eru hjálparþurfar, samt ekkjum félags- manna og eftirlátnum börnum. Reykjavík, 14. nóv. 1910. Hannes Hafliðason. Arthur Shattuck. Bókverzlun ísafoldar hefir fengið nokkurar myndir af Shattuck piano- leikara, stórar og litlar, á 50 aura og 2 krónur. Verzlunin Frón, Laugaveg 24, kaupir haustull háu verði, Rammalistar eru áreiðanlega langódýrastir í Bankastræti 14. Taisími 128. J5n Zoega. I haust var mér dregin hvit ær og svart hrútlamb, mark: tvístýft aft- an h., gagnbitað v. Ærin er 4—6 v., afturhyrnt, fremur lítil. Þar eð kindur þessar eru ekki mín eign, getur réttur eigandi þeirra vitjað andvirðisins til mín gegn borgun þessarar auglýsingar, og semji við mig um markið. Hóli í Hvammshreppi í Dalasýslu, 14. okt. 1910. Halldór Guðbrandsson. Trésmiðir! Trélim ættuð þið allir að kaupa í Bankastræti 14, þvi að þar er það gott og ódýrt. Jón Zoega,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.