Ísafold - 11.11.1911, Blaðsíða 3

Ísafold - 11.11.1911, Blaðsíða 3
ISAFOLD 8U Flokkaskiftingin á ankaþinginn. Nú er að eins ófrétt um hvor þeirra Skúla Thoroddsen og Magnúsar Torfasonar verður hlutskarpari i Norð- ur-ísafjarðars., en með tilliti til flokka- skiftingar á næsta þingi skiftir það engu máli. Því að báðir eru þeir eindregnir sjálfstæðismenn. Eklti verður neitt um það sagt með vissu enn þá, hvernig flokkar muni skiftast á þinginu, hve margir þeir verða, hvort þeir verða 3 eða 4. En til hinna gömlu flokka, Sjálf stæðisflokksins og Heimastj.flokksins mun mega telja að minsta kosti 24 —25 af hinum kjörnu þingmönnum. Af þeim eiga heimanstjórnarmenn 15, þá: LHB, Eggert Pálsson, Einar á Geldingalæk, Jón Magnússon, sunn- mýizku Jónana 2, Pétur Gautl., Hann- es Hafstein, Stefán Stefánsson, Guðl. Guðmundsson, Þórarinn Jónsson, Tryggva í Kothvammi, Guðjón Guð- laugsson, Mattias Ólafsson og Hall- dór Steinsen. En sjálfstæðismenn: Björn Kristjáns- son, fens Pálsson, [ón Jónatansson1), Þorleif Jónsson, Benedikt Sveinsson, Ólaf Briem, Jósef Björnsson, norður- isfirzka þingmanninn, Björn Jónsson og Bjarna frá Vogi. Utan flokka munu vilja láta telja sig: Kristján Jónsson, Sig. Sigurðs- son, Sig. Eggerz, Sig. Stefánsson (allir móti uppkastinu). Magnús Andrésson, [ón Jónsson2), Valtýr Guðmundsson, Jóh. Jóhannesson og síra Einar Jóns- son (þessir 5 með uppkastinu). Ef gert er upp þingmannaliðið eft- ir uppkastinu, reynast 20 því fvlgjandi (15 heimanstjórnarmerm -J- 5 utanfl.) en andvígir því eru 14 (10 Sjálfstæð- isflokksm. og 4 utanfl.). Hugsanlegt er nú, að flokkarnir verði 4: 1. hinir eiginlegu sjálfstæðis- menn, 2. hinir eiginlegu heimanstj,- menn, 3. utanflokkamenn andvígir uppkastinu, 4. utanflokkamenn fylg- jandi uppkastin. Hitt er þó liklegra, að ekki verði þeir nema 3 og að utanflokkamenn- irnir halli sér að hinum gömlu flokk- um báðum. Yfirlit yfir atkvæðamagnið, kjósenda töluna að baki flokkanna mun Isafold birta síðar. Sjálfstæðismenn hafa að tiltölu miklu fleiri atkvæði sér að baki, borið saman við þingsætin, er þeir hafa hlotið og hefðu átt að fá talsvert fleiri þingsæti í hlutfalli við kjósendafylgið, svo sem sýnt verður fram á síðar. Dómur í hæstarétti er nýlega fall- inn í máli, sem höfðað var gegn Jónasi H. Jónssyni út af því, að hann var kærður af Jóni sannsögla frá Kolfreyju- staðf!) um rangan tramburð fyrir rótti. Meinsærisásökunin reyndist röng; en yfirdóminum fanst ástæða til þess að dæma hann f 14 daga einfalt fang- elsi eftir 149. gr. hegningarlaganna; liún hljóðar svo: »Hafi vitni af eintómu athugaleysi látið hjá líða að segja frá því, sem hann vissi málinu til skýringar, þá varðar það fangelsi, eða sektum ef miklar málsbætur eru«. Dóm þenna hefir hæstiróttur staðfest. Heimanstjórnarblöðin hafa skýrt frá þess- um úrslitum með þeim orðum, að Jónas hafi verið dæmdur í fangelsi Í14 daga, en þau segja ekki einfalt fangelsi eins og í dómnum stendur, treysta sýni- lega því, að með þvf geti fallið æru- mis8Ísóorð á manninn, sem er andstæðing- ur þeirra í stjórnmálum, af því aS sumar tegundir fangelsis geta haft slfkt í för með sór. Eu þessu afbroti fylgir euginn æruuiissir. Einfall fangeisi eru menu og dæmdir í t. d. fyrir meiðyrði. Ósignr ísafoldar. Audstæðingablöð vor kalla kosuingaúrslitin : ó s i g u r í 8 a f 0 1 d a r. Auðvitað er það ekki nema ánægjuiegt fyrir ísafold, að heuni skuli eignuð svo mikil áhrif og völd í landinu, að kosningaúrslitin skuli miðuð vib þetta: sigur eða ósigur Isafoldar. — Og ef þess er gætt, hversu mikill er hópur hinna sigruðu — slagar mjög hátt upp í tölu sigurvegaranna — þá er því síð- ur ástæða til fyrir ísaf. að vera hnfpin eða hrygg yfú þessum bollaleggingum and- stæðinga vorra. — Annars eru þeir furðu gleymuir, er þeir kalla þenna ósigur ‘) Um hann er þó ekki fnllvist, hvort hann vill láta telja aig i Sjálfstæðis/fofcfcn- um, en hann var þingmannaefni ijáifstæð- istnanna og mnn Lallast allur á þá sveifina. a) flann lýsti yfir því fyrir kosning- arnar, aö hann byði sig fram utanflokka. sjálfstæðismanna mesta ósigur, sem nokk- ur flokkur í heimi hafi nokkurn tíma beðið. Hvernig er það? Er ekki til ár, sem heitir: 1 9 0 8? Uppivöðsla ráÖherrablaðsins eftir þessar kosningar er harla brosleg, er þess er gætt, að þaö er bannfjendamdlgagnið sem talar. Þessar fán sálir, sem tyltn sér i hringinn þeirra H. D. og ö. F. viÖ kosn- ingarnar hér, ern iifandi vitni nm áhrif blaðsins og ættn að kenna þvi að bafa lægra nm sig eftir en áður. I þessn blaði er mikið nm það gasprað, að barist hafi verið nú við kosningarnar um valdameðferð, þ. e >óstjórn« B. J. — Petta segir blaðið nú, af þvi að sjálfstæðis- uienn urðu nndir. En á hinu er enginn vafi, að ef sjálfstæðismenn hefðu orðið ofan d, mundi hátt hafa sungið i tálknrm þess, að barist befði verið um sambandsmálið. Það hefði fleytt sjálfstæðismönnum inn á þing. — Blaðinu er sem sé trúandi til alls i bártogunar- og blekkingar-áttina, ef B. J. á i hlut. Svo er hatrið ramt til hans. Veldur þvi auðvitað það tvent, að B. J. hefir borið bannlögin fram til sigurs og hitt, að hann lét ekki Kr. J. haldast uppi bankaósvinnu hans bina nafntoguðu. — Blað- ið er margbúið að sýna það, að i dómum sinnm um B. J. er það bæði eineygt og rangeygt, þegar það er ekki alblint af ofstœki, og því ekki nokkurt mark á þvi takandi í þessnm efnnm, og mnndi raunar réttast að minu áliti að virða það alls ekki svars nokkurn tima. Vegna áhrifa þess þarf þess ekki — sbr. fylgið við kosn- ingarnar bér i bsnnm. Kári. Síraslitin, setn urðu víða um land í vikunni sem leið, eru nú bætt allstaðar, svo að simasamband er nú alstaðar um land alt. Víðsvegar að. A Súez skurðinum voru tekjurnar á síðastliðnu reikningsári 134 miljónir franka, 10 miijónum meira en árið áður. Útgjöldin voru 44 miljónir. — Ágóðinn af hverju hlutabréfi var 146- þús. frankar auk 25 franka vaxta. Stærsta stéttarfélag í heimi er sam- band þýzkra málmvinnenda. í því eru 500,000 félagar. * * I ríkinu Nevada hafa glæpamenn, sem dæmdir eru til dauða, öðlast leyfi til að fyrirfara sér sjálfir. * :f: Dýrmætasta vasaklút í heimi á He- lena Italíudrotning. Hann er 70,000 kr. virði og er úr kniplingum frá Feneyjum frá 15. öld. * * Daglegur kostnaður við útgáfu stór- blaðsins Local-Anzeiger í Berlín er 65,000 mörk (1 mark = 89 aurar). Styrktarsjöður skipstjóra og stýrimanna Þeir sem vilja sækja um styrk úr téðum sjóði verða að hafa sent bónar- bréf þar að lútandi til undirskrifaðs fyrir útgöngu þessa árs. Styrkurinn veitist einungis félags- mönnum Öldufélagsins, ef að þeir, sökum ellibrests eða heilsulasleika eru hjálparþurfa, samt ekkjum félagsmanna og eftirlátnum börnum. Reykjavik, 9. nóv. 1911. Haiines Hafliðason. Skiftafundur verður haldinn í bæjarþingsstofunni laugardaginn 18. þ m. ki. 12 á hád. í þrotabúum Timburverzlunarinnar Bakkabúðar, Bjarna Jónssonar og Þorsteins Þorsteinssonar. Verður þar og þá iögð fram skýrsla um eignir búa þessara og skrá yfir skuldir þeirra. Bæjarfógetinn í Reykjavík 11. nóv. 1911. Jón JTlagnússon. Alþyðufræðsla Studentafélagsins Matth. þórðarsou förnmeiij avör ður flytur erindi um alþingisstaðinn forna sunnudag 12. nóv. kl. 5 síðd. í Iðnaðarmannahúsinu. Inngangur kostar 10 aura. Leikféí. Heijhjavíhur leikur á morgun ílðnaðarm.húsinu kl. 8 síðd.: Skildingurinn Og Við þjóðveginn. Að eins þetta eina sinn. Aðgöngumiðar verða seldir á sama stað frá kl. 10—T2 0g2—8. Kjörskrá til niðurjöfnunarnefndar-kosningar í nóvember 1911, liggur frammi á bæjarþingsstofunni til 25. þ. m. Reykjavík 11. nóv. 1911. Borgarstjórinn. Poki með nærfötum o. fl. hirtur við bæjarbryggjuna í síðastliðnum apríl. Eigandi vitji í Þingholtsstræti 13. Stúlka sem hefir lært kjólasaum, óskar að sauma fyrir fólk úti í bæ. Afgreiðsla ísafoldar vísar á. Góð 2—3 herbergja íbúð óskast. Afgr. visar á. Til leigu nú þegar stofa og itið svefnherbergi samliggjandi. Forstofu- inngangur. — Mjög lítil leiga. —- Ritstjóri visar á. ff\ p A 1i t* Vi °g Vs kaupi J SwOt\l4i eg hæzta veröi. ___________Siggeir Torfason. Óskilasendingar þessar liggja á afgreiöslu gufuskipa- félagsins »T H 0 R E« í Reykjavík. Óraerkt: 1 fat hvalur. 1 tunna hvalur. 1 tunna fiskur. 1 tóm vintunna. 1 tóm kjöttunna. 1 fat runnið salt. 1 kassi ýmisleg áhöld. 1 poki fatnaður. 1 poki saltfiskur. 2 galv. rör. 1 búnt manilla og vír. 2 búnt galv. vír. 1 léreftspoki ýmislegt. 1 sjalklútur með ýmsu. 1 dunkur síld. 1 kassi með lampa. 1 poki fiður o. fl. 1 tunna ýmislegt, brennimerkt A.S.B. Merkt: Þ. B. Rvk. Passagergods. 1 kassi. E. Rvk. 1 búnt tómir pokar. J. J. Borðeyri. 1 tómt koffort. Þ. V. Rvk. 1 tómt hálfanker. J. B. 1 poki ull. S. E. ■ 1 tunna fiskur. Réttir eigendur eru beðnir að gefa sig fram sem fyrst. 10. nóvember 1911. Afgreiðsla gufuskipafél. ,Thore‘. Madlavning og Anretning (Borddækning o. s. v.) besörges hos Familier ved Selskaber og andre Fest- ligheder. Man henvende sig Bergstaöastræti 30. iarðarför móður okkar, Guðriðar Guðmundsdóttur, sem andaðist 8. þ. mán., fer fram miðvikudaginn 15. þ. mán. kl. II1/.. frá heimili hennar Lauga- vegi 54. Reykjavik II. nóv. 1911. Ágúst Jósefsson. Niels B. Jósefsson, prentari. bakarí. (Reynslan er sannleikur. Milliónir húsniæðra um ailann heiminn nota daglega Sunlight sapuna. Þær þurfa ekki á neinum röksemdum ab halda yrir þvi, að þetta sje bezta sápan, þvi það er hafið yfir allan efa. Reynslan hefur sannað bað! SUNLIGHT SÁPA Lúðrafélag Reykjavíkur ætlar að halda hlutaveltu 2. og 3. desember 1911, og treystir félagið þeim bæjarmönnum, sem unna lúðraspili, að styrkja það á ýmsan hátt. Félagið hefir ákveðið að spila úti öðru hvoru framvegis, þegar veður leyfir. Stjórnin. Bal & Selskabskjoler, Silkekjoler, Bluser, QLlAl4Ar syes ' e,e9an1e Faconer tii billigste Pris. OKJQÍTCÍ Systuen Grundarstíg 7. Familiesyning 25 kr. aarlig. Fru D. Svendsen. REINH. ANDERSSON • Hornið á Hótel Island. - Nýung*! Mikið úrval af misiltum mansjettskyrtum úr al-ull, endast á við 2—3 venjulegar skyrtur. Ágætar fyrir veturinn! Svartir Hvítir Mislitir Fóðraðir Vetrar Hanzkar eru seldir með ábyrgð (verða teknir ef þeír rifna nýirj. Munið eftir: V Horninu á Hótel Island. < Saumastofa L. TUutersens er í Hirkjustr. 10 1>ar er fjötbreijttast úrvat af fataefnum! Stórt uppboð verður haldið i Good-Templarahúsinu næstk. mánudag 13. þ.m. kl. 11 f. h. þar verður selt rneðal annars: Sfórf úrval af karlmannafatnadi. fltnavara, ýmsar feguncfir. Jtýr rúmfafnaður. Rammalistar, veggjapappír, gófffeppi. Jfúsgögn affjölda mörgum tegundum. Ubsaúr. Trésmiðaverkfæri óbrúkuð og ófaí margt fíeira. Notið þetta ágæta tækifæri til að kaupa góða og gagnlega muni fyrir lítið verð. Jónatan Þorsteinsson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.